Morgunblaðið - 13.11.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 C 3
ÍÞRÓTTIR
AMERISKI FOTBOLTINN
Morgunblaðið/Kristján
igur ÍBA
j þar með sinn fyrsta sigur í fyrstu deildinni
hér á heimavelli, áhorfendur voru frá-
bærir og þeir eiga alveg örugglega
annað stigið,“ sagði Þórunn Sigurðar-
dóttir, „gamli“ baráttujaxlinn í ÍBA-
liðinu.
ÍBA-stelpurnar mættu mjög ákveðn-
ar til leiks og náðu fljótlega undirtök-
unum, sem þær héldu allt til leiksloka.
Undir lok leiksins var munurinn fjögur
mörk en þá gripu Eyjastúlkur til þess
ráðs að mæta IBA-stúlkunum framar
í vörninni og við það riðlaðist leikur
heimastúlkna. Eyjastúlkur náðu að
minnka muninn í eitt mark og þegar
rúm ein og hálf mín. vár til leiksloka
misnotuðu þær vítakast. ÍBA-stúlkur
héldu haus í lokin og fögnuðu vel og
innilega sínum fyrsta deildarsigri.
Þórunn Sigurðardóttir, Sólveig Sig-
urðardóttir og Anna Bryndís Blöndal
voru bestar í liði ÍBA en í liði ÍBV var
Ingibjörg Jónsdóttir best.
Teitur óánægður hjá Larissa
TEITUR Örlygsson körfuknatt-
leiksmaður, sem leikur með Lar-
issa i 1. deildinni í Grikklandi, er
ekki ánægður með gang máia síð-
ustu vikumar. Liðið tapaði með
11 stigum á heimavelli um helgina
fyrir Piraikos frá Aþenu og er nú
í 11. tíl 13. sætí með tvo sigra og
sex töp. Neðsta liðið hefur ekki
unnið leik enn sem komið er.
„Þessi ellefu stig hefðu sjálfsagt
verið miklu fleiri ef við hefðum
ekki hangið á boltanum í hverri
sókn,“ sagði Teitur í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Annar
BandaríJqamaðurinn var meiddur
og Iék ekki með. Hann er rosalega
ójótur og góður en nýtist auðvit-
að ekki í sóknarleiknum sem við
erum látnir spila.“
„Ég hef lítíð fengið að spila
eftir að nýi þjálfarinn kom og í
síðasta leik settí hann mig inn á
síðustu tíu minúturnar þegar
Ijóst var að við myndum tapa.
Mér finnst þjálfarinn ekki leggja
upp rétta línu í þessu. Við spilum
hálfgerðan göngubolta og höfum
aðeins gert 488 stig i þeim átta
leikjum sem við erum búnir með.
Þetta er ágætur vamarþjálfari
en kerfið sem hann notar gengur
ekki upp og ég yrði ekki hissa
þó hann yrði ekki lengi þjá félag-
inu,“ sagði Teitur.
Hann sagði að ekki væri staðið
við allt sem væri í samningi hans
við félagði og forráðamenn þess
borguðu seint. „Þetta er farið að
verða dáiitið þreytandi því þeir
segjast ætla að koma á æfingu
og borga manni þar en svo sjást
þeir ekki. Þess ber þó að geta
að Grikkir eru þannig að þeir
æsa sig ekki upp þó hlutirnir
dragist um einhveija daga, eða
jafnvel lengur,“ sagði Teitur.
Teitur og félagar eiga erfiðan
leik á laugardaginn en þá mætir
Larissa liði Panathinaikos í
Aþenu.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
I, sem er tll vinstri, á hér í höggi
sem hafnaði í öðru sæti.
DONAR, lið Herberts Arnarsonar,
er komið í annað sæt hollensku 1.
deildarinnar í körfu, vann Drenthe
108:96 á útivelli um helgina og
gerði Herbert 10 stíg. „Við vorum
16 stigum yfir í hálfleik og lékum
svo mjög illa eftír hlé,“ sagði Her-
bert í samtali við Morgunblaðið í
gær. Herbert hefur verið að gera
ríflega 20 stig í leik hingað tíl og
aðspurður hvernig stæði á að hann
hefði aðeins gert tíu stíg sagði
hann: „Drenthe er með einn stóran
leikmann og hann gat lítið leikið
vegna villuvandræða þannig að við
dældum boltanum inní teiginn og
skutum lítíð fyrir utan.“
Reuter
TERRELL Owens fagnar hér félaga sínum hjá San Francisco
49ers, Iheanyi Uwaezuoke, sem skoraði snertimark.
