Morgunblaðið - 19.12.1996, Síða 4
KORFUKNATTLEIKUR
Kukoc bjargaði meist
umm Bulls fyrir hom
Reuter
JIM Jackson, lelkmaður Dallas, er hér með boltann og reynlr að fara framhjá Steve Smlth (nr.
8) og Mookle Blaylock (nr.10) (leiknum við Atlanta í Dallas. Atlanta settl nýtt NBA-met í þriggja
stlga körfum, skoraðl úr 19 skotum í leiknum.
Toni Kukoc var maðurinn á bak
við sigur Chicago Bulls á Los
Angeles Lakers, 129:123, eftirfram-
lengdan leik í fyrrinótt. Kukoc skor-
aði 20 stig af 31 í fjórða leikhluta og
í framlengingunni. Bulls lék stífa
pressuvörn með þeim árangri að
Shaquille O’Neal gerði ekki stig síð-
ustu 23 mínútur leiksins. „Við hætt-
um aldrei - leikum alltaf á fullu til
leiksloka," sagði Kukoc.
Scottie Pippen gerði 35 stig og
Michael Jordan 30 stig. Nick Van
Exel var stigahæstur í liði Lakers
með 36 stig og O’Neal gerði 27 stig
og tók 13 fráköst. „Þeir komu mjög
sterkir inn í fjórða leikhlutann og
pressuðu okkur stíft. Við náðum ekki
að halda boltanum nægilega vel og
það varð okkur að falli. Við vorum
•með sigurinn í okkar höndum og það
var því sárt að tapa,“ sagði Van Exel.
Chicago var 19 stigum undir þeg-
ar fjórði leikhluti hófst og munurinn
var kominn niður í 13 stig þegar
rúmar fjórar mínútur voru eftir.
Kukoc jafnaði leikinn 114:114 með
þriggja stiga körfu þegar 47 sekúnd-
ur voru eftir. Van Exel kom Lakers
aftur yfir, 114:116, þegar 33 sekúnd-
ur voru eftir, en Kukoc jafnaði með
því að skora úr tveimur vítaskotum
er sjö sekúndur voru eftir og tryggði
þannig framlengingu. Þriggja stiga
karfa frá Kukoc þegar 1,37 mín.
voru eftir af framlengingunni kom
Bulls í fyrsta sinn yfir í leiknum,
123:121. Eftir það létu meistararnir
forystuna ekki af hendi. „Toni Kukoc
kom öllum á óvart með leik sínum
nema mér,“ sagði Phill Jackson,
þjálfari Chicago, eftir leikinn. „Án
hans hefðum við ekki sigrað Lakers."
Vancouver Grizzlies sigraði Ho-
uston Rockets nokkuð óvænt í
Vancouver, 93:92. Bryant Reeves
gerði sigurkörfuna þegar 5,8 sekúnd-
ur voru eftir. Hakeem Olajuwon átti
síðasta skotið í leiknum fyrir gestina
en hitti ekki og þar með var sigur
Grizzlies í höfn. „Svona er körfubolt-
inn, svona er NBA,“ sagði Olajuwon
sem gerði 23 stig og tók 14 fráköst.
Charies Barkley lék ekki með Hous-
ton vegna meiðsla.
Indiana Pacers vann Miami Heat
óvænt í Miami, 103:89. Antonio
Davis var stigahæstur í liði Pacers
með 21 og tók auk þess 11 fráköst.
Alonzo Mourning var með 25 stig
og 18 fráköst fyrir Miami sem tap-
aði öðrum leik sínum af síðustu 15.
New York Knicks er á góðri sigl-
ingu um þessar mundir og í fyrri-
nótt vann liðið sjöunda sigurinn í röð
er það mætti Utah Jazz á heima-
velli, 99:94. Chris Childs skoraði 24
stig fyrir Knicks og þar á meðal
þriggja stiga körfu þegar 30 sekúnd-
ur voru eftir. Patrick Ewing gerði
10 af 25 stigum sínum í fjórða leik-
hluta. Karl Malone var með 29 stig
fyrir Jazz.
Hersey Hawkins skoraði 30 stig
og þar af voru átta þriggja stiga
körfur fyrir Seattle sem vann Golden
State örugglega, 123:83. Seattle
hafði 33 stiga forskot í hálfleik.
