Morgunblaðið - 01.11.1996, Side 4
4 B FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 B 5
DAGLEGT LÍF
DAGLEGT LÍF
FILIPPÍA Elísdóttir, fatahönnuður, hannaði og
saumaði pelsinn, sem fæst í versluninni Úrbaníu
eins og bolurinn og buxurnar.
HANDPRJÓNAÐ vesti og grófir, reimaðir rúskinns-
skór frá Max Mara.
ÞegarHUN
fær að ráða...
ÁSLAUG Snorradóttir segir að klæðaburður sé ákveðin list, í honum felist tjáning og
hann geti lýst viðhorfum manneskjunnar. Sjálf segist hún ekki endilega klæða sig
eins og hún vildi helst vera. „Stundum langar mig til að vera allt öðru-
vísi. Samt finnst mér mestu máli skipta að vera í fötum sem mér
líður vel í og henta aðstæðum hveiju sinni. Ég heillast af rándýr-
um, vönduðum og sérstæðum hátískufatnaði og læt örsjaldan eft-
ir mér að kaupa svoleiðis.
Hvíti pelsinn á Ragnar er lýsandi dæmi um að manneskjan
geti gefið flíkinni karakter. Ef mönnum líður vel í flíkunum þá
eru þær smart. Pelsinn getur virkað fyndinn á einum, tilgerðarleg-
ur á öðrum og glæsilegur á sumum. Sá sem klæðist svona pels er
á einhvern hátt öðruvísi og það eitt vekur fomtni mína. Undir
pelsinn valdi ég einfaldan bol og samlitar vattbuxur.“
Gamall og notaður smóking varð fyrir valinu hjá Áslaugu
sem samkvæmisfatnaður á Ragnar ásamt mynstraðri nælon-
skyrtu frá sjöunda áratugnum. „Ég hrífst einkum af gömlum
fötum vegna þess að þau voru hönnuð og saumuð til þess
að endast auk þess sem þau eru oft með fallegu, sígildu
sniði. Til þess að lífga upp á svarta litinn fannst mér skræ-
pótt töffaraskyrta passa mjög vel við . . . fráhneppt að hluta.“*
Um hversdagsfötin sem Áslaug valdi sér segir hún að þau
sýni hvernig hún vildi vera, a.m.k. stundum, en sé ekki.
„Mér finnst fötin heldur pjattleg fyrir lífsstíl minn núna.“
Snjáðar gallabuxur eru ef til vill ekki dæmigerður samkvæmis-
klæðnaður, en Áslaug segist ekki þola hefðbundinn klæðnað af
því tagi. „Ég vil líka vera í þægilegum klæðnaði í samkvæmum,
en ekki uppstríluð þannig að ég geti varla hreyft mig fyrir fínheit-
um. Með gallabuxunum valdi ég gyllta skó, pallíettuvesti, áberandi
skartgripi og veski úr hlébarðaskinni. Með skrautlegri samsetningu
fínnst mér gallabuxur vel geta gengið í samkvæmum. Þannig klædd
liði mér vel og þá er takmarkinu náð.“
m
Morgunblaðið/Rax
BLEIKT vesti skreytt pallíettum, silfurskór og hlébarðaveski
frá Fríðu frænku og armbönd úr smiðju Huldu Ágústsdóttur
í Kirsubeijatrénu.
HANN
um hennar
val
„MÉR finnst ég eins og hálf-
viti í hvíta pelsinum og myndi
aldrei láta sjá mig í slíkri flík.
Eiginlega vantar bara hvíta
kádíjálkinn með pelsinum, því
þá væri ég eins og dólgur í
einhverri amerískri stórborg.
