Morgunblaðið - 01.11.1996, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.11.1996, Blaðsíða 6
6 B FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ + DAGLEGT LIF MEÐ AUGUM LAIMDANS Níðskrif um Island Q Rúna Guðmundsdóttir býr í Hull á austurströnd Englands, þar sem hún stundar fyrirtækjarekstur. y ÞEGAR maður býr í fjarlægð frá íslandi i °S gsrir sér grein fyr- ir hvað það er ótrú- <lega smátt og hvað útlendingar hafa tak- markaða þekkingu á landinu, fer ekki hjá því að manni hlýni ^ örlítið um hjartaræt- ■______I umar þegar minnst ■■■ er á litla Island. I Það er engin laun- Ý ■ ung á því að þjóðar- I ' J stolt okkar ísjendinga er töluvert. Á stund- um svo mikið að ligg- Lhm ur við belgingi og þess T vegna höfum við gott af því að láta stjaka ■■»...^ við okkur annað slag- Wið, svó við blindumst ekki af eigin sjálfs- ánægju og blindni. Hins vegar, þegar við lesum hreinar níð- greinar um land og þjóð í erlend- um tímaritum og dagblöðum er föðurlandsástinni nóg boðið. Þann 6. október síðastliðinn ritaði enskur blaðamaður, Ivor Herbert, ferðagrein um ísland í breska stórblaðið The Mail on Sunday. Grein þessi er skrifuð frá sjónarhorni atvinnuferða- langs. Á greininni er að skilja að Ivor þessi hafi aðeins dvalið á íslandi í örfáa daga, en engu að síður fellir hann áfellisdóm yfir landinu sjálfu og eru íbúar þess ekki undanskildir. Er grein þessi skrifuð af þvílíku þekking- arleysi og hroka að með ólíkind- um er, svo ekki sé minnst á þær alvarlegu afleiðingar sem slík skrif geta haft í för með sér fyrir ferðamannaþjónustu okkar íslendinga. Blaðamaðurinn hefur grein- ina á að lýsa því yfir að Island sé eitt af þremur löndum í heimi, sem hann hefur ekki getað beð- ið eftir að komast í burtu frá eftir aðeins stutta dvöl. Landið sé bara svört, ljót klettaeyja, án tijáa og akra, og Reykjavík sé ljót borg, þar sem á hæð einni tróni veitingastaður (Perlan, innsk. greinhöf.), sem einna helst líkjast drepkýli á sílikon- bijósti. Þar séu hvorki hallir né dómkirkjur til að gleðja augað. Ekki tekur betra við er hann hefur lýsingar á eyjarskeggjum: „íslendingar eru stórir og þung- lamalegir. Hvorki eldfjörugir eða kumpánlegir, né yfirmáta fyndnir. Þeir virðast svo háls- stuttir að helst minna þeir á skopmynd af stríðsmönnum Húna.“ Honum fannst ekki Þingvellir merkilegur staður, því þar finnst engin byggingarlist til merkis um hið foma þing. Þá lýsir hann Bláa lóninu á eftirfarandi hátt: „Bláa lónið, sem mikið hefur verið myndað og sýnir baðgesti í fagurblárri vatnsgufu, sitjandi á undarlegu grófu gijóti, er í raun svört eyðimörk við risa- stórt jarðhitaver, sem líkist helst einhveiju hræðilegu framtíðar- virki". Blaðamaðurinn vitnar í ferða- menn sem hann hitti á íslandi og virðist hafa tínt til allt nei- kvætt sem frá þeim kom. Hann lýkur greininni með því að benda á, að til að fá reglulegt þung- lyndiskast, sé rétt að skoða hina ömurlegu Grindavík og fylgja síðan ströndinni að herstöðinni í Keflavík, þar sem hermennim- ir og fjölskyldur þeirra séu vand- lega girtir inni og komi sjaldan út. _ Ég hef aldrei lesið neitt eins skelfilegt um ísland og þessa grein, nema af vera skyldi ferða- lýsingar ferðalanga fyrri alda. Hvemig blaðamaðurinn skrifar um landið er bæði niðrandi og sýnir takmarkalausa vanþekk- ingu. Sjálf hef ég ferðast mjög mikið og ekki hitt fyrir