Morgunblaðið - 08.01.1997, Side 1
7T
H
0'
Pwjan^laíii^
1997
MIÐVIKUDAGUR 8. JANUAR
BLAD
B
KORFUKNATTLEIKUR
Erlendir leikmenn koma og fara, umboðsmennirnir hagnast vel
Kristinn í hóp
milliríkjadómara
KRISTINN Jakobsson, knattspyrnudómari úr KR,
hefur verið útnefndur millirikjadómari, FIFA-
dómari, frá 1. janúar. Kristinn tekur sæti Guð-
mundar Stefáns Maríassonar, sem lætur af störf-
um sem FIFA-dómari. Alþjóða knattspyrnusam-
bandið hefur einnig staðfest að Bragi Bergmann,
Eyjólfur Ólafsson og Gylfi Orrason verði áfram
á dómaralista FIFA 1997.
Einar Guðmundsson hefur bæst í hóf aðstoðar-
dómara FIFA, verður £ hópnum ásamt Ara Þórð-
arsyni, Gísla Björgvinssyni, Kára Gunnlaugssyni,
Ólafi Ragnarssyni, Pjetri Sigurðssyni og Sæ-
mundi Víglundssyni. Egill Már Markússon óskaði
eftir því að hverfa af FIFA-listanum yfir aðstoðar-
dómara. Egill Már og Guðmundur Stefán verða
áfram í A-hópi dómara hér á landi, í hópi dóm-
ara sem dæma leiki í nýstofnaðri núlltu deild og
bikarkeppni KSÍ.
Herman með
KR gegn ÍA
Tvær milljonir
kr. í fargjöld
MIKIÐ hefur verið um breytingar hjá íslensku körfuboltaliðunum
á erlendum leikmönnum það sem af er leiktíðinni. Nú hafa 33
erlendir leikmenn skipt um félag. Félagaskipti erlendu leikmann-
anna fara í gegnum skrifstofu Körfuknattleikssambandsins og
þurfa félögin að greiða 28 þúsund krónur vegna félagaskipta
hvers leikmanns, af þvf renna 18 þúsund krónurtil Alþjóða Körfu-
knattleikssambandsins, FIBA, og 10 þúsund til KKÍ. Það sem af
er tímabilinu hafa íslensku félögin eytt rúmlega hálfri milljón
króna ífélagaskiptagjald fyrir erlendu leikmennina.
Það vekur athygli hve félögin
skipta ört um leikmenn og
kostnaðurinn vegna þess er orðinn
mikill. Ekki nóg með að það þurfi
að greiða félagaskiptagjaldið því fé-
lögin þurfa einnig að greiða farseðla
fyrir leikmenn sem hingað koma. Það
má því reikna með að körfuboltafé-
m
Félagaskipti
eiiendra
leikmanna
Eftirtaldir erlendir leikmenn
hafa skipt yfir í íslensk lið á
leiktíðinni:
ÚRVALSDEILD
Skallagrímur: Curtis Raymond, Wa-
yne Mulgrave, Gordon Wood, Joe
Rhett
Tindastóll: Cesarc Marco Piccini, Jef-
frey J. Johnson, Joseph Ogums,
Morick Parke
KR: Clarence Wrencher, David Edw-
ards, Geoffray Herman
KFÍ: Andrew Vallejo, Euan Roberts,
Derrick Bryant
Grindavíkilohn Jackson, Hermann
Myers
ÍA: Andrei Bondarenko, Ronald Bay-
less
UMFN: William Isaac John, Torrey
John
KeflavíkiDamon Johnson
Þór Akureyri: Fred Williams.
Haukar: Shawn Smith
ÍR: Toriano Baker
Breiðablik: Andre Bovain
1. DEILD
Reynir: Bradley Baker
Snæfell: Brian A. Kopf
Stjarnan:Christopher Lentz
Selfoss: Malcolm Montgomery
Leiknir: Monter Glasper
Þór Þorl.: Raymond Hardin
Höttur: Shahid Perkins
Hamar: Oleg Krijanovsky
lögin hafi greitt um tvær milljónir í
fargjöld á þessu tímabili.
