Morgunblaðið - 12.02.1997, Page 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 1997 C 3
URSLIT
Stjarnan - Fram 24:24
íþróttahúsið í Ásgarði, íslandsmótið í hand-
knattleik 1. deild karla, 18. umferð þriðju-
daginn 11. febrúar 1997.
Gangur leiksins: 0:1, 3:6, 8:6, 10:9, 11:12,
13:12, 15:13, 17:14, 17:17, 18:19, 21:20,
21:22, 22:22, 23:23, 24:23, 24:24.
Mörk Stjörnunnar: Valdimar Grímsson
8/2, Einar Einarsson 4, Hilmar Þórlindsson
4, Magnús A. Magnússon 2, Sigurður Við-
arsson 2, Einar B. Árnason 1, Jón Þórðar-
son 1, Konráð Olavson 1, Sæþór Ólafsson 1.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson 10/1 (þaraf
2 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Fram: Daði Hafþórsson 7, Sigurpáll
Árni Aðalsteinsson 7/3, Njörður Ámason
4, Magnús A. Arngrímsson 3, Páll Þórir
Beck 2, Oleg Titov 1.
Varin skot: Reynir Þór Reynisson 5 (þaraf
1 til mótheija), Þór Björnsson 3 (þaraf 1
til mótheija).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Einar Sveinsson og Þorlákur
Kjartansson.
Áhorfendur: 150.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
HAUKAR 17 12 2 3 439: 403 26
UMFA 17 13 0 4 443: 412 26
KA 17 12 1 4 463: 439 25
FRAM 18 8 4 6 422: 397 20
ÍBV 15 9 0 6 374: 343 18
VALUR 17 7 3 7 387: 394 17
STJARNAN 17 7 2 8 447: 440 16
FH 17 7 0 10 430: 454 14
ÍR 16 5 1 10 391: 390 11
GRÓTTA 17 4 2 11 398: 435 10
SELFOSS 17 4 2 11 418: 468 10
HK 17 4 1 12 384: 421 9
Tindastóll - UMFG 89:98
Sauðárkrókur, íslandsmótið íkörfuknattleik
- úrvalsdeild, þríðjudaginn 11. febrúar 1997.
Gangur leiksins: 0:6, 10:9, 17:18, 21:24,
29:29, 44:29, 44:41, 49:45, 49:49, 57:54,
66:65, 70:76, 77:87, 85:93, 89:98.
Stig Tindastóls: Winston Peterson 39,
Arnar Kárason 15, Cesare Piccini 12, Ómar
Sigmarsson 11, Lárus Dagur Pálsson 6,
Skarphéðinn Ingason 6.
Fráköst: 8 í sókn - 23 í vöm.
Stig Grindvíkinga: Hermann Mayers 33,
Marel Guðlaugsson 15, Helgi J. Guðfinnsson
12, Pétur R. Guðmundsson 10, Jón Kr.
Gíslason 10, Bergur Hinriksson 8, Páll
Axel Vilbergsson 7, Unndór Sigurðsson 3.
Fráköst: 9 í sókn - 19 í vöm.
Villur: Tindastóll 22 - Grindavík 18
Dómaran Kristinn Albertsson og Bergur
Steingrímsson. Dæmdu vel.
Áhorfendur: 330.
Fj. leikja U T Stig Stig
KEFLAVÍK 17 14 3 1627: 1408 28
UMFG 17 14 3 1632: 1507 28
HAUKAR 17 11 6 1416: 1368 22
ÍA 17 11 6 1343: 1290 22
UMFN 16 9 7 1352: 1305 18
KR 17 8 9 1466: 1407 16
SKALLAGR. 17 8 9 1381: 1441 16
ÍR 17 8 9 1452: 1418 16
UMFT 17 7 10 1394: 1411 14
KFÍ 17 6 11 1377: 1432 12
ÞÓR 16 5 11 1284: 1412 10
BREIÐABL. 17 0 17 1199: 1524 0
1. DEILD KVENNA
KEFLAVlK- BREIÐABLIK.......118:46
Knattspyrna
Undankeppni HM
4. riðill:
Monte Carlo:
Eistland - Skotland............0:0
4.000.
