Morgunblaðið - 14.01.1997, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 14.01.1997, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 B 3 ÍÞRÓTTIR KORFUBOLTI Létthjá UMFN Njarðvíkingar áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja Breiðablik að velli, 93:77, í úrvals- deildinni i körfu- , _ knattleik í Smáran- Jónatansson um 1 gærkvoldi. skrifar Blikar, sem tefldu fram nýjum Banda- ríkjamanni, hafa enn ekki hlotið stig í deildinni og hafa tapað tólf fyrstu leikjum sínum og útlitið dökkt. Leikurinn var slakur og fátt sem gladdi augað. Það var aðeins á fyrstu mínútum leiksins sem Blik- ar náðu að hanga í Njarðvíkingum, sem léku nánast á hálfri ferð allan leikinn og gátu leyft sér það. Mun- urinn í hálfleik var tíu stig, 50:40. Clifton Buch lék fyrsta leik sinn með Blikum og komst ágætlega frá honum, ef frá eru taldar fyrstu mínúturnar. Hann kom til landsins á laugardag og hafði mætt á eina æfingu með liðinu fyrir leikinn. Ein- ar Hannesson lék einnig ágætlega. Ástþór Ingason stjórnaði liði Njarðvíkinga í fyrsta sinn og átti náðugt kvöld, enda mótherjarnir slakir. Bestur í liðinu var Torrey John, sem gerði 32 stig. Reuter GÚNTHER Mader frá Austurríki sigraði í alpatvíkeppninni í Chamonix í Frakklandi um helgina. Hér er hann á fullri ferð í svigkeppninni á sunnudag. SKIÐI Svigmeistarinn samur við sig Svigmeistarinn Thomas Sy- kora frá Austurríki sigraði í svigi heimsbikarsins í Chamonix í Frakklandi á sunnudaginn. Þetta var fimmta svigmót vetrarins og hefur hann unnið fjögur þeirra og varð annar í því fimmta. Yfir- burðir Austurríkismannsins í Chamonix voru miklir því hann var 1,66 sekúndum á undan landa sínum, Thomasi Stangassinger, sem kom næstur. „Ég er ekki orðinn þreyttur á að sigra,“ sagði Sykora. „Það er enginn sigur eins. Ég hef enga skýringu á því hvers vegna ég er svona sterkur í svigi, en það er gaman þegar svona vel gengur." ítalinn Kristian Ghedina sigr- aði í bruni karla á sama stað á laugardag og var það jafnframt annar sigur hans í bruni á tímabil- inu. Atle Skárdal frá Noregi varð annar og Werner Franz, Austur- ríki, þriðji. Gunther Mader frá Austurríki sigraði í tvíkeppninni, þ.e.a.s. samanlögðum árangri úr sviginu og bruninu. Wiberg eykur forskotið Pernilla Wiberg frá Svíþjóð jók forskot sitt í samanlagðri stiga- keppni heimsbikarsins með því að sigra í risasvigi í Bad Kleink- irchheim í Austurríki á sunnudag. Hún hefur nú 214 stiga forskot á Katju Seizinger frá Þýskalandi, sem varð þriðja í risasviginu. „Veðrið og skíðafærið var eins og best verður á kosið,“ sagði Pernilla Wiberg. „Brautin var ísi- lögð og því hörð og þannig vil ég hafa þær. Markmiðið hjá mér í vetur er að vinna heimsbikarinn í svigi og bruni,“ sagði Wiberg sem varð í fimmta sæti í bruninu á sama stað á laugardag, en þar sigraði Heidi Zurbriggen frá Sviss og var það annar sigur hennar á 12 ára keppnisferli. Wiberg er með nýjan þjálfara, ítalann Heinz-Peter Platter. Hann segir að hún sé frábær íþróttamaður. „Hún er fjölhæf, ekki ólík Ámodt og Girardelli í karlaflokki. „Eini veikleiki hennar er að hún ætlar sér stundum um of,“ sagði Platter. Pálmi aftur til ÍA PÁLMI Haraldsson