Morgunblaðið - 23.10.1996, Qupperneq 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR
Dregið í 16 liða úrslit Evrópumótanna. KA og Stjarnan eiga fyrst heimaleik en Haukar byrja úti
Hann sagðist ekkert vita
um þetta lið enn sem komið
væri. „Við höfum leikið
nokkuð við Austurríkismenn
í landsliðinu og handboltinn
þar ber með sér að það eru
júgóslavnesk áhrif í landinu
enda margir þjálfarar það-
an. Félagsliðin eru mörg
með Ungveija og Júgóslava
þannig að ég reikna með lið-
inu nokkuð sterku. Fljótt á
litið gæti ég trúað að okkar
mörguleikar væru heldur
minni en þeirra, ekki síst
vegna þess að við eigum
fyrri leikinn heima.“ Hann
sagði að Einar Einarsson
hefði leikið í Austurríki einn
vetur fyrir nokkrum árum,
en líklega hefði ýmislegt
breyst síðan þá.
Haukar leika fyrri leikinn
gegn franska liðinu US
Creteil Handball í París, en
Frakkarnir unnu austur-
ríska liðið Ericsson frá Vín-
arborg 17:18 og 16:26 í
fyrstu umferð Borgakeppni
Evrópu. Sigurður Gunnars-
son, þjálfari Hauka, var
nokkuð ánægður með drátt-
inn. „Mér líst bara nokkuð
vel á þetta. Maður er alltaf
logandi hræddur um að fá
Dynamo eitthvað og þakkar
fyrir þegar maður sleppur
við slíkt. Eg var nú samt
að vona að við fengjum ann-
að hvort liðið frá Hollandi
eða Lúxemborg, það virtust
vera léttustu mótherjarnir.
Önnur lið virðast mér vera
nokkuð jöfn.
Þetta verður skemmtilegt
verkefni. Frakkar eru
heimsmeistarar og það verð-
ur skemmtilegt að leika við
þá og sjá hvernig við stönd-
um. Það gæti orðið gaman
ef við fengjum eitthvað af
fólki með okkur í leikinn úti
og breyttum vellinum í
heimavöll," sagði Sigurður.
Morgunblaðíð/Golli
Óskar og samherjar í
Haukum á leið til Parísar
ÓSKAR Sigurösson, einn af ungu leikmönn-
unum hjá Haukum, skorar í leik gegn Martve.
Haukar mæta franska liðinu Creteil í annarri
umferð og leika fyrri leikinn í París.
Evrópukeppni meistaralida
Leikið er heima og heiman í fjórum riðlum.
1. riðill: Barcelona, Spáni, Braga, Portúgal,
Granitas Kaunas, Litháen og Danetsk, Úkranínu.
2. riðill: Badei Zagreb, Króatíu, Pick Szeged,
Ungverjalandi, Runar, Noregi og Principe Tri-
erste, Italíu.
3. riðill: Kiel, Þýskalandi, Winterthur, Sviss,
Red Star Belgrad, Júgóslavíu og SKA Minsk,
Hvíta-Rússlandi.
4. riðill: Santander, Spáni, PSG Asnieres, Frakk-
landi, Lasko, Slóvenía, GOG Gudme, Danmörku.
Evrópukeppni bikarhafa
Magdeburg, Þýskalandi - FC do Porto, Portúgal
US d’Ivry, Frakkl. - Mosiavina Kutina, Króatíu
Bogdanci, Makedóníu - Savinesti, Rúmeníu
Skanderborg, Danmörku - P. Plick, Póllandi
KA - HC Herstal Liege, Belgíu
Veszprém, Ungverjal. - Víking, Noregi
Lemgo, Þýskalandi - Ortigia Siracusa, Ítalíu
Bidasoa, Spáni - Dukla Prag, Tékklandi
EHF-keppnin
PSK Riga, Lettlandi - Octavio Vigo, Spáni
Drott, Svíþjóð - Virum Sorgenfri, Danmörku
HC Prato, Ítalíu - Karlovcka Banka, Króatíu
Montpellier, Frakkl. - CSKA Moskva, Rússlandi
Jafa Promet, Makedóníu - Granollers, Spáni
Stjarnan - Sparkasse Bruck, Austurríki
Banik Karvina, Tékkl. - Flensburg, Þýskalandi
Stand, Luxemborg - Grorenje Velenje, Slóveníu
Evrópukeppni borgaríiða
Skövde, Svíþjóð - ASKI Ankara, Tyrklandi
Drammen, Noregi - Kovopetro Pizen, Tékklandi
Benfíca, Portúgal - Horn Sittardia, Hollandi
Adernar Leon, Spáni - D. Astrakhan, Rússlandi
US Creteil, Frakklandi - Stjarnan
Sandefjörd, Noregi - Dinamo Búkarest, Rúmeníu
Nettelstedt, Þýskalandi - St. Otmar, Sviss
Kolding, Danmörku - Differdange, Lúxemborg
móti mínum gömlu félögum," sagði
Alfreð.