Staðan
Skotland..............4 2 2 0 3:0 8
Austurríki............3 2 1 0 3:1 7
Svíþjóð...............4 2 0 2 7:4 6
Eistland..............3 1 1 1 1:1 4
H-Rússland............4 1 1 2 3:7 4
Lettland.................4 0 1 3 3:7 1
■Næsti leikur: Skotland - Eistland 29.
mars.
Vináttulandsleikir
Belfast:
N-írland - Belgía....................3:0
Jimmy Quinn (14.), Jim Magilton (62. -
vsp.), Philip Mulryne (88.). 7.128.
Cardiff: _
Wales - Irland..................... 0:0
7.000.
Kóngabikarinn
Fjögurra liða mót í Bangkok f Tælandi.
Thæland - Svíþjóð....................0:0
Japan - Rúmenía......................1:1
Kazu Miura (84.) - Cristian Bolohan (58.).
•Svíþjóð er með 4 stig, Tæland og Japan
2, Rúmenía 0.
Skíði
HM í Sestriere
Risasvig kvenna
Isolde Kostner (Ítalíu)..........1.23,50
Katja Seizinger (Þýskal.).......1.23,58
Hilde Gerg (Þýskal.)............1.23,64
Carole Montillet (Frakkl.)......1.23,98
Katharina Gutensohn (Þýskal.)...1.24,00
Renate Goetschl (Austurr.)......1.24,24
Pemilla Wiberg (Svíþjóð)........1.24,47
Michaela Dorfmeister (Austurr.) ....1.24,53
Barbara Merlin (Ítalíu).........1.24,74
Varvara Zelenskaya (Rússl.).....1.25,08
Verðlaunaskiptingin
(Gull, silfur og brons):
Italía........................3 1 1
Noregur.......................2 2 0
Sviss.........................1 2 1
Þýskaland.....................0 1 1
Austurríki....................0 0 2
Frakkland.....................0 0 1
Sund
Sundmeistaramót Reykjavikur
200 m skriðsund karla:
Sigurgeir Hreggviðsson, Ægi......1.56,59
Richard Kristinsson, Ægi.........1.57,69
Ríkarður Ríkarðsson, Ægi.........2.01,22
200 m skriðsund piita:
Tómas Sturlaugsson, Ægi..........2.06,04
EyþórÖrn Jónsson, Ægi............2.09,70
Bjami Gunnarsson, Ármanni........2.15,03
200 m skriðsund drengja:
Ari Gunnarsson, Ármanni..........2.32,38
Magnús Sigurðsson, KR............2.39,82
Bergur Þorsteinsson, KR..........2.46,68
200 m skriðsund sveina:
Pétur Guðnason, Ægi..............3.27,33
Amar H. Isaksen, Ægi.............3.38,25
200 m skriðsund kvenna:
Hildur Einarsdóttir, Ægi.........2.18,66
Hrafnhildur Guðmundsd., Árm......2.37,98
200 m skriðsund stúlkna:
Anna B. Guðlaugsd., Ægi..........2.17,84
Kristín Þ. Kröyer, Árm...........2.19,19
Ragnhildur Hreiðarsdóttir, Ægi...2.21,87
200 m skriðsund telpna:
Dagmar Birgisdóttir, Ægi.........2.20,62
Louisa Isaksen, Ægi..............2.20,70
Þórey R. Einarsdóttir, Ægi.......2.25,55
200 m skriðsund meyja:
Harpa Viðarsdóttir, Ægi.........2.24,41
Sunna M. Jóhannsd., Árm..........2.59,45
Þóra Matthíasdóttir, Ægir........3.13,69
100 m bringusund karla:
Marteinn Friðriksson, Árm........1.10,20
Kristján Joensen, Ægi............1.12,99
JónÞ. Sigurvinsson, KR...........1.17,81
100 m bringusund pilta:
Jakob J. Sveinsson, Ægi..........1.09,36
