Morgunblaðið - 17.12.1996, Page 2

Morgunblaðið - 17.12.1996, Page 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ l| i ÍÞRÓTTIR BJÖRN DÆHLIE BÆTTI MET GUNDE SVAN Björn Dæhlie frá Noregi sló nýverið met Gunde Svan frá Svíþjóð í fjölda sigra á heimsbikarmótum Bjorn Dæhlie Fæddur:19. júní 1967 Hæð 184 cm Þyngd 76 kg Elena Velbe Fædd: 20. apríl 1968 Hæð: 164 cm, þyngd 58 kg Heimsbikar- keppni karla 1. Björn Dæhlie 2. GundeSvan 3. Vladimir Smirnov 4. Torgny Mogren 5. Vegard Ulvand Fjöidi sigra á heimsbikar- mótum 32 30 'rS\ 13 9 Heimsbikarkeppni kvenna 1. ElenaVelbe 38 2. Marja Lisa Kirvesmiemi 11 3. Ljubov Egorova 11 4. Stefania Belmondo 11 5. Berit Petersen 10 ■ GEORGE Weah frá Líberíu, sem hefur verið fyrirmynd annarra innan sem utan vallar og var kjör- inn besti leikmaður Afríku, Evrópu og heims í fyrra, fékk sex leikja bann fyrir að skalla mótheija eftir leik Porto og AC Milan í Meistara- deild Evrópu fyrir skömmu. ■ WEAH var fyrst úrskurðaður í eins leiks bann og tók það út þegar AC Milan mætti Rosenborg en UEFA kannaði málið betur og breytti fyrri ákvörðun. ■ WEAH sagði að viðbrögð sín eftir fyrrnefndan leik hefðu verið röng en í kjölfar áreitni hefði hann sleppt sér. ■ DAMON Hill heimsmeistari í kapgakstri var um helgina útnefnd- ur íþróttamaður ársins af BBC sjónvarpsstöðinni. „Ég er mjög ánægður með verðlaunin og þau fullkomna árið hjá mér,“ sagði enski ökuþórinn. Ræðarinn Steve Redgrave varð í öðru sæti en hann og félagi hans, Matthew Pinsent voru valdir lið ársins, en þeir hrepptu eina gull Englendinga á Ólympíuleikunum. ■ GREMIO varð á sunnudaginn brasilískur meistari í knattspymu, sigraði lið Portuguesa 2:0 í síðari úrslitaleiknum og það voru Paulo Nunes og Ailton sem gerðu mörk- in, það fyrra á 3. mínútu og það síðar á þeirri 85. Portuguesa sigr- aði 2:0 í fyrri leiknum en Gremio er meistari vegna betri árangurs í mótinu í heild. ■ PATREKUR Jóhannesson skoraði sjö mörk fyrir Essen, en það dugði ekki til sigurs gegn Flensborg, sem vann í Essen, 24:27. ■ GUÐMUNDUR Bragason og félagar hans hjá þýska liðinu BCJ Hamborg eru efstir í norðurriðli 2. deildar í körfuknattleik, eftir sig- ur á Oldenborg, 89:98, á útivelli. ■ VALDIMAR Grímsson og læri- sveinar hans í Stjörnunni fóru til Siglufjarðar til að leika við KS í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar á sunnudaginn. Stjarnan hafði betur, 17:28, í fyrsta opinbera handbolta- leiknum á Siglufirði. Valdimar var markahæstur í liði Garðbæinga með sjö mörk en Tómas Oskarsson var markahæstur heimamanna með fimm mörk. ■ AUSTURRÍKISMENN voru sigursælir í heimsbikarnum í alpa- greinum karla í Val d’Isere í Frakklandi um helgina. Á sunnu- dag áttu þeir fjóra fyrstu í bruni og í gær ijóra af fimm fyrstu í risa- svigi. Hans Knauss sigraði í risa- sviginu og tók um leið við forystu í stigakeppni heimsbikarsins af Norðmanninum Kjetil Andre Ámodt. Það var aðeins Svisslend- ingurinn Steve Locher sem kom í veg fyrir að Austurríkismenn ættu íjóra fyrstu menn annan