Morgunblaðið - 24.01.1997, Side 5

Morgunblaðið - 24.01.1997, Side 5
4 B FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997 B 5 SÁA og gengið í sambærileg sam- tök og Al-Anon, eða Gam-Anon. Gylliboðin blasa hvarvetna við Sigmar segir of snemmt að segja til um árangur meðferðarinnar, en margt bendi til að úrræðin reynist vel. „Meðferðin miðar fyrst og fremst að algjöru bindindi. Spilafíkill á aldrei að láta eftir sér að kaupa happdrættismiða, fara í bingó eða taka þátt í leik þar sem von er á vinningi, hversu smávægi- legur sem hann kann að vera. Hann þarf að breyta hugsunarhætti sín- um- og lífsstíl, laga samskipti við annað fólk og læra að vinna úr Getgátur um orsakir í FRÆÐSLURITI SÁÁ, Spilafíkn - viðráðan- legur sjúkdómur, eftir Pétur Tyrfingsson, seg- ir að geðlæknar og taugasálfræðingar hafi reynt að rannsaka miðtaugkerfið í fólki sem greinist með spilaáráttu. Sumir hafi beint rannsóknum sínum að heilabylgjum og boð- efnabúskap heilans og samhæfingu heila- hvelanna. Aðrir hafi rannsakað þá spennu sem fjárhættuspil skapar hjá einstaklingum þegar þeir spila. Markmiðið hafi verið að leita að truflunum eða starfsþáttum í miðtaugakerfinu sem skýri hvers vegna einn sé veikari fyrir að ánetjast fjárhættuspili en annar. Enn sé þó ill- _mögulegt að draga ályktanir af þeim fáu rannsóknum sem bendi til sameiginlegra eða algengra persónueinkenna í fari spi- lafíkla, því ekki sé hægt að segja til um hvort þessi ______jggjS| .einkenni séu fylgikvillar —3 Upilaáráttunnar eða undanfari hennar. Bakgrunnur spilasjuklinga streitu og til- fínningum. Mér finnst gylliboðin, sem hvarvetna blasa við, með ólíkindum. Fyrir- tæki og stofnanir höfða í æ ríkari mæli til vonar fólks um skjótfenginn gróða án þess að það þurfí að vinna fyrm honum. Þróuninni verður varla aftur snúið, freistingamar verða sífellt fleiri og sé ekkert að gert fjölgar spilafíklum að sama skapi. Opinská umræða um vandann kann þó að opna augu spilasjúkra og stemma að einhverju leyti stigu við framvindunni.“ Eins dauði er annars brauð, seg- ir einhvers staðar. I ljósi þess fjölda sem leitar meðferðar vegna spilafíknar er ekki alveg út í hött að I ritinu er vitnað í Richard J. Rosent- \hal, bandarískan geðlækni, sem segir að \ sjö atriði einkenni mjög lífssögu spila- \sjúklinga. 1. Saga um áfengissýki eða spilafíkn í \fjölskyldunni. 2. Einstaklingurinn elst upp í fjöl- \skyldu þar sem foreldri er sérstaklega \ gagnrýnið, hafnandi og tilfinninga- \lega Qarlægt. 3.1 fjölskyldunni er áhersla á Istöðutákn og gildi peninga ofmetið. 4. Einstaklingurinn er alinn upp í mikl- um keppnisanda. Þetta á sérstaklega við um karlmenn. 5. Líkamleg vandamál eða truflun í þroska. 6. Saga um ofvirkni í æsku. 7. Einstaklingurinn kynnist fjárliættuspili snemma á ævinni með þeim hætti að það hafi verið mikils metið. heimfæra máltækið upp á fjár- mögnunarleiðir ýmissa góðgerðar- stofnana og íþróttahreyfínga, sem afla tekna með spilakössum, get- raunaleikjum og alls konar happ- drættum. Mörgum finnst skjóta skökku við að starfsemi SÁÁ bygg- ist að hluta á slíkum tekjum þar sem ágóðanum er m.a. varið í að hjálpa þeim sem verða fórnarlömb fíknarinnar. Sigmar viðurkennir að erfitt sé að réttlæta tekjulindina, en bendir á að hlutdeild samtak- anna í spilakössum og þvíumlíku skipti ekki sköpum um framboðið og flestir taki þátt í leiknum sér til ánægju og án þess að bera skaða af. Karlar í meirihluta Aðspurður hverjir séu líklegastir til að verða „gullkálf- ar“ spilakassanna seg- ir Sigmar að karlar