Morgunblaðið - 23.10.1996, Blaðsíða 1
fHfflrgtutfrlaMfc
C
1996
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER
BLAÐ
Yngsti þjálfar-
inn rekinn
DAVID Shula var rekinn frá Cincinnati Bengals
í gær í kjölfar 28:21 taps liðsins í San Francisco
á sunnudag en það er neðst í sínum riðli í amer-
íska fótboltanum, NFL-deildinni. Mike Brown,
forseti og framkvæmdasljóri Bengals, sagði að
allir viðkomandi liðinu bæru ábyrgð en þjálfar-
anum væri refsað og það væri að mörgu leyti
ósanngjarnt því hann hefði staðið sig vel. David
Shula sem er sonur Dons, frægasta þjálfara í
sögu NFL, er 37 ára og yngsti þjálfarinn í deild-
inni en hann gerði samning til fimm ára í desem-
ber 1991. „Þetta snýst allt um árangur og úrslit-
in voru ekki ásættanleg,“ sagði Shula en árang-
ur hans hjá liðinu er 19 sigrar og 52 töp. Bruce
Coslet, sem hefur verið þjálfari á sóknarsviðinu
undanfarin tvö ár var ráðinn yfirþjálfari í stað
Shulas.
KNATTSPYRNA
Haraldur í
liði Aberdeen
á móti Rarth?
Haraldur Ingólfsson verður að
öllu óbreyttu í leikmannahópi
Aberdeen þegar liðið tekur á móti
Raith Rovers í skosku úrvalsdeild-
inni á laugardag, og Roy Aitken,
knattspyrnustjóri Aberdeen, vonast
til að geta látið Skagamanninn
spila. Aitken vill gera samning við
Harald til eins mánaðar til að byija
með en Haraldur er ekki tilbúinn
til að semja til svo skamms tíma
og verður ákvörðun um framhaldið
tekin eftir fyrrnefndan leik.
Eins og Morgunblaðið greindi frá
í gær fór Haraldur til Skotlands
um helgina og lék með varaliðinu
í fyrrakvöld þar sem hann gerði tvö
mörk í 3:0 sigri á varaliði Glasgow
Rangers. Ástæðan fyrir því að
Aitken vildi fá Harald er sú að
Steven Glass, miðjumaður á vinstri
vængnum hjá liðinu og skoska
ungmennalandsliðinu, er meiddur
og verður frá í nokkrar vikur, jafn-
vel einn og hálfan mánuð.
„Mér gekk vel í leiknum því fyr-
ir utan mörkin átti ég nokkrar
góðar sendingar fyrir markið og
gerði það sem fyrir mig var lagt,“
sagði Haraldur við Morgunblaðið í
gærkvöldi. Hann sagði að Aitken
hefði boðið sér samning í mánuð
en hann væri ekki spenntur fyrir
því. „Margt getur gerst á einum
mánuði sem getur komið í veg fyr-
ir að ég fái annað tilboð. Til dæm-
is yrði erfiðara að komast að artn-
ars staðar ef ég tæki þessu og mér
yrði síðan þakkað fyrir komuna
eftir mánuð. Hins vegar vill Aitken
sjá mig á móti sterkara liði en vara-
liði Rangers sem var skipað ungum
leikmönnum og hann hefur hug á
að setja mig inná á móti Raith
Rovers um helgina. Þá verður um-
boðsmaður minn kominn og í kjöl-
farið ræðum við framhaldið.
Aberdeen mætir Bröndby í Evrópu-
keppninni í næstu viku og því kem-
ur til greina að ég leiki með varalið-
inu annan fimmtudag en lengur
verð ég ekki nema samkomulag
náist um samning til einhvers
tíma.“
Aitken sagði á blaðamannafundi
í gær að hann vildi gera skamm-
tímasamning við Harald og sjá
hann .leika nokkra leiki áður en
ákvörðun um framhaldið yrði tekin.
„Hann hefur staðið sig vel á Is-
landi en knattspyrnan hér er á
öðru plani og hann þarf að sýna
að hann geti leikið í skosku úrvals-
deildinni," sagði Aitken.
HARALDUR Ingólfsson lék með ÍA á móti Raith Rovers í Evrópukeppninni í fyrra og mætir
skoska lidinu sennilega aftur um helgina en þá sem leikmaður Aberdeen.
GUÐNI Bergsson
Guðni og samhevjar
í Bollon lögðu Chelsea
Bolton er komið í 16 liða úrslit
í ensku bikarkeppninni í
knattspyrnu eftir sigur á Chelsea í
gærkvöldi.
„Þetta var ákaflega ljúfur sigur
og ekki hvað síst vegna þess að við
lentum 1:0 undir strax á annarri
rnínútu," sagði Guðni Bergsson
leikmaður Bolton og fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöidi. Þá var hann nýkominn heim
til sín eftir að hafa tekið þátt í
ásamt félögum sínum í Bolton að
leggja stjörnum prýtt úrvalsdeild-
arlið Chelsea 2:1 að velli á heima-
velli í 3. umferð ensku bikarkeppn-
innar.
„Á móti jafnsterku liði og
Chelsea er, er það ákaflega sterkt
að geta snúið við blaðinu, ekki hvað
síst eftir þá stöðu sem við lentum
strax í,“ bætti Guðni við og sagði
að rnikil gleði hefði brotist út á
meðal stuðningsmanna Bolton að
leik loknum eins og nærri mætti
geta.
„Við náðum að svara með tveim-
ur mörkum fyrir leikhlé og síðan
fór síðari hálfleikur meira og minna
í að verjast, en sókn þeirra þyngd-
ist skiljanlega eftir því sem á leið
síðari leikhluta. En okkur tókst að
halda fengnum hlut,“ sagði Guðni
og var sáttur við sinn hlut í leiknum.
Guðni sagði sigurinn vissulega
gefa liðsmönnum Bolton aukinn byr
í seglin í keppninni í 1. deild þar
sem liðið trónar í efsta sæti og
mætir Barnsley á útivelli á föstu-
dagskvöldið. Barnsley er í 3. sæti,
átta stigum á eftir Bolton.
■ Blackburn/C3
KNATTSPYRNA: DRAUMURINN AÐ LEIKA Á HIGHBURY í C4