gekk í gær frá samningi við íslands- og bikarmeistara Skaga- manna í knattspyrnu og leik- ur með þeim næsta tímabii. Pálmi hefur alla tíð leikið með ÍA nema hvað hann var með Breiðabiiki á liðnu ári. Ólafur stjórnar ÍA ÓLAFUR Þórðarson, fyrirliði í A, sér um æfingar Skaga- manna þar til þjálfari verður ráðinn en gert er ráð fyrir að málið skýrist eftir aðai- fund deildarinnar annað kvöld. Nokkrir erlendir þjálfarar hafa sýnt áhuga á að þjálfa ÍA og hefur Daninn Preben B. Lundbye þjá Silkeborg þegar kynnt sér aðstæður á Akranesi. Landi hans, Benny Johansen, fyrrum þjálfari FC Kaupmannahöfn, kemur einnig til greina sem og Júgó- slavinn Ivan Golac, fyrrum þjálfari Dundee United og Partizan Belgrad. Srnicek vill frá Newcastle MARKVÖRÐURINN Pavel Srnicek frá Tékklandi óskaði - skriflega eftir því í gær að fara frá Newcastle en hann lék ekki með liðinu um helg- ina. Hann sagði að ákvörðun- in hefði verið erfið en hann yrði að hugsa um fjölskyld- una. „Allir vita hug minn til félagsins og stuðningsmanna þess en sama á við um fjöl- skylduna,“ sagði hann. „Til að halda sæti mínu í tékkn- eska landsliðinu verð ég að spila. Vonandi kemst ég að þjá öðru liði í úrvalsdeUdinni en ef ekki er ég tilbúinn að fara hvert sem er í Evrópu.“ BLAK || KÖRFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN Nú vann Þróttur N. Chicago burstaði Houston Þriðja framlengingin í röð hjá Atlanta Lið Þróttar í Neskaupstað vann tvo góða útisigra um helgina, fyrst gegn nöfnum sínum úr Reykjavík í fimm hrinu leik í Haga- skóla og á 'laugardaginn skelltu þeir Stjörnunni í Ásgarði með sama mun. Leikur Þróttar í Reykjavík og nafna þeirra að austan var bráð- skemmtilegur, mikið var um nauð- varnir og fimlegar reddingar á síð- ustu stundu hjá báðum liðum. Norð- fjarðarliðið var yfirleitt skrefinu á undan en liðið vann fyrstu og þriðju hrinu leiksins en Reykjavíkurliðið jafnaði jafnharðan. Úrslitahrinan var jöfn og það ríkti mikil spenna á lokakafla leiksins þegar gestirnir að austan tryggðu sér sigurinn með því að krækja í tvö síðustu stigin í leiknum eftir að jafnt hafði verið 14:14. Apostol Apostolev, uppspilari Þróttar N. var góður og útfærði sóknir sinna rnanna mjög vel en Brynjar Pétursson sló þó í gegn í frisku liði gestanna sem eru með jafn mörg stig og Þróttur R. en hafa leikið einum leik fleira. Stjarnan var hársbreidd frá því að vinna sinn fyrsta leik í vetur þegar þeir fengu Þrótt úr Neskaup- stað í heimsókn á laugardaginn. Stjarnan vann tvær fyrstu hrinurn- ar, 15:7 og 15:13 og var liðið langt komið með þriðju hrinuna þegar gestirnir vöknuðu til lífsins og sneru leiknum sér í hag. Stúdínur misstu frumkvæðiö Stúdínur geta nagað sig í hand- arbökin eftir leik sinn við Þrótt úr Neskaupstað. Stúdínur unnu fyrstu tvær hrinurnar sannfærandi, 15:8 og 15:5. Það virtist bara formsat- riði fyrir Stúdínur að klára leikinn en annað kom á daginn. Petrún Jónsdóttir, fyrirliði Þróttar dró sitt lið að landi með góðum leik, en hún gaf ellefu sinnum í röð í úrslitahrin- unni og Unnur Ása Atladóttir fór hamförum seinni part leiksins, skor: aði grimmt úr smassi og hávörn. I úrslitahrinunni hrundi leikur Stúd- ína