Morgunblaðið - 10.01.1997, Side 5

Morgunblaðið - 10.01.1997, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997 B 5 Jónas Kristjánsson um Jón Helgason Magnús Stefánsson um Davíð Stefánsson Lumaði á fleiru Einfari þegar en skopkvæðum hann orti „ÞEGAR það spurðist að það ætti að skera mig upp við botnlangabólgu rétt fyrir jólin héldu bekkjarsystkini mín að ég yrði á spítalanum yfir hátíðirnar. Þau vorkenndu mér svo að þau efndu til samskota og söfnuð- ust 15 krónur. Sessunautur minn keypti handa mér tvær riýútkomnar bækur fyrir andvirðið, Úr landsuðri eftir Jón Helgason og Hús skáldsins eftir Halldór Laxness." Þannig voru fyrstu kynni Jónasar Kristjánssonar, fyrrverandi forstöðu- manns Árnastofnunar, af Jóni Helga- syni. Jónas var þá 15 ára bóndasonur að norðan og nýsestur á skólabekk í MR. Hann lítur brosandi aug- um á blaðamann og fer að grúska í skjala- haugnum á skrif- borðinu. Þar grefur hann upp bókina Úr landsuðri, með áletrun frá bekkjar- systkinum sín- um og ártalinu 1939. Nokkrum árum síðar heyrði Jónas Guðfinnu frá Hömrum liafa það eftir Sigurði Nordal að kvæðið í Árnasafni eftir Jón Helgason væri besta kvæði sem ort hefði verið á íslenska tungu. „Það varð til þess að ég las ljóðið aftur með athygli og þótti harla gott,“ segir hann. var kröfuharður um meðferð tung- unnar. Ef honum líkaði ekki hvað menn sögðu var hann ófeiminn að láta það í ljós. Það kom stundum fyrir að ungir menn spyrðu er þeir stóðu við bókahilluna í stofu hans: „Má ég kíkja í þessa bók, Jón?“ Þá setti hann upp fýlusvip og sagði með þjósti: „Hefurðu kíki?“ Fyrsta daginn minn í Árnasafni spurði ég Jón: „Hvað á ég nú að gera til að byija með?“ Jón svaraði: „Ég skal láta þig vita að ég drep alla sem segja til að byrja með. Þér er vissara að forðast að segja það Morgunblaðið/Golli JÓNAS kynntist Jóni þegar þeir fengust við islensku handritin í Kaupmannahöfn. í víking til Kaupmannahafnar Þegar Jónas hafði lokið háskóla- prófi í íslenskum fræðum sendi Sig- urður Nordal hann til náms og starfa hjá Jóni í Kaupmannahöfn. Þar átti hann að læra að fást við handritalest- ur og útgáfur fornrita. „Hugmyndin var _sú að ef handritin kæmu heim til íslands væru einhveijir ungir menn reiðubúnir að taka við þeim.“ Jónas vann fjögur ár undir hand- leiðslu Jóns í Kaupmannahöfn og lýsir læriföður sínum svo: „Jón var oft heldur þurr og fálátur hversdags- lega en gat verið mjög skemmtilegur þegar þannig lá á honum. Hann tal- aði og skrifaði vandaða íslensku og ef þú vilt ekki verða borinn dauður héðan út.“ Jónas hlær góðlátlega. „Ég lét þetta sem vind um eyru þjóta, og fljótlega tókst með okkur hin besta vinátta." Jón mildaðist líka með aldrinum eins og gengur. Þegar Gunnar Thoroddsen var sendiherra í Kaupmannahöfn sagði Jón ein- hveiju sinni við hann: „Nú er öll ill- mennska rokin úr mér,“ — og stundi mæðulega. Á afmælisdegi kattarins Enginn vissi að Jón hefði ort ann- að en skopkvæði fyrr en bókin Úr landsuðri kom út. Seinna sagði Sig- urður Nordal Jónasi frá því að ein- „Beiö þess að deya“ „JÓHANN hafði ort andlátsljóð sitt um það bil sem ég kom vest- an um haf,“ segir í ritgerð Halldórs Laxness „Borgin þar sem„Söknuður" varð til“ í bókinni Skáidatími. Þar minn- ist nóbelskáldið heimsóknar sinnar til Jóhanns Jónsson- ar skálds í Leipzig. Jóhann var þá að- framkominn af berklum. „Hann beið þess nú að deya. Þegar ég kom reis hann úr rekkju og vildi að við færum út að gánga. í tvö vor, bæði 1931 og 1932, gekk ég með hon- um um garða og stræti borgarinnar og við vorum kátir. Hann gat ekki HALLDÓR Laxness og Jóhann Jónsson í Leipzig í febrúar 1922. geingið nema fá skref í lotu, fót fyrir fót. Við sátum á þeim veit- íngastöðum þar sem við höfum oft setið áður meðan við vorum ýngri. Hann hafði mist rödd sína myrka, gullbrydda, og gat aðeins hvísl- að; berklarnir höfðu holgrafið hann og hann fékk litlu nærst. Stund- um gat hann ekki reist höfuðið frá koddanum heilan dag og sneri sér til veggjar. Eg sat dögum saman við rekkjustokk hans á þessum misserum. Hann hafði til að segja uppúr þurru: „æ getur þessi hel- vítis dauði ekki far- ið að koma“.“ „ÞAÐ ER fastur punktur í tilver- unni að fá fjölskylduna í heimsókn á jólum,“ segir Magnús Stefánsson í Fagraskógi. „Allir virðast reiðu- búnir að leggja mikið á sig til að koma hingað, systkini, börn og tengdabörn. Ég þarf jafnvel að fara tvær til þijár ferðir í bæinn eftir fólki.