Morgunblaðið - 18.10.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.10.1996, Blaðsíða 4
pigyannftlaMft KNATTSPYRNA Hugarfaríd skiptir máli ef árangur á að nást Morgunblaðið/Ámi Sæberg Baldur Þ. Bjamason úr Stjörnunni, besti leik- maður 1. deildar karla í sumar að mati íþrótta- fréttamanna Morgun- blaðsins, segir m.a. í viðtali við Val B. Jóna- tansson að það sé orðið áhyggjuefni hve ÍA og KR eru að stinga önnur lið af í deildinni. Baldur Þ. Bjamason, leikmaður Stjömunnar, lék best allra leikmanna 1. deildar karla sl. sumar að mati íþróttafréttamanna Morg- unblaðsins og er þvi leikmaður Is- landsmótsins að mati blaðsins. Hann hlaut samtals 21 M, en næst- ur honum kom Leiftursmaðurinn Gunnar Oddsson með 19 M. Þrír leikmenn vora jafnir í þriðja sæti með 17 M. Þeir era Hermann Hreið- arsson, ÍBV, Ólafur Gottskálksson, Keflavík, og leikmaður mótsins í fyrra, Ólafur Þórðarson, fyrirliði íslandsmeistara ÍA. íjójó hlutverki Baldur er 27 ára og hefur æft knattspymu frá því hann var sjö ára gamall. Hann hefur reynt ýmis- legt í knattspymunni, allt frá því að verða íslandsmeistari með Fram árið 1990 og falla nokkram sinnum niður um deild. „Ég hef farið fjóram sinnum upp um deild og þrisvar sinnum niður. Þannig að það má segja að ég hafí verið svona eins og jójó undanfarin ár,“ sagði Bald- ur. Hann hefur leikið 11 landsleiki og vora það fyrstu leikirnir sem Ásgeir Elíasson stjómaði liðinu 1991-1992. Síðan hefur hann ekki verið inni i myndinni í landsliðinu. Baldur segir að hann hafi ekki al- veg fundið sig í boltanum árið 1993 og 1994 og það hafi verið utanað- komandi aðstæður sem hafi valdið því og hugarfarið ekki rétt. „í fyrra fór ég að hafa meira gaman af þessu aftur og sama hefur verið uppi á teningnum í ár. Ég held að þetta sé spurning um hugarfarið ef árangur á að nást. Undanfarin tvö ár hef ég haft meiri tíma en áður til að sinna fótboltanum.“ Reyni að sannfæra landsliðs- þjátfarann næsta sumar Gerir þú þér vonir um að vera valinn í landsliðið aftur? „Já, auðvitað geri ég það. Það hlýtur að vera markmiðið hjá öllum íþróttamönnum að komast í lands- liðið. En ég er ekki þar með að segja að ég hafi átt að vera í liðinu hjá Loga. Annaðhvort velur hann mig eða ekki og ég er ekki að ergja mig út af því. Ég verð bara að reyna að nota næsta sumar í að sannfæra landsliðsþjálfarann um getu mína.“ Yfirbyggður knattspyrnu- völlur er nauðsyn Baldur sagði að keppnin í 1. deild hafi verið gríðarlega spennandi og það hafi gert Islandsmótið skemmtilegt. „Það er langt síðan mótið hefur verið jafn spennandi og í sumar, bæði á toppnum og botninum. Sumir hafa verið að segja að knattspyrnan hafi verið lakari í sumar en oft áður. Ég er ekki sam- mála því. Það er þó staðreynd að við getum ekki bætt okkur mikið meira en orðið er nema að til komi yfirbyggður knattspyrnuvöllur sem hægt er að nýta yfir vetrarmánuð- ina. Við erum ekki samkeppnishæf- ir á erlendum vettvangi ef við spil- um fótbolta aðeins yfir sumarmán- uðina. Það hefur sýnt sig að þessir strákar sem hafa farið til erlendra liða bæta sig mikið á tiltölulega Hildur Vala ánægð með pabba HILDUR Vala, 4 ára, var ánægð þegar faðir hennar, Baldur Þ. Bjarnason, fékk blkar sem vlðurkennlngu fyrir að vera útnefndur leik- maður íslandsmótsins í knattspyrnu í sumar af íþróttafréttamönnum Morg- unblaðsins í vikunni. skömmum tíma. Það segir okkur að aðstöðumunurinn er of mikill. Yfirbyggður völlur mundi bæta þann mun veralega.