algjörlega en þær töpuðu 15:5. Víkingsstúlkur fengu Þrótt síðan í heimsókn í Víkina á laugardaginn og töpuðu í þremur hrinum gegn engri en önnur og þriðja hrinan voru í járnum. Michael Jordan og félagar hjá Chicago Bulls átti ekki í vandræðum er þeir tóku á móti Houston Rockets aðfaranótt sunnudags. Jordan gerði 32 stig og Toni Kukoc 20 er Bulls vann Rockets 110:86, en þessi lið eru efst hvort í sinni deildinni. Pippen var með 17 stig og Rodman tók 18 fráköst en hjá Rockets var Olajuwon stigahæstur með 29 stig. Chicago hefur nú sigrað í 17 af síðustu 18 leikjum og er með besta vinningshlutfall allra liða í NBA, hefur sigraði í 31 leik og aðeins tapað 4. Aðfaranótt laugardagsins varð Bulls fyrst liða til að sigra í 30 leikjum á þessu tímabili, sigraði Milwaukee 116:101. „Þetta var minn dagur,“ sagði Rodman sem gerði sér lítið fyrir og tók 26 frá- köst, hefur ekki gert betur í vetur. Jordan gerði 33 stig og Toni Kukoc 20. Atlanta jafnaði NBA-met sömu nótt með því að lenda í þriðja leikn- um í röð þar sem þurfti að fram- lengja. Liðið tók á móti Spurs og sigraði 87:82 og var það Steve Smith sem átti stóran þátt í því, gerði sex stig á síðustu 98 sekúnd- unum. „Við vinnum a.m.k,“ sagði Christian Laettner, sem gerði 26 stig, en þess má geta að Atlanta vann Phoenix og Orlando í fram- lengingu í síðustu viku. „Ég væri tilbúinn að láta framlengja í 82 leikjum ef það þýddi að við fengjum stigin," bætti Laettner við. Mookie Blaylock tryggði heima- mönnum framlengingu með þriggja stiga körfu á síðustu sek- úndunum og þetta var 13. heima- sigur Hawks í röð en Spurs hefur nú tapað fimm leikjum í röð. Þar á bæ var Avery Johnson stigahæst- ur með 21 stig og Will Perdue gerði 19 stig og tók 17 fráköst. Toronto Raptors virðist hafa eitthvert tak á liði New Jersey Nets og sigraði það um helgina þriðja sinni í vetur, að þessu sinni 123:106. Damon Stoudamire gerði 28 stig eins og Walt Williams. Ekki munaði nema tveimur stigum að Raptors næði að setja met í stigamun í fyrri hálfleik en liðið komst í 48:17 en til gamans má geta þess að skotnýting liðsins var 83% í fyrsta leikhluta. George McCloud gerði sjö af 21 stigi sínu á síðustu 63 sekúndunum er Dallas vann Denver 104:99. McCloud var ekki í byrjunarliðinu en var „heitur" eins og fleiri vara- menn Dallas, sem gerðu 64 stig gegn 33 stigum varamanna Den- ver. New York Knieks og Boston áttust tvívegis við um helgina og hafði Knicks betur í báðum leikj- um, vann 112:99 í fyrri leiknum en 111:98 í þeim síðari. Knicks hefur því sigrað Boston í 17 leikj- um í röð, þar af tíu í Boston. Það hefði einhverntíma þótt saga til næsta bæjar. Ceballos tilSuns PHOENIX Suns og LA La- kers skiptust á fjórum leik- mönnum á föstudaginn. Cedric Ceballos og Rumeal Robinson fóru til Suns í skipt- um fyrir Robert Horry og Joe Klein. Ceballos hefur verið meiddur að uudanförnu en verður klár í slaginn innan tíðar. Hann hóf ferilinn lyá Suns og var með 21 stig að meðaltali síðustu tvö keppnis- tímabil og sagðist Danny Ainge, þjálfari Suns, nyög ánægður með að fá hann og fróðlegt yrði að sjá hann og Jason Kidd leika saman.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.