milli tvítugs og fimm- tugs séu yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem komið hafí í meðferð. „Mér fínnst of snemmt að alhæfa mikið um sameiginleg persónueinkenni spilasjúkra, því fjöld- inn er ekki nægur til viðmiðunar. Ef eitt- hvað er finnst mér þeim hætta til öfga á mörgum sviðum líkt og áfengissjúklingum. Alla jafna er þetta duglegt fólk, sem sinnt hefur fjölskyldu sinni og starfi af sömu ábyrgð og flestir aðrir áður en það varð ofurselt spilafíkninni. Spila- sjúkir beita yfirleitt ekki líkamlegu ofbeldi, en stundum gn'pa þeir til ýmissa ólöglegra örþrifai'áða til að fjármagna fíknina.“ Að sögn Sigmars leita spilasjúkir yfirleitt ekki aðstoðar fyiT en fokið er í flest skjól. í grófum dráttum segir hann að skipta megi fram- vindu spilaáráttunnar í fjögur þró- unarskeið; leit að spennu, - skeið vinninga, eltingaleik, - skeið ósi- gra, örvæntingarskeið og vonleys- isskeiðið þegar endanlegt hrun blasir við helsjúkum spilafíklum. „Engin töfralausn er til við spila- sýki. Batinn er hæg, markviss upp- bygging á öllum sviðum.“ B INGO ■EJEJEIEI □□□C E3E3E1E S3ESIE9EI EJEJE3E i ngo DAGLEGT SPILASÝK spilakasaanna ISLENSKIR spilafíkl- ar sitja ekki uppábúnir fkjól og hvítu með vin- dla og kampavín í glæstum sölum þar sem rúllettan rúllar og stássmeyjar reikna út gróða og tap. Þótt ein- hverjir hafí efalítið slæðst inn í slík húsakynni einhvers staðar í útlönd- um þar sem fjárhættuspil er lög- legt segir Sigmar Bjömsson, ráð- gjafi hjá SÁA, að allflestir íslenskir spilafíklar séu fórnarlömb spila- kassanna; í sjoppunum, mynd- bandaleigunum, kvikmyndahúsun- um, á bensínstöðvunum og jafnvel á vinnustöðum sínum. Frá ársbyrjun 1996 hafa tæplega eitt hundrað manns leitað ráða hjá SÁÁ vegna spilasýki, þar af hafa um sjötíu og fímm farið í meðferð vegna fíknarinnar. Vísir að slíkri meðferð hófst fyrst árið 1992 undir handleiðslu Péturs Tyrfingssonar, ráðgjafa SÁÁ, en lagðist fljótlega af vegna ónógrar þátttöku í svoköll- uðum grúppum, sem meðferðin byggðist að mestu leyti á. Tekið var til við þar sem frá var horfið þrem- ur árum síðar, en Sigmar hefur nú haft málefni spilafíklanna á sinni könnu í rúmlega ár. Viðráðanlegur sjúkdómur „Spilafíkn er sjúkdómur líkt og áfengissýki og oft helst þetta tvennt í hendur. Um 50% þeirra sem til okkar leita hafa verið í áfengismeðferð. Skýringin kann að hluta til að felast í því að þeir eru upplýstari en aðrir um möguleg meðferðarúrræði og viðurkenna spilafíkn sem sjúkdóm sem hægt er að hafa hemil á,“ segir Sigmar. Ekki er langt um liðið síðan al- mennt var litið á áfengissýki sem einskæran aumingjaskap. Upp úr 1970 fóru ýmsir sem höfðu verið of- urseldir fíkninni um árabil í með- ferð og náðu góðum árangri í bar- áttunni við Bakkus. Margir stóðu keikir á eftir og sumir voru allsend- is ófeimnir að koma fram opinber- lega og greina frá reynslu sinni að leiðinni til bata. Viðhorfin breyttust hægt og sígandi og núna eru flestir sammála um að meðferð fyrir fíkni- efnaneytendur sé úrræði, sem gefi besta raun. En hvemig eru viðhorf- in til spilafíknar, í hverju er með- ferðin fólgin og er raunhæft að líta á spilafíkla sem sjúklinga? Sigmar segir stutt síðan vandinn kom upp á yfirborðið, enda hafi spilakassar ekki verið á hverju strái fyrr en hin síðari ár, og of snemmt sé að fullyrða nokkuð um viðhorf almennings. „Þó segir það sína sögu að mörgum spilafíklum, sem ekki þekkja fíkniefnavanda af eigin raun, er meinilla við orðin Fæstum, sem freista gæfunn________ sinnum í spilakössum, bingóum, happ drættum og getraunaleikjum, verður meint af. Fyrir aðra er þátttaka í slíkum leikjum upphafíð að endin ar áfengissjúklingur te Sigmar Björnsson, ráð fræddi Valgerði Þ. Jónsdo vanda spilasjúkra og meðferðarúrræði sem þeim og aðstandendum þeirra standa til boða. spilafíkill og spila- fíkn og fínnst skömm að slíkri nafngift. Rannsókn- ir sýna að áfengis- sýki getur verið líf- fræðilega arfgeng og persónuleikaein- kenni áfengissjúk- linga oft svipuð. Rannsóknir á spila- sjúkum eru of skammt á veg komnar til að hægt sé að alhæfa, en ým- islegt bendir til að fíknin kunni að ganga í erfðir. Sem betur fer era margar undantekn- ingar á arfgengi áfengissýki. Eðlis- læg tilhneiging til að ánetjast fíkni- efnum eða fjárhættuspili kemur vitaskuld ekki í ljós hjá þeim sem aldrei láta á slíkt reyna; taka fyrsta glasið eða setja pening í kassann.“ Neðanjarðarstarfsemi Sjálfur er Sigmar óvirkur alkó- hólisti til fjórtán ára. Þótt spila- kassamir væra ekki komnir til sög- unnar þegar hann var í óreglu komst hann engu að síður í kynni við fjárhættuspil, meira þó sem áhorfandi en þátttakandi. „Þá var spilað upp á peninga í póker, brids, tuttugu og einum og fleiri spilum á ýmsum stöðum, sem fáum var kunnugt um. Slík neðanjarðar- starfsemi tíðkast ennþá og dæmi era um menn sem era atvinnufjár- hættuspilarar. Gagnstætt spila- kössunum veltur gróðinn á hæfni spilamannanna en ekki heppni. Sami kjarninn spilar ár eftir ár og gróðinn er hjá einum í dag og öðr- um á morgun. Þeir sem slæðast einstöku sinnum inn til að taka í spil era nefndir gullkálfar innan hópsins, enda tapa þeir yfirleitt og hinir fá þá meiri peninga til að leggja undir." SIGMAR Björnsson, ráðgjafi hjá SÁÁ. Sigmar telur að spilamennska af þessu tagi hafi tíðkast hjá fámenn- um hópum um alllangt skeið og verði trúlega ætíð við lýði. Ásóknin í spilakassana og alls kyns get- raunaleiki sé hins vegar mun víð- tækara vandamál um þessar mund- ir. „Miðað við fjöldann sem komið hefur í meðferð er trúlegt að þeir sem eru í fjárhags- og persónuleg- um þrengingum vegna spilafíknar séu ekki undir þúsund manns og þá era ótaldir aðstandendur þeirra, sem einnig líða fyrir sjúkdóminn." Gamanið kárnar Sigmar segir að vitaskuld sjái enginn fyrir að verða spilasjúkur. Margir láti pening í spilakassa og freisti gæfunnar í happdrætti eða getraunaleik án þess að uppátækið hafi afgerandi áhrif á líf þeirra. Ef slíkt gerist segir Sigmar hins vegar að gamanið kámi heldur snögg- lega, vandamálin hrannist upp þar til þau virðist nánast óyfirstíganleg og allt fari úr böndunum; fjárhag- urinn, starfið, tengslin við fjöl- skyldu og vini, andleg og líkamleg líðan, svo fátt eitt sé talið. „Víta- hringur spilafíkla felst í því að þeir geta ekki hætt. Ef þeir græða nota þeir gróðann til að græða meira og tapi þeir er öllum brögðum beitt til til að freista gæfunnar á nægir að aðstandendur, eða ráðgjafi mann spilafíkinn. Aðgerðir fólks nægja ekki til að leysa spilafíkil úr fjötranum. Spilafíkill- inn verður að sjúkdómsgreina sjálfan sig. Hann verður að vera • sannfærður um að spilasýkin sé rótin að vandamálum hans, því það er einungis undir aðgerðum hans sjálfs komið hvort hann nær bata.“ í fræðsluriti SÁÁ, Spilafíkn - viðráðanlegur sjúkdómur, eru þrjár spurningar lagðar til grund- vallar greiningu á spilafíkn: 1. Hefur þú tekið fé að láni til að stunda fjárhættuspil? 