keppnisdaginn í röð. ■ FRITZ Strobl fór fyrir Austur- ríkismönnum í fyrsta brunmóti vetrarins á sunnudag. Þessi 24 ára gamli lögregluþjónn frá Steinfeld var 0,02 sekúndum á undan Wern- er Franz. AFREK Kristinn Björnsson skíðakappi frá Ólafsfirði hefur verið að gera það gott í skíðabrekkunum í Evrópu að undanförnu. Þrátt fyrir að hafa slitið hásin í mars í fyrra er hann kominn á fulla ferð og enn að bæta sig. Hann sýndi og sannaði um helgina að hann er að komast í allra fremstu röð. Hann sigraði í sterku alþjóðlegu svigmóti í Sviss á sunnudag og hlaut 12,31 alþjóðlegt styrkstig (FlS-stig) sem er afrek sem vert er að gefa gaum. Til að skýra það nánar eru gefín styrkstig fyrir einstök mót og eftir því sem stigin eru færri því sterkara er mótið. Heimsbikar- mótin eru yfirleitt í kringum núll- ið (0 FlS-stig) svo dæmi sé tekið. Árangur OÍafsfírðingsins þýðir að hann er á milli 40 og 50 á heimslistanum í svigi, sem á eru að minnsta kosti 3.000 þúsund nöfn. Það gæti þýtt að Kristinn startaði í kringum 20 á HM eða Ólympíuleikum því hver þjóð má aðeins senda Qóra keppendur í hveija grein og má gera ráð fyrir að sterkustu skíðaþjóðimar eigi fleiri en fjóra skíðamenn sem eru innan við 40 á heimslistanum. Kristinn hefur helgað sig skiða- íþróttinni alfarið undanfarin sex ár. Hann var í Qögur ár í Geilo í Noregi þar sem hann var S skíðamenntaskóla og síðustu tvo vetur við æfíngar Schladming í Austurríki ásamt félögum sínum S landsliðinu. í vetur hefur hann og ísfirðingurinn Arnór Gunn- arsson æft með finnska landslið- inu. Það var vel til fundið hjá Skíðasambandi íslands að semja við Finna. Auðvitað er það ekki ókeypis og þarf SKÍ að greiða finnska sambandinu töluverða peninga fyrir samstarfið. Afreksmannasjóður ÍSÍ hefur styrkt besta íþróttafólk landsins í gegnum árin og er það vel. Sam- kvæmt reglum sjóðsins komast þeir á A-styrk (80.000 krónur) sem eru á meðal 20 efstu á heims- lista í sinni grein. Þetta eru lítt skiljanlegar reglur enda íþrótta- greinar misfjölmennar á heims- vísu og engin rök sem segja að hægt sé að draga svona afdráttar- lausa viðmiðun. Nú eru þrír íþróttamenn á A-styrk. Þeir eru Jón Amar Magnússon, Guðrún Amardóttir og Pétur Guðmunds- son sem hefur verið á styrk allt árið. Þá spyr sá sem ekki veit, hvers vegna er íþróttamaður sem náði ekki lágmarki fyrir síðustu Ólympíuleika enn á styrk? Er ekki eitthvað bogið við reglur sjóðsins? Kristinn var á B-styrk Afreks- mannasjóðs frá 1. janúar 1996 til 30. júnf 1996. Hann hefur ekki hlotið náð fyrir augum sjóðs- stjómar þó svo að afrek hans séu flestum Ijós. Hvers vegna er langbesti skíðamaður landsins, og þótt víða væri leitað, ekki á styrk tveimur mánuðum fyrir í heims- meistaramót og rúmu ári fyrir Vetrarólympíuleika? Er ekki kom- inn tími til að stjómarmenn Af- reksmannasjóðs horfi aðeins fram á veginn og opni augun fyrir því sem Kristinn Björnsson hefur ver- ið að gera? Valur B. Jónatansson Ereitlhvaðbogið við reglur Afreks- mannasjóðs? Ætlarkörfuboltamaðurinn ALBERT ÓSKARSSON að hætta með Keflavík á toppnum? Vítum hvað vid getum KEFLVÍKINGAR tróna á toppnum í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik þegar keppnin er háifnuð. Þeir kannast við tilfinninguna og Albert Óskarsson, sem hefur verið lykilmaður í áratug, sagði hana þægilega. „Það er mjög gott að vera kominn á toppinn en staðan getur breyst skyndiiega," sagði hann. „All- ir eru að sigra alla og því verðum við að vera tilbúnir í hvern leik.