Morgunblaðið - 17.12.1996, Page 4

Morgunblaðið - 17.12.1996, Page 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ KÖRFUKNATTLEIKUR Keflvíkingar heppnir á Sauðárkróki Keflvíkingar höfðu löngum ör- ugga forystu er þeir heimsóttu Tindastól á sunnudaginn en loka- mínúturunar urðu Björn spennandi og gat Björnsson sigurinn lent hjá skrifar frá hvoru liðinu sem var. Sauðárkróki Happnin var Keflvík- inganna að þessu sinni og sigruðu þeir 90:85. Leikurinn var í heild hraður, skemmtilegur og spennandi og buðu bæði lið uppá góðan körfubolta. Heimamenn byijuðu mjög vel og fóru þeir Arnar Kárason og Ómar Sigmarsson fyrir þeim, léku vörn gestanna oft grátt og Piccini var sterkur í vörninni. Kraftur leik- manna Tindastóls sló Keflvíkinga út af laginu en eftir sex mínútna leik fóru þeir að beita stórskyttunum utan þriggja stiga línu og söxuðu þannig á forskot heimamanna. Al- bert Oskarsson setti niður fjögur þriggja stiga skot, Guðjón Skúlason þijú og Kristinn Friðriksson tvö. Með stórskotaiiðið í stuði komust gestirnir yfir og léku á als oddi, skoruðu grimmt og náðu mest 19 stiga forystu, 32:51. Gestirnir virt- ust telja það formsatriði að ljúka síðari hálfleiknum, þeir slökuðu á og það nýttu heimamenn sér. Þegar sjö mínútur voru til loka var staðan 73:75 og Tindastóll fékk tvö tæki- færi til að jafna en tókst ekki. Arnar og Ómar léku vel hjá Tinda- stóli og Jeffrey einnig þó svo hann gæti ekki beitt sér af fullum krafti vegna bakmeiðsla. Piccini, Lárus Dagur og Skarphéðinn voru einnig góðir. Hjá gestunum var Johnson bestur og Guðjón átti einnig góðan leik svo og Albert, sem fékk sína ijórðu viliu um miðjan síðari hálfleik- inn og varð að hægja aðeins á sér eftir það. Kristinn átti einnig góða kafla og lék vel fyrir liðið. Auðveh hjá ísfirðingum KFÍ vann Þór auðveldlega er Akureyringar komu í heim- sókn á ísafjörð á sunnudaginn. Lokatölur 85:70 eftir Þór að heimamenn höfðu Pétusson mest náð 20 stiga skrifar frá foiystu. ísafirði Isfirðingar byij- uðu af miklum krafti og náðu góðri forystu strax í upphafi. Þar fóru fremstir í flokki Derek Bryant, sem gerði fimm þriggja stiga körfur á fyrstu 10, mínútunum, og Friðrik Stefánsson sem var gífurlega sterk- ur undir körfunni. Þór átti engin svör við sterkri vörn ísfirðinga og greinilegt að Guðni Guðnason er að gera mjög góða hluti með hið unga lið KFI. Sem dæmi um góða vörn heima- manna má nefna að Fred Williams skoraði aðeins eitt stig í fyrri hálf- leik, sem er afar lítið á þeim bæ. í upphafí síðari hálfleiks juku heimamenn enn muninn og náðu mest 20 stiga forystu er 7 mínútur voru eftir. Þá slökuðu þeir ósjálfrátt á og Akureyringar minnkuðu muninn og þegar fjórar mínútur voru eftir var munurinn orðinn 10 stig, enda var Fred Williams kominn í gang. ísfirðingar voru þó hvergi nærri hættir og í leikslok var 15 stiga munur. Bryant og Friðrik voru best- ir heimamanna og tók sá síðarnefndi 18 fráköst. Hjá Þór var Hafsteinn Lúðvíksson sá eini sem lék af eðli- legri getu. Skagamenn lögðu Njarðvík Ovænt úrslit urðu á Akranesi á sunnudagskvöld þegar heimamenn burstuðu heillum horfna Njarðvíkinga í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Skagamenn áttu frábæran fyrri hálf- leik og lögðu þá grunninn að góðum sigri 79:62 en staðan í hálfleik var 39:17. í upphafi leiks vissu Njarðvíking- ar ekki hvaðan á þá stóð veðrið. Skagamenn komu bijálaðir til leiks og gerðu þrettán fyrstu stigin og það var ekki fyrr en á sjöundu mín- útu sem Njarðvíkingar gerðu sín fyrstu stig. Leikmenn ÍA fóru á kostum í vörninni og fylgdu því eftir með góðum og skipulögðum sóknarleik. Það skipti engu máli hver kom inn af bekknum, allir voru með á nótunum og báru þeir enga virðingu fyrir reynslumiklum leikmönnum Njarðvíkinga sem greinilega voru farnir í jólafrí að- eins of snemma. Skagamenn völt- uðu yfir andstæðinga sína án nokk- urra vandræða og þarf eflaust að leita langt til baka síðan Njarðvík- ingar gerðu aðeins sautján stig í fyrri hálfleik og þess má geta að þeir rufu tíu stiga múrinn þegar tvær mínútur voru eftir af hálfleikn- um. Hrannar Hólm, þjálfari Njarðvík- inga, las vel yfir sínum mönnum í hálfleik, enda ekki vanþörf á, og þeir komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og pressuðu út um allan völl. Það var mikill hamagangur