Morgunblaðið - 23.01.1997, Side 4
4 C FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 C 5
URSLIT
1. deild kvenna
Fram - Stjarnan 15:20
íþróttahús Fram, íslandsmótið í handknatt-
leik - 1. deild kvenna, miðvikudaginn 22.
janúar 1997.
Gangur leiksins: 1:0, 1:4, 2:6, 6:6, 6:9,
6:11, 8:11, 9:16,10:18, 13:18,15:19,15:20.
Mörk Fram: Svanhildur Þengilsdóttir 5,
Guðríður Guðjónsdóttir 5/5, Hekia Daða-
dóttir 2, Hrafnhildur Sævarsdóttir 2, Stein-
unn Tómasdóttir 1.
Varin skot: Hugrún Þorsteinsdóttir 14 (þar
af eitt til mótheija), Þóra Jónsdóttir 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Sfjörnunnar: Ragnheiður Stephen-
sen 6/2, Björg Gilsdóttir 3, Nína K. Björns-
dóttir 3, Sigrún Másdóttir 3, Ásta Sölvadótt-
ir 2, Margrét Theódórsdóttir 1, Rut Stein-
sen 1, Inga S. Björgvinsdóttir 1.
Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir 10 (þar
af fjögur til mótheija), Sóley Halldórsdóttir
6 (þar af eitt til mótheija).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Aðalsteinn Ömólfsson og Marinó
G. Njálsson voru jafn slakir og leikmenn.
Áhorfendur: 64.
FH - Víkingur 18:24
Kaplakriki:
Mörk FH: Hrafnhildur Skúladóttir 10, Þór-
dís Brynjólfsdóttir 4, Björk Ægisdóttir 3,
Dagný Skúladóttir 1.
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk Víkings: Heiða Erlingsdóttir 10,
Guðmunda Kristjánsdóttir 6, Kristín Guð-
mundsdóttir 4, Elísabet Þorgeirsdóttir 2,
Sigríður Snorradóttir 1, Helga Brynjólfs-
dóttir 1.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómaran Anton Pálsson og Hlynur Leifs-
son.
ÍBV-Valur 22:26
íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum:
Gangur leiksins: 2:3, 5:4, 10:9, 11:10,
13:12, 14:16, 15:18, 16:20, 19:23, 22:26.
Mörk ÍBV: Ingibjörg Jónsdóttir 7/4, Stef-
anía Guðjónsdóttir 5, Sara Guðjónsdóttir
3/2, María Rós Friðriksdóttir 3, Eyrún Sig-
uijónsdóttir 2, Elísa Sigurðardóttir 1, Guð-
björg Guðmannsdóttir 1.
Varin skot: Laufey Jörgensdóttir 9 (þar
af 1 til mótheija).
Utan vallar: 0 mín.
Mörk Vals: Sigurlaug Rúnarsdóttir 11/6,
Gerður Jóhannsdóttir 5, Lilja Valdimars-
dóttir 3, Eivor Pála Blöndal 2, Sonja Jóns-
dóttir 2, Dagný Pétursdóttir 1, Júlíana Þórð-
ardóttir 1, Eva Þórðardóttir 1.
Varin skot: Vaiva Drilingaite 12/1. Sigríð-
ur Gunnarsdóttir 2/2.
Utan vallar: 6 mín. (Haukur Geirmunds-
son, þjálfari, fékk að líta rauða spjaldið
fyrir að mótmæla dómi).
Dómarar: Gunnlaugur Hjálmarsson og
Amar Kristinsson.
Áhorfendur: 50.
Lotto Cup
Lotto-keppnin í handknattleik karla hófst í
Noregi í gærkvöldi:
Danmörk - Króatía................30:15
Nicola Jakobson og Ian Marco Fog skoruðu
sín hvor sex mörkin fyrir Dani, Veppe Sig-
fússon skoraði Qögur mörk.
Noregur - Spánn....................26:28
Ogrvan skoraði sjö mörk fyrir Spánveija.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Grosswallstadt - Essen...........27:22
Dutenhofen - Eisenach............20:19
Bad Schwartau - Melsungen........26:22
Pfullingen - Lemgo...............27:30
Knattspyrna
England
Deildarbikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Stockport- Southampton.............2:2
Alun Ármstrong (25.), Louie Cavaco (26.)
- Egil Ostenstad 2 (16., 85.).