marga sem vita mikið um ísland. Reynsla mín hér í Englandi er sú sama, það eru ótrúlega fáir sem vita eitthvað um landið, jafnvel þó íslendingar eigi erfitt með að viðurkenna það. Imyndin sem landið okkar virðist hafa er kalt, dýrt og Björk! Það ætti því vart að koma á óvart að fáir Bretar virðast hafa áhuga á að heimsækja landið í sumar- leyfi, líklegast vegna þess hve lítið landið er kynnt og auglýst. Þegar almenn vitneskja um landið er svona takmörkuð, hvernig bregðast þá menn við lestri slíkrar greinar? Til að fá svör við því ákvað ég að spyija nokkra Englendinga. Bað þá að lesa grein Ivors og segja mér álit sitt. Undantekningarlaust voru þeir sammála um, að ef um einhvem áhuga á íslandi hefði verið að ræða í upphafi, þá hefði hann slokknað eftir þennan lestur! Hvemig bregðast á við svona níðskrifum má eflaust deila um, en þegar reynslan sýnir mjög takmarkaða þekkingu útlend- inga á íslandi, hlýtur það að hafa mikil áhrif þegar víðlesið blað birtir greinar af þessu tagi. Til að bregðast við þessu hafði ég samband við ritstjóra blaðsins og óskaði eftir að svara um- ræddri grein og reyna að draga upp aðra mynd af íslandi. Ekki síður að sýna fram á áhugaverða hluti sem skorti í grein breska blaðamannsins. Hef ég þegar lokið því og þegar þetta er skrif- að bíð ég eftir svari um birtingu hennar! Eins og áður segir getur umfjöllun af þessu tagi haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir ímynd íslands á erlendum vett- vangi og alls ekki síður fyrir íslenska ferðamannaþjónustu. Eitthvað hefur verið fjallað um grein þessa í íslenskum fjölmiðl- um, en alls ekki nægilega. Getur verið að íslendingar vanmeti áhrif neikvæðrar umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum og er þá ástæðan ef til vill sú að mörg okkar virðast telja ísland nafla alheimsins og bregðast því ekki við sem skyldi? Það er enginn vafí á því að sendiráð íslands eiga að vera vakandi fyrir svona umfjöllun og reyna þá að leiðrétta hana. Því hveijir eiga að vera málsvar- ar íslands erlendis aðrir en þeir sem þiggja fyrir það laun?! ERLA Vigdís og Sóley Gyða leggja síðustu hönd á hárgreiðslu Karenar Óskar og Karenar Birnu. FÍN um hárið í sandkassanum. Hárgreiósludagar í skóla dagheimilinu Skólagerói ILITLU húsi á lóð Kársnes- skóla í Kópavogi er rekið skóladagheimilið Skóla- gerði fyrir sex til níu ára nemendur. Fimmtíu og fimm börn dvelja þar misjafnlega langan tíma á degi hveijum. Líkt ogtíðkast á sambærilegum stöð- um eru þar matmálstímar og „drekkutímar“. Þar læra börnin og leika sér og vinna alls kyns uppbyggileg verkefni undir leið- sögn leikskólakennaranna. Undarleg angurværð Eins og að líkum lætur er jafn- an ys og læti, fjör og kæti. Suma daga dettur þó allt í dúnalögn. Börnin eru upptekin af áhuga- málum sínum og undarleg angur- værð hvílir yfir öllum. Einn slík- an dag er hárgreiðsla í hávegum höfð. Sóley Gyða Jörundsdóttir, forstöðumaður, Erla Vigdís Kristinsdóttir og Guðrún Björns- dóttir, leikskólakennarar, segja að krökkunum þyki óskaplega gott að láta greiða sér og þeim finnist gaman að vera með ýmsar kúnstugar hárgreiðslur. „í fyrra vann hér stúlka sem kunni að gera alls konar fléttur. Stelpurnar voru alltaf að biðja hana að setja fléttur í hárið á sér og smám saman lærðum við líka listina. Við eigum mjög notalegf stundir með börnunum þegar vi Greipaldinsafi