Ég gæti þó trúað að pelsinn
væri fínn á konu og ef til vill
suma karla. Á mér er hann
frámunalega tilgerðarlegur og ég sé mig í
anda klæðast slíkri flík í vinnunni. Ég er
mun sáttari við val hennar á smókingfötunum
og skyrtunni skræpóttu. Þó myndi ég alls
ekki hafa hana fráhneppta eins og Áslaugu
fannst svo smart. I mínum huga er ímynd
gervigæjans maður með fráheppt niður á
bringu og sólgleraugu í myrkri.
Mér finnst hversdagsklæðnaðurinn, sem
SAMKVÆMISKJOLL
með pallíettum frá
versluninni Mondo og
skór með 15 sm háum
hælum eftir breska
hönnuðinn Vivian
Westwood. Skórnir
fengust í Úrbaníu.
Björk Hreiðarsdóttir á
Hárgreiðslustofunni
Delía & Samson sá um
hárgreiðslu Áslaugar.
SMOKINGFOT,
skræpótt töff-
araskyrta frá sjö-
unda áratugnum
og svartir lakk-
skór frá Fríðu
& frænku.
Þegar
fær að ráða...
RAGNAR Axelsson segist ekki vera tíður gestur í tískuverslunum og geri sér
ekki sérstakt far um að fylgja tískunni út í ystu æsar. „Ég hef þó einhveija
hugmynd um hvað er í tísku hveiju sinni, enda skoða ég mikið blöð og tíma-
rit. Ég vel mér fyrst og fremst þægileg föt og held mikið upp á peysur af
öllu tagi. Konan mín og dóttir kaupa stundum föt á mig og ég er allt-
af sáttur við valið, nema þegar þær reyna að fá mig til að ganga í
mjög grófgerðum skóm, en í þeim efnum er ég svoh'tið sérlundaður."
Þótt Ragnar sé ekki sérstakur áhugamaður um fatnað, segist
hann jafnan taka eftir ef fólk er í áberandi fínum eða smart
fötum. „Ég er ekki mikið fyrir sundurgerð í klæðaburði fyrir
sjálfan mig, enda kynni ég ekki að setja saman svoleiðis
múnderingu og er líklega of spéhræddur til að vera með ein-
hveija tilraunastarfsemi. Samt hef ég gaman af þegar fólk
þorir að klæða sig á ýktan og óhefðbundinn hátt.“
Ragnar nennir yfirleitt ekki að fara búð úr búð til að leita
sér að einni flík hér og annarri þar. Honum leiðistað máta, vill
kaupa allt á einum stað og helst þegar ekki er mikið að gera í
búðinni. Samkvæmur sjálfum sér keypti hann hversdagsfatnaðinn og
samkvæmisfötin í einni verslun. „Ég þurfti ekkert að skoða meira, þarna
voru föt sem ég gat vel hugsað mér að eiga. Samkvæmisfötin eru afar
einföld og þægileg. Af gömlum vana datt mér ekki annað í hug en að velja
hvíta skyrtu og bindi með, en eins og oft vill verða skipti ég um skoðun þegar
afgreiðslumennirnir sögðu að hárautt væri miklu fallegra við. í rauninni hefur mér
alltaf fundist að ég væri ekki ég sjálfur þegar ég er búinn að hnýta bindishnútinn
eða slaufuna."
Hversdagsföt Ragnars eru ekki óáþekk þeim sem hann gengur jafnan í. Hann
segir slíkan fatnað henta sér best í vinnunni, þannig búinn geti hann farið hvert
sem er og hvenær sem er eins og starfið krefjist. Hann kann vel við skærappel-
sínugula litinn á úlpunni, en með henni fannst honum ekki annað koma til greina
en velja peysu og buxur í hlutlausum lit.
Ekki velktist Ragnar í vafa þegar hann valdi samkvæmiskjólinn á Áslaugu.
