Morgunblaðið - 24.01.1997, Síða 3

Morgunblaðið - 24.01.1997, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997 B 3 Oít hefur heyrst að ástæðan liggi í því að mömmurnar eru ekki leng- ur heima. En er það rétt? Getur verið samband milli vaxandi ofbeld- ishegðunar ungmenna og minni samveru við báða foreldra og ömmu og afa en var fyrr á öldinni? Hugs- um nokkur dæmi: Dæmi 1: Barn er á leikskóla hálfan daginn á meðan foreldrar eru útivinnandi, og hálfan daginn heima hjá hjá öðru foreldri. Fyrir- vinnan kemur heim klukkan 17 eða 19 og fjölskyldan hefur tíma til að vera og gera eitthvað saman. Dæmi 2: Barn allan daginn hjá heimavinnandi móður/föður. Fyrir- vinnan kemur heim milli 17-19. Dæmi 3: Bam í dagvist frá 8 til 17 eða 18 hjá einstæðu foreldri eða úti- vinnandi hjónum og fjöl- skyldulífið hefst kl 17 eða 19. Dæmi 4: Nokkrir aðrir möguleikar, t.d. leikskóli allan daginn en annað foreldri heima allan daginn. Tíml íslenskra f oreldra íslenskar rannsóknir á hag barna eru ekki sífellt í gangi heldur tilvilj- unarkenndar. Sigurjón Bjömsson sálfræðingur gerði langtímarann- sókn sem hann birti að hluta í bók- inni Börn í Reykjavík, 1980, Iðunn. Baldur Kristjánsson gerði rannsókn á uppeldisaðstæðum íslenskra barna og birti m.a. í Tímariti Há- skóla íslands 1990. Hrönn Pálma- dóttir og Jóhanna Rútsdóttir gerðu B.ed.-ritgerð í Kennaraháskóla ís- lands, 1992, um hve stór hópur 6 og 8 ára barna er án umsjár fullorð- inna utan skólatíma og í ljós kom að 38% þeirra var án hennar hluta vikunnar. Einnig að börn þvældust nokkuð milli gæslumöguleika. Einar Ingi Magnússon sálfræð- ingur birti rannsókn í Sálfræðiritinu 1992 um áhrif leikskóladvalar á þroska. Loks má nefna rannsóknina Barnafjölskyldur, samfélag - lífs- gildi - mótun. Félagsmálaráðu- neytið 1995. Þessar rannsóknir em ólíkar en varpa meðal annars ljósi á að Ís- lendingar virðast verja minni tíma og fjármunum til að sinna börnum sínum en þjóðir sem oft eru bomar saman við íslensku þjóðina. Dr. Sig- rún Júlíusdóttir skrifar í nýlegri grein: „í rannsóknum félagsfræð- inga hefur komið fram að fólk virð- ist í vaxandi mæli verða afhuga bameignum - þótt þess hafi tæp- lega orðið vart á íslandi. Ástæðumar era m.a. óhagstæð skilyrði fyrir börn og minnkandi áhugi á börnum.“ (Uppeldi, 4. tbl. 9. árg.) Það virðist því brýnt að herða róðurinn um betri aðstæður fyrir íslensk börn. Færri samverastundir fjölskyldu- meðlima era mörgum áhyggjuefni og afleiðingarnar margvíslegar. Guðrún Helgadóttir rithöfundur skrifar til dæmis um veikan mál- þroska barna í Ný menntamál (4. tbl. 1996). „Sú staðreynd að fjöl- skyldan er horfin út af heimilunum lungann úr deginum er þar öflugur áhrifavaldur. Börn heyra ekki leng- ur ömmu og afa og mömmu og pabba spjalla saman, því síður gesti og gangandi." Nefna má annað sem hamlar uppbyggjandi samræðum fullorðinna og barna, viðvera þeirra við tölvuskjáinn. Til að kryfja málið frekar átti blaðamaður samtal við Einar Inga Magnússon sálfræðing sem hefur einbeitt sér að fjölskylduráðgjöf og mati á þroska barna. ■ Fjölskyldan er aö heiman í dag. skjön við markmið grunnskólalag- anna um að „leitast við að haga störf- um sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfír nemenda og stuðla að alhliða þroska hvers og eins“. „Almennt verknám var fellt niður i grannskólum en flestir sem stund- uðu það voru drengir," segir hann og telur það hafa verið mikil mistök vegna þess að í því undi árviss hópur sér vel. Núna hefur svokölluð starf- skynning komið í staðinn en dugar skammt.