Morgunblaðið - 17.01.1997, Síða 3

Morgunblaðið - 17.01.1997, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1997 B 3 DAGLEGT LIF Margar eru kallaðar en fáar útvaldar og starfsaldur fyrir- sætna er afar stuttur. Kolbrún Aðalsteinsdóttir, skólastjóri John Casablanca skólans á Is- landi og meðeigandi ítölsku umboðsskrifstofunnar Names í Mílanó, hefur um árabil haft milligöngu um að koma íslensk- um stúlkum á framfæri í tísku- heiminum. Hún fylgir þeim fyrstu sporin og dvelur því langdvölum í Mílanó þar sem hún gætir hagsmuna þeirra, leggur þeim lífsreglurnar, gæt- ir þess að þær borði og sofi nægilega, séu í stöðugu sam- bandi við foreldra sína á íslandi og þar fram eftir götunum. Elín, Thelma og fleiri fyrirsæt- ur á snærum Kolbrúnar segja hana eins og mömmu sína en þó öllu strangari. Sumum finnst ámælisvert að koma barnungum stúlkum á framfæri erlendis og telja að þar séu þær látnar vera upp á sitt eindæmi. Slíkt segir Kol- brún fjarstæðu, að minnsta kost hvað varði íslensku stúlkurnar, sem umboðsmenn hjá Names taki upp á sína arma. Hún seg- ir að einkar vel sé búið að stúlk- unum og sjálf fylgi hún þeim hvert fótmál í byijun og búi síðan þannig um hnútana að ævinlega sé gulltryggt að stúlk- urnar séu í öruggum höndum umboðsmanns. Auk þess segir Kolbrún að stúlkunum beri skylda til að vera í stöðugu símasambandi við hana, þegar hún er ekki á vettvangi, og for- eldrana. Aðspurð segist Kol- brún vitaskuld aldrei senda stúlku utan gegn vilja þeirra. Hún segir nauðsynlegt að þjálfa stúlkurnar á unga aldri enda taki yfirleitt nokkur ár að koma þeim á framfæri áður en þeim bjóðist næg vinna til að hafa fyrirsætustörf að fullri atvinnu. VERK eftir Björk í Æfinga- skóla KHÍ. Textinn við er: „Brunahaninn er fyrir framan bekkinn. Gömul kona sest á bekkinn. Slökkviliðsmenn nota brunahanann. Arstíðirn- ar Hða hjá, sumarið, vorið, haustið og veturinn. Svo kem- ur einhver og spreyjar á bekk- inn. Brunahaninn getur ekk- ert gert í því, bara mennirnir. kennurum tilboð um að fara með bekkinn sinn á það. Tveir til þrír bekkir úr sex skólum fóru á nám- skeiðið í haust og verður því fram haldið á vorönn. „Þá mun ljósmynd- unin fara fram í hveiju skólahverfi fyrir sig,“ segir hann. Marteinn segist hafa oft furðað sig á hvað nemendum tókst oft að taka góðar og frumlegar myndir. Kosturinn er líka að þau verða næmari á smáatr- iðin í kringum sig. „Þau eflast í að lesa myndir og að tengja þær við ljóð,“ segir hann „en ljóðagerð er orðinn virkur þáttur í skólastarfi. Einnig fléttaðist saga miðbæjarins inn í þetta verkefni." ■ GH THELMA ÞORMARSDOTTIR, 15 ARA Fékk næg verkefni EKKI er ýkja langt síðan Thelma Þormarsdóttir horfði hugfangin á bandarísku L.A. Law þættina á Stöð 2 á hveiju sunnudagskvöldi og ákvað að einhvern daginn yrði hún ábúðarmikill lögfræðingur. Hún hvarf þó frá fyrirætlunum sínum þegar hún komst að því að á íslandi eru engir kviðdómendur og réttarfar á Islandi öðru vísi uppbyggt en í Bandaríkjunum. Thelma er í 10. bekk Árbæjar- skóla og þótt henni hafi gengið vel að fóta sig sem fyrirsæta á erlendri grund stefnir hún ótrauð á stúdentspróf á tilsettum tíma. „Að öðru leyti er ég enn óráðin um framtíðina. Ég býst við að starfa sem fyrirsæta næsta sum- ar, en geri mér ekki óraunhæfar vonir um starfsframa á þeim vett- vangi. Þegar ég var í Mílanó í sumar komst ég að raun um að sumar fyrirsætur voru búnar að hanga þar ár eftir ár þótt þær fengju sárasjaldan verkefni," segir Thelma, sem vill ekki að slíkt hendi sig. Hún ætlar þó að grípa gæsina ef hún gefst og reyna að haga störfum sínum þannig að hún missi sem minnst úr námi. Safnaðl sjálf fyrlr námskeiðlnu Thelma var aðeins þrettán ára þegar hún hafði safnað sér nægum peningum til að fara á námskeið í John Casablanca skólanum. „Ég og vinkona mín fórum bara til að læra framkomu og þess háttar og fannst óskaplega gaman. Þegar ítalskt tískutímarit, Gioia, auglýsti eftir fyrirsætum í Morgunblaðinu skömmu síðar frei- staði ég þess að sækja um og varð á endanum ein af fimm sem valdar voru í myndatöku. Þeir hjá Names umboðsskrifstof- unni sáu myndirnar og buðu mér að koma til starfa í Mílanó. Mömmu og pabba fannst ég allt of ung og því fór ég ekki fyrr en síðastliðið vor.