■ Liðni þurfa að leika á ný á The Dell í
næstu viku, það sem fer með sigur af hólmi
mætir Middlesbrough í tveimur leikjum í
undanúrslitum.
Bikarkeppnin, þriðja umferð:
Aston Villa - Notts County.........3:0
D. Yorke 2 (24., 53.), Ugo Ehiogu (67.).
■Aston Viila mætir Derby úti í fjórðu
umferð.
2. deild:
Stoke - Norwich......................1:2
Leikmenn Stoke fengu tvö mörk á sig í
byijun leiksins, eftir að vöm þeirra var leik-
in grátt.
Vináttuleikir
Jerusalem, Israel:
ísrael - Grikkland.................1:1
Itzik Zohar (57.) - Christos Kostis (9.).
Palermo, Ítalíu:.
Ítalía - Norður-írland.............2:0
Zoia (10.), Del Piero (90.). 38.000.
Braga, Portúgal:
Portúgal - Frakkland...............0:2
- Didier Deschamps (10.), Ibrahima Ba
(60.). 40.000.
Rallakstur
Monte Carlo raliið.
1. Piero Liatti (ítal.) S. Impreza.4:26.58
2. Carlos Sainz (Spáni) F. Escort ...4:27.53
3. T. Makinen (Finnl.) M. Lancer ...4:29.29
4. A. Schwarz (Þýskal.) F. Escort ..4:32.03
5. U. Nittel (Þýskal.) M. Lancer.4:42.42
6. H. Lundgárd (Danm.) T. Celica ..4:45.26
HM á skautum
París, parakeppni á listhlaupi á skautum.
1. M. Eltsova/A. Bushkov (Rússl.). 1.5
2. Mandy Wötzel/I. Steuer (Þýskal.). 3.0
3. Berezhnaya/Sikharulidze (Rússl.) .... 5.0
4. S. Abitbol/S. Bemadis (Frakkl.) . 5.5
5. E. Shishkova/V. Naumov (Rússl.) .... 7.5
6. P. Schwarz/M. Múller(Þýskal.)..10.0
7. D. Zagorska/M. Siudek (Póliandi) ....10.0
HANDKNATTLEIKUR
HANDKNATTLEIKUR
Glæsilegt
sigurmark
Jón Freyr Egilsson tryggði Haukum sigur með sirkusmarki
HAUKAR höfðu betur í ná-
grannaslagnum í Hafnarfiði í
gærkvöldi, lögðu FH-inga,
23:22, í æsispennandi undan-
úrslitaleik í bikarkeppni karla í
handknattleik. Úrslitin réðust
ekki fyrr en á síðustu sekúnd-
unum þegar Aron Kristjánsson
henti boltanum inn í vítateig
FH þar sem Jón Freyr Egilsson
greip hann á lofti og skoraði.
Sannarlega glæsilegur endir á
spennandi og skemmtilegum
leik og Haukar þar með komn-
ir í úrslit bikarkeppninnar.
FH-ingar voru eiginlega hálf-
gerðir klaufar að sigra ekki í
gærkvöldi því þeir voru 21:19 yfir
er 8 mínútur voru
Skúli Unnar eftir- Á þeim tíma
Sveinsson gerðu Haukar fjög-
skrifar ur mörk gegn einu
marki FH og voru
þessar mínútur nær óþolandi spenn-
andi. Bjami Frostason varði í þrí-
gang skot FH-inga úr dauðafæri
og hinum megin varði Lee einnig
vel. Bæði lið misstu einn leikmann
útaf, fyrst FH-ingar og það nýttu
Haukar og síðan FH. Heimamenn
komust 22:21 yfir er 1,34 mín. var
eftir en FH-ingar jöfnuðu er 1,08
mín. var eftir. Haukar héldu boltan-
um þann tíma sem eftir var og síð-
asta markið, sem áður er lýst, kom
þegar tvær sekúndur voru eftir og
því enginn tími fyrir FH að hefja
leikinn á ný.
„Ég bjóst við að FH-ingar teldu
að ég myndi reyna að ljúka sókn-
inni eins og ég hef gert í nokkrum
leikjum að undanförnu og ákvað
því að gera það ekki að þessu sinni,“
sagði Aron Kristjánsson alsæll eftir
leikinn, en hann hefur gert þýðing-
armikil mörk fyrir Hauka á lokasek-
úndum síðustu leikja liðsins í deild-
inni. Hann kom þó svo sannarlega
við sögu í sigurmarkinu í gær því
hann átti sendinguna á Jón Frey.
