Morgunblaðið - 28.12.1996, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 28.12.1996, Qupperneq 4
KNATTSPYRNA Meistaramir herða róðurínn Iverson skoraði tvö NORSKI landsliðsmað- urlnn Steffan Iverson byrjaðl vel með Tott- enham á Whlte hart Lane, skoraðl tvö mörk í slgurlelk gegn Southampton, 3:1. Hér geystist hann með knöttlnn framhjá Ulrlch van Grobbel og Francis Banall. Reuter Coventry, varði vítaspymu frá Gary Kelly. Noel Whelan, fyrrum leik- maður Leeds, var rekinn af leik- velli og léku leikmenn Coventry því tíu síðasta hluta leiksins. Þess má geta að Anthony Yeboah kom inná sem varamaður hjá Leeds þegar tuttugu mín. voru til leiksloka. Iverson byrjaði vel Norðmaðurinn Steffen Iverson byijaði vel með Tottenham, skoraði tvö mörk þegar liðið skellti South- ampton, 3:1. Iverson skoraði fyrra markið sitt eftir aðeins 53 sek. Danski landsliðsmaðurinn Alan Ni- elsen skoraði þriðja mark Totten- ham. Matthew Le Tissier, sem kom inná sem varamaður, skoraði mark Southampton. „Þetta var langþráður og kær- kominn sigur hjá okkur. Ég er mjög ánægður með framgöngu Juninho, sem skoraði tvö mörk,“ sagði Bryan Robson, knattspyrnustjóri Middl- esbrough, eftir að lið hans hafði lagt Everton að velli, 4:2. Staðan var jöfn í leikhléi, 2:2. Brasilíumað- urinn Juninho gerði síðan út um leikinn með tveimur mörkum á 58. og 75. mín. Sheffield Wed. og Arsenal skildu jöfn, 0:0. Leikmenn Sheff. Wed. hafa ekki tapað síðustu tíu leikjum sínum, gert átta jafntefli og unnið tvo leiki. ■ Úrslit / B2 ■ Staðan / B2 MEISTARAR Manchester Un- ited hafa sýnt það að undan- förnu, að þeir ætla ekki að gefa eftir meistaratitilinn átakalaust - lögðu Nottingham Forest örugglega að velli, 0:4, ~ á City Ground í Nottingham. Leikmenn United hafa hert róð- urinn, skorað níu mörk í síð- ustu tveimur leikjum sínum og eru komnir í þriðja sæti. David Beckham kom United á bragðið á City Ground, skor- aði eftir 21 mín. eftir sendingu frá Ryan Giggs. Nicky Butt bætti öðru marki við fyrir leikhlé og í seinni hálfleik skoraði Norðmaðurinn Ole Solskjær, hans tíunda mark í vetur, og smiðshöggið á sigurinn rak Andy Cole, sem kom inná sem varamað- urt og lék sinn fyrsta leik síðan hann fótbrotnaði í leik gegn Liv- erpool í byijun keppnistímabilsins. Ekki er hægt að segja að Nigel Clough hafí átt góða endurkomu á City Ground, lék fyrsta leik sinn þar með Forest síðan hann var seld- ur til Liverpool fyrir þremur og hálfu ári. Liverpool saknaði Fowlers Liverpool varð að sætta sig við jafntefli gegn Leicester á Anfield Road, 1:1. Það var greinilegt að heimamenn söknuðu Robbie Fowl- ^ er, sem gat ekki leikið vegna fneiðsla á ökkla. Sóknarleikur þeirra var bitlaus. Steve Claridge skoraði fyrir Leicester á 76. mín., Stan Collymore jafnaði fyrir Liv- erpool fjórum mín. síðar - sendi knöttinn í netið af stuttu færi, hans sjöunda mark á keppnistímabilinu. Blackbum lagði Newcastle 30.398 áhorfendur mættu á Ewood Park í Blackburn, til að sjá fyrrum hetju sína, Alan Shearer, leika með Newcastle. Shearer og félagar, sem hafa ekki fagnað sigri í sjö síðustu leikjum sínum, riðu ekki feitum hesti frá viðureigninni við Blackburn, sem vann 1:0. Kevin Gallacher skoraði sigurmarkið á 75. mín. af stuttu færi við mikinn fögn- uð áhorfenda - spyrnti knettinum aftur fyrir sig og í netið, af stuttu færi. Shearer var bókaður í leikn- um, fyrir brot á Jeff Kenna. ítalinn Gianfranco Zola skoraði bæði mörk Chelsea, sem vann óvæntan sigur á Aston Villa á Villa Park, 0:2. Zola, sem hefur skorað þijú mörk í tveimur síðustu leikjum Chelsea, skoraði mörkin með stuttu millibili í seinni hálfleik og voru þau ódýr. Leikmenn Coventry gerðu góða ferð til Elland Road í Leeds, þar sem þeir fögnuðu sigri, 1:3. Brian Deane kom heimamönnum yfir á níundu mín., en Derren Huckerby jafnaði fyrir Coventry á 30. mín. með glæsimarki, sem minnti menn á mark sem George Best skoraði fyrir Man. Utd. gegn Sheffield Utd. fyrir 25 árum - hann