Morgunblaðið - 10.01.1997, Page 6
6 B FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
+
DAGLEGT LÍF
Þríburar
- verðugt verkefni
„ÞEGAR ég eignaðist þríburana
mína, sem nú eru að verða sjö ára,
hefði ég viljað geta haft samband
við konur sem hefðu getað miðlað
mér af reynslu sinni. Það eru svo
margar spurningar sem vakna við
þessar aðstæður," segir Guðbjörg,
um tildrög að stofnun félagsins fyr-
ir fjórum árum. „Við vorum sjö þrí-
burafjölskyldur sem höfðum haft
samband um tíma og ákváðum að
stofna þetta félag. Nú eru fjölskyld-
urnar orðnar tuttugu og ein. Þríbur-
unum fer sífellt fjölgandi, einir
fæddust nú rétt fyrir jólin."
Töluverð aukning hefur orðið á
þríðburafæðingum hér á landi fyrir
tilstilli glasafijóvgana. Eru þær rúm
sextíu prósent af þríburafæðingum.
Þríburamir og fjölskyldur þeirra búa
dreift um landið. Á tímabili bjuggu
þó flestar fjölskyldur í félaginu í
Kópavogi eða sex talsins. Að sögn
Guðbjargar eru til ýmsar fleiri athygl-
isverðar, tölfræðilegar staðreyndir
varðandi þríburafæðingar. „Það vill
svo merkilega til að meirihluti þrí-
bura sem eru í félaginu eru fæddir
í kringum jólin, ég hef því miður
enga skýringu á þessu. Einnig hefur
kona með nafninu Guðbjörg Gunn-
arsdóttir fætt þríbura á íjögurra ára
fresti síðan 1985. Þetta er sérkenni-
leg tilviljun en kona með þessu nafni
Frá árinu 1951 hafa
fæðst fjörutíu og einn
þríburi hér á landi, þar
af eru sextán þríbura-
fæðingar á árunum
1991-1995. Hildur
Einarsdóttir ræddi við
Guðbjörgu Gunnars-
dóttur, formann Félags
þríburaforeldra. í félag-
inu eru nú tuttugu og
ein þríburafjölskylda.
ætti að vera við öllu búin á næsta ári!“
Varðandi kynjaskiptingu meðal
þríburanna sagði Guðbjörg að hjá
ellefu þríburum í félaginu væru
tvær stelpur og einn strákur á móti
þrennum þríburum þar sem strák-
arnir væru tveir og stelpan ein. Þar
sem eingöngu hefðu fæðst strákar
væru fimm þríburar og eingöngu
stelpur tvennir þríburar.
Guðbjörg sagði að það mætti hafa
bæði gagn og gaman af félagsskap
sem þessum. Konurnar hittust reglu-
lega til þess að ræða sín á milli
ýmis hagnýt mál en þær skildu hver
aðra afskaplega vel! „Eitt af megin-
markmiðum félagsins er að veita
nýjum þríburafjölskyldum stuðning
en félagið gefur út bækling með
upplýsingum um starfsemi félagsins
og liggur hann frammi á Landspítal-
anum. Auk þess hafa félagsmenn
jafnan samband við fjöiskyldur þar
sem vitað er að von er á þríburum
og veita ýmsar upplýsingar sem
þykja koma að gagni.“
Hvað verð ég elglnlega þung ð
meðgöngunnl?
Hvaða spurningar eru það einkum
sem brenna á konum sem eiga von
á þríburum?
„Þær spyrja um meðgönguna, til
dæmis hvað þær verði eiginlega
þungar. Líka um mál sem varða
börnin eins og hvort þau eigi að sofa
í sama herbergi, hvort þau eiga að
sofa í vöggu eða rúmi. Hvernig á
að haga bijóstagjöfum? Þríburar eru
alltaf fyrirburar, það er hámark að
konur með þríbura gangi með í þijá-
tíu og sex vikur. Þegar börnin fæð-
ast fyrir tímann þarf að gefa á
þriggja til fjögurra tíma fresti allan
Morgunblaðið/Þorkell
SAMKVÆMT félagatali Félags þríburaforeldra er algengasta
kyiyaskiptingin tvær stelpur og einn strákur. Hér er Guðbjörg
með þríburunum sínum þeim Guðjóni, Söru og Sif.