Einar Ö. Gylfason, Árm...........1.14,33
Bjami Freyr Guðmunds., Ægi.......1.20,41
100 m bringusund drengja:
Kári Þ. Kjartansson, KR..........1.35,41
Bjarni Bjarnason, KR.............1.44,64
Kristján Jóhannsson, KR..........1.50,64
100 m bringusund sveina:
Amar H. Isaksen, Ægi.............1.57,51
Pétur Guðnason, Ægi..............2.08,41
100 m bringusund kvenna:
Kristín Guðmundsdóttir, Ægi......1.19,98
100 m bringusund stúlkna:
Berglind R. Valgeirsd.; Árm......1.20,37
Halldóra Brynjólfsd., Arm........1.26,65
Ama B. Ágústsd., Ægi.............1.27,62
100 m bringusund telpna:
Louisa Isaksen, Ægi..............1.23,43
Jóhanna B. Durhuus, Ægi..........1.29,51
Lilja Þ. Þorgeirsd., Ægi.........1.33,06
100 m bringusund meyja:
Sunna M. Jóhannsd., Árm..........1.31,86
Harpa Viðarsdóttir, Ægi..........1.32,16
Berglind Ámadóttir, KR...........1.38,75
100 m flugsund karla:
Ríkarður Ríkarðsson, Ægir..........58,86
Richard Kristinsson, Ægi.........1,02,84
Ásgeir V. Flosason, KR............1.08,10
100 m flugsund pilta:
Lárus A. Sölvason, Ægi............1.06,70
Bjarni Gunnarsson, Árm............1.09,38
Bjarni Freyr Guðmunds., Ægi.......1.19,06
100 flugsund drengja:
Hjörtur M. Reynisson, Ægi........1.08,04
Pétur G. Hermannsson, Ægi.........1.21,72
Ari Gunnarsson, Árm...............1.25,36
100 m flugsund kvenna:
Hrafnhildur Guðmundsd., Árm.......1.16,85
100 m flugsund stúlkna:
Berglind R. Valgeirsd., Árm.......1.17,46
Heiðrún P. Maack, KR..............1.18,83
Ragnhildur Heiðarsd., Ægi.........1.22,80
100 m flugsund telpna:
Hildur Ý r Viðarsdóttir, Ægi.....1.17,68
Lilja Þ. Þorgeirsdóttir, Ægi.....1.20,56
Þórey R. Einarsdóttir, Ægi........1.21,49
100 m flugsund meyja:
Harpa Viðarsdóttir, Ægi..........1.35,19
Kristín S. Watkins, KR............1.46,17
SunnaM. Jóhannsd., Árm...........1.50,18
100 m baksund karla:
Ríkarður Ríkarðsson, Ægi..........1.04,69
Kristján Joensen, Ægi.............1.06,57
Marteinn Friðriksson, Árm.........1.07,85
100 m baksund pilta:
Ásgeir H. Ásgeirs., Árm..........1.08,81
Guðm. S. Hafþórsson, Árm..........1.08,95
SigurðurÖ. Magnason, Árm.........1.13,13
100 m baksund drengja:
Bergur Þorsteinsson, KR..........1.20,91
Pétur G. Hermannsson, Ægi.........1.22,62
Ari Gunnarsson, Árm...............1.25,36
100 m baksund sveina:
Pétur Guðnason, Ægi..............2.01,61
100 m baksund kvenna:
HrafnhildurGuðmundsd.,Árm........1.24,84
100 m baksund stúlkna:
Kristín Þ. Kroyjer, Árm...........1.14,30
HalldóraBrynjólfsd., Árm..........1.18,27
Elín M. Guðbjartsd., Ægi..........1.19,72
100 m baksund telpna:
Dagmar Birgisdóttir, Ægi.........1.20,49
Jóhanna B. Durhuus, Ægi...........1.22,78
Katrín D. Guðmundsd., Arm.........1.25,78
100 m baksund mejja:
Harpa Viðarsdóttir, Ægi...........1.22,49
