Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 5
4 D FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ T MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Skallagrímur í fremstu röð á ný Borgfirðingar hafa getið sér gott orð í íþróttum frá því Skalla- grímur nam land í Borgarfirði en hann henti mikið gaman að aflraun- um og leikum og samkvæmt Egils- sögu var hann öðrum fremri á þeim vettvangi. Því var vel við hæfi hjá Borgnesingum fyrir tæplega 80 árum að nefna ungmennafélag staðarins eftir landnámsmanninum til að minna stöðugt á söguna í þeirri von að afrek frumherjanna hvettu liðsmenn félagsins til enn frekari dáða. Borgfírðingar geta státað af blómlegu íþróttalífi en knattspyrnu- lið þeirra hafa yfirleitt átt frekar erfitt uppdráttar á landsvísu, fyrst og fremst vegna fámennis. En allt í einu varð breyting á. í sumar fór í fyrsta sinn fram keppni sjö manna liða í 3. og 4. flokki á vegum KSÍ og varð Skallagrímur meistari í 3. flokki, fyrsti Islandsmeistaratitill félagsins í knattspyrnu. Meistara- flokkur fylgdi árangrinum eftir, er kominn í hóp bestu liða landsins og leikur í fyrsta sinn í 1. deild karla næsta tímabil, nokkuð sem varla hefur hvarflað að nokkrum manni í 80 ár. Leikið við vinnuflokka Ávallt vekur athygli þegar nýtt lið tryggir sér þátttöku í 1. deild karla í knattspymu. Kjartan Þorbjörnsson, ljósmyndari, og Steinþór Guðbjartsson, blaðamaður, könn- uðu hug manna í Borgarnesi í tilefni af ár- angri Skallagríms á nýliðnu tímabili. Landsliðsmaður í skólasundi EMIL Sigurðsson lék með drengjalandsliðinu í sumar og er fyrsti landsliðsmaður Skallagríms í knatt- spyrnu. Hann er 15 ára fjölhæfur íþróttamaður í 10. bekk en þar er sund á meðal námsgreina og var ekki annað að sjá en hann kynni vel við sig í lauginni með bekkjarbræðrunum. Svein Teitsson, Helga Daníelsson og Guðjón Finnbogason. Ég byrjaði að þjálfa yngri strákana þegar ég kom aftur heim úr námi fyrir lið- lega þremur áratugum. Þá var Ell- ert Sölvason, Lolli í Val, þjálfari á Sauðárkróki, og við hófum sam- skipti á milli félaganna með því að fara með yngri flokka norður. Sauð- krækingar voru töluvert á undan okkur í uppbyggingunni en mark- visst yngriflokkastarf hófst í raun ekki hjá okkur fyrr en á seinni árum. Lengi vel sendi Skallagrímur ekki lið í mót en liðsmenn félagsins voru venjulega uppistaðan í liði UMSB. Þá var undankeppni fyrir landsmót töluvert mál og svo var það riðlakeppnin í 3. deild um og upp úr 1970.“ Skallagrímur tók fyrst þátt í 3. deild 1973 en Guðjón þjálfaði meist- araflokkinn 1975 og aftur 1979. „Seinna árið vorum við með marga unga og efnilega leikmenn og kom- umst í úrslitakeppni í fyrsta sinn en tókst ekki að fara upp. Gunnar Valversson tók síðan við liðinu og undir hans stjórn tryggði það sér sæti í 2. deild 1980. Þetta lið var sterkt og svo til eingöngu skipað heimamönnum, strákum sem síðar stóðu sig vel með öðrum liðum. Þar má nefna Björn Jónsson, sem lék lengi með FH, Gunnar Jónsson, sem var markakóngur hjá ÍA eitt árið, Garðar bróður hans og Björn Axels- son, sem lék ma. með Selfyssing- um.