KJARTAN, Hákon og Sverrir í góðu yfirlæti. Reyndar var Kjart-
an með hlaupabóluna þegar myndin var tekin og hætta á að
hinir væru að verða veikir líka.
sólarhringinn. Þá er spurningin
hvernig best sé að haga nóttunum?
Á að sofa inni hjá börnunum, hvern-
ig eiga foreldrarnir að skipta með
sér næturvöktunum? Og svo mætti
lengi telja.“
Guðbjörg sagði að félagarnir
reyndu að að styðja hver annan með
I
Manstu
ekki hver
ÉGER?
ÉG ER kona, konan
sem þú hittir á fund-
unum og í síðdegis-
boðunum, þessi vel
snyrta, uppdubbaða
með rauðu neglurnar
og dýra ilmvatnið,
þú hlýtur að muna
eftir mér, við höfum
hitzt nokkrum sinn-
um. Hver segir að
ég sé merkileg með
mig, nei, alls ekki,
ég meina það ekki
þannig og ég er alls
ekki köld og frá-
hrindandi, en ég vil
láta taka mark á
mér, ég vil ekki að
þið haldið að ég sé
bara sæt, lítil dama,
Mér leiðist að tala
um uppskriftir, barnapössun og
hreingerningarlög, ég er þokkalega
vel inni í pólitík, efnahagsmálum
þjóðarinnar og aflabrögðum. Vissu-
lega eru þetta ekki skemmtileg
umræðuefni, en við hittumst nú bara
á fundum og í síðdegisboðum og
hver segir að fundir og síðdegisboð
eigi að vera skemmtileg. Þar á fólk
að hittast, endurnýja
gömul kynni og
stofna til nýrra, ná
sér í ný sambönd,
byggja upp ímynd,
sem getur komið sér
vel, þegar verið er
að ráða í nýjar stöð-
ur. Auðvitað lít ég í
kringum mig, en þið
eruð nú ekki margir
áhugverðir, þið berið
það allavega ekki
með ykkur.
Fyrirgefðu hvað
ég er hreinskilin við
þig, en þú spurðir svo
einkennilega. Er
þetta skemmtilegt líf,
hvemig spyrðu, það
skiptir ekki máli
hvort það er
skemmtilegt svo framarlega sem það
er áhugavert. Þetta orð er mjög nyt-
samlegt, hægt er að nota það um
allt leiðinlegt og ömurlegt án þess
að móðga nokkum, það sem er
áhugavert getur verið áhugavert,
vegna þess hversu hundleiðinlegt það
er, eða áhugavert fyrir það hversu
nauðaómerkilegt það er. Maður losn-
Vel menntuð og
traust með áhuga-
vert líf. Heimakær
og umhyggjusöm.
Áhyggjufull og
kvíðin framtíðinni.
María E. Ingva-
dóttir veltir fyrir
sér hinum mörgu
andlitum konunnar.
ar allavega við að ljúga til um ágætið.
