Morgunblaðið - 14.01.1997, Qupperneq 8
+
KNATTSPYRNA
Þrumufleygur Beckhams
færði Man. Utd. sigur
DAVID Beckham, fæddur og uppalinn í London og æffti hjá Tott-
enham þegar hann var skólastrákur, kunni vel við sig á White
Hart Lane. Beckham, sem er þekktur fyrir sín þrumuskot, skor-
aði sigurmark Manchester United með glæsilegu skoti af 25 m
færi, 1:2. United skaust þar með upp í annað sætið - tveimur
stigum á eftir Liverpool og á leik til góða. Önnur lið á toppnum
náðu ekki að fagna sigrum um helgina.
Reuter
PATRIK Berger, leikmaður Liverpool, sem átti skot sem hafnaði
á stöng á marki West Ham, stekkur hér upp ásamt Jullan Dlcks,
miðvallarspilara West Ham og fyrrum leikmannl Llverpool.
Norðmaðurinn Ole Gunnar
Solskjær kom United yfír í
leiknum með marki á 23. mín. og
síðan voru leikmenn Tottenham
nær búnir að skora, en heppnin var
ekki með þeim - Steffen Iversen
og Andy Sinton áttu báðir skot, sem
höfnuðu á þverslánni á marki Un-
ited. Rétt fyrir leikhlé náði Rory
Allen að jafna metin, 1:1, þegar
~ hann skallaði knöttinn í netið af
stuttu færi.
Það var hart barist í leiknum og
sjö leikmenn áminntir. Sigurmark
Beckhams var afar glæsilegt, hann
geystist með knöttinn að marki
,. Tottenham og sveiflaði hægri fæti
rétt áður en hann kom að vítateig,
knötturinn hafnaði efst uppi í mark-
horninu, óverjandi fyrir Ian Walker,
markvörð Tottenham.
Fjögur mörk á Villa Park
Leikmenn Newcastle enduðu
sögulega viku með því að gera jafn-
tefli við Aston Villa á Villa Park,
2:2. Þetta var fyrsti leikur þeirra
síðan Kevin Keegan hætti. Terry
McDermott stjómaði liðinu, sagði
að leikmenn hefðu leikið fyrir Keeg-
an og hann hefði eflaust verið stolt-
ur af leik þeirra. Alan Shearer og
Lee Clark skoruðu mörk Newcastle
og voru þau ódýr - komu eftir
mistök Mark Bosnich, markvarðar.
Dwight Yorke og Savo Milosevic
svöruðu fyrir heimamenn og Yorke
fékk gullið tækifæri til að koma
Villa yfir er hann tók vítaspyrnu á
61. mín. - Shaka Hislop sá við
honum og varði.
Adams með sjálfsmark
Liverpool varð að sætta sig við
jafntefli á Anfield Road, þar sem
West Ham kom í heimsókn, 0:0.
Inter og Sampdoria sigruðu í leikjum
sínum í ítölsku deildinni um helg-
ina en Juventus varð að sætta sig við
markalaust jafntefli og er aðeins með
tveggja stiga forystu á fyrmefnd lið.
Evrópumeistarar Juve voru með sex
stiga forskot um áramótin.
Gianluca Pagliuca hélt Inter inni
í viðureigninni við Napoli með góðri
markvörslu og franski leikstjómand-
inn Youri Djorkaeff tryggði liðinu
2:1 sigur með marki tveimur mínút-
um fyrir leikslok eftir að hafa snúið
mótherja af sér. Marco Branca gerði
fyrra mark Inter skömmu fyrir hlé
en Nicola Caccia minnkaði muninn á
síðustu mínútu með glæsilegu skalla-
marki. Napoli hafði sigrað í síðustu
fjórum leikjum á heimavelli.
Leikmenn Liverpool höfðu ekki
heppnina með sér, knötturinn hafn-
aði tvisvar á tréverkinu á marki
West Ham.
Arsenal mátti þola tap fyrir
Sunderland á Roker Park, 1:0.
Hollendingurinn Dennis Bergkamp
var rekinn af leikvelli eftir aðeins
29 mín. fyrir brot á Paul Brace-
well. Við það datt allur taktur úr
leik Arsenal. Fyrirliði liðsins, Tony
Adams, varð síðan fyrir því óhappi
að skora sjálfsmark á 66. mín.