“ Markvisst starf Skallagrímur var í 2. deild í tvö ár, lék í 3. deild 1983 og síðan í 2. deild en hætti keppni síðsumars 1986 og varð að byrja frá grunni í neðstu deild. „Strákarnir héldu Ekki lengur hlegið að ummælum stráksins pyrir fjórum árum sagði Emil Sig- urðsson í viðtali að draumurinn væri að leika með Skallagrími í 1. deild. Brosað, jafnvel hlegið var að ummælum stráksins, sem þá var 11 ára, en undan- farna daga hafa orð hans verið í háveg- um höfð í Borgarnesi. Hann átti ekki aðeins þátt í að draumurinn verður að veruleika á næsta ári heldur kom Skal- lagrími á blað í landsliðsmálum þegar hann var valinn í drengjalandsliðið í sumar. Hann lék fjóra landsleiki í Norðurlandamótinu og var þar með fyrsti leikmaður Skallagríms til að leika landsleik í knattspyrnu en knattspyrnu- deildin veitti honum sérstaka viður- kenningu af því tilefni í lokahófi sínu. „Skallagrímur var í neðstu deild þeg- ar ég byrjaði í fótbolta sex ára gam- all, en fljótlega sá ég fyrir mér að liðið ætti eftir að komast langt,“ sagði hann við Morgunblaðið. „Ég var í öllum íþróttum, sérstaklega í badmintoni og fijálsum þar sem ég hef 10 sinnum orðið íslandsmeistari. Það var gaman í þessu öllu, varpa kúlu, kasta spjóti og hlaupa, 'en ég valdi fótboltann því mér finnst hann skemmtilegastur. Allir tala um fótbolta og enski boltinn er sérlega vinsæll hérna en Manchester United er uppáhaldsliðið mitt og mér finnst Eric Cantona bestur." Skallagrímur númer eitt Emil er áfram gjaldgengur í drengja- landsliðið á næsta ári en hann missti af leikjum þess í riðlakeppni Evrópu- mótsins á dögunum, undirbúningurinn rakst á lokaundirbúning Skallagríms í 2. deild. „Sumarið hjá mér var auðvitað stór- kostlegt," sagði hann. „Ég hef æft vel, var með í því að koma Skallagrími í 1. deild og var valinn í drengjalandsl- iðið. Þetta var vissulega mjög gaman en ég var rosalega svekktur þegar ég var ekki valinn í landsliðið fyrir riðla- keppnina. Gaman hefði verið að spila fyrsta landsleik íslands í Borgarnesi en ég varð að velja á milli og valdi að beita mér alfarið í undirbúningnum með Skallagrími. Öllu máli skipti að komast upp og næsta mál á dagskrá er að halda liðinu í 1. deild.“ Fyrsti grasvöllur landsins var gerður í Borgarnesi 1940 en heima- menn fengu aldrei tækifæri tii að nota völlinn sem slíkan. Breska setuliðið reisti þar bústaði áður en hann var tekinn í notkun og síðar var vellinum breytt í malarvöll. En menn höfðu ekki svo miklar áhyggj- ur af vallaraðstæðum. „Fótboltinn var ekki á alvarlegu nótunum hjá okkur á þessum tíma,“ sagði Guðjón Karlsson, smíðakenn- ari í Borgarnesi, sem hóf að leika knattspyrnu með Skallagrími fyrir um 40 árum og hefur verið ná- tengdur félaginu síðan. „Þegar ég var að byija var ekki mikið um leiki. Við spiluðum einna helst við ung- mennafélag Stafholtstungna, þar sem Bjarni Helgason, garðyrkju- bóndi, var einna fremstur í flokki, og svo öttum við kappi við vinnu- flokka en vorum einkum með í fyrir- tækjamótum. 