Morgunblaðið - 06.10.1996, Side 1
Morgunblaðið/Kristinn
800 itiilliónum minna
frá ferðaþjónustunni
GJALDEYRISTEKJUR af ferða-
þjónustunni fyrstu sex mánuði árs-
ins eru tæpir 6,9 milljarðar króna,
samkvæmt upplýsingum frá Seðla-
banka íslands. A sama tíma í fyrra
voru tekjurnar hinsvegar 7,7 millj-
arðar. Tekjurnar hafa því minnkað
um 800 milljónir milli ára. Síðasta
ár var metár í gjaldeyristekjum, en
samdrátturinn nú veldur samt
áhyggjum innan ferðaþjónustunn-
ar.
Magnús Oddsson ferðamálastjóri
vekur athygli á að fargjaldatekjur
eru meiri fyrstu sex mánuðina núna
en í fyrra eða nærri 200 milljónir.
„Aftur á móti hefur eyðsla ferða-
manna í landinu minnkað um meira
en 900 milljónir," segir hann. Sam-
drátturinn í gjaldeyristekjunum
liggur því í minni peningaeyðslu
erlendra ferðamanna innanlands.
Fleiri útlendingar en í fyrra heim-
sóttu ísland fyrstu sex mánuðina
samkvæmt upplýsingum frá Út-
lendingaeftirlitinu. Fjölgunin nemur
7%.
Það, að fleiri ferðamenn komi til
landsins, merkir því ekki að gjald-
eyristekjur aukist. „Ferðamönnum
fjölgar nefnilega ekki frá mikilvæg-
um markaðsvæðum, eins og Norð-
urlöndum og Þýskalandi, en þaðan
hafa einmitt mestar tekjurnar kom- •
ið undanfarin ár,“ segir hann.
Ferðamönnum frá öðrum svæðum
fjölgar hinsvegar og meðaldvalar-
lengd þeirra er styttri.
„Þetta er í samræmi við það sem
búist var við miðað við þær breyt-
ingar sem voru að verða á samsetn-
ingu gestanna með tilliti til mark-
aðssvæða og dvalarlengdar," segir
Magnús Oddsson að lokum. „Þetta
þarf þó ekki að þýða minni tekjur
á árinu í heild, þar sem ákveðnir
jákvæðir hlutir hafa gerst undan--
fama mánuði." ■
SUNNUDAGUR 6. OKTÓBER 1996 BLAÐ C
Búist er við að um eitt þúsund manns taki þátt í víkinqasiqlingu frá Noreqi á næsta ári
JOL A KANARI
Hundrað skip til
íslands í víking
VÍKINGASIGLING með hundrað skipum og
bátum og að minnsta_ kosti þúsund þátttakend-
um verður farin til íslands frá Noregi næsta
sumar, með þeim fyrirvara þó að ekkert bregði
út af fram að því og veður verði viðráðanlegt.
Byijað verður á að halda tveggja daga vík-
ingahátíð í Floro sem hefst 27. júní. Síðan
verður lagt af stað til Hjaltlandseyja 29. júní.
Þar verður haldin tveggja daga víkingahátíð
og einnig í Færeyjum þegar siglingin nær þang-
að. Áætlað er að siglingin nái til Islands 9. júlí.
Dvalld á íslandl í vlku
Skipin munu koma að landi á Höfn í Homa-
firði. Bærinn á einmitt aldarafmæli á næsta
ári, þannig að búast má við að þar verði mikið
um dýrðir - enda vart hægt að hugsa sér betri
afmælisgjöf frá Norðmönnum en þessa víkinga-
heimsókn.
Sæfaramir munu svo dvelja á Islandi í viku-
tíma og verður efnt til ýmissa uppákoma af
því tilefni. Auk þess að ferðast um landið mun
hópurinn taka þátt í víkingahátíðinni í Hafnar-
firði.
Áætlað er að lagt verði af stað frá íslandi
14. júlí og verður komið við í Færeyjum og á
Hjaltlandseyjum á bakaleiðinni. Skipin munu
svo koma aftur til Noregs 28. júlí og hefur þá
víkingaferðin staðið yfir í mánuð.
Slgllngln vekur athygll
Fulltrúar frá Færeyjum, Hjaltlandseyjum,
íslandi og Noregi hittust í Floro um síðustu
helgi til skrafs og ráðagerða. Fyrirhugað er
að naglföst áætlun um fyrirkomulag ferðarinn-
ar liggi fyrir í nóvember næstkomandi og verð-
ur gefinn út bæklingur með upplýsingum um
löndin, ferðir, gistingu og fleira fyrir 25. nóvem-
ber.
Búast má við að siglingin hljóti mikla athygli
í fjölmiðlum, eins og svipuð sigling síðasta sum-
ar frá Noregi til Hjaltlandseyja hlaut.
■ Vonir/3
Morgunblaðið/Kristinn
VÍGALEGUR á víkingahátíð.
► ÞAÐ komast færri en vi\ja til
Kanaríeyja um jólin á vegum Flug-
leiða. Þijár vélar fara utan, 20. og
21. desember. Um síðustu jól fóru
tvær vélar með 378 farþega til
Kanaríejja. Þá komust færri en
vildu, og þvi er þriðju vélinni bætt
við nú. Samtals taka vélamar á
sjötta hundrað farþega, en töluvert
af fólki er á biðlista. Dóra Magnús-
dóttir, í upplýsingadeild Flugleiða,
segir ólíklegt að fleiri vélar fari til
Kanaríeyja um jólin, þar sem þær
séu bókaðar í öðrum verkefnum.
► Auður Sæmundsdóttir er aðal-
fararsljóri Flugleiða á Kanaríeyj-
um. „Við leggjum mikið upp úr ís-
lenskri jólastemmningu á aðfanga-
dagskvöld, en tíminn hér er sá sami
og heima á íslandi yfir vetrartím-
ann. Við söfnumst því saman klukk-
an sex og höldum hátíðlega stund.
Sumir kjósa að vera með sínum
nánustu „heima“ í íbúðunum, borða
hangikjöt og laufabrauð sem marg-
ir taka með að heiman, taka upp
pakka og lesa jólakort," segir Auð-
ur. „Aðrir fara í kirlq'u.“
► Gamlárskvöld er með svipuðu
sniði á Kanaríeyjum og heima á
Fróni að sögn Áuðar. Glens og gleði
ræður ríkjum og flugeldar eru
áberandi. ■