“ Thelma segist ekk- ert hafa verið „spæld“ út af ákvörðun foreldra sinna, enda hafi hún fengið að fara ein síns liðs að heimsækja skyldmenni sín í Kaupmannahöfn um sumarið. Að sögn Thelmu voru foreldrar hennar enn tvístígandi að senda hana utan vorið 1996. Loks hafi þeir þó látið tilleiðast eftir að hafa kynnt sér aðstæður og fengið full- vissu um að barnið þeirra yrði í öruggum höndum. „Við sem erum svona ungar megum ekki fara fylgdarlausar út á kvöldin og bara á ákveðinn skemmtistað þriðju hveija viku og þá með einhveijum af skrifstofunni." Thelma segir að í byijun fari mestur tími í að safna myndum í möppuna, sem engin fyrirsæta geti verið án, og að kynna sig. „Ég hafði þó heppnina með mér og bauðst strax að sitja fyrir á mynd-. um fyrir vörulista Benetton. Myndirnar voru teknar á fjórum dögum í bænum Treviso, þar sem höfuðstöðvar fyrirtækisins eru. Næsta mánuð fékk ég engin verk- efni, en þá vaknaði ég alltaf snemma, hringdi á skrifstofuna og fékk uppgefið hvert ég ætti að fara og kynna mig. Dijúgur tími fór yfirleitt í biðröð, síðan var stutt viðtal, og þá var kominn tími til ELIN JONSDOTTIR, 17 ARA Góður skóli ÞEGAR Elín Jónsdóttir var 15 ára í tíunda bekk Árbæjar- skóla fór hún á námskeið í John Casa- blanca skól- anum og átti ekki von á að framtakið breytti lífi sínu á nokkurn hátt. Síðan hefur Elín verið á ferð og flugi, starfað sem fyrirsæta í Prag og Tókýó, en þó aðallega í Mílanó, þar sem umboðsskrif- stofa hennar er til húsa, hún hefur staldrað við í París og í síðustu viku hélt hún til Mílanó eftir jólafrí á íslandi. Hún býst við að þaðan liggi leiðin til Lond- on, Parísar og New York í tíma- bundin verkefni á hveijum stað. „Ég var ein af þremur sem Kolbrún Aðalsteinsdóttir, í sam- ráði við Names umboðsskrifstof- una, bauð að fara_ til Mílanó og feista gæfunnar. Ég hikaði ekki andartak og foreldrar mínir hvöttu mig eindregið, enda treysta þeir mér fullkom-lega og fannst bara gott að mér byðist slíkt tækifæri," segir Elín eða Elína eins að halda heim. í fýrstu fannst mér mjög erfitt að skilja manneskjuna, sem ég hringdi í, á um- boðsskrifstofunni. Hún talaði bara ít- ölsku, ég rataði ekkert um borgina og kunni ekki á lestakerfið. Eftir nokkra daga varð þetta ekkert mál og núna get ég meira að segja bjargað mér svolítið á ít- ölsku.“ í auglýslnga herferð hjá Armanl Thelma fékk síðar næg verk- efni, fór m.a. til Madrid þar sem hún tók þátt í hársýningu og ýmis smáverkefni rak á fjörur hennar. Hún kom heim í ágúst, settist á skólabekk í 10. bekk, en gat ekki hafnað tilboði frá Armani um þátt- töku í auglýsingaherferð og verk- efni í New York í kjölfarið. „Ég ákvað að taka smáfrí úr skólanum, enda fannst mér tilboðið mikill heiður. Ég veit ekki enn hvort myndirnar voru samþykktar en ef að líkum lætur verð ég andlit Ar- manis í undirfataauglýsingum haustsins. Til að friða mömmu vil ég nefna sérstaklega að undirfötin voru fremur efnismikil og siðsam- leg eins og Armani-tískan er núna.