Sendingin var heldur há en Jón
Freyr náði henni og það dugði.
FH-ingar byijuðu betur, léku
mjög góða flata vörn og komust í
3:1. Haukar voru með sama byijun-
arlið og gegn Aftureldingu á dögun-
um en skiptu fljótlega þeim
Baumruk og Rúnari inná í sóknina
og gafst sú uppstilling mun betur
því þeir tveir ógnuðu vel. Annað
mark heimamanna lét standa á sér
og kom ekki fyrr en eftir tæplega
sjö mínútna leik. Bæði lið gerðu
mikið af mistökum, töpuðu boltan-
um allt of oft klaufalega og svo
virtist sem þau réðu ekki alveg við
þann hraða sem þau ætluðu að
reyna að leika á.
Haukar komust í 4:3 en FH
komst aftur einu marki yfir, 5:4.
Haukar höfðu síðan undirtökin allt
þar til 16,42 mín. voru til leiksloka
að FH-ingar komust yfir á ný,
17:18. Haukar náðu tvívegis
þriggja marka forystu, 13:10 í upp-
Haukar-FH
hafi síðari hálf-
leiks og svo 16:13
skömmu síðar.
Þegar staðan var
17:16, og FH-ing-
ar nýbúnir að ná
fullskipuðu liði
eftir brottvísun,
misstu Haukar
tvo leikmenn útaf
með fjögurra sek-
úndna millibili og
það nýttu gestirn-
ir sér og gerðu
þijú mörk, 17:19.
Haukar jöfnuðu
en FH komst aft-
ur yfir, 21:19, og
lokamínútunum
er lýst hér að
framan.
Haukar eru
með jafnara lið en
FH og sést það til
dæmis á því að í
gær voru fjórir
Haukar sem
gerðu 12 mörk, fjögur hver, en tveir
FH-ingar gerðu samtals 12 mörk.
Oskar Sigurðusson lék vel í vinstra
horninu og hinum megin lét Jón
Freyr til sín taka undir lok leiksins
og gerði þá tvö mörk. Aron,
Baumruk og Gústaf léku allir ágæt-
lega og Bjarni varði vel i markinu,
lokaði því til dæmis á lokakaflanum
þegar mest á reið.
Hjá FH átti Hálfdán góðan dag,
Iþróttahúsið við Strandgötu, 4-liða úrslit bikar-
keppni HSÍ í karlaflokki, miðvikudaginn 22. jan-
úar 1997.
Gangur leiksins: 0:1, 1:3, 4:3, 4:5, 6:6, 9:6,
9:8, 10:10, 11:10, 13:10, 14:13, 16:13, 16:16,
17:16, 17:19, 19:19, 19:21, 22:21, 22:22, 23:22.
Mörk Hauka: Aron Kristjánsson 4, Gústaf
Bjarnason 4, Petr Baumruk 4, Óskar Sigurðsson
4, Jón Freyr Egilsson 2, Rúnar Sigtyggsson 2,
Þorkell Magnússon 2, Sigurður Þórðarson 1.
Varin skot: Bjarni Frostason 18 (þaraf 5 tii
mótheija).
Utan vaílar: 10 mínútur.
Mörk FH: Gunnar Beinteinsson 6, Guðmundur
Pedersen 6/3, Knútur Sigurðsson 3, Guðjón
Árnason 2, Hálfdán Þórðarson 2, Sigurgeir
Ægisson 2, Valur Arnarson 1.
Varin skot: Suk Hyung Lee 10 (þaraf 4 til
mótheija), Jónas Stefánsson 1.
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Stefán Arn-
arldsson. Komust ágætlega frá erfiðum leik.
Áhorfendur: 1.300.
sérstaklega í vörninni en hann fékk
ekki úr miklu að moða á línunni.
Hann lét það ekki á sig fá pilturinn
heldur vann eins og hestur fyrir
félaga sína. Gunnar átti góða
spretti og í markinu varði Lee ágæt-
lega á köflum en lítið þess á milli.
Stefán Guðmundsson lék um tíma
sem leikstjórnandi í fyrri hálfleikn-
um og stóð sig vel en fékk ekkert
að leika eftir hlé.
Hafa ÍR-ingar trú á að
þeir geti lagt KA?