Dublin fékk aftur aö sjá rautt
Blackburn vann stórsigur á
Coventry á Ewood Park, 4:0. Þetta
var stærsti sigur liðsins í vetur.
Dion Dublin hjá Coventry var rek-
inn af leikvelli og var það í öðrum
leiknum í röð sem hann fær að sjá
rauða spjaldið. Hann var rekinn af
leikvelli eftir aðeins 21 mín. Chris
Sutton skoraði tvö mörk fyrir
Blackbum og þeir Kevin Gallagher
og George Donis hin.
Wimbledon gerði jafntefli við
Derby heima, 1:1. Hollendingurinn
Rob Willems skoraði mark Derby
undir lok leiksins, áður hafði Marc-
us Gayle skorað fyrir heimamenn á
60. mín.
Middlesbrough mátti þola tap
fyrir Southampton heima, 0:1. Þessi
sigur var áfall fyrir lið Bryans Rob-
sons. Einn leikmaður „Boro“ -
Clayton Blackmore, var rekinn af
leikvelli á 59. mín., fyrir að hand-
leika knöttinn innan vítateigs. Víta-
spyrna var dæmd og skoraði Jim
Magilton úr henni.
Nottingham Forest skellti
Chelsea 2:0. Stuart Pearce, knatt-
spyrnustjóri og leikmaður liðsins,
skoraði fyrst úr aukaspyrnu, hamr-
aði knöttinn í netið á 40. mín. og
Þetta var þriðji útileikur Inter í
röð þar sem liðið sigrar þrátt fyrir
að eiga minna í leiknum. „Við vorum
heppnir," sagði Roy Hodgson, þjálf-
ari gestanna, en ekki bætti úr skák
hjá heimamönnum að brasilíski
miðjumaðurinn Beto var sendur af
velli fyrir að handleika boltann tvisv-
ar sinnum.
Juventus átti fyrri hálfleikinn á
móti Atalanta og tvisvar varði
Davide Pinato vel frá Alessandro Del
Piero en Alen Boksic, sem hefur ver-
ið helsta ógn Juve, fór meiddur af
velli um miðjan hálfleikinn. í seinni
hálfleik snerist dæmið við, gestimir,
sem sigruðu í þremur undangengn-
um leikjum, lögðu meira í sóknina
og Gianluigi Lentini var óheppinn
síðan bætti Chris Bart-Williams
marki við.
Ian Rush, sem hafði aðeins skor-
að skora ekki á 52. mínútu. Þá þaut
hann upp hægri vænginn með bolt-
ann en eftir um 40 metra hlaup skaut
hann í stöng.
Vicenza tapaði 1:0 fyrir AC Milan
og er í fjórða sæti en liðið hafði for-
ystu í deildinni um tíma auk þess sem
það sló AC Milan út úr bikarkeppn-
inni. Dejan Savicevic og Roberto
Baggio voru á bekknum hjá AC Milan
en Frakkinn Christophe Dugarry lék
einn í fremstu röð og þakkaði traust-
ið þegar hann skallaði í net mótheij-
anna eftir fyrirgjöf frá Marco Simone
á 19. mínútu. Marcel Desailly fékk
að sjá rauða spjaldið eftir hlé og
máttu meistaramir hafa sig alla við
að halda fengnum hlut en þetta var
fyrsti sigur þeirra í nýliðnum þremur
að eitt mark í 22 leikjum fyrir
Leeds, skoraði tvö mörk þegar liðið
fagnaði sigri á Leicester, 3:0.
leikjum. Á lokamínútunum skoruðu
Roberto Murgita og Maurizio Rossi
fyrir Vicenza en mörkin voru dæmd
af vegna rangstöðu.
Parma er í sjötta til sjöunda sæti
með 24 stig eins og AC Milan eftir
1:0 sigur á Bologna. Heimamenn, sem
hafa ekki sigrað í sjö leikjum í röð,
hittu tréverkið tvisvar áður en Pietro
Strada fór sem í svigi í gegnum vöm
þeirra og skoraði rétt fyrir hlé.
Nevio Scala, fyrrum þjálfari
Parma, stýrði Perugia í fyrsta sinn
og sá sína menn tapa 4:1 á ólympíu-
leikvanginum í Róm. Argentínumað-
urinn Argentine Abel Balbo gerði tvö
mörk og er markahæstur í deildinni
ásamt Filippo Inzaghi hjá Atalanta,
en báðir eru komnir með 11 mörk.