1. deildin var of fjar- læg en það var mikil upplyfting þegar Halldór „Donni“ Sigurbjörns- son, sem gerði garðinn frægan með gullaldarliði Skagamanna, vann hér um tíma og spilaði með okkur - það var gaman að leika við hliðina á slíkum snillingi. Samskiptin voru alltaf nokkur við Skagamenn og við fengum þjálfara þaðan eins og FORMAÐURINN Jakob Skúlason heldur hornstönginni og Kristmar Ólafsson, framkvæmda- stjóri deildarinnar, rekur smiðshöggið á framkvæmdir við völlinn fyrir fyrsta landsleikinn. GUDJÓN Karlsson byrjaði að leika knattspyrnu með Skallagrími fyrir um 40 árum og hefur verið nátengdur félaginu síðan. Smíðakennarinn er hér í hópi áhugasamra nemenda í 6. bekk. ekki út í mörg ár og við misstum liðið nánast á einu bretti. En við áttum efnilega stráka og með markvissu starfi hefur þetta verið hægt og sígandi á uppleið. Þjálfar- inn Sigurður Halldórsson vann ágætis starf og Olafur Jóhannes- son hefur haldið mjög vel utan um þetta í ár. Hins vegar er Jakob Skúlason, formaður knattspyrnu- deildar, arkitektinn á bak við ár- angurinn því hann hefur drifið menn áfram með óbilandi trú á árangur alla tíð.“ Samvinna margra Jakob, sem hefur verið formaður í sex ár, sagði að mikil vinna lægi að baki árangrinum og margir hefðu lagt sitt af mörkum. „Strák- arnir hafa verið tilbúnir að leggja mikið á sig, Ólafur þjálfari hélt þeim á fleygiferð í sumar og Sig- urður Halldórsson, forveri hans, var áður allt í öllu hjá meistara- flokknum, stjórnarmenn hafa verið öflugir og áhugasamir, Borgarnes- bær hefur stutt dyggilega við bak- ið á okkur og stuðningur einstakl- inga og fyrirtækja hefur fleytt okkur áfram. Mikið starf margra hefur því skilað þessum árangri.“ Formaðurinn sagði að Skalla- grímur hefði farið hratt upp á þessu ári og menn væru enn að átta sig á stöðunni en spennandi tímar væru framundan. „Við erum stoltir af gengi liðsins en þurfum að laga okkur að breyttum aðstæð- um. Ekki er sjálfgefið að vera með lið í 1. deild og að mörgu þarf að huga. Umgjörðin er allt önnur og alvaran meiri en við eigum að venj- ast. Samningar við leikmenn eru lausir og hugsanlega bætast óhjá- kvæmileg útgjöld við það sem áður var. Ársveltan hjá okkur er um sex til sjö milljónir króna en við höfum alltaf haldið kostnaði í algjörum lágmarki með það að leiðarljósi að sparnaður er besta fjáröflunin. Mér er sagt að ekki sé verra að reka lið í 1. en 2. deild og víst er að áfram verða 11 manns inná.“ íbúarnir hafa beðið Í80 ár UNGU guttarnir í Borgarnesi eiga sér fyrirmyndir í meistaraflokki rétt eins og pollar á öðrum knattspyrnu- stöðum landsins. Draumur bolta- strákanna Arnars Þórs Þorsteinsson- ar, sem er 10 ára og í 5. flokki, og Eggerts Sólbergs Jónssonar, sem er 11 ára og í 4. flokki, er ekki aðeins að feta í fótspor þeirra sem lengst hafa náð með Skallagrími heldur að gera betur. „Við stefnum að því að verða meistarar í 1. deild með Skalla- grími,“ sögðu þeir nánast í kór. Félagarnir fylgdust spenntir sem fleiri í Borgarnesi með lýsingu frá leik Skallagríms á Húsavík í síðustu umferð 2. deildar og leist ekki á blikuna lengi vel. „Mér leið ekki vel þegar Völsungur var 2:0 yfir,“ sagði Arnar Þór. „Eg var í badmintoni og heyrði úrslitin þegar ég var í sturtu. „Jess,“ var það fyrsta sem ég sagði.“ Eggert sagði að Skallagrímur hefði staðið sig mjög vel. „Árangur liðsins er frábær en íbúar hérna hafa beðið eftir þessu í 80 ár.