“ Á sumrin verður Thelma ef til vill á ferð og flugi milli Mílanó og New York eða annarra heimsborga næstu árin. Þess á milli ætlar hún að sitja á skólabekk eins og venju- legur íslenskur unglingur, fara í félagsmiðstöðina stöku sinnum um helgar eða sitja bara heima með fjölskyldunni eða vinum sínum, eins og henni finnst best, með popp, kók og góða bíómynd í tæk- inu. ■ og umboðsskrifstofan kynnir hana vegna nöfnu hennar sem þegar var komin til starfa í Mílanó sum- arið 1995. Vsastl ekkl um okkur Elín segir fyrirsætudrauminn hafa blundað í sér frá því hún var sex ára, en þá hafi hún legið yfir verðlistum og tískublöðum. „Ég hafði aldrei hátt um þennan draum í hópi vinkvennanna, sagðist bara ætla að verða flugfreyja þegar ég yrði stór eins og þær.“ Fyrsta sumarið í Mílanó bjó Elín og þrettán ára íslensk stúlka, sem einnig var að stíga sín fyrstu spor, í íbúð ásamt Kolbrúnu Áðal- steinsdóttur. í sama húsi bjuggu líka fímm íslenskar fýrirsætur. Elín segir að ekki hafi væst um þær stöllur og þær hafi orðið góð- ar vinkonur. Elínu finnst ekki ótrúlegt að foreldrar hennar treysti henni bet- ur en ella vegna þess að hún er elst systkinanna. „Ég fékk ósköp svipað uppeldi og gengur og ger- ist. Ég á tvo yngri bræður, bjó á Bolungarvík þar til ég var tíu ára en þá fluttist eg í Ártúns- holtið. íþróttir voru og eru mikið áhuga- mál. Ég keppti í mörg ár í sundi og æfði fótbolta með Val frá því ég var ellefu ára. Núna held ég mér í formi með því að fara í líkamsrækt þrisvar í viku.“ Veturinn 1995- 1996 tók Elín tvær annir í FA en hélt aftur til Mílanó um vorið þar sem hún fékk nóg að gera. Fimm vikna dvöl í Tókýó um haustið við myndatökur fýrir verðlista fannst henni þó mesta ævintýrið og mesta upphefðin í ljósmyndum, teknum í Prag, sem birtust af henni í tékknesku útgáf- unni af Elle. „Óskastaðan hjá mér eins og flestum, sem eru að byija, er að sýna fyrir Armani, Calvin Klein og fleiri þekkta hönnuði eða taka þátt í auglýsingaherferðum þeirra. Enn um sinn býst ég við að taka þátt í tískusýningum óþekktari hönnuða og sitja fyrir á myndum fyrir verðlista og ýmis tímarit.“ Engln dekurrófa Elínu finnst fyrirsætustarfíð eiga vel við sig. Þótt hún hafi ekki verið sérstök dekur- 0 rófa í uppvextinum seg- • ist hún efalítið vera orð- in sjálfstæðari en ef hún væri í skóla og byggi í foreldrahúsum. „Annars er passað óskaplega vel upp á okkur. Ég þarf samt að skipuleggja fjármálin sjálf, elda, búa um rúmið, þrífa og gera ýmislegt sem ég hefði ekki komið nálægt heima. Mér finnst mjög heppilegt að byrja fímmtán ára, en varla miklu yngri. Ég held að flestar stelpurnar geri sér grein fyrir að til að komast áfram verða þær að halda sig frá öllu rugli því annars eru þær bara sendar heim. Við förum stundum út að borða með umboðsmönnum og væntanlegum viðskiptavinum. Allir sem ég hef kynnst eru ósköp prúðir og penir. Umboðsmenn fylgjast vel með stúlkunum sem þeir hafa á sínum snærum og þótt Mílanó sé stór borg frétta þeir ótrúlega fljótt ef einhver gerir ekki grein fýrir ferð- um sínum.“ Elnu slnnl snupruð Aðspurð segist Elín einu sinni hafa fengið snuprur fyrir að láta umboðsmanninn ekki vita þegar hún fór út að skemmta sér. „Mér fannst ég ekki geta hringt til mannsins um miðnætti, en þá ákváðum við stelpurnar skyndi- lega að fara aðeins út á lífið til að fagna einhvetju, sem ég man ekki lengur hvað var.“ Elín vonast til að geta haldið áfram sem fyrirsæta í a.m.k. fimm ár. Henni finnst reynslan síðastlið- ið eitt og hálft ár hafa kennt sér meira en seta á skólabekk. „Ég get núna alveg bjargað mér á ensku og er óðum að komast inn í ítölskuna. Stúdentsprófið get ég tekið hvenær sem er, jafnvel þijá- tiu eða fjörutíu ára,“ segir Elín, sem getur vel hugsað sér að verða barnakennari þegar hún er orðin „stór“.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.