Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 6
6 D FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ BÖRIM OG UNGLINGAR Nef- og heftiplástranotkun færist ívöxt „IMotum plástrana til að anda betur“ Okkur hefur gengið vel í sum- ar. Við höfum alltaf komist í úrslit og verið annað hvort í 1. eða 2. sæti. Við unnum Pollamótið í Vestmannaeyjum og Haustmótið. Við erum svona góðir af því að við erum með svo góðan þjálfara - hann Steinar [Guðgeirsson]. Annars er hann Villi [Vilhjálmur ^Þór Vilhjálmsson] bestur í liðinu. Hann skoraði þrennu í úrslita- leiknum gegn KR, sögðu nokkrir Framarar sem voru heldur betur í vígamóð í Laugardalnum á Haustmóti 6. flokks fyrir skömmu. Áberandi var hversu margir leik- menn notuðu nefplástra, en þeir sem ekki gátu nálgast slíka munað- arvöru notuðu bara heftiplástur og skelltu honum á nefið. Drengirnir sögðu að þessi plástranotkun þjón- aði miklum tilgangi. „Við notum plástrana til að anda betur. Við fínnum strax mun á okkur eftir að við erum búnir að setja hann á okkur,“ sögðu þeir. Er þeir voru spurðir hvort frammistaða þeirra batnaði strax eftir að plásturinn hefði verið settur á, svöruðu þeir, „Nei, ekkert rosalega.“ Þær íslensku léku á als oddi LANDSLIÐ íslands í körfu- knattleik, sem skipað var stúlk- um 16 ára og yngri, öttu kappi við iiðið Polonia, sem er skoskur meistari, og sigruðu með mikl- um yfirburðum, 62:21, í Skot- iandi á dögunum. Þær mættu einnig landsliði Skota skipuðu leikmönnum 16 ára og yngri, en ísland sigraði örugglega, 83:54. Ekkert dró af íslensku stúlkunum og völtuðu þær að lokum yfír lið Skota skipað leik- mönnum 17 ára og yngri á, 90:32. Morgunblaðið/EDRÖ Morgunblaðið/EDRÖ „Uppgjöf þekkir enginn hér“ FRAMSÆKiNN leikmaður KR geysist hér upp völlinn og tveir Framarar virðast reikna með að boltinn sé á leið útaf. KR-ing- urinn í baksýn getur ekki leynt vonbrigðum sínum. Á mynd- inni hér til hliðar eru vaskir Framarar sem tóku þátt í Haust- móti 6. flokks fyrir skömmu. F.v., Bjarki Þór Runólfsson, Kjartan Örn Sveinbjörnsson, Páli Arinbjarnar Kristjánsson og Vilhjálmur Þór Vflhjálmsson. Drengirnir voru alis ekki á þeim buxunum að setja á sig rándýra nefplástra aðeins fyr- ir myndatöku. Góðir sigrar drengjalandsliðsins á Lúxemborg og Færeyjum í Evrópukeppninni Farsedillinn á Evrópumót ið í Þýskalandi tryggður Morgunblaðið/Eyjólfur T. Geirsson Drengjalandsliðið sigursæla HIÐ sigursæla drengjalandslið íslands skipað leikmönnum 16 ára og yngri. Efri röð f.v., Ólafur Gunnarsson Stjörnunni, Jón Fannar Guðmundsson Grindavík, Olafur Páll Snorrason Fjölni, Þórarinn Kristjánsson Keflavík, Kristján Örn Sigurðsson Völsungi, Helgi Daníels- son Fylki, Andri Albertsson úr Þór, Daði Guðmundsson úr Fram og Auðunn Jóhannsson úr KR. Neðri röð f.v., Marel Baldvinsson Breiðabliki, Indriði Sigurðsson úr KR, Stefán Magnússon Víkingi, Benedikt Árnason FH, Gunnar B. Helgason Selfossi, Hjörtur Fjeldsted úr Keflavík og Matthías Guðmundsson Val. ÍSLENSKA drengjalandsliðið f knattspyrnu, skipað leikmönn- um 16 ára og yngri, lék gegn Lúxemborg og Færeyjum í und- anriðli Evrópukeppninnar á Akranesi og í Borgarnesi í síð- ustu viku. íslensku drengirnir sigruðu örugglega fbáðum leikjunum og hafa þvftryggt sér þátttökurétt í úrslitakeppni