“ Mlsþroski kynjanna Einar Ingi bendir á annan eðlis- lægan þátt sem ekki er tekið tillit til í skólum, að stúlkur þroskast fyrr og hafa alltað tveggja ára forskot á drengina á ákveðnu tímaskeiði. Drengir og stúlkur era því frá nátt- úrannar hendi „misþroska" og stelp- um finnst þeir óttalega bamalegir. Hér má finna ákveðin rök fyrir að skipta eigi nemend- um í bekki eftir kyni. „Æskilegast er að strjúka náttúrunni með- hæris,“ segir Einar Ingi, „og bregða ekki blinda auganu á allar frumforsendur, eins og til dæmis mun kynj- anna.“ Ef til vill þyrftu grunnskólakennarar að nýta leikinn betur og finna leiðir til að nem- endur geti tjáð sig á þægilegan hátt. Betra kerfí með 18 nemendur í bekk með verklega dagskrá kostar peninga og orku. „Vissulega er ódýrara að láta fjölmennan bekk lesa eina bók,“ seg- ir Einar. „Og vona svo að nemend- urnir séu menn til að bjarga sér sjálf- ir. En ég er hræddur um að við upp- skerum eins og við sáum,“ segir hann. „Ef við vitum hvað við erum að gera, þekkjum markmið og leiðir í félagslegu uppeldi ættum við að uppskera í samræmi við það.“ Hann bætir við að allt aðrar áherslur séu þegar gætt er að langtíma hagsmun- um en skammtíma. íslendingar þurfa að mati Einars að leggja fé í rannsóknir og tilraunir í skólamálum ti! að segja til um hvað hentar best hér á landi, því það er ekki nóg að yfirfæra erlendar rann- sóknir á íslenskar aðstæður. Hvert samfélag þarf linnulaust að rannsaka sérstaklega og í raun sí og æ. Áhrif foreldra sem segja eltt, gera annað og melna hlð þrlðja En hv'dð eiga foreldrar að gera? „Leggja í uppeldið og leita heppi- legra leiða og aðferða til að gera gott fólk úr börnum,“ svarar Einar og nefnir dæmi, „mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir en segi ekki eitt, geri annað og meini hið þriðja. Það sem sagt er og gert, verður að falla saman. Það er marklaust að hóta að svipta börn tilteknum forrétt- indum, ef bamið veit að ekki er stað- ið við stóru orðin.“ Það er vont þeg- ar börnin læra að ekkert er að marka orðin. Nóg sé að suða með vissuna í huga um að foreldrarnir gefist fyrr eða síðar upp. Einar varar við auð- veldu og þægilegu leið- unum sem foreldrar nota til að bjarga sér. Breski heimspeking- urinn John Locke, sem barðist fyrir sómasam- legu uppeldi á börnum, sagði að gott samræmi þyrfti að vera á milli athafna, refsinga og geðástands. Bam getur til dæmis hugsað að því hafi verið refsað vegna þess að móðirin/faðir- inn var reiður en ekki vegna þess sem það gerði. John mælti með að refsing yrði ekki fram- kvæmd fyrr en foreldrar væru sjáifír búnir að ná jafnvægi. Vel uppalin börn Niðurstaðan af samtalinu við Ein- ar Inga Magnússon er í fáum drátt- um að bömum er hollast að búa við aga, vera í leikskóla og svo skóla sem tekur tillit til kyns, getu, þroskastigs og leitast við að kenna þeim i gegn- um það sem þeim er eðlislægt eins og leik. Einnig að samræmi sé milli orðs og æðis foreldra, sem á hinn bóginn vinna ekki of langan vinnu- dag og séu ánægðir í vinnunni. p Einar Ingi Magnússon DAGLEGT LÍF Beinþynning veldur færri brotum KONA með slæmt samfallsbrot í hryggjarliðum. beinþynningar eru úlnliðsbrot, hryggjarliðsbrot og nyaðma- brot. „Fjöldi mjaðmabrota er um 200 á ári hér á landi og kostnaður við eitt slíkt hátt í tvær milljónir króna.