“ Strákarnir voru boltastrákar á fyrsta knattspyrnulandsleiknum í Borgarnesi, viðureign Færeyja og Lúxemborgar, sem fram fór um miðja liðna viku, og á myndinni eru þeir með háfinn sem þeir notuðu til að ná í boltann þegar hann fór út í sjó rétt við hliðarlínu vallarins. Egg- ert er til vinstri og Arnar Þór til hægri. Með liðinu úr fjóiðu í 1. deild á átta árum Valdimar K. Sigurðsson, fyrirliði Skallagríms, hefur farið með liðinu úr fjórðu deild í þá fyrstu á átta árum og að öllu óbreyttu verður hann, að fróðra manna sögn, fyrsti leikmaðurinn sem spilar með sama liði í öllum deildum íslandsmótsins. Valdimar lék með Skagamönnum í öllum yngri flokk- unum og var í meistaraflokkshópnum 1988. „Ég komst varla í varaliðið og ákvað að fara með Sigurði Halldórs- syni, þjálfara, ásamt þremur leikmönnum til Skalla- gríms. Það var svo gaman fyrsta árið í 4. deiid að ég ákvað að vera áfram. Siggi var metnaðarfullur þjálf- ari og við fórum upp í 3. deild 1990 en vorum nálægt því að fara aftur niður í síðasta leik 1993. Við lékum við Víði í Garði á útivelli og tap þýddi fall. Staðan var 3:2 fyrir heimamenn þegar við fengum horn og áður en ég tók spyrnuna spurði ég hvað væri mikið eftir. Ein og hálf mínúta var svarið en við jöfnuðum upp úr hornspyrnunni, þeir byijuðu á miðju, við náðum boltanum og náðum að skora áður en flautað var til leiksloka. Við fögnuðum eins og meistarar en árið eft- ir fórum við upp í 2. deild og nú kætumst við yfir sæti í 1. deild. En þetta sýnir að stutt getur verið á milli hláturs og gráts." Nafnið 1. deild frávísandi Samkvæmt spá þjálfara í 2. deild fyrir íslandsmótið í ár átti Skallagrímur að ljúka keppni í 5. sæti. Valdi- mar sagði að í raun hefði verið óraunhæft að ætlast til mikils af liðinu því miklar breytingar hefðu orðið á milli ára, sex strákar farið og færri komið í staðinn, og sumir búsettir fyrir sunnan. „Fyrir vikið var stund- um ekki nema ein æfíng vikulega með öllum hópnum en hópurinn var samstilltur og baráttan í lagi. Um mitt mót var staðan þannig að Óli þjálfari fór að tala um að stefna bæri að því að fara upp. Von margra varð að engu eftir Framleikinn fyrir sunnan og þær raddir heyrðust að við hefðum ekkert að gera í 1. deild. Óli stappaði í okkur stálinu, sagði allt annað kjaftæði því við værum með jafn mörg stig og Þrótt- ur. Við fengum líka að heyra að hópurinn væri fámenn- ur en þegar á reyndi skipti það ekki máli.“ Valdimar sagði að 1. deildin hefði ávallt verið fjar- læg í Borgarnesi. „1. deild hljómar vel, nafnið er fal- legt, en það hefur samt alltaf vísað okkur frá. Maður hefur einhvern veginn alltaf verið með það í hausnum þegar Skallagrímur hætti í 2. deild fyrir 10 árum. Þá las maður um ófarir liðsins og stór töp þess voru fors- íðufréttir." Jákvæð áhrif Mikill íþróttaáhugi hefur verið í Borgarnesi og ná- grenni og sagði Valdimar að árangur liðsins hefði þeg- VALDIMAR K. Sigurðsson með verðlauna- penlngana sem hann hefur fengið við för Skallagríms upp á milli deilda. ar haft jákvæð áhrif. Hins vegar væri erfitt að halda úti liðum í yngri flokkum, þar sem árgangar væru fámennir. „Áhugi á knattspyrnu hefur glæðst mjög mikið í sumar, fyrst og fremst vegna þess að við vorum í toppbaráttu í 2. deild, og við finnum fyrir enn meití meðbyr éftir að sætið í 1. deild er í höfn. Vegna fá- mennis getum við ekki teflt fram liði í 2. flokki og höfum ekki gert síðan 1990 en áhuginn í yngstu flokk- unum er gífurlegur. Strákarnir hugsa ekki um annað en knattspyrnu. Við höfum verið að narta í hælana á körfunni hvað vinsældir varðar en þessi áfangi breyt- ir öllu. Þetta er líka góð auglýsing fyrir bæinn sem verður ekki bara í sviðsljósinu eina helgi næsta sum- ar vegna 'Landsmótsins í Borgarnesi heldur í hverri viku.