2. Hefur þú einhvern tíma spilað fjárhættuspil og misst af einhverju eða vanrækt eitthvað sem þér er kært eða þér finnst skipta miklu máli? 3. Hefur þér mistekist að draga úr eða hætta fjárhættuspili? Sá sem svarar einni spurningu játandi er líklegur að hafa eða vera í þann veginn að missa stjóm á spilafýsninni og sá sem svarar tveimur eða öllum spurningum ját- andi er talinn vera haldinn stjórn- lausri spilaáráttu. „Eina leiðin til bata er að hætta að spila,“ segir Sigmar. „Ógöng- urnar, sem menn eru komnir í, era þó oft slíkar að þeim er allsendis ómögulegt að ráða bug á fíkninni einir og óstuddir. Vinningur er spilafíklum aldrei til góðs, enda snýst fíknin ekki um peninga og ávinning heldur um spennu. Gróða- vonin er blekking og spennan drif- krafturinn." Meðferðarúrræði Hjá SÁÁ standa spilafiklum fjög- ur úrræði til boða. Þeir geta hringt og leitað ráða, komið í viðtöl, hóp- starf eða svokallaðar grúppur og GA-samtökin (Gamblers Anonymous eða ónafngreindir fjár- hættuspilarar). Slík göngudeildar- meðferð er í húsnæði SÁA við Síðu- múla, en þar hafa GA-samtökin að- stöðu og halda fundi einu sinni í viku. Einnig kemur innlögn á Vog til greina ef sýnt þykir að viðkom- andi er mjög veikur og þurfí tíma til að ná áttum. Þótt orsakir spilafíknar séu um margt óljósar segir Sigmar að þeir hjá SÁÁ hafí talið happadrýgst að fara að bandarískri fyrirmynd og byggja meðferðina upp á hópstarfi, grúppum og þátttöku í GA-samtök- um, sem starfa í anda AA-samtak- anna, með tilheyrandi sporakerfi aðlöguðu að spilafíkn. Líkt og að- standendum alkóhólista er boðið upp á ráðgjöf og bent á Al-Anon samtökin, geta aðstandendur spila- sjúkra jafnframt leitað ráða hjá S A rúmu ári hafa tæplega 100 manns leitað ráða spilafíknar og 75 farið í meðferð • Gróðinn byggist á heppni en ekki spennan drifkrafturinn # Gylliboðin blasa hvarvetna við VÍTAHRINGUR spilafíkla felst í því að þeir geta ekki hætt að spila. Morgunblaðið/Kristimi hæfni # Nota gróðann til að græða meira # Gróðav SAGA ÞEIRRA SPILAFÍKILL Eins og þegar dópistinn fær efnið sitt HÆSTI vinningur í happdrætti stuttu eftir að hann kvæntist olli engum straumhvörfum í lífi hans. Að vísu keyptu ungu hjónin fín húsgögn, fóru í utan- landsferð og veittu sér ýmislegt sem þau hefðu ella ekki gert. Svavar, eins og hann kýs að nefna sig, hélt áfram að vinna mikið, átti fyrirtæki og dró væna björg í bú. „Allt var í lukkunnar velstandi framan af; eiginkona, börn, fallegt heimili og fínir bflar. Smám saman komu brestir í hjónabandið, ég átti erfitt með að sætta mig við visst atvik og eftir á að hyggja held ég að ég hafi verið að flýja raunveruleikann þegar ég setti í fyrsta skipti pening í pókerkassa árið 1990 og vann nokkra þúsundkalla." Þótt hann væri þá ákveðinn í að spila líka næsta dag óraði hann ekki fyrir að sakleysislegir spilakass- ar ættu eftir að heltaka huga hans næstu árin. í tvö ár spilaði Svavar daglega. Þegar leikurinn stóð sem hæst skuldaði hann 16 milljónir og var flæktur í í alls kyns lygar og blekkingar. „Ég skammaðist mín fyrir sjálfan mig, einangraði mig og fannst ég vera mis- heppnaður aumingi, sem ekki ætti sér viðreisnar von. Samt gat ég ekki hætt, ég sóttist eftir breyttu ástandi - spennunni. Ég hef hvorki fyrr né síðar upplifað eins geggjaða tilfinningu eins og þegar ég var „að vinna“. Lfldega er þetta svipað og þegar dópistinn fær efnið sitt. Ég lagði stöðugt meira á mig, hvað sem það kostaði, til að komast í sama ás- tand aftur og aftur. Öll skyn- semi fór fyrir bí, víman hellt- ist yfir mig þegar ég vann 100 þúsund krónur, jafnvel þótt ég væri nýbúinn að tapa 500 þúsund krónum." Svavar segist hafa verið fyrirmyndarbarn og