Það er gaman að tala við þig, þú
ert öðruvísi. Nei, til allrar hamingju,
þá reyna þeir ekki við mig, enda
veit ég ekki hvað um mig yrði, ef
þeir gerðu það. Þú mátt ekki gleyma
einu, skemmtun er eitt og vinna
annað, hamingja eitt og bros og
brandarar annað. Ég fer ekki út
fyrir hlutverk mitt. Ég tek eftir
hvernig þeir læða sér upp að stóru
forstjórunum, blíðmála, brosandi,
þægilegir og skemmtilegir. Blessaðir
forstjórarnir hafa þegar gleymt
hvemig þeir fóru að og kokgleypa
agnið. Ég er öðruvísi, ég legg mig
ekki niður við þennan undirlægju-
hátt, enda veit ég ekki hvað forstjór-
arnir mundu segja, þeir mundu mis-
skilja mig gjörsamlega, ég fer aðrar
leiðir og enn lafi ég í skólabræðrun-
um. Það væri gaman að heyra, hver
þú heldur að ég sé, ertu frá þér,
fallegt merkikerti sem rignir uppí
nefíð á, hvað meinarðu, hvernig
fékkstu það út, ég sagði þér það,
ég verð að vera sú, sem veit hvað
hún syngur, standa fyrir mínu, ör-
ugg, traust, þeir þurfa stundum
þannig fólk, ég gef mig alls ekki
út fyrir að vera skemmtileg.
Hvenær hættið þið að vera
skemmtilegir, þú sérð þessa stráka
núna, hvenær hætta þeir að þurfa
að vera skemmtilegir, en verða að
sýna hvað þeir geta? Auðvitað er
minn stigi brattari og þrengri, en
þú mátt nú ekki gleyma einu, að á
efsta þrepi situr einn ykkar. Ég veit
samt ekki hvort það væri betra að
þar sæti kona, ég er ekki viss, nema
auðvitað að það væri ég.
Konur getá verið svo smámuna-
samar, það kallast nákvæmni og
samviskusemi á meðmælum og á
reyndar vel við sums staðar, til
dæmis held ég við að setja saman
hátæknilegan útbúnað, það sem
unnið er með flísatöngunum. En slík-
ar konur, sem komast í stjórnunar-
stöður eru yfírleitt óþolandi, í stað
þess að stjórna og skipuleggja næsta
leik vilja þær fylgjast með hvort frí-
merkið sitji rétt á umslaginu. Ég
vona að konan þín sé ekki kvenrétt-
indabaráttukona, þær mundu líklega
rífa mig í sig, ef þær heyrðu í mér.
Ég hef reyndar aldrei skilið þessa
kvenréttindabaráttu, mér finnst allt-
af að hún eigi eitthvað sameiginlegt
með rétta-baráttu, þá meina ég,
þegar ég sem lítil stúlka barðist við
að koma lömbunum í réttan dilk,
draga þau á hornunum eða hausnum
og um leið og komið var inn fyrir í
dilkinn, þá var að sleppa og forða
sér, til að lambið þeytti manni ekki
með sér innst í þvöguna. Þau vissu
ekki þá og ég hugsaði ekki til enda,
hver var þeirra næsti áfangastaður.
Jú, auðvitað vil ég hafa huggulegt
í kringum mig, ég þarf að geta boð-
ið merkilegu fólki heim, stílhreint
og þægilegt, ekkert óþarfa pijál.
Þú ættir kannski að tala við mlg
Þú spyrð svo undarlega, þú ættir
kannski að tala við mig, ég er hin
konan, sú sem hugsar um heimilið
og fjölskyldutengslin. Mér fínnst
best að vera heima, berfætt i sokka-
buxum og síðri peysu. Hver er ég
eiginlega, hvaðan kem ég, það er
ekki auðvelt að svara því, en ég er
hér og hér vil ég vera. Ég elska
heimilið mitt, fólkið mitt, það er
notaleg tilfinning sem gagntekur
mig, þegar ég hef lokið tiltekinni,
bakað sunnudagstertuna og kveikt
á nokkrum kertum. Svo baka ég
vöfflur og hita kakó og set pínulítið
koníak útí. Ég hringi daglega í for-
eldra mína, til að athuga hvort allt
sé í lagi, systkini mín fá litla pakka
á afmælisdögum og börnin þeirra
fá alltaf eitthvað spennandi frá
frænku sinni.
4-