Við fyrstu sýn ætti að vera ör-
uggt, að KA vinni ÍR á heima-
velli, því annað liðið er í efri hluta
deildarinnar en hitt í botnbaráttu.
Annað kom þó á daginn um helg-
ina, er þessi lið mættust í Reykja-
vík, og leikurinn á morgun gæti
orðið meira spennandi en menn
hafa haldið. Segja má að hið unga
lið ÍR hafí verið í stöðugri framför
í allan vetur og það er merkilegt
að liðið hefur ekki tapað leik með
meira en fjögurra marka mun. Oft
hefur því ekki mikið vantað upp á
að úrslitin verði liðinu hagstæðari
en raun varð á.
LYFTINGAR
Silfur og brons
í Danmörku
"Pveir íslendingar, Ingvar Ing-
■ varsson og Gísli Kristjánsson
sem báðir eru í ÍR, tóku þátt í móti
í ólympískum lyftingum sem fram
fór í Kaupmannahöfn um helgina.
Ingvar varð í öðru sæti, lyfti 135
kg í snörun og 172,5 kílóum í jafn-
höttun eða samtals 307,5 kílóum.
Gísli varð í þriðja sæti, snaraði 135
kílóum ogjafnhattaði 167,5 kíló eða
samtals 302,5 kíló.
Það sem greinilega hefur vantað,
að mínu mati, er að ÍR-ingar trúi
því innst inni að þeir geti betur -
og það mun skipta sköpum nú hvort
þeir trúi því sjálfir að þeir geti virki-
lega sigrað KA á útivelli. IR-ingar
sýndu um helgina að þeir hafa getu
og snerpu til þess.
ÍR-liðið er skemmtileg blanda af
mjög ungum leikmönnum og öðrum
eldri. Það verður að segjast eins
og er að þótt þeir ungu séu ekki
háir í loftinu hafa þeir yfir mjög
góðri tækni að ráða og hafa mikinn
keppnisvilja. Auk þess hefur Hrafn
Margeirsson markvörður sem flestir
ef ekki allir voru búnir að afskrifa,
verið að finna taktinn aftur. Síðan
má ekki gleyma „gömlum refum“
eins og Hans Guðmundssyni sem
virðist vera að komast í sitt gamla
form eftir meiðsli, en hann virtist
einmitt kunna afskaplega vel við
sig gegn KA í síðasta leik.
Það gefur augaleið að KA-menn
ætla sér í bikarúrslitaleikinn fjórða
árið í röð. Liðið hefur ekki tapað
bikarleik í þijú ár og norðanmenn
ætla sér auðvitað ekki að breyta
þeirri venju. Ég sá KA-liðið síðast
spila á Akureyri gegn Gróttu fyrir
viku og fannst liðið leika töluvert
undir getu; ef til vill vegna þess
að leikmenn þess hafa vanmetið
andstæðinginn. Eins fannst mér sú
Bikarmeistarar KA taka
á móti IR-ingum í und-
anúrslitum bikarkeppni
HSÍ í kvöld. Jóhann
Ingi Gunnarsson fyrr-
um landsliðsþjálfari telur
heimaliðið sigurstrang-
legra, en allt geti þó
gerst í bikarkeppninni.
mikla stemmning sem oft hefur
verið í KA-húsinu ekki til staðar
og hinir fyrrverandi frábæru áhorf-
endur Akureyringa minntu mig á
dæmigerða „leikhús-áhorfendur";
fólkið sat og klappaði annað slagið
en hafði sig annars ekki mikið í
frammi.
KA-liðið hefur ef til vill ekki al-
mennilega náð að sýna sitt rétta
andlit í vetur, þrátt fyrir að hafa
unnið meirihluta leikja. Sérstaklega
finnst mér Julian Duranona ekki
sami maður innan vallar og á síð-
asta keppnistímabili; nú virðist
vanta leikgleðina sem einkenndi
hann svo mikið í fyrra. Ég hef
stundum á tilfinningunni að hann
sé orðin hundleiður á handbolta.
Þess á milli sýnir hann gamla takta
og vonandi, handboltans og KA
vegna, kemst hann aftur í gang.
IR-liðið er mjög jafnt, leikmenn
þess eru tiltölulega fljótir fram á
völlinn en hafa verið í vandræðum
með að ná skotum yfir mjög háar
varnir, vegna þess hve smávaxnar
skytturnar eru. Það ætti hins vegar
að breytast með tilkomu Hans.
