Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Stjaman slapp
í framlengingu
UNGAR og sprækar FH-stúlkur náðu að velgja Stjörnunni hressi-
lega undir uggum á laugardaginn þegar liðin mættust í skemmti-
legum og spennandi leik í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar. Hafn-
firðingarnir spiluðu snarpa vörn fremur utarlega og leikurinn fór
íframlengingu en Garðbæingar áttu síðasta orðið í 22:21 sigri.
Með öflugri vörn tókst Stjörnu-
stúlkum að ná undirtökun-
um en um miðjan fyrri hálfleik
breyttu FH-ingar í
3-2-1 vörn, sem sló
sfefánsson Garðbæinga útaf
skrifar laginu en slik vörn
lagði einmitt grunn-
inn að sigri FH á Stjörnunni í fyrri
umferð deildarinnar. Gestirnir náðu
síðan tveggja marka forystu eftir
hlé en þá þótti Stjörnustúlkum nóg
komið, tóku vörnina utar og lífguðu
sóknarleik sinn við. FH-stúlkur
fengu færi til að ná yfirhöndinni
en klúðruðu því og í framlenging-
unni tókst Garðbæingum að knýja
fram sigur.
„Við náum ekki að leysa vandann
þegar við fáum vörn andstæðing-
anna framarlega á móti okkur og
okkur vantar að geta hreyft okkur
meira án bolta,“ sagði Ólafur Lár-
usson þjálfari Stjörnunnar eftir leik-
inn. „Annars var þetta dæmigerður
bikarleikur, bæði lið neituðu að
gefast upp og þetta unga FH-lið á
framtíðina fyrir sér. Þetta var ekki
okkar besti dagur en við verðum á
toppi þegar kemur að úrslitaleikjun-
um því við eigum enn mikið inni.
Þjálfun þessa árs, til dæmis lyfting-
ar fyrr í vetur, hefur öll miðast við
að vera á toppnum í janúar og febr-
úar svo að leiðin liggur upp á við.“
Stjörnuliðið gekk ekki heilt til
skógar í þessum leik því meiðsli
heija á það en breiddin er ágæt og
leikreynslan til staðar. Vörnin var
yfirleitt sterk en það er furðulegt
að sjá hvemig 3-2-1 vörn FH tók á
taugar leikmanna Garðbæinga og
opinberar veikleika. Björg Gilsdóttir,
Herdís Sigurbergsdóttir og Ragn-
heiður Stephensen voru bestar í lið-
inu og Ásta Sölvadóttir byrjaði vel.
„Mínar stelpur léku vel í dag en
voru óheppnar í lokin. Við fórum
að spila 3-2-1 vörn út á móti þeim
en bakka líka vel aftur inn á milli
og það gekk vel en okkur vantar
að spila betri sóknarleik. Okkar tími
kemur,“ sagði Slavko Bambir, sem
stjórnaði FH-liðinu að þessu sinni
í fjarveru Viðars Símonarsonar.
Liðið átti erfitt uppdráttar gegn
sterkri vörn Stjörnunnar en gafst
ekki upp. Vörnin gaf lítið eftir en
lengst komust stúlkurnar á seigl-
unni. Björk Ægisdóttir og Alda
Jóhannsdóttir voru bestar en Hrafn-
hildur Skúladóttur og Þórdís Brynj-
ólfsdóttir áttu einnig góðan dag.
faórn
FOLX
Fórum á taugum
„OKKUR gekk illa í byrjun og eftir það áttum við ekki viðreisnar
von því við fórum einfaldlega á taugum," sagði Guðriður Guðjóns-
dóttir úr Fram eftir 28:20 tap fyrir Haukum í 8-liða úrslitum bikar-
keppninnar á sunnudaginn. Liðin áttust við í deildarkeppninni
fyrir viku og þá máttu Haukastúlkur þakka fyrir að ná í annað
stigið en nú var annað upp á teningnum. „í fyrri leiknum var
engin pressa á okkur og þá vanmátu Haukar okkur en svo var
ekki nú. Mikið var í húfi en við héldum ekki haus,“ bætti Guð-
ríður við en hún skoraði 12 af tuttugu mörkum Fram.
Framan af fyrri hálfleik áttu
Framstúlkur í fullu tré við
Hafnfirðinga í skemmtilegum og
hröðum leik þó nokk-
Stefán uð hafi verið um mis-
Stefánsson tök á báða bóga. En
skrifar þegar um tíu mínút-
ur voru til leikhlés
byrjuðu hremmingar Framstúlkna
fyrir alvöru með aragrúa mistaka
og ekki batnaði ástandið eftir hlé.
Eftir fjögur mörk Hauka úr hrað-
aupphlaupum varð ekki aftur snúið
og Fram náði aldrei að saxa nóg á
forskotið til að sigur Hauka væri í
hættu.
