Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 B 5 DAGLEGT LIF nyndin er frá 16. öld. og teiknipenna. VERK eftir nemendur Torfa í þýska bænum Monschauer. Skrift fyrr og nú Máttur stafanna BÖRN byija sex ára í skóia að draga til stafs. Letrið sem þau læra heitir Ítalíuskrift en hún leysti lykkjuskriftina, sem kynslóðin á undan lærði, af hólmi. Skrift er svo kennd þang- að til börnin byrja í ungl- ingadeild - og þá byrja hin- ar skapandi æfingar sem sumir kalla krot í stílabæk- ur. Höndin með pennann verður óstöðvandi að skrifa til dæmis nafn eiganda síns eða uppáhaldsleikara. Skrift unglinga er með öðrum orðum lifandi skrift. Þeir hafa agað sína rithönd og að vissu leyti skrifar hver líkt öðrum, en svo brýst sköpunarþráin út og tæki- færi gefst til að þróa sína eigin rithönd. Kjörið er fyrir teiknikennara í unglinga- deildum að hjálpa neinend- unum til að finna sína rit- hönd. Eftir unglingsárin geta ár stöðnunar gengið í garð nema fólk leggi rækt við skriftina og þrói hana áfram. Brot um skrift og stafi • Skrift er skemmtileg vegna þess að allt sem þarf er skriffæri og hugmynd. Ahugamenn um skrift vinna mikið með stafrófið í heild og möguleikarnir eru í raun ótæmandi. í bók sem Gunnlaugur SE Briem letur- hönnuður ritstýrði, Sixty Alphabets (Thames & Hud- son, 1986) birtir hann stafrófsmyndir eftir sextíu höf- unda, m.a. Torfa Jónsson, og niðurstaðan er ein- hvers konar óður til let- ursins. • Rithönd er eins og liluti af persónuleika manna og flesta langar til að skrifa vel. Þeir sem gera það ekki skammast sín stund- um fyrir skriftina og láta aðra skrifa fyrir sig eða vélrita. • Stafir eru tákn sem hafa fylgt manninum frá því sögur fara af honum. 1 þeim og orðum er saga hans geymd. I letri og táknum eru merkustu af- rek mannsandans; forng- rísk, asísk og afrísk verk hugsunarinnar. Talið er að elstu sálmar Gamla testamentis séu gerðir 1300 fyrir Kristsburð. • Til marks um máttinn á bak við stafina sem menn hafa trúað á eru galdra- stafir vitnisburður. Með þeim mátti seiða til sín fólk, valda atburðarás eða hindra, kveikja ást og jafnvel deyða. • Guð hefur líka verið táknaður með stöfum. I Jóhannesarguðspjalli stendur: „Ég er Alfa og Ómega,“ segir Drottinn." • Rúnir eru elstaskrifletur sem tíðkaðist með germ- önskum þjóðum. I eldri gerð rúna voru 24 tákn en í yngri 16 og hefur það fundist á Norðurlöndum og í Bretlandi, mest á rúnasteinum, meðal annars á íslandi. ■ STAFRÓFIÐ eftir Robert Boyajian. Úr bókinni Sixty alplmbets. Morgunblaðið/Golli AUÐUR og Sóley Halla nota kartonpappír í öllum regnbogans lit- um, bylgjupappír og japanskan pappír með silkiþræði í jólakortin. Búa til jólakort í október EFALÍTIÐ eru fáir sem i byijaaðundirbúajóliní g október eins og systurnar ' n Auður og Sóley Halla Þór- c - hallsdætur. Þær ætla ekki að bregða út af vananum í d3 ár og hafa þegar hafist SS- handa við að búa tiljóla- r£$_ kortin sem þær senda vinum 3S og vandamönnum. „Okkur finnst þetta óskaplega skemmtileg iðja og smám saman hafa þeir sem feng- ið hafa kort frá okkur beðið okk- ur um tilsögn, enda finnst fólki miklu skemmtilegra að fá hand- unnin jólakort en keypt í búð.“ Ný efni og nýjar aðferðir Þær systur segjast aðallega nota kartonpappír í öllum regn- bogans litum, bylgjupappír og japanskan pappír með silki- þræði, sem þær lita með sérstök- um silkilitum. „Við erum alltaf að prófa ný efni og nýjar aðferð- ir. Við höfum lært að bijóta pappír með svokölluðu japönsku broti, en þannig má útbúa alls kyns fígúrur til skrauts á kort- in,“ segja þær. Námskeið Auður og Sóley Halla, sem báðar eru kennarar og því þaul- *' vanir leiðbeinendur, ákváðu í fyrra að halda námskeið í jóla- kortagerð og fóru þá einkum á vinnustaði. „Við ætlum að endur- taka leikinn í ár enda var þátt- takan mjög góð í fyrra. Um tvö hundruð konur komu á nám- skeiðin. Núna erum við búnar að koma upp aðstöðu og hlökkum mikið til að hefjast handa.“ konur þurfa járn Járn er nauðsynlegt m. a. fyrir blóðið, vöðvana og heilann. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir konur og börn í vexti. Þar sem þörf er á nægu C-vítamíni til að járnið nýtist, er C-vítamín í okkar járni. Járntöflur eru fáanlegar í mörgu formi og nýtist líkamanum misvel. Ferrus Succinate nýtist betur en flest annað járn og veldur minni truflun í meltingarfærum. Þess vegna er Ferrus Succinate í járni Heilsu. I.. ■■ ■ ■ v LJhGilsuhusið Kringlunni & Skólavörðustíg GULI MIÐINN TRYGGIR GÆÐIN! i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.