lék skemmti- lega á varnarmenn Leeds og sendi knöttinn efst upp í markhornið. Dion Dublin skoraði annað mark Coventry með skalla níu mín. síðar, eftir hornspyrnu. Gary McAIlister, fyrrum leikmaður Leeds, gull- tryggði sigurinn með marki úr víta- spyrnu, aðeins mín. síðar. Steve Ogrizovic, markvörður Vogts velur Ijóra Þjóð- verja í Evrópuúrvalið Berti Vogts, landsliðsþjálfari Þýskalands, og Rinus Mich- els, fyrrum landsliðsþjálfari Hol- lands, hafa valið fjóra leikmenn úr Evrópumeistaraliði Þýskalands í Evrópuúrvalið, sem leikur gegn Afríkuúrvali í Lissabon í Portúgal 29. janúar. Það eru þeir Matthias Sammer, knattspyrnumaður árs- ins 1996 í Evrópu, Júrger Klins- mann, Christian Ziege og Andreas Möller. Annars er Evrópuliðið skipað þessum leikmönnum: Markverðir: Seaman, Englandi og Schmeichel, Danmörku. Varnarmenn: Sammer, Þýska- landi, Ferrara, Ítalíu, Maldini, ít- alíu, Ziege, Þýskalandi, Latal, Tékklandi og Neville, Englandi. Miðjumenn: Deschamps, Frakk- landi, Desailly, Frakklandi, Nedved, Tékklandi, Ronald de Boer, Hollandi, Boban, Króatíu, McManaman, Englandi, Del Pi- ero, Ítalíu, Rui Costa, Portúgal og Möller, Þýskalandi. Sóknarleikmenn: Klinsmann, Þýskalandi, Boksic, Króatíu, Pinto, Portúgal og Shearer, Englandi. Robson svar- ar gagnrýni BRYAN Robson, knattspyrnu- stjóri Middlesbrough, hefur svarað ganrýni Fabrizio Ra- vanellis þess efnis að æfingar væru slakar hjá félaginu og hann þyrfti að sækja séræfing- ar til að halda sér í keppnis- formi. Hann sagði ekkert vera satt í að Ravanelli byggi við skertan hlut hjá félaginu. „Hann stundaði æfingar á eig- in vegum rétt á meðan við vor- um að leika æflngaleiki fyrst eftir að hann kom til félagsins, en allar götur síðan hefur hann æft af krafti með liðinu og ekki verið á eigin vegum,“ sagði Robson. Hann viður- kenndi að vissulega æfðu lið á Englandi á annan hátt en á Italíu en það væri gert vegna þess að félögin byggju við aðr- ar aðstæður og ólíka niðurröð- un leikja, þar sem u væri aðeins leikið um helgar á ítal- íu. „Niðurröðun leikja í Eng- landi tekur sinn toll hjá leik- mönnum. Ef leikmenn æfa of mikið kemur það niður á frammistöðu þeirra í leikjum þar sem þeir þurfa oft að leika tvo leiki á viku.“ ErTrtt hjá Aston Villa LEIKMENN Aston Villa, sem töpuðu óvænt heima fyrir Chelsea á ViJIa Park, eiga erf- iðan róður framundan. Þeir mæta Arsenal á Highbury í dag, Manchester United á Old Trafford 1. janúar, Newcastle á Villa Park 11. janúar og Li- verpool á Anfield Road 18. jan- úar. Lið Aston Villa er sterkt og ef það kemur vel út frá þessum leikjum, er það til ails liklegt. Mm FOI_K ■ PATRICK Vieira mun leika með Arsenal gegn Aston Villa á Highbury í dag, þar sem hann hefur tekið út tveggja leikja bann. ■ DAVID Platt leikur ekki með Arsenal, þar sem hann er meiddur á hásin. Miklar líkur eru á að Frakkinn Reme Garde taka stöðu hans. Það getur svo farið að Mart- in Keown leiki ekki í vörninni og Lee Dixon fer í læknisskoðun fyrir leikinn. Scott Marshall og Andy Linighan eru tilbúnir að leika. ■ GIANLUCA Vialli leikur á ný með Chelsea gegn Sheff. Wed. og þá eru þeir Scott Minto, Frank Leboeuf og Dennis Wise klárir í slaginn. ■ NIGEL Clough hjá Nott. For. nefbrotnaði í leiknum gegn Man. Utd. og verður frá keppni um tíma. ■ KEVIN Ball, fyrirliði Sunder- land, verður frá keppni í sex vikur, þar sem hann kjálkabrotnaði í leikn- um gegn Derby. ■ ROBBIE Fowler mun leika á ný með Liverpool gegn Southampton á The Dell. Hann gat ekki leikið með liðinu gegn Leicester, þar sem hann var meidd- ur á ökkla. ■ ANDY Hinchcliffe, varnarleik- maður hjá Everton, mun ekki leika meira með liðinu í vetur vegna meiðsla á hné. ■ BRYAN Robson, knattspyrnu- stjóri Middlesbrough, hefur hug á að kaupa Slóvakiumanninn Vlad- imir Kinder frá Slovan Bratislava á 114 millj. ísl. kr. Kinder er 27 ára varnarleikmaður. Búið er að bjóða honum Ijögurra ára samning.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.