Mótherjar Stjörnunnar í EHF
keppninni eru leikmenn Sparkasse
Bruck frá Austurríki en þeir lögðu
gríska iiðið Varies í fyrstu umferð-
inni; unnu 27:17 heima en töpuðu
21:16 í'síðari leiknum. Stjarnan á
fyrri leikinn heima. Valdimar
Grímsson sagði að sér litist nokkuð
vel á þetta. „Ég get ekki kvartað
yfir þessu en óskamótheijinn var
aðvitað Geir [Sveinsson hjá Mont-
pellier í Frakklandi] en það verður
að bíða þar til í næstu umferð. Ég
er alltént feginn að við þurfum
ekki að fara til Moskvu eins og
Geir,“ sagði Valdimar.
ÚRSLIT
Knattspyrna
England
Bikarkeppnin - 3. umferð:
Blackbum - Stockport.............0:1
Bolton - Chelsea.................2:1
Gillingham - Coventry............2:2
Ipswich - Crystal Palace.........4:1
Port Vale - Oxford...............0:0
Wimbledon - Luton................1:1
York - Leicester.................0:2
Skotland
Bikarkeppnin:
Dunfermline - Rangers............1:6
Þýskaland
Bikarkeppnin - 3. umferð:
Karlsmhe - Bochum................0:1
■Þetta er áhugamannalið með nafninu
Karlsruhe sem Þórður Guðjónsson og félag-
ar í Bochum slógu út að þessu sinni.
1860 Miinchen - Hamborg..........1:2
St. Pauli - Unterhaching............1:0
Freiburg - Meppen.............. 2:1
Spánn
1. deild
Zaragoza - Real Madrid...........1:2
(Gustavo Poyet 48.) - (Davor Suker 16.,
80., vítasp.). - 36.000.
Staðan:
Real Madrid 9 6 3 0 21: 8 21
Bareelona 8 6 2 0 29:11 20
La Coruna 8 5 3 0 14: 4 18
Real Betis 8 5 2 1 16: 5 17
Valladolid 8 4 2 2 12: 6 14
Real Sociedad 8 4 2 2 12:11 14
Valencia 8 4 1 3 13: 8 13
Racing Santander.... 8 3 3 2 11:12 12
Sporting Gijon 8 3 3 2 10:12 12
Atletico Madrid 8 3 2 3 12:10 11
Athletic Bilbao 8 3 2 3 11:14 11
8 3 1 4 16:10 10
Rayo Vallecano 8 3 1 4 12:11 10
Oviedo 8 3 1 4 11:12 10
Logrones 8 3 1 4 7:17 10
Celta Vigo 8 2 3 3 7:10 9
Espanyol 8 2 2 4 11:12 8
Zaragoza 9 1 4 4 12:17 7
8 2 1 5 8:21 7
Sevilla 8 1 2 5 4: 9 5
Hercules 8 1 1 6 4:17 4
Extremadura 8 1 0 7 5:21 3
Holland
1. deild:
Utrecht - Willem II Tilburg.........0:0
- 10.000.
DREGIÐ var í 16 liða úrslit Evr-
ópumótanna í handknattleik í
gær og við fyrstu sýn virðast
íslensku liðin nokkuð heppin
með mótherja. Ekkert þeirra
þarf að minnsta kosti að fara
til ríkja austan gamla járn-
tjaldsins, en KA mætir HC
Herstal Liege frá Belgíu,
Stjarnan mætir Sparkesse
Bruck frá Austurríki og Haukar
franska liðinu Creteil. Fyrri
leikirnir verða 9. eða 10. nóv-
ember og síðari leikirnir viku
síðar.