„Við ætluðum okkur sigur því fyrri
leikurinn var okkur lexía og stelpum-
ar sönnuðu nú fyrir sjálfum sér að
þær geta alveg unnið," sagði Magnús
að var varla hægt að sjá að
um bikarleik, þar sem hver
leikur er úrslitaleikur, væri að ræða,
því baráttan var í
lágmarki. Sérstak-
Stefánsson lega voru Víkingar
skrifar ekki með á nótunum
en Valsstúlkur voru
þó skynsamari í sínum aðgerðum,
enda leiddu þær leikinn. í leikhléi
~var staðan 7:9 og fyrsta mark Vík-
inga eftir hlé kom ekki fyrr en eft-
ir 15 mínútur en þá hafði Valur
gert tvö. Undir lokin tóku Víkingar
mikið viðbragð og minnkuðu mun-
inn í eitt mark með þremur mörkum
á tveimur mínútum en það bráði
af þeim á ný og Valsstúlkur fögn-
uðu sigri.
Með frammistöðu sinni má segja
að Víkingar hafi kastað sér út úr
bikarkeppninni og það virtist óvíst
hvort leikmenn vissu að þeir væru
að spila bikarleik. Helga Torfadóttir
Teitsson þjálfari Hauka eftir sigur-
inn. Strax í upphafi sást að annað
en sigur kom ekki til greina og það
var aldrei slakað á klónni enda upp-
skeran í samræmi við það þrátt fyrir
þann skerf af mistökum sem búast
má við í bikarleik. Harpa Melsteð,
Judith Ezstergal og Hulda Bjarna-
dóttir voru bestar og gerðu að auki
samtals 23 af mörkum liðsins.
Það var furðulegt að sjá lið eins
og Fram, með marga leikreynda leik-
menn innanborðs, gera öll þessi mis-
tök og ná síðan ekki að halda haus.
Guðríður Guðjónsdóttir bar lið Fram
uppi, var öfiug í vörninni og traust
við vítaskotin en þurfti einnig að
bregða sér í sóknina til taka af skar-
ið. Hrafnhildur Sævarsdóttir gerði
skemmtilega hluti í horninu.
markvörður og Sigríður Snorradóttir
voru atkvæðamestar til að byija með
en Kristín Guðmundsdóttir lét að sér
kveða um tíma eftir hlé.
„Við ætluðum okkur sigur eftir
erfíða leiki þar sem sigurviljann
hefur vantað og nú vantaði hann
ekki,“ sagði Gerður B. Jóhannsdótt-
ir, sem var best í liði Vals en Vaiva
Drilingaite markvörður og Sigur-
laug Rúnarsdóttir áttu góðan leik.
Liðið lék af skynsemi með langar
sóknir sem dugði til sigurs.
KR setti ÍBV út I kuldann
Eyjastúlkur sóttu KR-inga heim
á sunnudaginn en sú ferð var ekki
til fjár þar sem Vesturbæingarnir
unnu 16:11. Baráttan var mest fyr-
ir hlé og 8:5 í leikhléi. ÍBV-stúlkur
náðu að jafna 8:8 en þurftu að bíða
í tólf mínútur eftir næsta marki á
meðan KR-ingar skoruðu fimm og
það gerði útslagið.
■ SÓLEY Halldórsdóttir, mark-
vörður Stjörnunnar, byijaði vel þeg-
ar hún kom inná í síðari hálfleik í
bikarleiknum gegn FH á laugardag-
inn. Hún byijaði á að veija úr hrað-
aupphlaupi^ og strax á eftir vítaskot.
■ HERDÍS Sigurbergsdóttir,
hörkutól úr Stjörnunni, lét slitin iið-
bönd á baugfingri vinstri handar
ekki aftra sér frá því að spila með
gegn FH. _
■ GUÐNY Gunnsteinsdóttir,
máttarstólpi úr Stjörnunni, hefur
lítið getað spilað með liði sínu vetur
vegna meiðsla. Hásin hennar er tro-
snuð og bíður hún eftir uppskurði.
Hvenær hann verður er óvíst og sama
er hægt að segja um hvenær eða
hvort hún byijar aftur.
■ BJÖRG Gilsdóttir lét sig hafa
það að spila með gegn FH en hún
er nýstigin upp úr flensu og tognaði
að auki fyrir skömmu.
■ INGA FRÍÐA Tryggvadóttir úr
Stjörnunni tognaði einnig fyrir
skömmu en lét sig heldur ekki vanta.
■ MARGRÉT Theódórsdóttir,
sem gefst aldrei upp og er enn í fínu
formi, var kölluð til vegna meiðsla í
liði Stjörnunnar. Sem fyrr gaf hún
ekkert eftir í vöminni og skoraði að
auki mark.
■ BERGLIND Sigurðardóttir, úr
FH, lá með flensu og gat ekki lagt
fram krafta sína gegn Stjörnunni á
laugardaginn.
■ BJARNI Viggósson dómari í leik
Hauka og Fram á sunnudaginn,
rétti Haukastúlkum óvart hjálpar-
hönd í hraðaupphlaupi. Sending fram
völlinn var of löng en rataði í bakið
á Bjarna, sem var á harðahlaupum,
og boltinn datt fyrir Huldu Bjarna-
dóttir, sem hirti boltann og skoraði.
