Morgunblaðið - 24.01.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.01.1997, Blaðsíða 1
■ UPPELDIÐ í TÓMAGANGI OG AGALEYSI Á BÖRNUM/2 ■ DREGIÐ ÚR LIKUM A BEINBROTUM VEGNA BEINÞYNNINGAR/3 ■ SPILAFIKN /4 ■ BARNAAFMÆLI/6 ■ BREYTT VIÐHORF FOLKS TIL REYKINGA/8 ■ frá toppi til táar Loðin tíska LOÐFATNAÐUR hefur átt upp á pallborðið hjá landsmönnum, sér- staklega yngri kynslóðinni að und- anförnu. Loðnar peysur, skærar eða í sauðalitum, buxur, gærujakkar og gervipelsar eru áberandi í tísku- verslunum, auk þess sem alls kyns kafloðnir smáhlutir fylgja með; slæður, treflar, hattar og töskur. Útivistarverslanir selja loðinn hlífðarfatnað í stórum stíl og hús- gagnaverslanir hafa heldur ekki farið varhluta af loðnu tískunni, því þar er að finna úfna innan- stokksmuni, svo sem púða og teppi. Er Fjalla-Eyvindur orðinn leið- andi nafn í tískuheiminum eða hefur kuldakastið í nóvember sl. haft þessi áhrif? Daglegu lífi fannst eitthvað loðið við þetta og leitaði því álits fatahönnuðar og nokkurra kaupmanna í verslunum Rey kj avíkurborgar. „Loðna tískan kemur og fer,“ segir María Olafsdóttir fata- hönnuður. „Síðast var hún á ferðinni fyrir um fjórum árum en nú eru dýraskinnslíki sér- staklega vinsæl í kjóla, bux- ur og boli en einnig njóta loðfeldir mikillar hylli.“ Kólnandi veðurfar hefur ekki haft áhrif á loðnu tískusveifluna að mati Maríu, heldur seg- ir hún náttúruvæna tísku og villimennsku frekar vera að ryðja sér til rúms á nýjan leik, m.a. með tilkomu Tarzan-kjóla. María gluggaði í nokkur erlend tískublöð til að kanna hvort loðnu áhrifanna gætti einnig í útlöndum. „Lítið er þar af skærum loðnum fötum en eitthvað er um slíkan fatnað í jarðlitunum." Hestafeldur er nýjasta efnið í tískufatnaði samkvæmt blöðunum. „Feldurinn er nýttur meðal annars í töskur og skó, hestakápur og hestapils. Fyrirsætur skarta einnig ísbjarn- arfeldum á síðum blaðanna svo og kápum úr kálfaskinni." Loðfeldlr aftur í tísku Loðfeldir eru að ryðja sér til rúms á nýjan leik ef marka má helstu tískublöðin. „Fyrir nokkr- um árum var andstaðan gegn loð- feldum mikil hjá fatahönnuðum en nú eru dýraverndunarsjónarm- ið þeirra á bak og burt. Karl Lag- erfeld og Oscar de Renta hafa nýlega hannað pelsa sem eru ann- Morgunblaðið/Emilía aðhvort mjög stuttir eða skósíðir og jafnvel með klaufum upp að mjöðm. Hérlendis eru tískuhönn- uðir aftur farnir að hanna fatnað úr sel- skinni sem samstaða var um að gera alls ekki fyrir nokkr- um árum.“ Sjálf er María heilluð af pelsatískunni en hún á einn 50 ára gamlan sem hún notar mikið á veturna. Hvað segja kaupmenn? Kaupmenn í Útilífi, Glæsibæ, segja loðinn hlífðarfatnað vera í tísku fyrir alla aldurs- hópa. Mikil ásókn hefur verið í appelsínugular loðpeysur frá Adidas en ungra fólkið sækir þó meira í skæru litina en þeir eldri. Mestrar hylli í hlífðar- Hestafeldur er nýjasta efniö í tískufatnaði fatnaði nýtur flís-efnið sem þykir mjög hlýtt og þægilegt. I húsgagnaversluninni Kompaní á Laugavegi er að finna loðna púða, bæði munstraða og ein- lita. Þeir kosta um 2.500 kr. og eru mjög vinsælir, að sögn Mörtu Bjarnadóttur eiganda verslunar- innar. Púðarnir sem sumir eru með dúskum á endunum, eru vin- sælir með tígramunstri en einnig í dökkum litum, s.s vínrauðu, svörtu og gráu. Loðnir jakkar í jarðlitum njóta hylli karla jafnt sem kvenna að sögn afgreiðslumanns í verslun- inni Sautján, Kringlunni. „Mikið hefur einnig selst að undanförnu af allskyns smádóti, svo sem loðn- um töskum og treflum og svo eru peysur með síðum hárum einnig vinsælar." ddlærabitar Egils Pilsner Kellogg's

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.