breytir áhrifum sumra lyfja INNTAKA sumra lyfja með greipaldinsafa breytir áhrifum þeirra samkvæmt rannsókn- um, sem kynntar voru á ráð- stefnu bandarísku efnafræði- samtakanna í Orlando í Flórída í síðasta mánuði. Þannig innbyrt eru áhrif þeirra sögð geta aukist um 300% og gert annars eðlilegan lyfjaskammt stórhættulegan. Aðrir sítrusávaxtadrykkir, t.d. appelsínusafi, eru ekki sagðir hafa sömu áhrif. Við munnlyfjainntöku ásamt greipaldinsafa breytist lyfja- magnið sem fer út í blóðrásina. í kjölfar rannsóknanna eru þeir sem vinna að þróun lyfja áhugasamir um að gera lyf sín virkari með því að nýta sér eiginleika ávaxtarins. Rannsóknarmenn telja að efni í greipaldinsafanum hindri hæfileika ensíms í meltingarveginum til að bijóta lyfíð niður og opni þvi greið- ari leið inn í blóðrásina. Lagt er til að lyfsalar setji miða með varnaðar- orðum á sum lyfjaglösin. Fréttastofan The Associated Press greindi nýverið frá framan- greindum niðurstöðum og vitnar í nokkra vísindamenn, sem fengist hafa við rannsóknir af þessu tagi. „Þótt enn hafi ekki verið sýnt fram á læknisfræðilegt gildi greip- aldinsafans, lofa rannsóknir góðu,“ sagði lyfjafræðingurinn Barbara Ameer frá Princeton í New Jersey, sem kynnti niðurstöður sinar á ráð- stefnunni í Orlando. „Þeir sem taka inn svokallaða kalsíumblokkara, t.d. felódipín, ní- fedipín og skyld lyf, sem gefin eru við háum blóðþrýstingi og hjarta- öng, geta þrefaldað áhrif lyfsins með því að drekka greipaldinsafa um_ leið,“ segir Ameer. Áhrif greipaldins hafa verið rannsökuð í tengslum við algeng lyf, þar á meðal estrógen-hormóna- lyf, sem konur taka stundum á breytingaskeiðinu og jafnframt eru notuð í krabbameinslækningum, auk ofnæmislyfja, sem innihalda terfenadine, sem hérlendis eru nefnd teldanex og terex. Neysla greipaldinsafa innan tveggja stunda frá inntöku þessara lyfja er sögð hafa sýnileg áhrif, sem sjá megi á hjartalínuritum sjúklinga. Sparnaður Til lækninga eru mestar vonir bundnar við notagildi greipaldins í tengslum við líffæraflutninga. Vís- indamenn segja að greipaldin sem viðbótarefni lyfja geri líffæraþegum kleift að taka inn minni skammt af dýrum lyfjum sem ætluð eru til að koma í veg fyrir að líkaminn hafni líffærunum. Rannsóknir dr. Gary Yee, aðstoð- arprófessors við lyfjafræðiháskóla í Flórída, beindust að áhrifum greip- aldinsafa á cýklósporin, lyf sem m.a. iíffæraþegum er gefið til að draga úr hættu á að líkaminn hafni ígræddu líffæri. Dr. Yee komst að því að að greipaldinsafi eykur cýkló- sporinmagnið í blóðinu um allt að 40%. Hann segir uppgötvunina afar mikilvæga, því lyfið sé mjög dýrt, kosti fimm til tíu þúsund dollara á hvern líffæraþega á ári, sumir verði að taka lyfið alla ævi og margir verði að standa straum af kostnað- inum sjálfir. „Ávinningurinn af að drekka greipaldinsafa með sumum lyfjum felst í því að meira fer af þeim út í blóðrásina og þannig er hægt að minnka lyfjaskammtinn," segir dr. Yee. Þótt ávinningurinn kunni að vera einhver gagnast ávaxtasafínn ekki öllum sjúklingum eins og David Bailey uppgötvaði á rannsóknar- stofu sinni í heilsuvísindamiðstöð í Kanada. Hann komst að því að sum lyf tekin með greipaldinsafa geta leitt til að hættulega stór skammtur lyfsins er innbyrtur. Bailey grunar að slíkt hafi hent þá sem hafa veikst

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.