Morgunblaðið - 24.01.1997, Page 6

Morgunblaðið - 24.01.1997, Page 6
6 B FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Kaktus. Ostapinnar. DAGLEGT LÍF VUH! Þegar bamaafmæli nálgast vakna ýmsar spumingar eins og hvaða veitingar eigi að bjóða upp á og hvenær eigi að vera tími til að útbúa þær. Fer allt fari úr böndunum með ærslalátum afmælis- gestanna? Sigríður Ingvarsdóttir, frétta- ritari Morgunblaðsins á Siglufirði, hefur velt þessu fyrir sér. FLEST böm hafa mikla væntingar til afmæla. Tilhlökkun og spenningur gerir vart við sig jafnvel mörgum vikum áður en stóri dagurinn rennur upp. Þar sem hvert bam á ekki af- mæli nema einu sinni á ári er sjálf- sagt fyrir alla fjölskyldumeðlimi að leggjast á eitt við að gera daginn sem eftirminnilegastan. Margir foreldrar falla gjaman í þá gryfju að hóa líka í foreldra bam- anna sem boðið er í afmælið og hafa svo mikið að gera við að sinna þeim að bömin verða út undan. Það er upplagt að skrifa gestalista og útbúa heimatilbúin boðskort svo og að ákveða leiki og skipuleggja þá auk veitinga á veisluborðið. Það þarf að hafa góðan fyrirvara á að útvega blöðmr og skraut. Þá er það skemmtilegur íjölskylduvani að vekja afmælisbamið að morgni dags með góðum morgunverði í rúmið. Þegar gestimir eru mættir og búið að taka upp gjafímar, er góð venja að bjóða bömunum til sætis við borð, sem dúkað hefur verið með hvítum pappadúk og marglitum tússlitum komið fyrir á borðinu. Hópurinn kemur sér síðan saman um ákveðið þema sem skreyta á dúkinn með. Þar mætti nefna sumar- eða vetrarmyndir, fjölskyldumyndir og ann- að í þeim dúr. Á meðan börnin dunda sér við listsköpunina, er róandi að setja geisiadisk eða hljóðsnældu með æv- intýri í tækið. Yfirleitt hafa börn gaman af því að teikna og hlusta á sög- er gott að skipuleggja með fyrirvara Gerbakstur (grunndeig í tölustaf, snúða, skinkuhom og innbakaðar pylsur) 100 g ger (2 bréf þurrger) 200 g sykur 1 lítri mjólk 200 g smjörlíki ______1.300 g hveiti____ 1 msk. salt ur og þetta getur tekið þau allt að klukkutíma. Þegar dúkurinn er full- skreyttur, er hægt að bera fram veit- ingar á meðan afmælissöngurinn er sunginn. Böm hafa gaman af myndrænum og mikið skreyttum kökum og það TEIKNAÐ á dúkinn. AFMÆLI í fullum gangi. er um að gera að leyfa afmælisbömunum að hjálpa til við köku- skreytingarnar. Til þess að auðvelda for- eldrum að brydda upp á nýjungum, fylgja hér nokkrar gómsætar uppskriftir, sem gleðja augað jafnt sem bragðlaukana. Eftir að hafa gætt sér á kræsingum, vilja krakkamir fara að hreyfa sig og þá má hafa stjóm á veislugestum með fyrirfram skipu- lagðri leikjadag- skrá. Að sjálf- sögðu fara leik- irnir eftir aldri veislugesta og árstíma hveiju sinni og það þarf vart að minna á að æskilegt er að einhver fullorðinn hafi hönd í bagga með að stjórna þessum dagskrár- lið. Mjólk og smjörlíki hitað saman og blandað saman við þurrefnin. Látið lyfta sér í um það bil eina klukku- stund í skál._ Deiginu skipt í fjóra jafna hluta. Úr einum hlutanum er búinn til tölustafur afmælisbarnsins, þ.e. aldur bamsins. Mótaðar em litl- ar bollur, gerð hola í og settur inn í hana súkkulaðibiti og eplabiti og holunni lokað aftur. Annar hluti deigsins, sem fer í kanelsnúðana, er flattur út, penslaður með mjólk, kan- elsykri stráð yfir, þessu rúllað upp í eina lengju og skorið niður í um Morgunblaðið/J6n Svavarsson þriggja sm langa búta. Úr þriðja hlut- anum em búin til skinkuhom, sem fyllt eru með skinkumyiju og skinkubitum. Fjórði og síðasti hlutinn fer utan um pylsur, sem skornar hafa verið í fjóra hluta og hveijum bita pakkað inn í deig. í öllum þessum fjór- um tilfellum er deigið látið hefast í hálfa klukkustund á bökunarplötu, penslað er með hrærðu eggi yfir allt saman og bakað við 180 gráður á Celc- ius. Þetta má allt útbúa með góðum fyrirvara og frysta, en hita síðan f ofni um stund áður en það er bor- ið fram. Kaktus Annar endinn skorinn af feitri og fallegri gúrku. Hon- um stungið {fallegan blómapott eða skál, fyllt upp með súkk- ulaðirúsínum og litl- um sleikipinnum stungið á víð og dreif í gúrkuna. F ólk kýs reyklaust umhverfi VINNUSTAÐIR sem einu sinni hafa verið gerðir reyklausir halda nánast undantekningalaust áfram að vera reyklausir þótt starfsmenn reyki. Þetta kom fram í könnun sem Anna Rut Þráinsdóttir, íris Árnadóttir og Sigríður Guðmundsdóttir gerðu síðastliðið vor í samstarfí við tóbak- svarnanefnd. Þær stunda_ allar nám í sálarfræði í Háskóla ísiands og var könnun þeirra liður í námi ! aðferðafræði. í skýrslu þeirra kemur m.a. fram að viðhorf fólks til tóbaksreykinga Sviðsett mynd STARFSMENN reyklausra vinnustaða sem reykja, fara flestir út á lóð til þess. hefur breyst töluvert á síðustu árum. Vitnað er í kannanir Hag- vangs sem sýna að fólk kýs í aukn- um mæli reyklaust umhverfi, t.d. sé það hlynntara -reykingabanni i millilandaflugi nú en áður og einnig sé «meirihluti almennings andvígur reykingum í kvikmyndahúsum. Þá kemur fram að kannanir hafi sýnt að flestum finnst æskilegt að eiga kost á reyklausum matsölustöðum. Viðurkenningarskjöl Eitt af hlutverkum tóbaksvama- nefndar er að hvetja vinnuveitendur og stjórnvöld til átaks í reykinga- vörnum og veita aðstoð og leiðbein- ingar um tóbaksvarnir. Liður í þessu átaki er veiting viðurkenning- arskjala til vinnustaða sem eru reyk- lausir og hafa skjöl af því tagi ver- ið veitt i tæp fimm ár. Á þeim tíma hafa um 1.200 vinnustaðir fengið viðurkenningarskjöl, en vinnustaður telst reyklaus ef starfsfólk reykir ekki innan dyra. í könnuninni var slembiúrtak, 75 vinnustaðir sem á árunum 1993 og 1994 höfðu fengið viðurkenningar tóbaksvarnarnefndar fyrir að vera reyklausir. Fulltrúar 64 vinnustaða svöruðu og í ljós kom að af þeim voru 62 enn reyklausir. Starfsmenn á langflestum vinnustöðum sögðu að viðurkenningarskjal héngi uppi á vegg á vinnustaðnum og taldi meiri-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.