Gary Payton gerði 22 af 24 stigum
sínum í fyrri hálfleik fyrir Seattle
sem hefur unnið 17 leiki og tapað
9. Latrell Sprewell var stigahæstur
í liði Golden State með 26 stig.
Mookie Blaylock gerði 27 stig fyrir
Atlanta Hawks sem setti NBA-met í
þriggja stiga körfum í einum leik er
liðið mætti Dallas og sigraði 109:73.
Leikmenn Atlanta hittu úr 19 af 27
þriggja stiga skotum sínum í leiknum.
Mavericks átti eldra metið, 18 þriggja
stiga körfur, í leik á síðasta tímabili.
Muggsy Bogues jafnaði eigið
stigamet með því að gera 24 stig
fyrir Charlotte í 93:84 sigri á Philad-
elphia á útivelli. Toronto Raptors
vann fyrsta útisigur sinn á tímabilinu
með því að vinna New Jersey, 97:88.
Danir
sækja um
HM 2001
DANIR ætla að sækja um að
halda heimsmeistarakeppni
karla í handknattleik árið
2001. „Við munum gera allt
til að fá heimsmeistara-
keppnina hingað,“ sagði
Gunnar Knudsen, formaður
danska handknattleikssam-
bandsins, eftir EM kvenna
sem lauk í Danmörku um sl.
helgi. HM verður í Japan
1997 og í Egyptalandi 1999.
Gunnar vonar að ný glæsi-
leg íþróttahöll verði byggð í
Árósum fyrir keppnina.
GOLF
Boðið upp á
vikuferðir
til Spánar
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn
hefur ákveðið að bjóða uppá
golfferðir til Islantilla á Spáni í
svartasta skammdeginu og gera
kylfingum þannig kleift að halda
sveiflunni vel við í vetur.
Fyrirkomulag ferðanna verður
þannig að farið verður héðan á
hverjum fimmtudegi frá 3. janúar
til 13. mars og er flogið árla dags
til Londan þaðan sem menn taka
rútu til Gatwick-flugvallar og er það
um klukkustundar ferð. Flogið er
með British Airways til Faro i Port-
úgal og lent þar um kl. 18. Þaðan
er um klukkustundar akstur til Isl-
antilla.
Eftir viku dvöl er farið frá Faro
um klukkan 15 og sömu leið til baka
og lent í Keflavík skömmu fyrir
miðnætti á fimmtudeginum. Að sögn
Peters Salmons hjá Úrvai-Útsýn
kostar ferðin innan við 70 þúsund
krónur og innifalið er flug, gisting
í sjö nætur á Confortel hótelinu, sem
er gott fjögurra stjörnu hótel, morg-
unverðarhlaðborð, ótakmarkað golf
í sex daga og allir skattar. Það sem
ekki er innifalið er rútan frá Heat-
hrow til Gatwick og leigubíllinn milli
Faro til Islantilla, en samanlagður
kostnaður vegna þessara ferða fram
og til baka er tæplega sex þúsund
krónur.
Islantilla völlurinn er í raun þrír
níu holu vellir, hver öðrum skemmti-
legri og tekur aðeins um tvær mínút-
ur að keyra frá hótelinu að vellinum
og sér hótelið um að koma kylfingum
á milli endurgjaldslaust.
Næstsíðasta umferð NFL ruðn-
ingsdeildarinnar fór fram um
síðustu helgi. Meistaralið Dallas
Cowboys vann riðil
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Bandarikjunum
sinn fimmta árið í röð
þrátt fyrir að sóknar-
leikur liðsins hafi ver-
ið afleitur undanfar-
ið. Þetta er í fyrsta sinn sem lið vinn-
ur hinn sterka austurriðil NFC deild-
arinnar fimm keppnistímabil í röð.
„Þökk sé guði fyrir vömina. Hún
hefur borið liðið uppi undanfarið,"
sagði Barry Switzer, þjálfari meistar-
anna eftir 12:6 sigur á New England
Patriots á heimavelli á sunnudag.
Það þætti yfirleitt ekki fréttnæmt
að meistaraliðið skuli komið í úrslita-
keppnina, en eftir slaka byijun,
vandamál utan vallar og afleitan
sóknarleik undanfarnar vikur, þykir
' það kraftaverki næst að liðinu skyldi
takast að vinna riðilinn eftir fyrri
hluta keppnistímabilsins eftir sjö
sigra í fyrstu átta leikjunum, en allt
hefur gengið á afturfótunum hjá
„rauðskinnunum“ frá höfuðborginni
á seinni hlutanum. Á sunnudag tap-
aði liðið sjötta af síðustu sjö leikjum
Kúreka vantar vopn
Dallas komið í úrslitakeppni NFL deildarinnar þráttfyrir slaka sókn
sínum I Arizona, 27:26. Kevin Butler
skoraði vallarmark fyrir heimaliðið
þegar leiktíminn rann út.
