Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 2
2 D FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ Wenger óhress með val Berg- kamps í landsliðið íutím FOLX ■ FRANZ Carr, fyrrum leikmað- ur Nott. For., Sheff. Utd. og Sheff. Wed., er farinn frá Aston Villa, til að freista gæfunnar hjá Reggiana á ítaliu. Carr er 30 ára. ■ MIKE Newell, sem Trevor Francis, knattspyrnustjóri Birm- ingham, keypti frá Blackburn á 775 þús. pund, hefur farið fram á að vera settur á sölulista, eftir að hafa aðeins verið sjötíu daga hjá liðinu. ■ ARSENE Wegner, knatt- spyrnustjóri Arsenal, mun stjórna liðinu í fyrsta sinn gegn Blackburn eftir níu daga. Hann hefur nýtt tíman vel síðan hann kom á Hig- hbury og mun kaila á hvern leik- mann liðsins á sinn fund og ræða við þá í hálftíma eða meir. ■ ERLAND Johnsen, Cavin Pe- acock, Mark Stein, David Lee og David Rocastle hafa allir farið fram á._að vera seldir frá Chelsea. ■ GLENN Helder, landsliðsmað- ur Hollands hjá Arsenal, segist vera ánægður hjá liðinu og sé ekki á förum. Franska liðið Marseille er tilbúið að borga eina millj. punda fyrir hann og hollenska liðið Vit- esse Arnhem 1,7 millj. punda. ■ BRIAN Little, knattspyrnu- stjóri Aston Villa, segir að hinn 36 ára Paul McGrath sé til sölu á 200 þús. pund. Þessi gamalkunni miðvörður var ekki valinn í írska landsliðshópinn fyrir leik Irlands og Makedóníu. ■ GIGI Maifredi, fyrrum þjálfari Juventus, er hættu störfum hjá knattspyrnufélaginu Esperance frá Túnis. Hann hefur m.a. þjálfað Bologna, Genoa og Brescia. Reiknað er með að fyrrum fyrir- liði Esperance taki við þjálfun liðs- ins af Maifredi. ■ FABRICE Moreau, miðvallar- leikmaður Toulon í Frakklandi, hefur gengið til liðs við spænska liðið Rayo Vallecano fyrir 13 millj- ónir íslenskra króna. Moreau, sem lék áður með Marseille, mun vænt- anlega leika fyrsta leik sinn með spænska liðinu á móti Hercules 13. október. ■ DUSAN Uhrin, landsliðsþjálfari Tékka, hefur valið varnarmanninn Miroslav Kadlec aftur í landsliðs- hópinn. Kadlec, sem er 32 ára, hefur verið meiddur en lék með Kaiserslautern í þýsku 2. deildinni um helgina og átti mjög góðan leik. „Ég sá hann leika á móti Leipzig og hann stóð sig það vel að hann kemur til með að styrkja hópinn,“ sagði Uhrin. Tékkar leika við Spánverja í Prag 9. október. Matt Le Tissier ■ DEMETRIO Albertini, miðvall- arleikmaður AC Milan, verður ekki í landsliðshópi ftala sem mætir Moldavíu á laugardaginn því hann er meiddur. Hann segist ekki gráta það því þá geti hann notað tímann og farið í brúðkaupsferð með eigin- konu sinni í staðinn. Hann gekk upp að altarinu með unnustu sinni, Oriana Capone, á mánudaginn. ■ INTER Milan hefur gengið vel það sem af er leiktíðinni og er nú í þriðja sæti, tveimur stigum á eft- ir Juventus sem er efst. Þrátt fyrir það hefur enski þjálfarinn Roy Hodgson verið gagnrýndur af eig- anda félagsins, Massimo Moratti, fyrir leiðinlega knattspyrnu. Félag- ið keypti marga leikmenn fyrir tímabilið, m.a. Hollendinginn Ar- on Winter, Frakkana Youri Djorkaeff og Jocelyn Angloma, Chilemanninn Ivan Zamorano og Svisslendinginn Ciriaco Sforza og fyrir hjá félaginu eru leikmenn eins og Englendingurinn Paul Ince og Argentínumaðurinn Javi- er Zanetti. ■ ULF Kirsten, framheiji Le- verkusen, var úrskurðaður í þriggja leikja bann fyrir fólskubrot í leik á móti Freiburg. Kirsten er næst markahæsti leikmaður deild- arinnar með sjö mörk. Hann verður ekki löglegur með liðinu fyrr en 18. október á móti Stuttgart. ■ BRUNO N’Gotty, landsliðs- maður Frakka sem leikur með PSG, verður frá vegna meiðsla næstu tvo mánuðina. Hann meidd- ist í leik á móti FC Vaduz í Evrópu- keppni bikarhafa í síðastu viku. Hann leikur því ekki með landslið- inu á móti Tyrkjum í París í næstu viku. ■ GLENN Hoddle, landsliðsþjálf- ari Englendinga og Graeme Sou- ness, knattspyrnustjóri Southamp- ton, eru sammála um að Matthew Le Tissier sé of þungur. Hann er 185 sm á hæð og vegur 76,8 kg. Le Tissier hefur nú þegar lést um tvö kíló en Souness segir að hann þurfi að losna við þrjú kíló í viðbót til að ná fyrri styrk á knattspyrnu- vellinum. Arsene