“ Magnús er bróðursonur skáldsins Davíðs Stefánssonar, sem lagði gjarnan leið sína í Fagraskóg. „Davíð hafði hafði sitt herbergi uppi á lofti ef hann vildi," segir Magnús. „Hann var einfari þegar hann orti og vildi ekki láta trufla sig. Hann var hjálpsam- ur, elskulegur og þægilegur í við- móti og barn- góður.“ Tók stökkið upp á herbergi Þannig hefst sam- talið í betri stofunni í Fagraskógi. Magnús fær sér kaffisopa og heldur áfram: „Davíð var alltaf með lítinn blý- antsstubb í vestisvasan- um þegar hann gekk fram á hlað- varpann eða niður í fjöru. Hann fór aldrei langt frá bænum þegar hann var að yrkja, þurfti að geta snúið við og skrifað, stundum með þvílíkum látum að hann tók stökkið upp á herbergi.“ Að sögn Magnúsar bar Davíð sterkar taugar til Fagraskógar: „Hann hringdi reglulega og spurði mikið um bændur, búskap og lífið hér í sveitinni. Sveitungar mínir fylgdust einnig grannt með starfi Davíðs og ljóðagerð. Þeim þótti vænt um hann. Það var heldur ekki hægt að komast hjá því að vera hlýtt til hans. Hann kom þannig fram við fólk hér á samkomum." Ástin blómstrar í garðinum Þegar Davíð lést, árið 1964, var haldin húskveðja í Fagraskógi og safnaðist þar geysilegt fjölmenni. Voru flestir sveitungar hans við- staddir. Sjö árum síðar var reist 'stytta í Fagraskógi til minningar um skáldið. „Það kemur alltaf þó nokkuð margt fólk að minnisvarð- anum á hveiju ári,“ segir Magnús. „Þetta fólk kemur í hóp- ferðum og á eigin veg- um. Það er eftirtekt- arvert að hingað kemur töluvert af yngra fólki. Stundum er greinilegt að það er mjög ástfangið. Þá leiðist það hönd í hönd í garðinum.“ Magnús er sjálfur í hópi unn- enda skálds- ins. „Ég hef bækur hans tíma og tíma í einu á náttborðinu hjá mér og hef lesið þær oft. En ég þarf helst að lesa ljóð- in upphátt. Þá næ ég betur til þeirra. Sumum nægir að lesa Ijóð með sjálfum sér, en ég skynja þau öðruvísi ef ég bæði heyri þau og sé.“ Samtalið hefur borist út í garð og mál að linni. Blaðamaður þakk- ar gestrisnina og kveður. Þegar hann ekur úr hlaði lítur hann yfir hið fallega bæjarstæði Fagraskóg- ar og virðir skáldið á stallinum fyrir sér þar sem það horfir yfir Eyjafjörð - fjörðinn sinn. Stoltið í svipnum leynir sér ekki. _ Morgunblaðið/Pétur Blöndal MAGNUS Stefánsson við minnisvarð- ann um Davíð. hveiju sinni hefði Jón óskað eftir að fá að sýna honum dálítinn hlut. „Þeir hittust, fengu sér kaffisopa og töluðu saman um stund. Þegar þeir stóðu upp spurði Sigurður hvort Jón hefði ekki átt við hann erindi. Þá skáskaut Jón handriti bókarinnar til hans án þess að mæla orð af vörum og gekk út. Sigurður kvaðst ekki hafa gert sér grein fyrir því þegar í stað hvílík snilldarverk ljóðin væru. Hann sagði mér einnig að þegar Jón hefði feng- ið próförkina í hendur hefði honum runnið til rifja hve bókin væri rýr í roðinu og sest við að yrkja nokkur kvæði til viðbótar, þar á með- al ekki ómerkara kvæði en Á afmælisdegi katt- arins." Hættur að fást við kveðskap Á árum sín- um í Kaup- mannahöfn kvartaði Jónas yfir því við Jón að hann birti of lítið af kveðskap eftir sig. Jón tók því fjarri og sagði: „Nei, ég er gjörsamlega hættur að fást við kveðskap." Þá var hann aðeins um fimmtugt, en hann birti mjög fá frumort kvæði eftir það. Hinsvegar birti hann margar svip- miklar ljóðaþýðingar sem öðlast hafa vinsældir. „Ævistarf Jóns var, auk kennslu við Kaupmannahafnarháskóla, að fást við fræðilegar útgáfur íslenskra rita bæði frá fornöld og síðari tímum, og á því sviði átti hann engan sinn jafningja, í senn glöggskyggn, vand- virkur og furðulega afkastamikill," segir Jónas. „Vísindalegar útgáfur hans skipta mörgum tugum, sumar geysimiklar að vöxtum og mundi hver einstök hafa reynst öðrum mönnum ærið ævistarf. En jafnframt fræðimennsk- unni var hann ekki aðeins afbragðs- gott skáld heldur líka snjall rithöf- undur á óbundið mál, svo sem sjá má í ritgerðum hans og skýringum með alþýðlegum útgáfum. Talað mál lék honum á tungu, og oft skemmti hann mönnum ógleymanlega með hnyttnum og kaldhæðnum frásögn- ■im sínum.“ Halldór Laxness um Jóhann Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.