Rússinn Sergej Ziza hefur sífellt
verið að koma betur inn í leik KA-
liðsins en alltof margir af þeim leik-
mönnum sem voru mjög góðir á
síðasta keppnistímabili hafa ekki
náð sér á strik. Duranona hef ég
þegar nefnt en vil líka minnast á
Jóhann G. Jóhannsson og Leó Örn
Þorleifsson. Þeir hafa alls ekki leik-
ið eins og þeir geta.
Það býr miklu meira í KA-liðinu
en komið hefur í ljós í vetur. Ég
hef á tilfinningunni að liðsmenn séu
jafnvel að spara sig fyrir leikina sem
skipta máli. Spurningin er sú hvort
þeir séu svona klókir eða hvort þeir
séu svona taugaóstyrkir að þurfa
að standa í toppbaráttu. Því trúi
ég þó varla, en að minnsta kosti
er Ijóst að þeir hafa ekki eins gam-
an af hlutunum og á síðasta vetri.
Leikgleðin, sem einkenndi liðið
mjög þá, vantar nú.
Morgunblaðið/Ásdís
ARON Kristjánsson lék vel fyrlr Hauka í gœr. Hér reynlr hann aö brjót-
ast framhjá FH-ingunum Knúti Sigurðssyni og Val Arnarsyni.
Jón Freyr Egilsson sem skoraði „sirkusmarkið"
„Þetta var
ekkert mál“
Við höfum stundum reynt þetta í leikjum,
með misjöfnum árangri. Aron ákvað að
gera tilraun til að gera sigurmarkið með þess-
um hætti tíu sekúndum fyrír
jvar leikslok og sem betur fer gekk
Benediktsson allt eins og í sögu. Þetta var
skrifar ekkert mál,“ sagði Jón Freyr
Egilsson hornamaður, sigri
hrósandi, eftir að hafa skorað hið glæsilega
sigurmark Hauka örfáum andartökum áður en
leikurinn var úti.
„Ég var orðinn talsvert spenntur þegar fimm
mínútur voru eftir og við vorum undir. Við
sýndum hins vegar á lokakaflanum að það er
mikill persónuleiki í Haukaliðinu að ná að jafna
og komast yfir á hárréttum tíma,“ sagði Jón
ennfremur. Hann sagði leikinn hafa verið í stór-
um dráttum eins og búist hafði verið við, hníf-
jafn og æsispennandi fram á lokasekúndur.
„Þetta var draumaleikur.“
Ekkert annað í stöðunnl
„I stöðunni var ekki annað til ráða en að
taka áhættuna og ljúka leiknum með þessum
hætti, vörn FH kom langt út á móti okkur og
gaf engin færi á skotum,“ sagði Aron Kristjáns-
son, „höfundurinn" að sigurmarki Hauka. „Ég
fékk aukakast þegar fimmtán sekúndur voru
eftir og er við stilltum upp í það gaf ég á Petr
Baurnruk og gaf Jóni merki með fingrunum
um leið hvað skyldi gera. Þegar knötturinn kom
frá Baumruk sendi ég inn í hornið og Jón var
mættur á sinn stað og skilaði boltanum í netið
þrátt fyrir að sendingin væri aðeins of há,“
bætti hann við. Hann sagði að fátt annað hefði
verið hægt að gera. „Annað hvort þetta eða
framlenging.“
Aron, eins og fleiri leikmenn Hauka, hefur
aldrei leikið í úrslitum bikarkeppninnar og hann
segir að hjá liðinu hafi ekki komist önnur hugs-
un að en að fara alla leið þrátt fyrir að útlitið
skömmu fyrir leikslok hafí ekki verið bjart.
„Við höfum farið svo erfiða leið í úrslitin að
það var ekki annað hægt en að gefa sig allan
í leikinn á lokakaflanum. Löngunin í úrslitaleik-
inn var svo sterk.“
Ákvörðun Aron var klók
„Enn einu sinni sannaðist það að leikurinn
er ekki úti fyrr en flautað hefur verið af,“ sagði
Gústaf Bjarnason línumaður Hauka, en hann
barðist eins og ljón allan tímann og skoraði
fjögur mörk. „Annan leikinn í röð
lendum við í basli á lokamínútunum
og enn á ný tekst okkur að hafa
betur. Þetta var baráttuleikur og
sigurinn hafnaði réttu meginn.“
Gústaf sagði ennfremur að
eflaust hefðu Haukar oft leikið bet-
ur á leiktíðinni og hefði eflaust spil-
að þar inn í að meira álag var á
þeim en FH, sem hefur ekki leikið
eins vel hingað til.