“ Borgarnes í um- ræðunni allt árið Oli Jón Gunnarsson, bæjarstjóri í Borgarnesi, sagði að mikið hefði verið lagt í íþróttir og íþróttaaðstöðu á staðnum og árang- ur knattspyrnuliðsins hefði veru- lega þýðingu fyrir bæjarfélagið. „Árangur í íþróttum eykur mjög samheldni íbúanna eins og hefur sýnt sig í sambandi við körfubolta- liðið okkar í úrvalsdeildinni," sagði hann. „Þar hittast menn og standa stíft með sínu liði og ég held að stuðningur við knattspyrnuliðið í efstu deild verði á sömu nótum, sem eykur enn á samheldnina í bænum og héraðinu." Vegna Landsmóts UMFÍ í Borg- arnesi næsta sumar var ákveðið að ráðast í miklar framkvæmdir við íþróttamannvirki. Glæsilegur iþróttavöllur með fullkominni frjáls- íþróttaaðstöðu var formlega vígður um Iiðna helgi, stefnt er að því að reisa sundlaug með heitum pottum og rennibrautum í vor og fyrir er íþróttahús og innisundlaug auk golfvallar og góðrar aðstöðu fyrir hestamenn. Indriði Jósafatsson, æskulýðs- og íþróttafulltrúi, sagði að mannvirkin kæmu gróskumiklu íþróttastarfi til góða en þau væru ekki síður fyrir almenning, sem nýtti þau æ meir og allt efldi þetta íþróttastarfið. Óli Jón tók í sama streng og áréttaði að mannvirkin væru ekki aðeins vegna Landsmótsins heldur til framtíðar með íþróttafólkið, al- menning og ferðamenn í huga. „Borgarnes er hliðhollt íþróttum og sveitarfélagið hefur sett mikið fjármagn í uppbyggingu íþrótta- mannvirkja sem eru ekki aðeins fyrir íþróttafólkið heldur lítum við á þau sem sjálfsagða þjónustu við íbúa byggðarlagsins og um leið álit- legan valkost fyrir ferðamenn. Við erum ekki enn farin að átta okkur almennilega á nýrri stöðu en um 2.000 til 3.000 manns eru í sumar- bústöðum í nágrenninu á knattspyr- nutímabilinu og ekki er ósennilegt að margir þeirra noti tækifærið og bregði sér á leik í 1. deild í Borgar- nesi. Þá liggur vel við að nota að- stöðuna í leiðinni og fara í góða sundlaug með heitum pottum og rennibrautum. Þannig að það að eiga lið í 1. deild er mjög spenn- andi og ég held að það verði byggð- arlaginu til ánægju og framdrátt- ar.“ Ögrandi verkefni Óli Jón sagði erfitt að segja til um hvort rúmlega 1.800 manna bæjarfélag gæti staðið undir tveim- ur liðum í efstu deild en það væri ánægjulegt og ögrandi verkefni. „Það hefur sýnt sig að Borgarnes er sannkallaður íþróttabær. Þegar körfuknattleiksliðið vann sig upp í ÓLI Jón Gunnarsson til vlnstri og Indriðl Jósafats- son í íþróttabænum. úrvalsdeildina var víða sagt að þaí færi strax niður aftur en þeir sem að því stóðu afsönnuðu þá kenningu með elju og dugnaði. Ljóst er að Borgarnes er mjög í umræðunni þegar allt er á fullu í körfuknatt- leiknum og knattspyrnumenn sjá til þess að umræðan verður í gangi allt árið.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.