Alfreð Gíslason, þjálfari KA, var
þokkalega kátur með mótheij-
ana sem lið hans fær í Evrópu-
keppni bikarhafa, en Herstal frá
Liege vann Kaunas frá Litháen í
fyrstu umferðinni. KA á fyrri leikinn
heima. „Ég veit akkúrat ekkert um
þetta lið og ekki heldur hvernig ég
á að verða mér úti um myndband
með liðinu eða einhveijar upplýs-
ingar um það. Ég hefði frekar kosið
að eiga fyrri leikinn úti, sérstaklega
vegna þess að maður veit ekkert
um mótheijana. Belgía er reyndar
ekki hæst skrifaða landið í handbolt-
anum þannig að við ættum að geta
komist áfram. Eitthvað óvænt gæti
þó komið uppá og menn verða að
fara varlega," sagði Alfreð.
Hann taldi ólíklegt að leikurinn
yrði seldur út og einnig hélt hann
ólíklegt að KA myndi kaupa báða
leikina hingað heim. „Kaunas, liðið
sem Belgamir unnu í fyrstu um-
ferðinni, var lengi sterkt lið í Sovét-
ríkjunum og þaðan komu tveir
landsliðsmenn þannig að úrslitin í
fyrstu umferðinni gætu bent til að
Belgarnir séu með gott lið. Óskalið-
ið mitt var Bidasoa og vonandi fáum
við annað tækifæri til að dragast á
IULIAIM Duranona og félagar í KA taka á móti HC Herstal
Liege frá Belgíu í Evrópukeppni bikarhafa.
KÖRFUBOLTI
1.DEILD KVENNA
Fj. leikja U T Stig Stig
KR 2 2 0 153: 76 4
KEFLAVÍK 2 2 O 173: 108 4
ís 3 2 1 178: 156 4
UMFG 3 1 2 208: 176 2
UMFN 2 1 1 114: 142 2
ÍR 3 1 2 133: 253 2
BREIÐABLIK 3 0 3 136: 184 0
í kvöld
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla: kl. 20
Ásgarður: Stjarnan - ÍBV
Kaplakriki: FH - Grótta
Selfoss: Seifoss - Fram
Seljaskóli: ÍR - HK
Valsheimili: Valur - Haukar
1. deild kvenna:
Valsheimili: Valur- Stjarnan...,18.15
íslendingar
voru heppnir
mednæstu
mótherja
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1996 C 3
ÍÞRÓTTIR
Reuter
RANGERS átti ekki í erfiðleikum með Dunfermline í átta liða úrslitum skosku bikarkeppninnar
og vann 6:1. Á myndinni er Paul Gascoigne með boltann en Hamish French reynlr að ná honum.
Real Madrid á toppinn
Tvö mörk frá Króatanum Davor
Suker komu Real Madrid á topp
spænsku deildarinnar að sinni, einu
stigi á undan Barcelona, sem mæt-
ir Sevilla í kvöld. Madridarliðið
heimsótti Zaragoza og voru lokatöl-
ur leiksins 2:1 og réðust úrslitin tíu
mínútum fyrir leikslok er Predrag
Mijatovic féll innan vítateigs og
dómarinn dæmdi umsvifalaust víta-
spyrnu. Úr henni skoraði Suker af
öryggi. Stuðningsmenn Zaragoza
brugðust ókvæða við er vítaspyrnan
var dæmd, en þetta er í annað sinn
á þessari leiktíð sem félagið tapar
leik á vítaspyrnu á lokamínútunum.
Það gerðist einnig gegn Barcelona
fyrir skömmu. Ekki bætti það lund-
arfar þeirra er dómarinn vék heima-
manninum Vladislav Radimov af
leikvélli skömmu eftir vítaspyrnu-
dóminn. Einum færri tókst heima-
mönnum ekki að klóra í bakkann
og eru því enn meðal neðstu liða í
deildinni.
Blackbum úr leik í
bikamum á sjátfsmarki
Chelsea var ekki eina úrvals-
deildarliðið sem varð að gera
sér að góðu að ljúka þátttöku sinni
í ensku bikarkeppninni í gærkvöldi.