„Sigurmarkið var einstakt og
frábærlega vel að því staðið hjá
Aroni og Jóni Frey. Ákvörðun Ar-
ons var mjög klókindaleg, andstæð-
ingarnir áttu ekki von á þessu.“
FOLX
■ SIGURÐUR Gunnarsson þjálf-
ari Hauka var leikmaður Víkings
árið 1980 þegar Haukar komust
síðast í úrslit í bikarkeppninni, en
þá lögðu Hafnfirðingar einmitt
Sigurð og félaga í Víkingi í undan-
úrslitum.
■ SIGURJÓN Sigurðsson skytta
úr FH missteig sig illa um miðjan
fyrri hálfleik og lék ekkert það sem
eftir var leiks.
■ ÞAÐ vakti óneitanlega athygli
í leiknum í gær að hvorugt liðið
nýtti sér rétt sinn til að taka leikhlé.
■ GUÐJÓN Árnason, fyrirliði
FH, gerði fyrsta mark leiksins eftir
aðeins 26 sekúndur. Fyrsta mark
síðari hálfleiks gerði hins vegar
Aron Kristjánsson eftir 14 sek-
úndna leik. Þeir leika báðir í peysu
númer 13!
■ ÁHORFENDUR troðfylltu
íþróttahúsið við Strandgötu í gær-
kvöldi og voru mættir tímanlega.
Allt var fullt hálfri klukkustundu
fyrir leik.
Sigurður Gunnarsson, þjálfari Hauka
Ákvörðunin
var Arons
Við komum okkur sjálfir í vand-
ræði í þessum leik með því
að vera of bráðir þegar við höfðum
náð tveggja til þriggja marka for-
skoti í byijun síðari hálfleiks. En
með miklum viljastyrk tókst okkur
að vinna okkur út úr vandanum og
tryggja okkur sigur,“ sagði Sigurð-
ur Gunnarsson, þjálfari Hauka, sem
skiljanlega var glaður með að vera
búinn að leiða lið sitt í úrslit bikar-
keppninnar í fyrsta sinn í 17 ár.
„Leikurinn var alls ekki gallalaus
en við erum eigi að síður í skýjunum
enda ástæða til eftir þessi úrslit.“
Sigurður segir að það hafi ekkert
farið um sig þó nokkuð hafi hallað
á Hauka þegar skammt var til leiks:
loka og einum leikmanni færri. „í
þessari stöðu tókst okkur að sýna
þá grimmd sem oft vantaði þegar
við vorum með fullskipað lið.“
Sigurður sagði ennfremur að
hann hefði ekkert verið með Aroni
í ráðum þegar ákveðið var að freista
þess að innsigla sigurinn með „sirk-
usmarki". „Þetta var alfarið
ákvörðun Arons, hann átti bara að
Ijúka leiknum og það tókst honum.
Aroni er sifellt að fara fram sem
leikstjórnandi og þetta dæmi undir-
strikar það.“
„Nú hef ég reynt allt“
„Við vorum með leikinn í höndum
okkar þegar stutt var eftir, tveimur
mörkum yfir, en lékum ekki nógu
vel úr stöðunni. Kannski má segja
að við höfum verið of ákafir að
fara inn úr hornunum í lokin, en
svona erþetta,“ sagði Gunnar Bein-
teinsson, þjálfari FH og var að von-
um vonsvikinn með niðurstöðuna.
Hann segir einnig að hraðaupp-
hlaup hafi farið forgörðum og ýmis-
legt annað í lokin. „Hins vegar er
það jákvætt þegar á heildina er lit-
ið að okkur er að fara fram og við
leikum betur nú en fyrr á leiktíð-
inni.“ Það var mat Gunnars að þessi
leikur væri sá besti sem leikinn
hafi verið á þessu keppnistimabili.
Gunnar segir það alltaf vera sárt
að tapa fyrir Haukum, ekki hvað
síst þegar svo mikið er undir eins
og nú var. „Það er skelfilegt, nú
hef ég reynt allt i handknattleik og
þetta er því miður bitur reynsla.“
Mörg mistök
í Framhúsinu
Stefán
Stefánsson
skrifar
STJARNAN lagði Fram auð-
veldlega að velli í Safamýrinni
ígærkvöldi, 20:15, íleik sem
ekki verður lengi í minnum
hafður fyrir gæði. Meira fór
fyrir mistökum, sem voru fjöl-
mörg. í Kaplakrika sigruðu Vík-
ingsstúlkur FH 18:24 og íVest-
mannaeyjum töpuðu Eyjastúlk-
urfyrir Val 22:26.