Evrópumótsins f Þýskalandi dagana 26. aprfl -10. maf á næsta ári. Morgunblaðið átti stutt spjall við þjálfara liðsins, Gústaf A. Björnsson. IEvrópukeppninni er leikið fyrst í 15 undanriðlum víða í Evrópu, en gestgjafarnir í úrslitakeppninni þurfa ekki að ieika Edwin í undanriðli. Alls Rögnvaldsson sextán lið öðlast sknfar þátttökurétt í úrsli- takeppninni í Þýskalandi næsta vor, en dregið verður í riðla hennar næstkomandi febrúar. íslenska drengjaiiðinu hefur gengið mjög vel í þessari keppni undanfarin ár. Fyrsta keppnin fór fram árið 1985 og er hún haldin á tveggja ára fresti, en Islendingar hafa komist fimm sinnum í úrslitakeppnina. Náðum markmiðinu Gústaf A. Bjömsson, þjálfari drengjalandsliðsins, vissi um leið og skipan undanriðlanna varð ljós að möguleikar íslands væru mjög góð- ir. „Um leið og það kom í ljós hverj- ir yrðu mótheijar okkar í undanriðl- inum gerðum við okkur grein fyrir að við áttum mjög góða möguleika á að komast áfram. Við lögðum líka ríka áherslu á að riðillinn færi fram hér á íslandi. Við náðum markmiði okkar, þ.e.a.s. að fá riðilinn hingað og sigra örugglega, þannig að fyrsta hindrunin er úr vegi. Þetta gerir það að verkum að leikmenn liðsins fá meiri þjálfun, bæði úr æfíngum og fieiri landsleikjum. Þannig fá þeir dýrmæta reynslu." „Við lékum fyrst gegn Lúxem- borg. Við vissum nákvæmlega ekk- ert um þeirra styrkleika né veik- leika, þannig að við renndum alveg blint í sjóinn. Við vorum bara ákveðnir í að leggja okkar leikað- ferð undir - héldum okkur við það sem við höfðum æft á undirbún- ingstímabilinu. Það var nóg til þess að færa okkur öruggan sigur, 3:0. Sá sigur var aldrei í hættu því þeir ógnuðu okkar marki nánast aldrei. í þeim leik gerði Þórarinn Kristjánsson öll þtjú mörkin." Öðru máli gegndi um leik ís- lensku drengjanna gegn Færeying- um, því öllu meiri upplýsingar lágu fyrir um lið þeirra. „Þegar þessi úrslit [sigurinn á Lúxemborg] lágu fyrir vissum við að möguleikar okkar á að komast áfram voru enn meiri, því við lékum gegn Færey- ingum á Norðurlandamótinu í Nor- egi í sumar og unnum þá 5:1. Við vissum því fyrir leikinn að við vor- um sterkari aðilinn. Það kom líka á daginn, því við vorum komnir yfir, 3:0, í leikhléi. Við sigruðum að lokum, 4:0, og náðum því mark- miði okkar - fengum ekkert mark á okkur." Á brattann aö sækja Gústaf gerði sér fulla grein fyrir því að róðurinn verður eflaust þungur í Þýskalandi næsta vor, en gat iítið tjáð sig um möguleika liðs- ins í úrslitakeppninni því enn er óljóst hvaða þjóðir [eika þar með íslendingum í riðli. „Ég veit auðvit- að ekki hvetjir okkar andstæðingar verða fyrr en dregið verður í febr- úar. Það er samt aiveg ljóst að mikið stökk verður úr þessari riðla- keppni yfir í úrslitakeppnina, því margir riðlarnir í undankeppninni eru mjög sterkir. Við komum vafa- lítið til með að eiga á brattann að sækja í úrslitakeppninni eins og alltaf í slíkum mótum. Við munum auðvitað vinna eins vet úr þessu eins og efni og aðstæður bjóða upp á. Það er ekki tímabært að fara að tala um markmið eða vænting- ar. Við þurfum líka að sjá hversu vel við getum búið okkur undir keppnina, því veturinn er erfiður tími hvað leikæfingu varðar hjá okkar drengjum,“ sagði Gústaf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.