Bandaríkjamennirnir sem leika
hér á landi hafa samkvæmt áreiðan-
legum heimildum frá 1.800 (120
þúsund krónur) til 4.000 dollara (270
þúsund krónur) í mánaðarlaun, auk
þess sem félögin greiða húsaleigu
leikmanna. Einnig þurfa þau að
greiða umboðsmönnum leikmann-
anna 1.000 (67.000 kr.) til 1.500
dollara (100.000 kr.) fyrir hvern leik-
mann sem hingað kemur. Umboðs-
mennimir hafa því hagnast nokkuð
vel þetta tímabilið sem reyndar er
enn ekki hálfnað. Þeir hafa fengið
um 2,7 milljónir króna frá íslensku
félögunum.
Þegar dæmið er skoðað hlýtur að
vera eitthvað athugavert við það
hvernig kaupin á erlendu leikmönn-
unum eru framkvæmd. Oftar en ekki
eru félögin að kaupa köttinn í sekkn-
um. Vita ekki hvaða „vöru“ þau eru
að fá því þau hafa ekki séð hana
áður.
Nýjustu dæmin um þessa hringa-
vitleysu áttu sér stað í síðustu viku
og um helgina. Grindvíkingar, sem
léku undanúrslitaleikinn í bikarnum
á móti KR á sunnudag, fengu Banda-
ríkjamanninn Dervin Collins í síðustu
viku og átti hann að taka stöðu
Hermans Myers, sem ekkert hafði
heyrst frá ög Grindvíkingar óttuðust
að æltaði ekki að koma úr jólafríi.
Grindvíkingar voru ekki ánægðir
með frammistöðu Collins á æfingum
fyrir helgina, létu hann fara og hefðu
leikið án erlends
leikmanns gegn KR
hefði Myers ekki
komið.
Curtis Raymond,
sem lék með Skalla-
grími í Borgarnesi
fyrr i vetur, kom til landsins fyrir síðustu helgi og hélt
sig vera enn á samningi hjá félaginu. Þegar hann mætti
upp í Borgarnes var honum tjáð að liðið hefði fengið
sér annan útlending, Joe Rhett, til að taka við stöðu hans!
Það heyrir nánast til undantekninga ef sami erlendi
leikmaðurinn er hjá sama liði heilt keppnistímabil í úr-
valsdeildinni. Hvers vegna fara forráðamenn félaganna
ekki sjálfir til Bandaríkjanna fyrir keppnistímabilið til
að leita sér að leikmanni? Ef dæmið er skoðað yrðu
farseðlarnir til Ameríku líklega mun færri sem hvert
félag þyrfti að greiða og eins vissu stjórnarmenn líka
hvað þeir væru að kaupa.
B AND ARÍK JAM AÐURINN Geoff Herman leikur
með KR-ingum á móti f A í úrvalsdeildinni annað
kvöld. KR-ingar hafa ákveðið að gefa honum fleiri
tækifæri með liðinu en þennan eina leik í bikarn-
um á móti Grindavík. Herman tók stöðu David
Edwards, sem var í leikbanni á móti Grindavík,
og þótti standa sig það vel að hann verður eitt-
hvað áfram.
Gísli Georgsson, formaður körfuknattleiks-
deildar KR, sagði að enn væri ekki ákveðið hvort
Herman yrði áfram. „Við látum hann alla vega
spila á móti í A og síðan sjáum við til hvort við
köUum aftur í Edwards frá Bandarikjunum eða
látum Herman vera áfram,“ sagði Gísli.
Guðni ekki með
gegn Wimbledon
GUÐNI Bergsson, fyrirliði Bolton, getur ekki leik-
ið með liðinu gegn Wimbledon í 8-Iiða úrslitum
ensku deildarbikarkeppninnar í kvöld. Middl-
esbrough leikur gegn Liverpool. Tveir leikir áttu
að fara fram í gærkvöldi, þeim var festað vegna
vetrarríkis. Viðureignirnar voru Ipswich - Leic-
ester og Stockport - Southampton.
GEOFF HERMAN
Bandaríkjamaðurinn
Geoff Herman leikur nú
með KR-ingum.
Morgunblaðið/Golli
KNATTSPYRIMA: ÁKVÖRÐUN DÓMARA KÆRÐ TIL FORSÆTISRÁÐHERRA / B4