Morgunblaðið - 10.11.1996, Síða 4
4 D SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
! -
VEL fer um ökumann og kostur að hafa gírskipt-
inguna í mælaborði.
Morgunblaðið/Kristinn
FARANGURSRYMI aftan sæta er uppgefið 581 lítri.
SÆTI eru þægileg og aðgengi að öftustu sætaröð
er gott.
fi£ FJÖLNOTABÍLLINN Vito
S3 frá Mercedes-Benz kom á
H" markað nýlega. Vito er mun
kassalagaðri bíll en hefð-
ðC bundnir fjölnotabílar, t.d.
Espace, Voyager og Space
Sfi Wagon sem byggja á ein-
■■i rýmishönnun. Vito kemur í
tveimur útfærslum, annars
vegar sem sendibíll og hins
vegar sem fólksflutningabíll.
■g Viano, eða V-línan frá
Mercedes-Benz, er svo sami
bíll en mun betur búinn að öllu
leyti.
VW hefur einnig boðið bíl í þess-
um stærðarflokki sem kallast
Caravelle í fólksbílaútfærslu en
Transporter í sendibílaútfærslu.
Þessar gerðir fjölnotabíla hafa
hentað ágætlega fyrir leigubíla-
akstur enda taka þeir allt að tíu
manns í sæti (Caravelle) en Vito
hefur, eins og sakir standa, sæti
fyrir sjö manns. Hérlendis býður
Ræsir hf. bílinn með 2,3 lítra bens-
ínvél, 143 hestafla en einnig með
2,3 lítra dísilvél með forþjöppu og
millikæli, 98 hestafla. Dísilbíllinn,
110 D, var reyndur fyrir
skemmstu, búinn sjálfskiptingu.
Vito er framleiddur á Spáni og
er fyrsti bíllinn sem Mercedes-Benz
smíðar utan Þýskalands. Bíllinn er
4,66 sm langur, 1,87 sm breiður
og 1.89 sm hár og kemst því auð-
veldlega inn í flestar bílageymslur.
Caravelle er 13 sentimetrum lengri,
þremur sentimetrum mjórri og 4
sm hærri. Þrátt fyrir að taka sjö
manns í sæti er Vito lipur og léttur
í akstri og er reyndar 15 sm styttri
en E-línu langbakurinn.
Hrár aðInnan
Gluggar í Vito eru stórir, stuð-
arar breiðir og afturhlerinn, sem
opnast í einu lagi, er stór. Renni-
hurð er hægra megin á .bílnum og
fáanleg er rennihurð á hann einnig
bílstjóramegin. Hliðarspeglar eru
stórir og útsýnið úr bílnum er með
miklum ágætum.
110 D er fremur hrár að innan.
Gólf eru klædd dúk og hjólaskálar
og listar meðfram gluggum eru
óeinangraðir. Loftið er klætt ein-
angrandi efni. Búnaðurinn er
hvorki mikill né flókinn, grunn-
gerðin er án samlæsinga, rafdri-
fínna spegla og glugga, ABS-heml-
alæsivarnar, líknarbelgja og meiri
búnaðar.
Mjög gott er að ganga um bílinn
og þrenns konar stillingar á öku-
mannssæti bæta að nokkru upp að
veltistýri er ekki fáanlegt í bilinn.
Engu að síður tapar bíllinn nokkuð
þægindum við þetta því stýrið er
stórt og liggur nokkuð hátt. Hægt
er að fá sem aukabúnað stýri sem
hægt er að hækka og lækka. Stýr-
ið er hins vegar létt í meðhöndlun
og bíllinn leggur mjög vel á. Einn-
ig er það kostur að gírskiptingin er
í mælaborðinu innan seilingar við
hlið stýrisins.
Morgunblaðið/Kristinn
dregur vitaskuld nokkuð úr aflinu
en reyndar býður „power“ stillingin
upp á það að bíllinn skiptir sér
fyrr niður. Spurning er hve mikill
ókostur þetta er. Vissulega kjósa
sumir kraftmeiri vél í þetta stóran
bíl en á hitt ber að líta að bíllinn
skilar ágætu viðbragði í borga-
rakstri þótt ekki sé það nein ofur-
hröðun.
Þrjár mllljónir kr.
Að framan er bíliinn með
McPherson fjöðrun með jafnvæg-
isstöng sem vinnur gegn því að
bíllinn leggi sig í beygjum. Að aft-
an er gormafjöðrun með höggdeyf-
um. Fjöðrunin gefur góða vegartil-
finningu. Það er nokkuð langt frá
því að bíllinn sé hljóðlátur þegar
ekið er utan bundins slitlags. Berar
hjólaskálar leyna því ekkert þegar
gijót skýst upp í bílinn.
Með sjálfskiptingu kostar bíllinn
rétt tæpar þijár milljónir króna
sem virðist í fljótu bragði sam-
keppnisfært verð við aðra fjölnota-
bíla. Með því að sleppa sjálfskipt-
ingu sparast 192.400 krónur og
snerpa bílsins ætti að aukast eitt-
hvað en að sama skapi tapast
þægindin af skemmtilegri sjálf-
skiptingunni.