Englandsmeistararnir fyrir tveimur
árum, Blackburn, sem enn hafa
ekki unnið leik í deildarkeppninni á
þessu háusti, lutu í lægra haldi fyr-
ir 2. deildar liði Stockport, 1:0, á
heimavelii. Það var maðurinn sem
lyfti meistarabikarnum fyrir 18
mánuðum, Tim Sherwood fyrirliði
Balckburn, sem var svo óheppinn
að skora sjálfsmark sem nægði
Stockport til sigurs.
Það virðist ekkert ganga hjá Ray
Harford knattspyrnustjóra Black-
burn að snúa lukkuhjólinu sér í hag
og að leikslokum kröfðust stuðn-
ingsmenn félagsins afsagnar hans.
Balckburn er eina félagið af þeim
92 sem taka þátt í ensku deildar-
keppninni sem enn hefur ekki unn-
ið leik á leiktíðinni.
Leikmenn Wimbledon, sem sigr-
að hafa í síðustu sjö viðureignum
sínum í úrvalsdeildinni, náðu sér
ekki á strik í gærkvöldi gegn Luton
og urðu að gera sér jafntefli, 1:1,
að góðu. Liðsmenn Coventry lentu
einnig á hálum ís í leik gegn Gilling-
ham á heimvelli þeirra síðarnefndu.
Jafntefli, 2:2, var niðurstaðan og
eigast liðin því við að nýju.
Leicester var eina úrvalsdeildar-
liðið sem tókst að sýna mátt sinn
og megin í viðureignum gærkvölds-
ins og tryggði sér sæti í 4. umferð
með 2:0 sigri á útivelli á York.
York sló Everton úr leik í síðustu
umferð.
í skosku bikarkeppninni var einn
leikur og þar burstaði Rangers lið
Dunfermline 6:1 á útivelli. Danirnir
Brian Laudrup og Erik Bo Anders-
en skoruðu tvö mörk hvor í leiknum
og Derek Mclnnes og Jorg Albertz
bættu einu marki við hvor fyrir
meistarana.
KNATTSPYRNA
Júlíus og
Dagur með
á móti
Eistlandi
JÚLÍIJS Jónasson og Dagirr
Sigurðsson, landsliðsmenn í
handknattleik, sem gátu ekki
leikið með gegn Grikkjum í
undankeppni HM vegna
meiðsla, verða með gegn Eist-
lendingum 1. og 3. nóvember
í Laugardalshöllinni. Dagur
er byrjaður að leika af fullum
krafti með Wuppertal í
Þýskalandi og Júlíus, sem
leikur með svissneska liðinu
TV Suhr, er allur að koma til.
Thomas
Stuer-
Lauridsen
bestur
DANINN Thomas Stuer-
Lauridsen hélt uppi heiðri
Dana á Opna danska meist-
aramótinu í badminton sem
lauk um helgina. Hann sigr-
aði Ong Ewe Hock frá
Malaysíu í úrslitum, 6-15,15-7
og 15-12. Hock lagði meistara
undanfarinna þriggja ára,
ólympíumeistarann Paul-
Erik Hoyer-Larsen, í undan-
úrslitum.
Ástralir
heims-
meistarar í
skvassi
ÁSTRALIR urðu um helgina
heimsmeistarar I liðakeppni
kvenna í skvassi, unnu Eng-
lendinga 3:1 í úrslitaleik.
Michelle Martín, fyrrum
heimsmeistari kvenna, tapaði
fyrir Cassie Jackman 3-9,9-
4,9-4,7-9 og 7-9 í fyrsta leikn-
um en þær Liz Irving og
Sarah Fitzgerald, sem varð
heimsmeistari i síðustu viku,
unnu sína leiki nokkuð auð-
veldlega.
Uppbygging í Ástralíu
Næsta
landsmót
í golfi í
Grafar-
holti
NÆSTA landsmót kylfinga
verður væntanlega haldið á
Grafarholtsvelli Golfklúbbs
Reykjavíkur. Golfsamband
íslands sendi stjórn GR fyrir
nokkru fyrirspurn þess efnis
hvort klúbburinn væri tilbú-
inn að halda landsmótið og
tók sijórn GR vel í það. Hild-
ur Haraldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri GR, sagði í gær
að það væri heiður fyrir GR
að fá að halda landsmótið.
Ái'þing GSÍ ákveður endan-
lega hvar iandsmót fer fram,
en ekki er búist við að menn
hreyfi mótmælum við því að
keppa í Grafarholtinu.