“ Albert er 28 ára gamall af- greiðslumaður í Fríhöfn- inni á Keflavíkurflugvelli, kvæntur Ragn- Eftir heiði Ragnars- Steinþór dóttur og eiga þau Guðbjartsson synina Ragnar og Aron Inga. Síðastliðið vor gaf Albert ekki kost á sér í landsliðið en var á dögunum valinn í hópinn sem fer til Danmerkur milli hátíðanna. Þar leikur Albert trúlega 30. landsleik sinn, en hann hefur þegar klæðst landsliðspeysu ís- lands 29 sinnum. „Síðastliðið vor stóð til að fara til Bandaríkjanna í flugnám en við hjónin frestuðum því, ætlum að skoða þetta betur því svona námi fylgja miklar skuldir. Samt sem áður er stefnan að fara út í vor og því er þetta sennilega síðasta tímabil mitt en í svona málum er ekkert hægt að full- yrða fyrr en ákvörðun hefur ver- ið tekin.“ Kemur árangur Keflavíkur- liðsins á óvart? „Ekki okkur sjálfum því við vitum hvað við getum. Yfirleitt höfum við verið að missa góða leikmenn en í fyrsta sinn höfum við nú fengið liðsstyrk og það hefur mikið að segja.“ Hvað um þig sjálfan? „Ég er í allt annarri stöðu. Áður spilaði ég fyrir utan og dekkaði bakverðina en nú spila ég inni í og dekka stærri menn- ina. Hvorutveggja er mjög erfítt en ég er þannig gerður að mér finnst að ég þurfi að hreyfa mig mikið og því er skemmtilegra að Morgunblaðið/Bjöm Blöndal ALBERT Óskarsson í vinnunni í Fríhöfninni í gær. elta skytturnar." „Varnarjaxlinn" hefur verið iðnari við að skora í vetur en áður. Til dæmis var hann með 10,7 stig að meðaltali í leik í fyrra en gerði 23 stig á móti Tindastóli á Sauðárkróki um helgina. Hvað veldur þessari breytingu? „Ástæðan er einfaldlega sú að ég tek meiri þátt í sóknar- leiknum en áður. Hins vegar er ég fyllilega sáttur við það sem ég hef gert fyrir liðið. Jafnvel að sitja á bekknum getur verið nóg fyrir mig ef liðinu gengur vel.“ Ertu ánægður með fyrirkomu- lag deildarinnar? „Já. Þetta fyrirkomulag er miklu betra heldur en það sem áður var. í raun var þetta tómt rugl. Menn verða að hafa í huga að við erum áhugamenn sem stunda fulla avinnu með þessu. Auk þess eru flestir fjölskyldu- menn og taka verður tillit til þessara atriða. Nú erum við til dæmis heima um helgar en áður voru alltaf leikir á fimmtudögum og sunnudögum. Þó gaman sé að spila voru leikimir rosalega margir og dagskráin stíf en nú er þetta manneskjulegt. Svo var mjög skemmtilegt að fá Lengju- bikarinn inn í mótið og úrslita- leik á þessum tíma tímabilsins,“ sagði Albert en þess má geta að hann og félagar í liði Keflavík- ur sigruðu í þeirri keppni á dög- unum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.