Morgunblaðið - 17.01.1997, Page 2

Morgunblaðið - 17.01.1997, Page 2
2 B FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Morgunblaðið/Kjartan Þorsteinsson Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson F yrir sætur á táningsaldri Elín Jónsdóttir var fimmtán ára og Thelma Þormarsdóttir fjórtán ára þegar leiðin lá til Mílanó þar sem báðar störfuðu sem fyrirsæt- ur. Valgerður Þ. Jónsdóttir hitti þær hér heima og velti um leið fyrir sér hvort allar heimskonulegu fyrir- sæturnar í erlendu tískublöðunum séu í rauninni varla komnar af barnsaldri. EFALÍTIÐ ala margar ung-meyjar með sér draum um að skipa sér á bekk með frægustu fyrirsætum heims. Yms- um þykja slíkir draumar ekki ýkja háleitir og segja að þær sem leggi fyrirsætustörf fyrir sig þurfi fátt að hafa til brunns að bera annað en útlitið. Þeir sömu hafa líka allt á hornum sér vegna þeirrar tískuímyndar sem hvarvetna er hampað með kornungum stúlkum í farar- broddi. Islenskar stúlkur, sem undanfarið hafa í auknum mæli freistað þess að hasla sér völl sem fyrirsætur á erlendri grund, eru yfirleitt ósammála. Þær segja reynsluna dýrmæta, starfið krefjandi og lærdóms- ríkara en margur skólinn auk þess sem útlitið skipti ekki sköpum fyrir velgengnina því enginn komist áfram án þess að hafa bein í nefinu. Sköpun Ijóða og mynda í grunnskólum borgarinnar SKAPANDI hugsun og skapandi vinna hafa ekki verið áberandi í skólakerfmu. Frumleiki rúmast sjaldan innan einkunnakerfis. Sam- ræmdu prófin í ensku, dönsku, stærðfræði og íslensku gera ráð fyrir stöðluðum svörum. Á síðustu önn var nemendum í sjöunda bekk í öllum skólum í Reykjavík þó boðið að virkja sköp- unargáfuna með ljóðagerð og ljós- myndaiðkun í skammdeginu. Um- sjón með verkefninu hafði Marteinn Sigurgeirsson sem segir að svona nokkuð þurfi að undirbúa vel til að það heppnist. Marteinn starfar sem kennslu- ráðgjafi hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og hefur meðal annars ijölmiðlafræðslu á sínum herðum. Námið fór þannig fram að Marteinn kenndi sögu ljósmyndunar, mynda- tökur, myndbyggingu og mynd- greiningu. Verkefni nemenda var að taka tvær ljósmyndir af áhugaverðu efni í völdu umhverfi sem var Gijóta- þorpið, Hljómskálagarðurinn, Reykjavíkurtjörn og kirkjugarður- inn við Suðurgötu. Hveijum bekk HELGI Már Valdimarsson smíðar ljóð í kringum myndina sína í Laugarnesskóla. var skipt í fjóra hópa. Marteinn lét framkalla myndirn- ar og sendi í skóla á hvern nem- anda, eina víða mynd og eina nær- mynd. í skólastofunni glímdu nem- endur svo við ljóðagerð undir um- sjón kennara og kennslukvers um ljóðagerð með börnum. Niðurstaðan var svo sýnd og möguleikarnir nokkrir, til dæmis að búa til ljóða- bók með myndum, gera veggspjöld, myndband eða setja verkin á alnet- ið eins og gert var í Grandaskóla. Hér er í raun um mjög stutt námskeið að ræða. Marteinn sendir NEMANDI við ljósmyndatöku. Morgunblaðið/Golli LJÓSMYND eftir Helga Má Valdimarsson, Laug- arnesskóla. Ljóðið við myndina heitir Trén og hljóðar svo: Trén/ Rabba saman/ Ég hlusta á þau/ Núna. MYND eftir Sólveigu Þórarinsdóttur í Granda- skóla. Ljóðið er svona: Drottning loftbólanna situr hér/ með hirðmenn í kringum sig sem þjóna sér./ Hún býr oní Reykjavíkurtjörn/ og horfir dreymin á skautandi börn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.