FOI_K
■ ÍTALSKI varnarmaðurinn
Gianluca Festa hjá Inter Mílanó,
er genginn til liðs við Middlesbro-
ugh. Bryan Robson borgaði 328
millj. ísl. kr. fyrir Festa, sem skrif-
aði undir samning til ársins 2001.
■ ÞÆR sögusagnir eru uppi að
Fabrizio Ravanelli, leikmaður með
„Boro“ hafi hug á að snúa á ný
til ítaliu eftir þetta keppnistímabil.
Inter og AC Milan hafa mikinn
hug aðjfá hann til sín.
■ TVÖ götublaðanna í Englandi,
Daily Mirror og Daily Mail, sögðu
frá því um helgina, að Bryan Rob-
son knattspymustjóri Middlesbro-
ugh hefði boðist til að segja af sér
um jólin, vegna slaks gengis liðs-
ins. Stjórnarmenn liðsins slógu á
allar þær vangaveltur um helgina,
er þeir sögðu að Robson hefði full-
komið traust stjórnar og hótuðu
reyndar að lögsækja blöðin vegna
fréttaflutningsins.
■ „ÉG er mjög ánægður hjá Midd-
lesbrough og það er ekkert til í
þeim sögusögnum, að ég sé á för-
um,“ sagði Bryan Robson.
■ NAPOLÍ tilkynnti fyrir helgi,
að liðið vildi fá Roberto Baggio
til sín. Baggio sagði að hann myndi
vera áfram hjá AC milan út keppn-
istímabilið, þó svo að hann hafi
mest verið á varamannabekk liðs-
ins.
■ KEVIN Keegan fór í felur, eft-
ir að hann sagði starfí sínu lausu
hjá Newcastle. Það voru blaða-
menn frá Daily Mirror sem fundu
hann um helgina. Keegan er á
Flórída ásamt konu sinni og tveim-
ur börnum.
■ DENNIS Bergkamp er fimmti
leikmaður Arsenal sem er rekinn
af leikvelli á stuttum tíma, hinir eru
Steve Bould, Tony Adams, Ian
Wright og John Hartson.
■ LEIK Sporting Gijon og Real
Betis á Spáni var frestað, þar sem
þrettán leikmenn Betis voru með
flensu, eða meiddir.
■ BOBBY Robson, þjálfari
Barcelona, sagði um helgina að
hann hefði vel getað hugsað sér að
taka við starfi knattspyrnustjóra
Newcastle, ef betur hefði staðið
á. „Þegar ég tók við Barcelona í
ágúst, tók ég við starfí sem ég
hafði beðið eftir í átján ár,“ sagði
Robson.
■ ROBSON skrifaði undir tveggja
ára samning við Barcelona og
ætlunarverk hans er að tryggja lið-
inu meistaratitilinn á Spáni, sem
liðið hefur verið án sl. tvö ár.
■ AUSTURRÍSKI landsliðsmark-
vörðurinn Otto Konrad byrjaði
ekki vel með Zaragoza á Spáni.
Hann mátti hirða knöttinn úr netinu
hjá sér eftir þrjátíu sek. Hann fékk
fímm mörk á sig þegar liðið tapaði
fyrir Atletico Madrid, 1:5.
■ ROBERT Prosinecki, sem Se-
villa keypti frá Barcelona, skoraði
tvö mörk í fyrsta leik sínum fyrir
Sevilla, sem vann Oviedo, 2:1.
Prosinscki skoraði sigurmarkið á
síðustu mín. leiksins.
■ BRASILÍUMAÐURINN And-
erson skoraði öll þijú mörk Món-
akó, sem vann 2. deildarliðið Le
Mans í annarri umferð frönsku
bikarkeppninnar, 3:1. Anderson,
sem er markahæstur í 1. deildar-
keppninni með ellefu mörk, skoraði
mörk sín á áttundu, 33. og 39. rflín.
■ DANIEL Passarella, landsliðs-
þjálfari Argentínu, hefurteflt fram
fimm markvörðun síðan hann tók
við landsliðinu. Ignacio Gonzalez
lék í markinu gegn Uruguay í und-
ankeppni HM og bjargaði Argent-
ínu frá tapi, er hann varði meistara-
lega skot frá Enzo Francescoli í
jafnteflisleik, 0:0.
Forysta Juve minnkar
ENGLAND: X 1 X X11 121 21 1 X ÍTALIA: 122 X 1 X 1 X X 1122
4