FERÐIR
Ferð á enska
stórleiki
ÍÞRÓTTADEILD Úrvals-Útsýnar slendur
fyrir knattspyrnuveislu í London í febrúar
og býður ferðir á tvo leiki i ensku úrvals-
deildinni, Arsenal og Manchester Unitcd á
Highbury miðvikudagskvöldið 19. febrúar
og Chelsea og Manchester United á Stam-
ford Bridge laugardaginn 22. febrúar.
Ýmsir möguleikar standa til boða en allar
nánari upplýsingar fást hjá ferðaskrifstof-
unni.
Vantaði blóðbragðið
„ÞETTA var dapur leikur og okkur vantaði blóðbragðið, sem til
þarf í bikarkeppni. Við ætluðum að stjórna leiknum en það tókst
ekki og það gekk allt á afturfótunum," sagði Theódór Guðfinns-
son þjálfari Víkingsstúlkna eftir 14:12 tap fyrir Val í 8-liða úrslit-
um bikarkeppninnar á sunnudaginn.
VEL var tekið á móti ÍR-ingnum Ólafi Sigurjónssyni í Seljaskóla á sui
son og Davíð Gíslason reyna hér að hafa hei
Baldur Jóns
loka marl
Breiðhyltingar tryggðu sér sæti í
undanúrslitum bikarkeppni HSÍ
með góðum sigri á Gróttu, 29:26, í
íþróttahúsi Seljaskóla
á sunnudagskvöld.
Heimamenn fóru illa
af stað, en réttu fljót-
lega úr kútnum og
lögðu grunninn að góðum sigri, sem
var sannarlega sigur liðsheildarinn-
ar.
Seltirningar voru mun sterkari en
leikmenn ÍR í upphafi og skoruðu
fyrstu fjögur mörk leiksins. ÍR-ingar
fundu sig mjög illa í sóknarleiknum
framan af og opnuðu ekki marka-
reikning sinn fyrr en rúmar sex
mínútur voru liðnar af leiknum er
Ólafur Gylfason braut ísinn. Juri
Sadovski var Breiðhyltingum óþæg-
ur ljár í þúfu og var fokið í flest
skjól þeirra er Hrafn Margeirsson,
markvörður, meiddist á fæti eftir
átta mínútna leik og varð að yfir-
gefa völlinn. Varamarkvörðurinn
Baldur Jónsson mætti þá galvaskur
til leiks og var hans fyrsta verk að
standa á milli stanganna til að reyna
að veija vítakast Sadovskis, sem
hafði þá skorað tvö mörk af vítal-
ínunni. Sadovski misnotaði vítakastið
og var það vendipunktur í gangi
leiksins.
Allt annað var að sjá til ÍR-liðsins
eftir að þeir komust á bragðið með
því að minnka muninn. Vörn þeirra
náði vel saman og Baldur Jónsson
stóð sig vel á bak við hana. Leik-
menn Gróttu skoruðu aðeins þrjú
mörk á sautján mínútum og misstu
ÍR-ingana fram úr sér, 9:8. Jóhann
Ásgeirsson, hornamaður ÍR, skoraði
Edwin
Rögnvaldsson
skrifar
Stjaman spr
„ÞEGAR að framlengingunni kom þjöppuðum við okkur saman
og vorum ákveðnir í að sigra, annað kom ekki til greina," sagði
hetja Hauka, Bjarni Frostason markvörður, er lið hans hafði tryggt
sér sæti í 4 liða úrslitum bikarkeppninnar eftir æsispennandi og
framlengdan leik við Stjörnuna í Garðabæ á laugardaginn, lokatöl-
ur 26:22. Bjarni varði sem berserkur og var akkeri liðsins á ögur-
stund, varði 23 skot þar af 5 vítaköst. „Það var barátta og aftur
barátta sem skóp sigurinn ásamt stjörnuleik Bjarna sem var virki-
lega í landsliðsformi í þessum leik,“ sagði annar Haukamaður,
Rúnar Sigtryggsson, glaðbeittur.
að er óhætt að segja að leikur
Stjörnunnar og Hauka hafi ver-
ið spennuþrunginn og góð skemmtun
á að horfa þó talsvert
hafi verið um mistök.
Benediktsson Hraðinn var mikill og
skrifar varnarleikur og mar-
kvarsla beggja fylk-
inga var góð allan tímann sem krist-
allaðist í baráttu og talsverðum átök-
um sem kostuðu fjölda brottrekstra,
flesta í skamma stund en nokkra fyr-
ir fullt og fast. Sóknarleikur beggja
var oft og tíðum ómarkviss, einkum
framan af leik, en það lið sem tókst
að lagfæra það atriði er á leið vann
sanngjarnan sigur. Skiljanleg var
gremja heimamanna er upp var stað-
ið því fjórum mínútum fyrir leikslok
höfðu þeir þriggja marka forystu og
tveggja marka þegar hálf önnur lifði.
En spennan og skortur á yfirvegun