Switzer vann
Leikur liðanna í San Francisco var
skemmtilegur. Heimamenn komust í
10:0 í fyrsta leikhluta, en þá rotaðist
leikstjómandi liðsins, Steven Yoyng.
Hann rotaðist einnig i leik fyrir tveim-
ur vikum og óvíst er hvert framhald-
ið verður á leik hans á næstu vikum.
Dallas notfærði sér þetta og jafnaði
fyrir leikhlé. Heimameni. náðu síðan
17:10 forystu, en gestirnir jöfnuðu
17:17 rétt fyrir leikslok. í framleng-
ingunni, þar sem það lið sigrar sem
fyrst skorar, komust heimamenn aidr-
ei í boitann. Dallas komst í sókn og
fór upp mestallan völlinn, þar sem
Chris Boniol skoraði vallarmark og
tryggði sigurinn, 20:17 fyrir Dallas.
Þetta var fjórði leikur þjálfara
Dallas, Barry Switzer, á móti San
Francisco með liði sínu og loks náði
það að vinna fyrir hann gegn erki-
fjendunum. „Vömin vann leikinn fyr-
ir okkur í seinni hálfleik, við vomm
með meidda menn í vöminni, en þeir
gáfu sig alla í leikinn," sagði Switzer
eftir leikinn.
Denver Broncos er það lið sem
mest kemur á óvart á keppnistímabil-
inu eins og fyrr segir. Liðið lenti í
hörkubaráttu við Chicago Bears uppi
í Klettafjöllum, en marði sigur, 17:12.
Víkingamir frá Minnesota, sem
eiga marga aðdáendur á Fróni, byij-
uðu keppnistímabilið með miklum lát-
um. Liðið vann fimm af fyrstu sex
leikjum sínum, en hefur nú tapaði
fjórum { röð eftir rassskellingu í Sé-
attle, 42:23.
Dan Marino, leikstjómandi Miami
Dolphins, náði merkilegum áfanga í
sigri liðsins á móti Indianapolis Colts.
Hann hefur nú kastað boltanum alls
jrfir 50.000 stikur sem er met en
aðeins þrír aðrir hafa náð að kasta
samtals 40.000 stikur hver. Marino á
nú öll kastmet og óvist er að þau
verði slegin á næstu áratugum.
Donar í
annað sætið
Annar stórleikur ársins í NFL-
ruðningsdeildinni fór fram um
helgina þegar San Francisco 49ers
fékk meistara Dallas
Gunnar Cowboys í heimsókn.
Valgeirsson Leiks þessara liða er
skrifar frá ávallt beðið með
Bandaríkjunum mikini eftirvæntingu
og áhorfendur voru ekki sviknir í
þetta sinn.
Eftir afleita byijun á keppnistíma-
bilinu hafa meistararnir frá Dallas
tekið við sér og þennan leik varð
liðið að vinna ef það átti að eiga
tækifæri á að komast í úrslitakeppn-
ina.
Riðlakeppnin í NFL-deildinni er
nú rétt rúmlega hálfnuð og er margt
sem komið hefur mðningssérfræð-
ingum hér á landi á óvart. Lið sem
margir höfðu afskrifað hafa byijað
vel, s.s. Buffalo Bills, Denver Bronc-
os, New England Patriots, Washing-
ton Redskins, og Philadelphia Eagl-
es. Þá hafa önnur ekki gert eins vel
og haldið var, s.s. Detroit Lions,
Dallas Cowboys og Miami Dolphins.
Þau lið sem hafa byijað hvað best
eru Green Bay Packers, en búist var
við liðinu sterku, og Denver Bronc-
os. Denver er nú með bestan árang-
ur, hefur unnið níu af tíu leikjum
sínum, og Green Bay hefur unnið
átta af tíu. Önnur lið fylgja fast á
eftir og margt getur gerst síðari
hluta keppnistímabilsins.
Meistarar gefast ekki upp
Green Bay vann San Francisco
fyrir um mánuði í fyrsta stórleik
keppnistímabilsins, en leikur San
Francisco og Dallas hefur verið aðal-
leikur keppnistímabilsins undanfarin
ár. Aðeins þarf að líta á árangur lið-
anna, þau hafa unnið fjóra síðustu
meistaratitlana og verið með besta
árangur allra liða á þessum áratug.