ungling- ur, mikill íþróttagarpur og alltaf með ágætiseinkunnir. „Ég var elstur og foreldrar mínir bundu miklar vonir við framtíð mína. Draumur þeir- ra um að ég færi í iangskólanám urðu að engu þegar ég var sextán ára, fluttist að heiman og bjó í útlönd- um um skeið. Þegar heim kom hóf ég iðnnám og gekk allt í haginn. Ég hef aldrei verið óreglusamur og þótt ég hafi verið langt leiddur af spilasýki gætti ég þess að spila aldrei undir áhrifum áfengis." Aðstandendur Svavars vissu ekkert um spilafíkn- ina, en undruðust mjög peningaþörfina. Hann notaði fyrirtæki sitt óspart sem skálkaskjól og átti greiðan aðgang að bankalánum. En þau dugðu ekki til, vinir og vandamenn voru hvað eftir annað slegnir um lán, hann stal frá konunni og gekk svo langt að falsa und- irskriftir foreldra sinna. „Mamma og pabbi voru sannfærð um að ég væri á kafi í eiturlyfjurn þegar upp um athæfið komst. Ég var tilneyddur til að segja þeim og eiginkonunni sannleikann. Að hætti spilafík- la sagði ég hann í smáskömmtum, enda ekki tilbúinn að aflijúpa mig alveg. Sem betur fer tókst mér að búa þannig um hnútana að foreldrar mínir biðu ekki fjárhagslegt Ijón af.“ Að eigin frumkvæði leitaði Svavar ráða hjá geð- lækni eftir tveggja ára stjórnlausa spilaáráttu. Þótt ekki ætti hann við áfengisvanda að glíina var honum ráðlagt að fara í þriggja mánaða meðferð með áfengissjúklingum, enda sérstök úrræði fyrir spi- Iafíkla ekki tiltæk. „Meðferð fyrir fíkniefnaneytend- ur og spilafíkla byggist á sama grunni; að taka einn dag í einu og sporakerfinu. Eftir meðferðina spilaði ég ekkert í um það bil ár, vann mikið, eins og ég hef raunar alltaf gert, og grynnkaði heilmikið á skuld- unum.“ En allt féll í sama farið þegar Svavar taldi sig á grænni grein og ætlaði bara aðeins að prófa. Hann spilaði á hverjum degi, þar til nýverið að hann fór aftur í meðferð. I millitíðinni skildu hjónin og skuld- irnar hlóðust upp. Núna, tæplega fertugur, segist Svavar leggja kapp á að borga spilaskuldir og mæta í grúppur hjá SÁA. „Ég er bjartsýnn að eðlisfari, sýti ekki fortíðina, reyni að finna þörf minni fyrir spennu jákvæðan farveg og stefni ótrauður á listnám í Bandaríkjunum innan fárra ára.“ Aðspurður segir Svavar mikinn misskilning að spilafíkn hrjái einungis þá sem orðið hafi undir í lífs- baráttunni. Sjálfur segist hann liafa kynnst jafnt fá- vitum sem snillingum og fólki úr öllum stéttum, sem sé ofurselt fflminni. „Spilakassar og alls kyns gylli- boð um skjótfenginn gróða er orðið þjóðarmein. Mér finnst uggvænleg þróun að beina áróðri og auglýs- ingum að börnum og unglingum," segir Svavar og fullyrðir að 85-90% ágóðans úr spilakössunum komi úr vasa spilasjúkra. AÐSTANDANDI Með handtösk- una hvert fótmál á eigin heimili EFTIR ljörutíu og tveggja ára hjónaband lét Lára, eins og hún verður kölluð hér, loks til skarar skríða og sótti um lögskilnað. Þótt hjónabandið hafi ekki alltaf verið dans á rósum segir hún að spilafíkn eigin- mannsins síðastliðin sex ár hafi verið dropinn sem fyllti mælinn. Lára er rúmlega sextug og fyrrum eig- inmaður hennar nokkram áram eldri. Henni finnst einkennileg tilfinning að standa á slíkum tímamótum svona þrælfullorðin, eins og hún segir, en því fylgi óumræðilega mikill léttir, enda hafi heimilislífið ver- ið orðið fáránlegur skrípaleikur. „Þótt ég hafi ekki átt auðvelt með að sætta mig við framhjáhald hans á sínum túna, sem liafði í för með sér að hann eignaðist barn utan hjónabands, gat ég alls ekki umborið sívax- andi spilafflm hans. Hann stal frá mér peningum, laug