„Ég skoðaði marga kjóla, en fannst þessi bera af þeim öllum. Hann er einstak-
lega glæsilegur, en hæfir þó varla nema við einstaka tækifæri. Valið á skónum
voru hins vegar algjör mistök hjá mér. Ég gerði mér enga grein fyrir hversu hælarn-
ir voru rosalega háir og að ég myndi líta út eins og hálfgerður dvergur við hliðina á konu
í svona skóm.“
Ragnari finnst pallíettur og alls kyns skraut vera vel við hæfí til hátíðabrigða, en
segist fremur hafa valið hversdagsföt Áslaugar með tilliti til notagildis. „Mér fínnst sport-
leg og fijálsleg föt yfirleitt fallegust á konur jafnt sem karla til daglegra nota. Klæðnaður-
inn, sem ég valdi á Áslaugu er einmitt í þannig stíl.“
Ljósmyndar-
arnir Áslaug
Snorradóttir
og Ragnar Ax-
elsson brugðu
á leik og völdu
föt, sam-
kvæmisfatnað
og hversdags-
föt, hvort á sig
- og hvort á
annað.
Eftir búðaráp-
ið Ijósmynd-
uðu þau svo
hvort annað í
skrúðanum.
Áslaug WPHpr valdiásig,
nýög fallegur. Eg
er ekki viss um að ég hefði
valið vestið, einfaldlega vegna
þess að ég hef ekki nógu næmt
auga fyrir kvenfötum þegar
þau hanga á herðatrjám. Þótt
gallabuxurnar hennar Áslaug-
ar slái pallíettukjólnum, sem ég
valdi á hana, ekki við, verð ég
að viðurkenna að líklega tæki ég ekki síður
eftir konu, sem mætti svona uppábúin í fínt
samkvæmi en þeirri í bláa kjólnum. Fyrir
minn smekk er samkvæmisbúningur af þessu
tagi heldur „flippaður", en vitaskuld skiptir
máli að konunni llði vel og finnist hún sjálf
vera smart. Ég býst við að það sé einmitt
forsenda þess að öðrum finnist hún það líka
- sem hlýtur að vera tilgangurinn."
„ÉG ER alveg sátt við fötin,
sem Ragnar valdi á sig. Hann
hefur sígildan smekk, velur
vönduð, vel sniðin og vel
saumuð föt. Þótt hann sé
fremur hefðbundinn í fata-
vali, er hann, gagnstætt mörg-
um karlmönnum, ófeiminn við
að lífga upp á heildarmyndina
með litum. Mér finnst mjög
skemmtilegt að hafa hárauðan skyrtubol
með jakkafötunum í stað hvítrar skyrtu og
bindis, eins og flestir hefðu trúlega valið.
Hversdagsfatnaðurinn finnst mér tilgerðar-
laus, smekklegur og lýsa mikilli orku. Ég
er viss um að margar konur eru sammála
mér um að Ragnar sé svolítið „skott“ í þess-
um fötum.
Ég gæti vel hugsað mér að eiga hvers-
dagsfötin, sem hann valdi á
mig. Hins vegar er samkvæm-
iskjóllinn ekki að mínu skapi.
Mér finnst hann yfirborðsleg-
ur, rétt eins og konan í honum
treysti á kjólinn en ekki sjálfa
sig. I rauninni finnst mér að
þannig uppábúin kona sjáist
varla fyrir kjólnum og hún
verði að passa að haga sér til
samræmis við kjólinn. Líklega finnst mörg-
um körlum konur í slíkum búningi afar
þokkafullar. Ég gæti ekki skemmt mér í
svona Barbie-kjól, auk þess sem skórnir
myndu algjörlega kyrrsetja mig því hælarnir
eru um 15 sm og vonlaust að ganga í þeim
hvað þá að svífa tignarlega um í ljúfum
dansi.“
JAKKAFÖTIN, rauði skyrtubolurinn og skórnir
fást í versluninni Books.
JAKKANUM frá Max Mara fylgir laus skinnkragi.
Skórnir og buxurnar eru frá sömu verslun.
HVERSDAGSFATNAÐINN valdi Ragnar Axelsson
einnig í versluninni Books.