ItiémR
FOLX
■ GEORGE Graham knattspymu-
stjóri hjá Leeds hefur lýst yfir áhuga
að kaupa svissneska landsliðsmann-
inn Ramon Vega frá Cagliari. „Ég
hef áhuga á að kaupa góða knatt-
spymumenn sem fáanlegir em og
Vega er einn þeirra,“ sagði Graham
í vikunni.
■ GIANFRANCO Zola hlakkar til .
að leika með landa sínum Gianluca
Vialli hjá Chelsea, „Ég held að við
náum vel saman og ég trúi að ég
geti lagt upp mörk fyrir hann en
það hjálpar liðinu að ná takmark-
inu,“ sagði hann við komuna til
London.
■ ZOLA gerði samning til þriggja
og hálfs árs. „Ef Chelsea vill verða
meistari vil ég eiga hlut að máli.
Ég er sannfærður um að liðið verður
í Evrópukeppni næsta ár og árang-
urinn verður jafnvel betri. Sem
stendur emm við í fimmta sæti í
deildinni og ég veit að við getum
bætt okkur,“ sagði ítalski miðheij-
inn, sem er 30 ára.
■ ZOLA sagðist hafa ráðfært sig
við landa sína, Roberto di Matteo
hjá Chelsea og Fabrizio Ravanelli
hjá Middlesbrough, um hugsanleg
félagaskipti frá Parma. „Þeir sögðu
mér að enska knattspyrnan væri
góð. Harkan væri mikil og leikmenn
sterkir en ég gæti spjarað mig og
mér kæmi til með að líða vel á
Englandi. Ef til vill tekur tíma að
aðlagast en andrúmsloftið á völl-
unum er frábært og ég vil vera með
í því.“
■ RUUD Gullit, knattspymustjóri
Chelsea, sagði að Zola gæti hjálpað
til við að láta drauma Matthews
Hardings, varaformanns félagsins
sem lést í flugslysi fyrir þremur vik-
um, rætast. „Þetta er það sem Hard-
ing hefði viljað. Hann átti sér draum
um Chelsea og nú getum við hjálp-
að til við að láta hann rætast."
■ GULLIT sagði að Zola gæti
unnið leik upp á eigin spýtur en
koma hans þýddi ekki að Mark
Hughes yrði látinn fara. „Enginn
þarf að fara og í undanfömum leikj-
um hefur Mark Hughes verið frá-
bær og mjög mikilvægur í liðinu.“
■ BAYERN Miinchen skilaði 6,1
millj. marka í hagnað á liðnu starfs-
ári sem lauk 30. júní sl.
■ ÍTALSKA félagið Udinese segir
að Manchester United hafi boðið
um 18 millj. dollara í þýska miðheij-
ann Oliver Bierhoff en tilboðinu
hafi verið hafnað því leikmaðurinn
væri ekki til sölu. ítalska blaðið
Corriere dello Sport sagði að United
væri á eftir Ravanelli hjá Midd-
lesbrough og tilboðið væri á sömu
nótum og í Bierhoff.
■ FREIBURG, sem stendur illa í
þýsku deildinni, keypti miðheijann
Michael Sternkopf af Gladbach
fyrir 600.000 mörk.
■ STERNKOPF, sem er 26 ára,
gerði samning við Freiburg sem
gildir til júní 1998 en hann verður
sennilega með í bikarleiknum við
Stuttgart í kvöld. Stemkopf hefur
leikið 161 leik í deildinni og gert
13 mörk fyrir Karlsruhe, Bayern
Miinchen og Gladbach.
■ MARCELLO Lippi, þjálfari Ju-
ventus, sem varð meistari í Meist-
aradeild Evrópu sl. vor, var kjörinn
besti þjálfarinn á Ítalíu á liðnu tíma-
bili. Þjálfarar í 1. og 2. deild kjósa
og var Lippi útnefndur annað árið
í röð.
■ JUVE mætir Ameríkumeistur-
unum í Japan í desember og sagð-
ist Lippi hafa boðið fyrrum leik-
mönnum liðsins eins og Gianlucá
Vialli og Fabrizio Ravanelli að
fara með, en hann sagðist vita að
þeir kæmust ekki. „Hins vegar vildi
ég hafa þá með okkur.“
■ MARTIN Dahlin tognaði á lær-
vöðva í landsleik Skotlands og Sví-
þjóðar og verður frá keppni næstu
vikumar en sænski miðheijinn leik-
ur með Gladbach í Þýskalandi.