Berglind Ámadóttir, KR............1.32,08
Sunna M. Jóhannsd., Árm..........1.38,61
4x5 m skriðsund karla:
A-karlasveit Ægis................1.42,11
A-karlasveit Ármanns..............1.47,97
A-piltasveit Ægis.................1.48,76
A-piltasveit Ármanns..............1.53,17
A-karlasveit KR...................1.59,35
4x50 skriðsund kvenna:
A-stúlknasveit Ægis...............2.01,65
A-stúlknasveit Ármanns............2.02,47
B-stúlknasveit Ægis...............2.08,99
A-kvennasveit KR..................2.10,35
A-stúIknasveit Ármanns............2.16,86
4x50 m skriðsund drengja:
A-sveinasveit KR..................2.40,09
4x50 m skriðsund telpna:
A-telpnasveit Ægis................2.05,69
B-telpnasveit Ægis................2.13,66
A-telpnasveit Ármanns.............2.20,62
B-telpnasveit Ármanns.............2.41,49
FELAGSLIF
Opið hús í Víkinni
Víkingar verða með opið hús í Vikinni i
kvöld, til að gefa félagsmönnum sínum og
öðrum tækifæri til að horfa á landsleik
Englands og Ítalíu, sem fer fram á Wembl-
ey, á stórum skjá. Leikurinn hefst kl. 20.
Aðafundur fulltrúaráðs
Aðafundur fulltrúaráðs Víkings verður
laugardaginn 15. febrúar kl. 13 I Víkinni.
Ikvöld
Handknattleikur
l.deildkarla kl. 20
Kaplakriki: FH - ÍBV
Selfoss: Selfoss - Haukar
Seljaskóli: ÍR - Grótta
Valsheimili: Valur - KA
Varmá: Afturelding - HK
1. deild kvenna:
Kaplakriki: FH-Haukar.....18.15
yíkin: Víkingur - Fram......20
Ásgarður: Stjarnan - Valur.18.15
IÞROTTIR
IÞROTTIR
HANDBOLTI
ÞJÁLFARAMENNTUN KSÍ
Barnaþjálfun
Fræðslunefnd KSÍ heldur námskeið um barnaþjálfun 1. og 2. mars 1997.
Þátttakendur verða að hafa lokið A-stigi KSÍ. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.
Námskeiösþættir eru: Leikfræði, þjálffræði, sálarfræði, kennslufræði,
knattspyrnutækni, líffæra- og lífeðlisfræði.
Skráning er hafin á skrifstofu KSÍ sem veitir allar nánari upplýsingar í síma 581 4444.
GÓÐ ÞJÁLFUN - BETRI KNATTSPYRNA
Fræðslunefnd KSÍ
Ivar
Benediktsson
skrifar
Hik-laust
„ÉG hugsaði bara um að ^
skjóta og það var Ijúft að sjá
knöttinn sigla í markið," sagði
Daði Hafþórsson, hetja Fram
eftir að hann hafði tryggt sínu
liði annað stigið íviðureign við
Stjörnuna í Ásgarði í gær-
kvöldi, lokatölur 24:24. Daði
gerði jöfnunarmarkið með hik-
lausu skoti beint úr aukakasti
úr þröngu færi á mótum
punktalínu og hliðarlínu í
vinstra horninu eftir að leik-
tíminn var úti. Félagar Daða
slógu upp skjaldborg íkring-
um hann áður en kastið var
tekið á sama tíma og Stjörnu-
menn kölluðu til leiks sex háv-
öxnustu menn sína til að
standa í varnarvegg sem ekki
var árennilegur. Daði lét það
ekki á sig fá heldur skaut ra-
kleitt yfir vegginn þar sem
hann vær lægstur og í fjær-
hornið án þess að Ingvar
Ragnarsson markvörður
Stjörnunnar vissi hvaðan á sig
stóð veðrið fremur en varnar-
mennirnir.