og gestirnir reyndu hvað þeir gátu til að minnka muninn. Það tókst á tímabili og minnstur varð munurinn tíu stig um miðbik hálfleiksins. Þá settu Skagamenn aftur á fullt og hleyptu Njarðvíkingunum ekki nær, juku heldur við muninn og lokatölur leiksins urðu 79:62. Skagamenn hafa sjaldan eða aldrei leikið betur, sérstaklega í fyrri hálfleik. Hver einasti maður barðist eins og ljón og þeir upp- skáru eftir því. Ermolinskij, þjálfari Skagamanna, er augljóslega að gera góða hluti með liðið og leið þeirra liggur einungis upp á við ef marka má síðustu leiki. Njarðvíkingar vilja gleyma þess- um leik sem allra fyrst. Þeir voru eins og höfuðlaus her og enginn þeirra tók frumkvæði þegar á þurfti að halda. Allir léku langt undir getu en því má ekki gleyma að lið spila ekki betur en andstæðingurinn leyfir. Grindvfldngar stóðust áhlaup KR í spennuleik Það var hart barist í leik Grind- víkinga og KR í úrvalsdeild- inni í Grindavík á sunnudagskvöld. Leikurinn var Frímann sveiflukenndur en Ólafsson heimamenn höfðu skrifar frá sigur á lokasprettin- Grindavík um en jq^ fær tæki- færi á að jafna metin því sömu lið mætast í undanúrslitum bikarsins strax eftir áramót. Grindvíkingar hreinlega völtuðu yfír gestina í upphafi leiksins og eins og hendi væri veifað var staðan 23:2 fyrir þá. Helgi Jónas Guðfinns- son fór á kostum ásamt Herman Myers og saman skutu þeir KR nánast í kaf. KR-ingar eru þó þekktir fyrir annað en að gefast upp og þeir náðu að minnka muninn í 3 stig fyrir leikhlé og áttu mis- heppnað skot í endann til að jafna leikinn. Það gerðu þeir hinsvegar í upphafí seinni hálfleiks og komust síðan yfir 67:64 þegar seinni hálf- leikur var rétt rúmlega hálfnaður. Heimamenn bitu þá í skjaldarrend- urnar og innbyrtu baráttusigur áður en leikurinn var úti. Helgi Jónas og Herman Myers fóru báðir á kostum hjá Grindvík- ingum. Helgi gerði 6 þriggja stiga körfur fyrir Grindvíkinga, margar á mikilvægum augnablikum. Her- man varði ein 7 skot og reif niður 20 fráköst sem þykir ekki slæmt. Marel og Páll náðu sér á strik í seinni hálfleik. David Edwards var allt í öllu hjá KR en náði samt ekki að drífa liðs- menn sína með sér. Hann fór illa að ráði sínu eftir leikinn þegar hann lét Helga Bragason dómara heyra nokkur vel valin orð og uppskar brottrekstur sem þýðir væntanlega að hann verður í leikbanni í bikar- leik liðanna eftir áramót. Jonathan Bow og Hermann Hauksson léku einnig ágætlega á köflum. „Þetta var virkilega sætur sigur. Við byijuðum leikinn rosalega grimmt en þeir náðu að komast inn í hann. Við gáfum síðan eftir eins og oft vill verða þegar annað liðið nær miklu forskoti. Við tókum okk- ur þó á og náðum að klára leik- inn,“ sagði Marel Guðlaugsson fyr- irliði Grindvíkinga í leikslok. „Það voru einfaldlega sumir hjá okkur komnir í jólafrí og náðu ekki að ljúka þessum leik eftir að hafa unn- ið upp forskot Grindvíkinga í fyrri hálfleik. Við komum grimmir í bikarleikinn og ætlum okkur sigur þar,“ sagði Benedikt Guðmundsson þjálfari KR eftir leikinn. JÚDÓ KA vann eftir sjö ára bið Júdódeild KA á Akureyri varð um helgina íslandsmeistari í karlaflokki í sveitakeppni Júdó- sambandins. Einungis tvær sveitir mættu til leiks í karla- flokki, KA og Armann, og hafði KA betur, sigraði 4:3 í einstakl- ingskeppninni og hlaut 32 tæknistig á móti 23 tæknistig- um Ármanns. Keppt hefur verið í sveitakeppninni allt frá árinu 1974 og hefur Ármann oftast sigrað eða 13 sinnum, Júdófélag Reykjavíkur sigraði fyrstu sjö árin og Keflvíkingar unnu eitt árið og um helgina tryggði KA sér Islandsmeistaratitilinn í annað sinn, sigraði einnig árið 1989. Ármann sigraði í sveita- keppni karla skipuðum kepp- endum 21 árs og yngri, þar varð KA í öðru sæti og Júdó- deild Selfoss í því þriðja. í dren- gjaflokki sigraði KA, A-sveit Júdófélags Reykjavíkur varð í öðru sæti og B-sveit sama fé- Iags í því þriðja. Sigursveit KA skipuðu þeir, talið frá vinstri, Hilmar Harðar- son, Brynjar H. Ásgeirsson, Guðlaugur Halldórsson, Friðrik Blöndal, Vernharð Þorleifsson, Jónas Blöndal og Sævar Sigur- steinsson. Þjálfarinn, Freyr Gauti Sigmundsson hefur það notalegt fyrir framan kappana, í sigursveit KA fyrir sjö árum voru meðal annars þeir Freyr Gauti, Guðlaugur og Sævar. Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.