“ Fullskapaður inn 11. deildina „Við eram ekki svo langt á eftir öðram þjóðum í yngri flokkunum. Unglingalandsliðin hafa sannað það. Ungu strákarnir sem hafa ver- ið að spila fyrstu leiki sína í fyrstu deild í sumar ráða yfír meiri tækni en áður þekktist. Það er gaman að sjá til leikmanns eins og Bjarna Guðjónssonar sem virðist stökkva fullskapaður inn í fyrstu deildina. Haukur Ingi Guðnason úr Keflavík er einnig mjög efnilegur. Svo get ég nefnt Brynjar Gunnarsson í KR. Hann spilaði mjög vel - framtíðar varnarmaður sem hefur gott auga fyrir samspili." „Falldraugurinn“ Hann segir að Breiðablik hafi valdið einna mestum vonbrigðum allra liðanna í deildinni í sumar. „Ég átti von á Blikum mun sterkari í deildinni í sumar. En þegar þessi „falldraugur" er á sveimi í kringum lið hafa þau ekki „karakter" til að standast pressuna. Þetta hefur lengi loðað við gamla liðið mitt, Fylki, og svo líka Stjörnuna. Knattspyrnu- ferill Baldurs Nafn: Baldur Þ. Bjamason Aldur: 27 ára Menntun: Hefur lokið atvinnu- flugmannsprófí og er á síðasta ári í viðskiptafræði í Háskóla íslands. Knattspyrnuferill: Byijaði að æfa knattspyrnu með Ármanni þegar hann var sjö ára. Flutt- ist upp í Árbæ 11 ára og skipti þá yfir í Fylki. Lék þar til 20 ára aldurs er hann skipti yfír í Fram 1989. Varð Islands- meistari með Fram 1990 og í öðra sæti 1. deildar 1991. Hann hætti með Fram á miðju tímabili 1992 og skipti aftur yfír í Fylki og lék með Árbæjarliðinu til 1993. Gekk árið eftir til liðs við Stjörnuna þar sem hann hefur ieikið síð- ustu þijú tímabil. Leikir í 1. deild: 33 með Stjömunni, 34 með Fylki og 42 með Fram. Hann hefur gert 17 mörk í 1. deild, þar af 6 með Stjömunni sl. sumar. Landsleikir: 11 A-landsleikir 1991-1992. Lék 7 leiki með U-21 árs landsliðinu. Lokahófið LOKAHÓF knattspymumanna úr 1. deild karla og 1. deild kvenna verður haldið í kvöld á Hótel ís- landi. Á þessari árlegu uppskerahá- tið verða veitt ýmis verðlaun að vanda, m.a. tilkynnt um val á líði ársins og hápunkturinn er ætíð þeg- ar tilkynnt er um val bestu og efni- legustu leikmanna deildanna að mati leikmanna sjálfra. Hófíð er opið knattspymuáhuga- mönnum meðan húsrúm leyfir. Húsið verður opnað kl. 19 og borð- hald hefst 45 mínútum síðar. Að borðhaldi loknu hefst svo sýningin Bítlaárin 1960-1970 og síðan verð- ur stiginn dans fram eftir nóttu. Ég er reyndar þokkalega ánægð- ur með gengi Stjörnunnar í sumar, við sigldum tiltölulega lygnan sjó. Við erum með góða og reynslu- mikla leikmenn. Það sem vantar upp á hjá Stjörnunni er hversu erfíð- lega gengur að búa til sterkan kjarna stuðningsmanna í kringum liðið og því eram við ekki með nægilega öflugan heimavöll. KR og ÍA eiga frábæra stuðningsmenn. Maður finnur fyrir þessu þegar leik- ið er á KR-vellinum eða uppi á Akranesi. Það er hvergi skemmti- legra að spila en á þessum tveimur völlum því stemmningin og um- gjörðin er svo góð.“ ÍA og KR í sérflokki „Það eru tvö lið, ÍA og KR, sem hafa bestu einstaklingana innan- borðs og þar eru líka mestu pening- arnir. Þessi lið eiga auðveldara með að fá til sín þá leikmenn sem þau vantar og því hafa þau ákveðið for- skot á hin liðin sem era að beijast í bökkum. Það hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir hin liðin í deild- inni hve þessi tvö lið eru að stinga af.“ Líflð er ekki bara fótbolti Baldur er ekki samningsbundinn Stjörnunni, en segist vel geta hugs- að sér að vera þar áfram. Hann hugar að framtíðinni og er á síð- asta ári í viðskiptafræði í Háskóla íslands, auk þess _sem hann hefur lokið flugnámi. „Ég verð líka að hugsa vel um framtíðina. Lífíð er ekki bara fótbolti."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.