“ Gunnar segir niðurstöðuna staðfesta fyrri rannsóknir sem gerðar hafa verið á þessum lyfjaflokki. „Lyfið er tiltölu- 'ÆRULEGA dregur úr kum á beinbrotum hjá onum eldri en 55 ára sem hlotið hafa sam- f railsbrot i hryggjarlið- um, ef notað er nýtt 2E lyf, alendrónat, við beinþynningu. Þetta eru niðurstöður bandarískrar rannsóknar sem birtust ný- lega í læknaritinu Lancet. Samkvæmt rannsókninni minnkar lyfið hættu á mjaðmabroti um allt að helming og möguleika á endurte- knu sam- fallsbroti í hryggjarl- iðsbolnum um 48%. • Lyfið kom á markað hér á landi í fyrra og hefur gefið góða raun, GUNNAR Sigurðsson að sögn Gunnars Sigurðs- sonar, yfirlæknis á lyflækn- ingadeild Sjúkrahúss Reykavíkur. Hann segir tíðni beinbrota meðal ís- lenskra kvenna sem komnar eru yfir sextugt vera hærri en í mörgum öðrum löndum. Bandaríska rannsóknin náði til 2.000 kvenna á aldr- inum 55-81 árs sem allar hafa orðið fyrir samfalls- broti á hryggjarliðum, en það er merki um verulega beinþynningu. Ennfremur kom í ljós að lyfið dregur úr hættu á úlnliðsbroti um 48% og hættan á að brotna tvisvar eða oftar minnkaði um 90%. Einnig kom fram að notkun lyfsins dregur úr lík- um á sjúkrahúsinnlögn um meira en 20%. Árlega þúsund brot vegna beinþynnlngar Hér á landi má árlega rekja um 1.000 beinbrot til beinþynn- ingar, að sögn Gunnars. Al- gengustu brotin af völdum lega nýtt og því er gagnsemi þess ekki fullrannsakað. Við erum þátttakendur í fjöl- þjóðlegri rannsókn sem er að kanna notagildi þessa lyfjaflokks. Hingað til hafa hormónalyf verið algeng gegn beinþynningu en þau henta ekki öllum konum sem komnar eru yfir sextugt.“ Fyrstu 10 árin eftir tíða- hvörf tapa konur um 15% af beinmagni sínu. Hættan á beinbrotum vex því ört hjá þeim um sextugt og tvöfald- ast um hver fimm ár eftir það, að sögn Gunnars. Líkur sextugrar íslenskrar konu á að hljóta beinbrot af völdum beinþynningar er um 35-40%. Algeng meðal norðurlandabúa Beinþynning er sérstak- lega algeng meðal Norður- landabúa. „Ekki er ljóst hvers vegna, en líklega spila erfðaþættir þar inn í. Brota- tíðnin er með því hæsta sem gerist í Svíþjóð og við fylgj- um fast í kjölfarið." Tíðni beinbrota meðal eldra fólks hefur einnig farið vaxandi, að sögn Gunnars. „Líkur eru á holskeflu af beinbrotum ef ekkert verður að gert, þar sem öldruðum fer ört fjölgandi í heimin- um.“ Holl næring og hreyfing er besta vörnln Gunnar leggur áherslu á að lyfið alendrónat, henti aðeins þeim sem eru í mestri áhættu og með lægstu beinþéttnina. Hann segir góða hreyfingu og holla næringu vera bestu vörnina gegn beinþynningu. „Mjólkurvörur eru til að mynda mjög kalkríkar, en til að nýta kalkið verður að taka inn D-vítamín, sem er meðal annars að finna í lýsi.“ ■ HM hugsððu um heilsuna!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.