Craig Johnston, fyrrum leikmað-
ur Liverpool, valdi frekar að
leika fyrir England en Ástralíu, þó
draumurinn yrði ekki að veruleika.
„Að leika knattspyrnu fyrir Ástralíu
er eins og að keppa á sjóbretti fyr-
ir England," sagði hann fyrir ára-
tug. Astralía komst í lokakeppni
Heimsmeistaramótsins 1974 í
fyrsta og síðasta sinn og fimm til-
raunir síðan þá án árangurs hafa
ýtt stoðum undir orð Johnstons en
nú virðist breyting í aðsigi í kjölfar
markvissra vinnubragða.
Slæmur fjárhagur
Fjárhagur ástralskra knatt-
spyrnufélaga hefur ekki boðið upp
á atvinnumennsku og því hafa bestu
mennirnir farið til annarra landa,
einkum í Asíu og Evrópu en reynsla
þeirra hefur eflt landsliðið. Nú eru
meira en 100 ástralskir atvinnu-
menn í útlöndum, þ.á m. markvörð-
urinn Mark Bosnich hjá Aston Villa,
miðvörðurinn Paul Okon hjá Lazio
og kantmaðurinn Stan Lazaridis hjá
West Ham.
Fyrrnefndir leikmenn eru úr fjöl-
skyldum sem fluttu til Ástralíu eft-
ir seinni heimsstyijöldina en inn-
flytjendur áttu stóran þátt í út-
breiðslu íþróttarinnar. Hins vegar
hafa þeir líka, að mati margra,
m.a. Knattspyrnusambandsins,
dregið úr þróuninni með því að
tengja sig við viðkomandi þjóðar-
brot og höfða þannig til fámenns
hóps frekar en þjóðarinnar allrar.
14 hálfatvinnumannalið eru í deild-
inni og meira en helmingur þeirra
hefur haldið fast í upprunann, m.a.
með því að hafa nafn fóstuijarðar-
innar í félagsheitinu og fánann í
merkinu. Davis Hill, formaður
Knattspyrnusambandsins, hefur
barist fyrir breytingum í þessu efni
undanfarna 18 mánuði með þeim
rökum að ná þurfi til knattspyrnu-
áhugamanna utan þjóðarbrotanna.
„Við höfum beðið félögin að taka
tillit til allra þegna Ástralíu. Félög-
in segjast ekki draga menn í dilka
en þau gera það með þessu fyrir-
komulagi."
Hill sagði að króatísk samfélög
í Sydney og Melboume styddu sín
lið og aðrir ættu ekki samleið með
þeim, sem kæmi niður á viðgangi
og vexti íþróttarinnar þegar til
lengri tíma væri litið. Þess vegna
hefði verið farið fram á að þjóðfán-
ar erlendra ríkja væru fjarlægðir
úr merkjum félaganna. Sum félög
tóku þessu illa, t.d. Sydney United
sem hét áður Sydney Króatía.
„Hvað með það þó við höfum sömu
liti í merkinu og eru í þjóðfána fóst-
uijarðarinnar til að minnast verka
frumheijanna?“ spurði Tony
Labbozzetta, fyrrum stjórnarmaður
Knattspyrnusambandsins og forseti
Marconi, félags í Sydney sem er
stutt af ítölskum innflytjendum.
Fleiri áhorfendur
En Knattspyrnusambandið stóð
fast á sínu og þegar deildarkeppn-
in hófst um helgina voru engir
tákn sem minntu á evrópsk samfé-
lög á treyjum leikmanna. Áhorf-
endum hefur fjölgað undanfarin
ár og voru um 4.300 að meðaltali
á leik í fyrra en sjö leikir fyrstu
umferðar að þessu sinni drógu ac
sér meira en 40.000 manns. Þai
af voru meira en 10.000 áhorfend-
ur hjá tveimur nýjum félögum.
Perth Glory og Collingwood Warr-
iors, sem studdi hugmyndafræði
Knattspyrnusambandsins, að mati
Hills. „Það sem er að gerast hjá
Perth og Collingwood er byijunir
á uppgangi í áströlsku knattspyrn-
unni,“ sagði hann.
Fyrrnefndur Johnston, sem náð
aldrei að leika fyrir England er
varð margfaldur meistari með Liv
erpool, tók í sama streng. „Það ei
spennandi að sjá leikinn þróast í a
meiri átt að atvinnumennsku og é(
styð breytingarnar 100%.“