Wenger, hinni nýi knattspyrnustjóri Arsenal, er óánægður með að Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Hollendinga, skuli velja Dennis Bergkamp í landsliðið. Bergkamp hefur verið meiddur og ekki getað leikið með Arsenal síðan um miðjan september. Hollendingar leika við Wales í undankeppni HM á laugardaginn. „Ég vona að Hiddink noti Berg- kamp ekki á móti Wales því hann hefur ekki getað æft með Arsenal í næstum þrjár vikur vegna meiðsla. Ég get ekki séð hvernig hann á að geta leikið með landslið- inu ef hann getur ekki leikið með okkur," sagði Wenger. „Það yrði hættulegt að láta hann spila. Hann gat ekki leikið sl. sunnudag á móti Sunderland og við viljum gefa honum góðan tíma til að jafna sig,“ sagði Pat Rice, aðstoðarmaður Wengers. „Hol- lendingarnir sögðu okkur að þeir vildu sjá með eigin augum hvort hann væri tiibúinn að leika eða ekki.“ Landslið íslands utan í dag ÍSLENSKA landsliðið leikur gegn Litháum í Vilnius á laugar- daginn í undanriðli heimsmeist- arakeppninnar. Lið þjóðanna, leikmanna 21 árs og yngri, mæt- ast sama dag r sömu borg og bæði liðin halda utan í dag með Fokker vél Flugleiða. A mynd- inhi messar Logi Ólafsson lands- liðsþjálfari yfir nokkrum manna sinna á æfingu í gær. Frá vinstri: Ólafur Þórðarson, Sigurður Jónsson, Kristján Finnbogason, Eyjólfur Sverrisson, Einar Þór Daníelsson og Ríkharður Jóns- son. Morgunblaðið/Asdís Bo velur danska hópinn BO Johansson, fyrrum landsliðs- þjálfari Íslands og nú þjálfari Dana, hefur valið liðið sem mæt- ir Grikkjum 9. október. Hann er með blöndu af yngri og reyndari leikmönnum. Laudrup bærðurnir eru í hópnum og eins markvörð- urinn Peter Schmeichel. Hann hefur einnig valið varnarmanninn Thomas Rytter, sem mun væntanlega leika annan landsleik sinn. Miðvallarleikmaðurinn All- an Nielsen og framherjinn Sören Andersen, sem skoraði í 2:0 sigri á móti Slóveníu í fyrsta leik Dana í riðlinum fyrir mánuði. Danska landsliðið er þannig skipað; markverðir: Peter Schmeichel (Manchester United) og Mogens Krogh (Bröndby). Aðrit' leikmenn: Jes Hoegh (Fen- erbahce), Jacob Friis-Hansen (Hamburg), Thomas Helveg (Udinese), Jacob Laursen (Derby), Marc Rieper (West Ham), Thomas Rytter (Lyngby), Ole Bjur (Bröndby), Bjarne Goldbaek (FC Kaupmannahöfn), Allan Nielsen (Tottenham), Mic- hael Schjönberg (Kaiserslaut- ern), Claus Thomsen (Ipswich), Sören Andersen (Álaborg), Brian Laudrup (Rangers), Michael Laudrup (Vissel Kobe, Japan), Peter Möller (Bröndy)og Peter Nielsen (Gladbach). Árangur á heimavelli I Ásaftir I I Loai I 1 1 1 Þín Lau./ Sun. 5.- 6. soktóber úrslit frá 1984 & i/if spá 1 Oxford - Bolton 0 0 1 0:2 "2 X 2 V T ~2 2 Charlton - Barnsley 6 4 0 21:14 1 X 2 1 X 3 Wolves - Reading 1 1 0 2:1 i u 1 4 Ipswich - Swindon 2 2 2 8:10 1 1 1 5 Grimsby - Q.P.R. 1 2 0 3:2 X 2 X 2 X 2 6 Manchester City - W.B.A. 5 1 1 14:10 1 1 X 2 1 X 7 Oldham - Port Vale 3 1 0 9:5 i i X 1 8 Bradford - Southend 0 0 0 0:0 1 1 1 9 Plymouth - Millwall 3 0 1 8:6 1 X 2 2 1 X 2 10 York - Watford 0 0 0 0:0 1 2 T 7 2 2 11 Bury - Blackpool 0 0 0 0:0 1 1 1 X 12 Gillingham - Bournemouth 0 0 0 0:0 1 X 1 1 13 Preston - Peterborough 0 0 0 0:0 1 X 2 1 X X ~ Hversu margir réttir síðast:' 1 9 \ 1 9 f TTöT (l£Á\\ Hve oft sigurvegari (vikur): I o | I o | I 4 | 1 Slagur spámannanna: Hvað marga rétta i heild: I 29 I I 30 | I 36 | 1 Ásgeir-Logi 2:3 Meðalskor eftir 4 vikur: I 7,3 | I 7,5 | I 9,0 | ITALIA SVÍÞJÓÐ 7. október 1 Brescia - Cesena 2 Chievo - Castel Sa. 3 Genoa - Bari 4 Lecce - Empoli 5 Padova - Palermo 6 Pescara - Foggia 7 Ravenna - Lucchese 8 Reggina - Venezia 9 Salernitana - Cremonese 10 Torino - Cosenza 11 Luleá - Spárvágen 12 Gunnilse - Etfsborg 13 Átvidaberg - Lundby úrslit Árangur á heimavelli frá 1988 2 0 0 0 ^ 0 0 0 2 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 1:1 0:0 0:0 0:0 0:0 3:1 0:0 0:0 0:0 0:0 0:0 0:0 0:0 Slagur spámannanna: Ásgeir - Logi 2:2 Hversu margir réttir síðast: Hve oft sigurvegari (vikur): Hvað marga rétta í heild: Meðalskor eftir 4 vikur: Ásgeir 34 8,5 Logi 8 34 8,5 9 35 M- Þín spá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.