Morgunblaðið - 17.11.1996, Blaðsíða 1
ÍSLENSKIR FORNBÍLAR ÍFÆREYJUM - NÝ RÚTA FRÁ
RENAULT - FIATBRAVO íREYNSLUAKSTRI -SÁSTÆRSTI
OG MINNSTIFRÁ AUDI - TÆKITIL AÐ GREINA LITI
PEUGEOT 406
1996
SUNNUDAGUR 17. NÓVEMBER
BLAÐ
§ %
TÍM AMÓTABÍLL
Komdu og reynsluaktu.
Verð frá.
1.480.000
PEUGEOT
- þekktur fyrlr þœglndl
Nfbýlavegl 2
SImi 554 2600
MorgunDiaö
FORD F-150 er nútí-
malegur útlits.
læsing á afturdrifi, líknar-
belgur fyrir ökumann og
farþega og fleira en í XLT
er að auki m.a. loftkæling,
hraðastillir, rafknúnar
rúður og gluggar og
fjarstýrðar samlæsingar.
F-150 er skemmtilegur
bfll í akstri. V-6 bfllinn í
XL útfærslunni kostar
2.198.000 krónur. Þrátt
fyrir 4,2 lítra vél fellur
bfllinn í 30% vörugjalds-
flokk þar sem hann er
flokkaður með atvinnu-
bifreiðum. Pallurinn er
1,98 m langur og auðvelt
ætti að vera að byggja yfir
bflinn. Super Cab XL
kostar 2.478.000 kr.
Risamir þrír, þ.e. Ford,
GM og Chrysler, settu allir
sölumet á pallbflum í
Bandaríkjunum. Alls seld-
ust á árinu 5,6 milljónir
pallbfla þar, þar af rúm-
lega tvær milljónir Ford -
ásamt dótturbílunum
Mercury og Lincoln. Þetta
er í fyrsta sinn sem meira
en 2 milljónir pallbfla selj-
ast frá einum og sama
framleiðandanum. GM var
nærri því að fara yfir
tyeggja milljóna bfla sölu.
Útkoman var 1.970 þúsund
bflar. Chrysler setti
sölumet á pallbflum á
módelárinu, alls seldust
1.670 þúsund bflar en var á
módelárinu 1995 1.350
þúsund bflar.
ford
FORD F-150 var sá bíll í
Bandaríkjunum af árgerð
1996 sem mest seldist. Þar
í landi eru pallbflar afar
vinsælir sem sést á því að í
öðru sæti yfir mestseldu
bílana var Chevrolet C/K.
Alls seldust 764 þúsund
Ford F-150 vestra sem er
9,8% aukning frá fyrra ári.
Módelárið er írá 1. október
til 30. september. Nú er
Ford F-150 árgerð 1997
kominn til Islands í breyt-
tri mynd og vekur hann
hvarvetna eftirtekt enda
óvenjulegur í útliti.
F-150 fæst með einföldu
ökumannshúsi (Regular
Cab) og tvöfóldu (Super
Cab) og í boði eru tvær
vélar, V-6 og V-8 sem þó er
glettilega lítill stærðar-
munur á. V-6 vélin er 4,2
lítra og skilar 205 hest-
öflum en V-8 vélin 4,6 lítra
og skilar 210 hestöflum.
Hún er þýð og feykdkraft-
mikil. F-150 er reyndar
einnig fáanlegur frá fram-
leiðanda með 5,4 lítra, V-8
vél.
Super Cab bfllinn er
með lítilli hurð til þess að
auðvelda aðgang að aft-
ursætum. Staðalbúnaður í
XL útfærslunni er m.a.
ABS-hemlakerfi, tregðu-
Intru
fró Heulie
BÍLLINN vegur tvö
tonn og er með kraft
mikilli vél.
HEULIEZ er eitt þeirra fyrir-
tækja í Evrópu sem hafa sprott-
ið upp í kringum bílaiðnaðinn.
Fyrirtækið starfrækir verk-
smiðjur hönnunarstöðvar í
Frakklandi og Ítalíu. Það fram-
leiðir m.a. mótora í rafbfla
Citro'n og Peugeot, stansar stál
og framleiðir litla rafmótora fyr-
ir raídrifna glugga, sóllúgur,
sæti og fleira. Heuliez hefur
einnig smíðað séi-stæða frum-
gerð af jeppa sem hefur vakið
talsverða athygli. Jeppinn er
tveggja sæta og kallast Intruder. Inti'uder er gerður úr
trefjaefni og stáli. Þakinu er hægt að lyfta af með handafli en
afturglugginn leggst sjálfvirkt ofan í farangursrýmið sé þrýst
á þar til gerðan hnapp. Þar með er jjessi tveggja dyra, fjór-
hjóladrifni jeppi orðinn að blæjubfl. I aftursæti er veltibogi.
Intruder var hannaður og smíðaður af hönnunarstöð Heuliez
í Tórínó á Ítalíu. Hönnunarstöðin hefur þjónað bifreiðafram-
leiðendum sem hafa leitað þangað eftir hönnun á bflum, jafnt
að utan sem innan. Michelin hannaði sérstaka 285/60/17 hjól-
barða fyrir bílinn og De Montfort, breskir bfltækniráðgjafar,
hönnuðu m.a. spegla. Intruder er með sex strokka, 24 ventla
línuvél, 3,2 lítra. Vélin skilar 210 hestöflum til fjögurra þrepa
sjálfskiptingar og hámai'kssnúningsvægi er 300 Nm \ið 3.750
snúninga á mínútu. Tómur vegur bfllinn slétt tvö tonn en
hann er fullfær utan vega því veghæðin er 31 sm. Lengind á
bílnum er 4,34 sm og breiddin 1,90 sm.
Þeir Heuliez menn segja að byggingarlag jeppans geri mönn-
um kleift að aka honum upp meiri halla en flestum öðrum
jeppum og hægt. sé að aka honum í allt að 60 sm djúpu vatni
án þess að farþegar eða vél blotni.
Fjöldi látinna í umferðarslysum
á hverja þúsund íbúa árið 1993
Portúgal
Grlkkland
Lúxemborg
Nýja-Sjáland
Frakkland
Belgía
Spánn
Ungverjaland
Austurríki
Bandarikln
Tyrkland
Ítalía
Kanada
Þýskaland
_ írland
Ástralía
Danmörk
Japan
Sviss
Finnland
Holland
Svíþjóð
England
Noregur
ísland
0 0,05 0,10 0,15 0,20 0,25 0,30
Morgunblaðið/GuGu
HEULIEZ Litruder er tveggja sæta hugmyndajeppi.