Morgunblaðið - 15.12.1996, Síða 1
Skærur hjá Lufthansa
STUTT skæruverkfall flugliða og
fleiri starfsmanna Lufthansa í síð-
asta mánuði kostaði félagið um
milljarð íslenskra króna og raskaði
35 flugferðum. Á þriðjudaginn
slitnaði upp úr síðustu umferð í
kjaraviðraeðum verkalýðsfélagsins
DAG og Lufthansa. Starfs-
dag lögðu þeir niður vinnu í tvær
klukkustundir. Mikið öngþveiti
skapaðist á flugvellinum í Frank-
furt enda þurfti að aflýsa 92 flug-
um. Menn óttast að frekari skæru
verkföll raski flugsamgöngum
víða um heim. ■
SUNNUDAGUR15. DESEMBER1996 BLAÐ C
Á SUÐURSTRÖND
Englands við Ermar-
sund er einn vinsæl-
asti sumardvalarstað-
ur Englendinga. Brig-
hton er 82 km fyrir
sunnan London og
það tekur ekki nema
rúma klukkustund að
komast þangað með
lest frá Viktoríustöð-
inni. Tívolíð á bryggj-
unni er víðfrægt og
enn á sínum stað. I
Brighton er líka höllin
sem Georg IV lét
endurbyggja meðan
hann var enn prinsinn
af Wales, og ótal
margt fleira 0^
áhugavert.
HÁLENDIÐ
► YFIRLEITT viija ferðamenn
halda tilteknum svæðum ósnortn-
um og 72% vilja að röskun í náttúr-
unni sé bundin við afmörkuð
svæði. 17,7% vijja fjölga þjónustu-
miðstöðvum á hálendinu, en 84,9%
teþ'a tiltekið svæði ósnortið þótt
mannvirki sé á staðnum. Flestir
nefna skála sem dæmi um mann-
virki. Helmingur ferðamanna eru
á móti náttúrugjaldi fyrir aðgang
að hálendinu.
MERKINGAR
►Á öðrum tungumálum en ensku
virðist sem merkingum á ferða-
mannastöðum sé ábótavant. Flest-
ir telja sig hafa ágætis upplýs-
ingar um sögu og menningu, eða
62%, og 77,5% um náttúru lands-
ins. Alls nefna 19,5% upplýsingar
fyrir ferðamenn sem mestu von-
brigðin í ferðinni.
PERLUR
►HELSTU áningarstaðir ferða-
manna fengu mjög góða dóma
varðandi hreinlæti, umgengni og
öryggismál. Um 85% eru ánægð
með þann stað sem dvalist var á.
Skiptar skoðanir eru um hvort
fólki finnst byggingar og mann-
virki draga úr upplifun sinni á
staðnum sem náttúruperlu, 36,2%
töldu svo vera í miklum eða rnjög
miklum mæli, en 53,9% töldu slíkt
í litlum mæli eða alls ekki.
Niðurstöður könnunnar á viðhorfum erlendra ferðamanna til lands og þjóðar
Sumum fannst nóg um
f jölda ferðamanna
RÚMLEGA 10% nefndi mikinn fjölda ferðamanna sem mestu
vonbrigðin í ferðinni og 64% sögðu fjölda þeirra draga úr
upplifun sinni á hálendinu sem ósnortins lands. Þetta og margt
fleira kom fram í niðurstöðum könnunnar á viðhorfum 1.200
erlendra ferðamanna, sem ferðuðust um ísland í júlí og ágúst
sl. Félagið Maður og umhverfí, sem gerði rannsóknina í sam-
vinnu við Ferðamálaráð íslands, fékk styrk frá Nýsköpunar-
sjóði námsmanna með mótframlögum frá ýmsum stofnunum
og fyrirtækjum.
Davíð Bjamason mannfræðingur, Erla Hjálmarsdóttir
stjómmálafræðingur og Einar Skúlason framkvæmdastjóri
ferðuðust um landið og lögðu 60 spumingar fýrir ferðamenn
frá 26 löndum. Einar segir að draga megi gagnlegar ályktan-
ir af niðurstöðunum enda hafí spumingamar verið mjög itar-
legar og ferðamennimir komið með margar ábendingar sem
nýtast vel til úrbóta í ferðaþjónustu.
„Okkur fannst áberandi hve erlendu gestirnir gengu betur
um landið en íslendingar. Margir vom undrandi á að sorp er
ekki flokkað og bentu á að íslendingar fæm ekki sjálfir eftir
settum umgengnisreglum. Orðspor landsins sem ósnortins
ævintýralands býður fljótt hnekki ef ekkert er að gert. Einnig
þarf að beina erlendum ferðamönnum í auknum mæli á fleiri
staði enda virðast þeir ekki sækja hingað til að vera í marg-
menni. Slíkt ætti ekki að vera vandamál því náttúmperlur
landsins em margar," segir Einar. ■
Morgunblaðið/Júlíus
ALMANNAGJÁ á Þingvöllum.
NÁTTÚRAN
►TÆP 86% teija náttúruna
óspillta og 75% finnst hún hafa
uppfyllt væntingar. Eldfjöll, eld-
virknissvæði, hverir, háhitasvæði,
jöklar, fjölbreytileiki, víðáttan og
ósnortin náttúra heilla mest.
VEGIR OG
MANNVIRKI
►RÚMLEGA 70% voru frekar eða
alveg ósamþykk því að auðvelda
ætti aðgang að hálendinu með
betri vegum og 82% voru fremur
eða alveg ósamþykk þvi að fjölga
vegum á hálendinu.
FERÐAMENN
► ALLS nefndu rúmlega 10% mik-
inn fjölda ferðamanna sem mestu
vonbrigðin í ferðinni og 64% segja
að fjöldi þeirra dragi úr upplifun
á hálendinu sem ósnortins lands.
Margir nefndu að þeir myndu síð-
ur koma hingað ef ferðamönnum
fjölgaði til muna.
LANDINN
►Tæp 60% teþ'a íslendinga standa
sig vel í umhverfismálum. Sumir
gagnrýna landann fyrir umgengni
í náttúrunni og telja að hann fari
ekki eftir reglum sem hann setur
erlendum gestum. Margir harma
að kynnast landsmönnum lítið, en
yfirleitt segja þeir íslendinga
þjálpsama og vinalega.
562 4433
AVIS bílaleigan
Sóltúni 5 Reykjavík