Bensínbíllinn með 2ja lítra vél-
inni, 16 ventla, 129 hestafla, hinni
sömu og í E bílnum, kostar sjálf-
skiptur 2.987.000 kr. og er því á
mjög svipuðu verði og dísilbíllinn.
Dísilbíllinn er þó mun hagkvæmari
í rekstri, ekki síst ef það eru at-
vinnubílstjórar sem nota bílinn.
Búist er við að tekið verði upp olíu-
gjald í stað þungaskatts áramótin
1997-1998 og verða þá dísilbílar
hagkvæmari bílar í rekstri fyrir
alla því þeir eru almennt neyslu-
grannari en bensínbílar. ■
Guðjón Guðmundsson.
MERCEDES-BENZ Vito er sjö manna fjölnotabíll.
VÉLIN er 2,3 lítra dísil með forþjöppu og millikæli, 98 hestöfl.
Mlkló og þægllegt Innanrýml
Stærsti kostur Vito er innan-
rýmið þrátt fyrir að nokkuð skorti
á bíllinn sé með nægilega klæðn-
ingu. Stólar eru þægilegir, höf-
uðpúðar við þá alla, og bíllinn er
rúmgóður. Innangegnt er úr fram-
sætum í afturrýmið sem er góður
kostur. Reyndar er hægt að panta
bílinn með tveimur farþegasætum
fram í en þá lokast fyrir aðgengið
í afturrýmið. Einnig er nú verið
að hanna þriðja stólinn í miðsæta-
röðina sem hægt verður að fella
fram til þess að komast í öftustu
sætaröðina. í bílnum sem prófaður
var er aðgengi frá hliðarhurð að
öftustu sætaröð því mjög gott því
aðeins tveir stólar eru í sætaröð-
inni fyrir miðju. Stólarnir eru með
hliðarstuðningi þannig að farþeg-
ar hreyfast lítið til í beygjum.
Þægilegt er að sitja í bílnum í
langkeyrslu. í báðum framsætum
og þremur sætum í aftari sætaröð-
um eru armar til að hvíla hendurn-
ar.
Þrátt fyrir þijár sætaraðir er
ágætt rými fyrir farangur aftast í
bílnum og gefur framleiðandinn
upp að það sé 581 lítri. Hægt er
að fella fram sætisbökin í tveimur
öftustu sætaröðunum en ókostur
er að ekki er hægt að velta stólun-
um sjálfum fram í öftustu sætaröð-
inni til þess að auka flutningsrým-
ið þegar á þarf að halda.
Sjálfskiptingin er fjögurra þrepa
með þremur stillimöguleikum, þ.e.
venjulegri stillingu, aflstillingu og
vetrarstillingu. í vetrarstillingu
hleypur skiptingin yfir fyrsta gír og
tekur af stað í öðrum sem er ágæt-
ur kostur þegar hálka er á vegum
og dregur úr eldsneytiseyðslu.
Vantar vlnnslu
Vélin er fjögurra strokka dísilvél
með tveimur ventlum á hvern
strokk, forþjöppu og millikæli.
Talsvert dísilhljóð er í vélinni á
lágum snúningi. Aflið er 98 hest-
öfl við 3.800 snúninga á mínútu.
Snúningsvægið er hátt, hámarks-
tog 230 Nm við 1.600 til 2.400
snúninga á mínútu. Bíllinn er nokk-
uð röskur á styttri vegalengdum
og innanbæjar enda næst há-
markstog á nokkuð breiðum
vinnsluhraða. Með fjóra fullorðna
og dálítið af farangri, hálfhlaðinn
bíl, vantar hins vegar nokkuð upp
á í vinnslu þegar taka þarf fram
úr á þjóðvegahraða. Sjálfskiptingin
MERCEDES-BENZ
VITO 110 D
í HNOTSKURN
Vél: 2.299 rúmsentimetrar, 4
strokkar, forþjappa og milli-
kœlir, 98 hestöfl.
Snúningsvægi: 230 Nm við
1.600-2.400 snúninga á mín-
útu.
Gírhlutföll: 1. gír: 3.77, 5. gír:
0,67, bakkgír: 3,57.
Hámarkshraði: 152 km/klst.
Hemlar: Vökvastýrt hemla-
kerfi, diskahemlar á öllum
hjólum.
Eldsneytistankur: 80 lítrar.
Vatnskæld vél.
Hjólhaf: 3 metrar.
Lengd: 4,66 metrar.
Hæð: 1.875 millimetrar.
Hleðsluhæð: 505 millirnetrar.
Breidd: 1,87 metrar.
Eigin þyngd: 1.705 kg.
Leyfileg heildarþyngd: 2.600
kg.
Beygjuradíus: 12,4 metrar.
Framdrifinn — sjö manna.
Vökvastýri.
Hjólbarðar: 195/70 R 15.