ISafamýrinni skoraði Fram fyrsta
mark leiksins eftir nokkurt þóf
beggja liða en Garðbæingar tóku
þá strax við sér og
náðu í 2:6. Fram
jafnaði 6:6 á seigl-
unni einni saman og
létu sér það duga en
Stjörnustúlkur létu ekki þar við
sitja, náðu öruggri forystu með
fimm næstu mörkum og ekki varð
aftur snúið. í stöðunni 10:18 tóku
Framstúlkur viðbragð og söxuðu á
forskotið en bilið var of mikið til
að brúa og úrslit ráðin.
Framstúlkum voru ákaflega mis-
lagðar hendur í þessum leik og
mistökin mýmörg. Vörnin var oft
og tíðum góð en sóknarleikurinn
var hvorki fugl né fiskur, atlögur
að marki mótheijanna voru flestar
fálmkenndar og ef mistökin hefðu
verið helmingi færri, hefði verið von
um stig. Svanhildur Þengilsdóttir
og markvörðurinn Hugrún Þor-
steinsdóttir voru bestar.
Stjarnan verðskuldaði sigurinn -
hefur oft leikið betur en gerði það
sem til þurfti. Vörnin var sterk og
réð vel við sóknartilburði heimaliðs-
ins. Ragnheiður Stephensen, Herdís
Sigurbergsdóttir og Sigrún Más-
dóttir voru bestar en aðrar stóðu
þeim lítt að baki.
Valsstúlkur
grimmari í Eyjum
Eyjastúlkur tóku á móti Val í
gærkvöldi, voru þar á ferð neðstu
lið deildarinnar svo að von var á
baráttuleik. Spennan hélst þó að-
eins fyrir hlé þar sem jafnt var á
flestum tölum og ÍBV oftar með
forskot en eitt mark skildi liðin að
í leikhléi, 13:12, ÍBV í vil.
í upphafi síðari hálfleiks var
greinilegt hvort liðið ætlaði sér sig-
ur þvi Valsstúlkur komu grimmar
til leiks, bættu vörnina sem bætti
um leið sóknarleikinn og færði þeim
gott forskot og það tókst Eyjastúlk-
um aldrei að vinna upp. Þrátt fyrir
að Valsstúlkur misstu Eivor Pálu
Blöndal útaf vegna meiðsla um
miðjan hálfleikinn, bitu þær jaxlinn
og kláruðu leikinn.
Hjá Val átti Sigurlaug Rúnars-
dóttir fínan leik sem og markvörð-
urinn Vaiva Drilingaite en liðið
barðist vel í heildina. ÍBV verður
hinsvegar margt að bæta ætli liðið
sér ekki að sitja eitt eftir á botnin-
um.
Öruggt hjá Víkingi
Víkingar sóttu FH-inga heim í
Kaplakrika og unnu öruggan sigur
í baráttuleik. Gestirnir náðu strax
forystu og héldu henni fyrir utan
að Hafnfirðingar náðu einu sinni
að jafna leikinn.
Fj. leikja u J T Mörk Stig
HAUKAR 10 8 2 0 250: 176 18
STJARNAN 10 8 0 2 233: 175 16
VÍKINGUR 11 6 2 3 196: 190 14
FH 11 5 2 4 221: 211 12
FRAM 11 4 3 4 203: 203 11
KR 10 4 1 5 177: 197 9
VALUR 11 2 2 7 175: 207 6
ÍBA 11 2 2 7 207: 256 6
IBV 11 2 0 9 197: 244 4
Dregið í Meist-
aradeildinni
BÚIÐ er að draga um hvaða lið
leika í 8-Iiða úrslitum í Meistara-
deild Evrópu í handknattleik
karla. Braga, Portúgal - Badel
Zagreb, Króatíu, Pick Szeged,
Ungverjalandi - Barcelona,
Spáni, Pfadi Winterthur, Sviss -
Celje, Slóveníu, Santander, Spáni
- Kiel, Þýskalandi. Leikirnir fara
fram 8.-9. og 15.-16. febrúar.