að mér og neitaði öllum ásökunum þegar ég gekk á hann. Mér fannst ég eins og persóna í grát- broslegri bíómynd þar sem ég tók handtöskuna mína með mér hvert fótmál á mínu eigin heimili og var alltaf að líta í skartgripaskrínið. Ég fékk mér loks læsta hirslu og og gekk með lykilinn um hálsinn. Ég fylltist stöðugt meiri fyrirlitningu á eiginmanninum, sem mér hafði raunar alltaf þótt veiklyndur og gerði mér æ betur ljóst hvernig eigingirni hans hafði stjórnað mér öll þessi ár. Mér fannst hann eins og fífl og fyrirvarð mig fyrir hann þegar vinkona mín lýsti honum fyrir mér en hún hafði séð hann másandi yfir einum spilakassanum. Ég sá hann ljóslifandi fyrir mér; með gleraugun skökk á nef- inu og græðgina skínandi úr andlitinu.“ Og Lára er reið, ekki út í allt og alla, ekki út í spilakass- ana, sem hún segir raunar viðurstyggð, heldur fýrst og fremst eiginmanninn. Hún segir hann þverneita að spila- áráttan sé vandamál og engu tauti hafi verið við hann kom- ið um að leita sér ráðgjafar. „Ég gerði mér í fyrstu ekki grein fyrir að slíka aðstoð væri að fá fyrr en bróðir minn benti mér á að fara á námskeið fyrir að- standendur alkóhólista en mér var sagt að vandamál þeirra væri af svipuðum toga og aðstandenda spila- sjúkra. í kjölfarið fór ég í viðtöl og núna sæki ég reglulega fundi í GAM-Alanon. Allt þetta hefur hjálp- að mér heilmikið að ná áttum, en á tímabili fannst mér ég hreinlega vera að sturlast. Hjá eiginmannin- urn snerist allt um að spila og hjá mér að passa upp á fjármuni og fylgjast með ferðum hans.“ Þau hjónin áttu einbýlishús og voru þokkalega stödd Qárhagslega þegar spilasýkin lieltók eigin- manninn. í GAM-Alanon segist Lára hafa kynnst kon- um, sem séu mun verr staddar en hún vegna spilafíknar fyrrverandi og núverandi eiginmanna, oft eignalausar og með mörg börn á framfæri. Sem bet- ur fer segir hún hús þeirra hjóna á sínu nafni því ella stæði hún efalítið slypp og snauð núna. „Reynsla mín sem aðstandanda spilafíkils er að mörgu leyti ólfk reynslu þessara ungu kvenna. Börn- in okkar vora fyrir löngu flogin úr hreiðrinu og við hjónin hefðum átt að vera farin að lifa áhyggjulausu lífi þótt minn fyrrverandi hafi átt við heilsubrest að stríða um árabil. Þrátt fyrir heilsuleysið komst liann allra sinna ferða og hafði væna vasapeninga. Hann fékk örorkubætur, ýmis viðvik gáfu honum nokkuð í aðra hönd og eignaraðiid í fyrirtæki einnig. Samtals hafði hann rámar sextíu þúsund krónur á mánuði. Framan af fannst mér ekkert athugavert við að laun- in mín, um 80 þúsund á mánuði, færa í rekstur heim- ilisins, viðhald hússins, afmælisgjafir og þessháttar handa börnunum og barnabörnunum. Honum datt al- drei í hug að kaupa molasykur hvað þá annað sem vantaði til heimilisins, heldur hringdi í inig og ég rauk til, eins og auðmjúkur þræll, og keypti það sem hann vanhagaði um. Ég sé núna hve hann gerði út á sjúkdóm sinn og hagaði öllu þannig að ég og allir vorkenndu honum. Núna finnst mér slík framkoma auvirðileg og samúð mín er á þroturn." Lára segir að eiginmaðurinn fyrrverandi búi einn, haldi áfram að spila og kvarti sáran við vini og vandamenn yfir illri meðferð á sér að hálfu fýluskjóð- unnar, fyrrverandi eiginkonu sinnar. Sjálf sér Lára mest eftir öllum árunum og orkunni sem fóru í skrípaleikinn. Hún segir að ástandið hafi gengið mjög nærri sér og núna þurfi hún óendanlega mikinn svefn „... en ég hef frið í sálinni og verð áreiðanlega óskaplega dugleg þegar ég hef sofið nægilega."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.