Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 1
I
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
B
1997
ÞRIDJUDAGUR 14. JANUAR
BLAD
SKIÐI
Daníel
á uppleið
Daníel Jakobsson skíðagöngumaður frá Ólafsfírði
hefur staðið sig vel á mótum í Svíþjóð að undan-
förnu. Á sunnudag keppti hann í 12 km göngu með
ftjálsri aðferð í Funesdalen og hafnaði í 2. sæti, 58
sekúndum á eftir Svíanum Torgny Mogren sem sigr-
aði. Tobias Fredriksen, B-landsliðsmaður Svía, varð
þriðji 40 sek. á eftir Daníel.
„Það hefur gengið mjög vel hjá mér í vetur og ég
get því ekki annað en verið ánægður," sagði Daníel.
„Ég var að hugsa um að hætta í fyrra því það hafði
gengið svo illa hjá mér tvö undanfarin ár. En ég
ákvað að reyna eitt ár í viðbót og snúa mér þá alfarið
að göngunni. Ég hef ekkert gert annað en æfa í vet-
ur og það er að skila sér núna í betri árangri."
Daníel keppti í Opna skandinavíska mótinu í Hudik-
svalls 4. janúar og hafnaði í 5. sæti í 10 km göngu
með fijálsri aðfarð. Hann var 30,4 sekúndum á eftir
sænska sigurvegaranum Per Elofsson. Jörgen Brink,
Svíþjóð, varð annar, Magnus Ingesson, Svíþjóð, þriðji
og Glenn Lindholm, Finnlandi, fjórði. Keppendur voru
frá 11 þjóðum og þar á meðal B-landsliðsmenn frá
Svíþjóð, Noregi og Finnlandi.
Daníel sagðist bjartsýnn á gott gengi í vetur. „Ég
hef meiri ánægju af þessu en áður,“ sagði göngumað-
urinn. Hann keppir á sænska meistaramótinu um
aðra helgi og verður einnig á meðal keppenda á heims-
meistaramótinu í Þrándheimi í Noregi í næsta mánuði.
„Pillan“ með sigurbros á vör
PERNILLA Wiberg frá Svíþjóð er með örugga forystu í
stigakeppni heimsbikarsins í kvennaflokki eftir sigurinn
í risasvigi um heigina. Hún hafði því ástæðu til að brosa
þegar 17. heimsbikarsigur hennar var í höfn. „Pillan“
eins og hún er oft nefnd stefnir að því að verða fyrst
sænskra kvenna til að hampa heimsbikarnum í alpagrein
um skíðaíþrótta.
Reuter
HANDKNATTLEIKUR
Bikarmeistarar karla og kvenna á heimavelli í undanúrslitum
Stefnir í hörkuleiki
Bikarmeistarar karla og kvenna
í handknattleik eiga heima-
leik í undanúrslitum um aðra helgi
en dregið var í gær.
„Þetta verða hörkuleikir og
jafnir,“ sagði Ólafur B. Lárusson,
þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar,
en liðið á titil að veija og fær
Hauka í heimsókn. „Á góðum degi
eru Haukar og Stjarnan með bestu
kvennaliðin og ánægjulegt er að
KR eða Valur, sem byggja á ung-
um stúlkum, kemst í úrslitaleikinn,
að stúlkurnar fái að kynnast
stemmningunni og umfjölluninni
sem fylgir úrslitunum."
Haukar og Stjarnan hafa mæst
þrisvar í vetur. Stjarnan, sem er
tveimur stigum á eftir Haukum í
deildinni, sigraði með miklum mun
í úrslitaleik opna Reykjavíkur-
mótsins og hafði það af í tvífram-
lengdum leik í meistarakeppninni
en tapaði stórt í fyrri deildarleik
liðanna. Seinni leikurinn verður
viku eftir bikarleikinn.
„Ef til vill má segja að viðureign
liðanna í undanúrslitum sé óbeinn
úrslitaleikur en ekki má útiloka
Val eða KR,“ sagði Ólafur. „Ekki
er verra að eiga heimaleik en þetta
verður spurning um dagsformið.“
■ Drátturinn/B2
KÖRFUKNATTLEIKUR: BREIÐABLIK ENN ÁN SIGURS / B3
Vinnings-
Vinningar
vinnlnga
upphæð
Vertu viöbúin(n) vinningi
1. vinningur er áætlaður 40 milljónir kr.
VINNINGSTÖLUR
LAUGARDAGINN
VINNINGSTÖLUR
MIÐVIKUDAGINN
AÐALTÖLUR
BÓNUSTÖLUR
• Miöarnir meö bónusvinningunum í
laugardagslottóinu voru keyptir í sölu-
turninium Stjörnunni við Langholtsveg,
í leiðinni i Hafnarstræti, Vídeljóninu við
Dunhaga i Reykjavik, Bræöraborg í
Hamraborg í Kópavogi, K. Vídeó viö
Hringbraut i Keflavík og KEA viö
Sunnuhlið á Akureyri.
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
1 . 6 af 6 4 10.683.000
O 5 af 6 * L 0 1.756.917
3. 5"16 2 118.770
4. 4 af 6 182 2.070
j- 3 af 6 D. + bónus 757 210
Samtals: 945 45.262.167
Heildarvinningsupphæð: 45.262.167 Á íslandi: 2.530.167
MIÐ.
öyl /oij
FIM.