Leikur helgarinnar
Indianapolis Colts gerði sér lítið
fyrir og vann Kansas City Chiefs,
24:19, á Arrowhead Stadium í Kans-
as City. Með sigrinum komst Indi-
anapolis í úrslit, en Kansas City
verður að vinna í Buffalo á sunnu-
dag til að komast í úrslit.
Arangur Colts er einkum athygl-
isverður þegar tekið er tillit til gífur-
legra meiðsla hjá liðinu á keppnis-
tímabilinu. Átján leikmenn í byijun-
arliðinu (alls eru 22 byijunarstöður
í sókn og í vörn) hafa verið meiddir
meira og minna það sem af er, en
um hvetja helgi koma varamenn og
fylla upp í eyðurnar.
Chiefs skoruðu snertimark þegar
rúm mínúta var eftir og síðan stálu
leikmenn liðsins knettinum þegar
leikur var hafinn að nýju. Liðið kom
síðan knettinum tíu metra frá marki
Indianapolis með yfir tuttugu sek-
úndur á klukkunni, en þrátt fyrir
þijár tilraunir tókst Chiefs ekki að
skora. Frábær endasprettur, því
miður aðeins of stuttur fyrir ákafa
stuðningsmenn liðsins.
Ný lið í úrslitakeppnina
Carolina Panthers og Jacksonville
Jaguars komust í úrslitakeppnina á
aðeins öðru keppnistímabili liðanna.
Venjulega tekur það ný lið í deild-
inni mörg ár að komast í úrslita-
keppnina, en þak á heildarlaun leik-
manna og rýmkaður réttur þeirra
að skipta um lið hafa gert nýjum
liðum auðveldara að byggja fljótt
upp. Jacksonville vann Seattle Sea-
hawks, 20:13, á heimavelli, og Caro-
lina sigraði Baltimore Ravens, 27:16
í Charlotte. Jacksonville komst í úr-
slit þegar Miami vann Buffalo í
Florida á mánudagskvöld, 16:14.
Carolina getur unnið sinn riðil ef lið-
ið sigrar Pittsburgh á heimavelli á
sunnudag, en þar er liðið taplaust á
keppnistímabilinu.
Allt eftir bókinni
hjá þelm bestu
Þijú af bestu liðunum í deildinni
unnu öll góða sigra um helgina.
Green Bay Packers vann NFC deild-
ina með auðveldum sigri í Detroit,
31:3. San Francisco 49ers unnu
mjög góðan sigur í Pittsburgh,
25:15, en Pittsburgh tapar afar
sjaldan á Three Rivers Stadium í
Pittsburgh. Loks sigraði Denver
Broncos erkifjendurna Dakland Ra-
iders á heimavelli, 24:19. Denver er
með besta árangur allra liða þegar
ein umferð er eftir. Denver og Green
Bay hafa tryggt sér rétt til að leika
alla leiki sína í úrslitakeppninni á
heimavelli.
Loks má geta að víkingarnir frá
Minnesota komust í úrslit eftir sigur
á Tampa Bay Buccaneers, 21:10, í
Minneapolis.
Síðasta umferðin um helgina sker
úr um það hvaða lið leika saman í
úrslitakeppninni. Merkilegasti leikur
helgarinnar verður viðureign Buffalo
gegn Kansas City. Sigurvegarinn fer
í úrslitakeppnina, en tapliðið er kom-
ið í frí (þau fara bæði í úrslit ef þau
gera jafntefli! - það hefur þó ekki
gerst í deildinni síðan 1989).
Leikið er í sex riðlum í tveimur
deildum (AFC og NFC) í NFL ruðn-
ingsdeildinni og komast sigurvegar-
ar riðlanna, auk tveggja annarra liða
í hvorri deild í úrslitakeppnina. Tvö
bestu liðin í hvorri deild sitja hjá í
fyrstu umferð.
VIKINGALOTTO: 2 12 17 22 29 47 + 8 9 34