Morgunblaðið - 29.09.1996, Blaðsíða 1
DUBLIN
►FERÐASKRIFSTOFAN Samvinnuferðir-Landsýn
efnir til skemmtiferðar fyrir konur til Dublinar 6.-10.
október næstkomandi. Edda Björgvinsdóttir og Sóley
Jóhannsdóttir stýra ferðinni. Ferðir af þessu tagi
hafa áður verið farnar á vegum S/L við góðar undir-
tektir, en þetta er í fyrsta sinn sem farin er sérstök
kvennaferð til Dublinar.
Edda og Sóley eiga að sjá um að stemmningin
verði góð meðal kvennanna og leiða þær um Dublin,
sem sögð er ein af gleðiborgum Evrópu. ■
Grísk eyja
►Hvernig er best að komast á
notalega gríska eyju eftir að
hafa unnið einhver afrek í vinnu
eða námi? Folegandros er í
Kýladaeyjaklasanum og þar
rættist draumur hins þreytta
námsmanns. Sigrún Sigurðar-
dóttir segir frá eyjunni og lýsir
meðal annars hreinni og óspilltri
ströndinni.
SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER1996 BLAÐC
FERÐA-
STEFNA OG
MENNING
►FERÐAMÁLARÁÐSTEFNAN
1996, sem Ferðamálaráð íslands
stendur fyrir, verður haldin i
Reykjanesbæ dagana 3. og 4. októ-
ber. Ráðstefnan er opin áhuga-
fólki um ferðaþjónustu og gefst
öllum kostur á þátttöku í umræðu-
hópum.
Einar Om Benediktsson fjöl-
miðlafræðingnr og Jónas Krist-
jánsson ritsljóri flytja erindi um
ferðaþjónustu og menningu og
Halldór Blöndal samgönguráð- .
herra um stefnumótun til framtíð-
ar. Á eftir ræðu ráðherra verða
flutt erindi með tilvísun til ein-
stakra þátta stefnumótunar; for-
maður Ferðamálasamtaka höfuð-
borgarsvæðisins fjallar um upp-
byggingu afþreyingar til framtíð-
ar, forstöðumaður Byggðastofnun-
ar á Akureyri um nýtingu lands í
þágu ferðaþjónustu og ferðamála-
fræðingur um gæði til framtíðar.
Haidin verður kynning á mögu-
leikum ferðaþjónustu á alneti og
samgönguráðherra
afhendir umhverfis-
verðlaun Ferða-
málaráðs. ■
Flugleiðir með átak til að styrkja sig sem leiðandi flugfélag á Norður-Atlantshafsleiðum
Flogið tvisvar á dag til London
Auglýsingaherferð
í Glasgow
FLUGLEIÐIR byija að fljúga níu
sinnum í viku til London frá og með
31. október næstkomandi, en
fimmtudaga og sunnudaga eru tvær
ferðir milli Keflavíkur og Englands.
London verður önnur borgin sem
Flugleiðir fara til tvisvar á einum
degi, hin er Kaupmannahöfn.
„Þetta skapar farþegum mögu-
leika á að koma á hádegi til Lond-
on, reka erindi sín um daginn og
fljúga aftur heim um kvöldið," seg-
ir Símon Pálsson, sölustjóri Flug-
leiða.
Hann segir að þessar nýju flug-
ferðir verði markaðsettar í Banda-
ríkjunum, Englandi og á íslandi.
Nýju ferðirnar gefa nefnilega ný
tækifæri með millilendingum í
Keflavík til að fara milli borga í
USA; New York, Boston og Bolti-
more annars vegar og London hins
vegar. Ferðir milli Keflavíkur og
London eru á kynningarverði til 15.
desember á 19.900 fram og til baka,
með skatti.
Fiugleiðir eru einnig með annað
markaðsátak á Bretlandseyjum,
því 27. október fjölgar flugferðum
milli Keflavíkur og Glasgow úr
þremur í sex eins og Ferðablaðið
hefur greint frá. Sigurður Skag-
fjörð Sigurðsson hjá Flugleiðum í
London segir að 11 vikna auglýs-
ingaherferð í Skotlandi standi nú
yfir vegna þessa.
„Auglýst er í öllum helstu fjöl-
miðlum í Skotlandi og á stórum,
3X6 metra, veggspjöldum,“ segir
Sigurður. „Einnig er 40 þúsund
bæklingum dreift til fólks í við-
skiptalífinu." Markhópurinn sem
höfðað er til telur þrjár og
hálfa milljón og auglýs-
ingaátakið á að leiða til
þess að væntanlegir ferðamenn
yfir Atlantshafið sjái auglýsing-
arnar alls níu sinnum.
Átak Flugleiða í Skotlandi er
liður í því að vera leiðandi flugfé-
lag á Norður-Atlandshafi. Sigurð-
ur segir að yfir vetrartímann í
Skotlandi séu aðeins tvö önnur
fyrirtæki sem fljúgi þaðan til
Bandaríkjanna, British Airways
og Air Canada.
Svar Flugleiða er því að bjóða
sex ferðir frá Skotlandi á meðan
til dæmis British Airways er að
fækka þeim í fjórar.
„Þetta er leið okkar inn á Skot-
landsmarkað og fyrirtækið bindur
miklar vonir um árangur við átak-
ið,“ segir Sigurður.
Símon Pálsson og Sigurður
Skagfjörð segja að bæði fleiri ferð-
ir til og frá Keflavík, London og
Glasgow opni marga möguleika
Leikfanga- og módelsafnið í London
Strumpar og stjörnustríd
Saffnið er í
20 her-
bergjum
og hvert
hefur sitt
þema.
ÞAÐ er auðvelt að ganga fram í tveimur samliggjandi húsum sem
hjá Leikfanga- og módelsafninu í eru mjög svipuð öllum nærliggj-
London, þar sem það er staðsett andi húsum í rólegu íbúðahverfi.
En það er þess virði
að leita, þar sem
þetta safn inni-
heldur í 20 her-
bergjum sem
hvert hefur sitt
þema, yfir sjö
þúsund leikföng
og líkön, sum
aldagömul og
önnur ekki enn
komin á markað-
inn. Safnið byijar
á líkani af kola-
námu sem námu-
verkamður í Wales
smíðaði í frístundum
sínum með hjálp eigin-
konunnar. Það lýsist upp
og allt fer af stað þegar
ýtt er á takka og svo gera mörg
önnur líkön og spil en í sum þarf
að borga nokkur pence. Yfírskrift
annarra herbergja eru m.a. Gufu-
vélar, Umferðarherbergi, Spil og
leikir og Framtíðarherbergi. Ferð-
in endar í leiktækjasal þar sem
hægt er að sjá gamlar handsnúnar
kvikmyndir af berum konum og
sjá inn í framtíðina með hjálp ótrú-
lega nákvæmrar lófalestrarvélar.
Þaðan er gengið inn í gjafaversl-
un, kaffíhús og garð. Hvort sem
það eru prúðuleikararnir eða post-
ulínsdúkkur sem kalla fram bern-
skuminningarnar, ættu allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi
í þessu skemmtilega safni; ekki
síst barnafjölskyldur.
The London Toy and Model
Museum, 21/23 Craven Hill, W2
(0171-402-5222). ■
Sólveig Einarsdóttir