ÍÞRÓTTIR
FOLK
■ TÓMAS Dvorak frá Tékklandi
verður ekki með í þríþrautakeppn-
inni á alþjóðlega afmælismóti ÍR
um helgina. ÍR-ingar höfðu sam-
band við Dvorak, sem varð þriðji
í tugþraut á Ólympíuleikunum í
Atlanta, en hann svaraði of seint.
Robert Zmeiik, landi hans, verður
hins vegar með.
SIGFÚS Gizurarson, leikmaður
Hauka í körfuknattleik, verður frá
keppni um langt skeið vegna
meiðsla á hné. Liðþófinn mun vera
að angra kappann.
■ ANDY Linighan, varnarmaður
hjá Arsenal, gekk í gær til liðs við
Crystal Palace, sem borgaði 500
þús. pund fyrir hann.
■ STOKE hafnaði í gær boði frá
QPR, sem bauð 2,1 millj. punda í
markaskorarann Mike Sheron,
sem hefur skorað 21 mark í vetur.
■ KEVIN Scott, varnarmaður hjá
Tottenham, hefur verið lánaður til
Norwich.
■ KENNY Dalgish, knattspymu-
stjóri Newcastle, hefur áhuga á
að fá til sín Frakkann Marcel
Desailly frá AC Milan, en hann
er metinn á 7 millj. punda. Dalgish
er tilbúinn að láta Faustino Asp-
rilla í skiptum.
■ ANTHONY Yeboah hefur ekki
náð sér að fullu af meiðslum og
mun ekki leika með Leeds gegn
Crystal Palace í bikarkeppninni.
■ ZIMBABWEMENN hafa valið
Bruce Grobbelaar til að leika í
marki sínu í HM-leik gegn Ghana
á sunnudaginn. Grobbelíiar stend-
ur í ströngu þessa dagana, stendur
í réttarhöldum vegna mútumáls.
■ WALTER Zenga, markvörður
Sampdoría, var krýndur markvörð-
ur ársins 1996 af alþjóðlegum sam-
tökum íþróttafréttamanna, sem
halda saman sögu knattspyrnunnar
og tölulegum upplýsingum. Peter
Schmeichel, Man. Utd. varð nr.
tvö og Michel Praudhomme,
Benfica, nr. þijú.
■ PETER Mikkelsen frá Dan-
mörku var útnefndur dómari ársins
af samtökunum.
■ ALAN Buckley, knattspyrnu-
stjóri WBA, var látinn taka pokann
sinn í gær, eftir slæmt gengi liðs-
ins, sem er í sautjánda sæti í 1.
deild. Buckley var stjóri hjá
Grimsby í sex ár áður en hann tók
við WBA 1994.
■ ARTHUR Mann, aðstoðarmað-
ur Buckleys, mun stjórna liðinu til
að byija með.
■ GILLES De Bilde, leikmaður
Anderlecht, sem lamdi Aalst-leik-
manninn Krist Porte í andlitið í
leik í 21. desember, var í gær dæmd-
ur í leikbann til þar til í 31. mars.
■ DE Bilde var settur í fangelsi
eftir atvikið, en Porte nefbrotnaði,
eftir vinstri handar sveifluhögg De
Bilde.
■ PSV Eindhoven í Hollandi var
búið að ákveða að kaupa De Bilde,
hver sem dómurinn yrði.
■ FERNANDO Redondo, mið-
vallarleikmaður Real Madrid, til-
kynnti í gær að hann myndi ekki
leika með landsliði Argentínu und-
ir stjórn Daniel Passarella.
■ REDONDO hefur ekki leikið
með landsliðinu í tvö ár, eða eftir
að Passarella sagðist ekki velja
leikmenn sem væru með sítt hár
eða hring í eyra. Redondo var lykil-
maður Argentínu í HM í Banda-
ríkjunum 1994.
■ FORRÁÐAMENN Blackburn
óskaði eftir því við pólska liðið
Widzew Lodz í gær, að fá Marek
Citko lánaðan út keppnistímabilið.
Svarið frá Póllandi, var nei! „Við
viljum peninga á borðið!“
■ JUVENTUS hefur boðið 462
millj. kr. ísl. í Sean Dundee, mið-
heija Karlsruhe, sem er marka-
hæstur í Þýskalandi. Sean, sem
er fæddur í S-Afríku, fékk þýskan
rikisborgararétt á dögunum.