Þessi úrslit verða að teljast sann-
gjörn sé tekið mið af gangi
leiksins sem var jafn og oft og tíð-
um nokkuð stór-
karlalega leikinn,
enda mikið í húfi
fyrir bæði félög.
Endalokin eru hins
vegar lýsandi fyrir þann klaufaskap
sem virðist ríkja í herbúðum
Garðbæinga þessa dagana og sann-
arlega ekki gott veganesti fyrir þá
í síðari leik Evrópukeppninnar um
næstu helgi.
„Við komum til leiks með það
að leiðarljósi að beijast og ná alltént
öðru stiginu því okkur hefur ekki
vegnað sem best á útivelli í vetur.
Það er ljóst að við höfum oft leikið
betur jafnt í vörn sem sókn en í
kvöld en baráttan var til staðar og
við verðskulduðum svo sannarlega
annað stigið,“ bætti Daði við og
hafði svo sannarlega ástæðu til að
brosa sínu breiðasta.
Stjörnumenn byijuðu á að leika
3:3 vöm framarlega og ætluðu að
koma leikmönnum Fram í opna
skjöldu en það tókst þeim ekki.
Eftir röskar tíu mínútur fóru þeir
aftur í flata vörn sem þeir héldu
að mestu leyti út leiktímann. Fram
lék sina hefðbundnu flötu vörn allan
leiktímann og breyttu engu þótt oft
fengju Stjörnumenn greiða leið að
markinu, einkum Valdimar Gríms-
son. Er Stjörnumenn breyttu varn-
arleik sínum höfðu Framarar for-
ystu 6:3 og það tók gestina sem
hafa fremur lágvaxna sóknarmenn
nokkra stunda að átta sig á breytt-
um staðháttum því þeir klúðruðu
sjö sóknum í röð áður en þeim tókst
að gera sitt sjöunda mark. Þá höfðu
Stjörnumenn náð tveggja marka
forystu 8:6. Fram jafnaði 9:9 og
eftir það var jafnt á öllum tölum
þar til Magnús A. Magnússon kom
heimamönnum yfir er 5 sekúndur
voru til leikhlés, 13:12.
Sóknarleikur Fram gekk mjög
brösuglega á fyrstu tíu mínútum
síðari hálfleiks á sama tíma og
heimamönnum gekk allt í haginn
og þeir náðu þriggja marka forystu
á þeim tíma. En lærisveinar Guð-
mundar Guðmundssonar úr Safa-
mýrinni voru ekki af baki dottnir
og tókst að nýta sér fyrsta færi sem
gafst til að jafna leikinn á ný. Það
gerðu þeir eru Valdimar Grímsson
hlaut tveggja mínútna brottrekstur
og er hann kom inná á ný var stað
an 17:17. Eftir það var baráttan
mikil milli fylkinganna auk þess
sem þær spöruðu lítt kraftana við
að lesa yfir hausamótunum á dóm-
urunum. Einar Einarsson kom
Stjörnunni 24:23 yfir er 20 sek.
voru eftir af leiknum en það dugði
skammt.
KNATTSPYRNA
Reuter
EKKI dugðu þesslr tllburðir Johns Colllns Skotum tll slgurs ð Eistlendingum í undankeppnl HM er þjóð-
Irnar áttust vlð í Mónakó í gærkvöldi.
Lærisveinar Teits
héldu jöfnu vid Skota
Teiti Þórðarsyni og lærisveinum hans
í landsliði Eistlands tókst að halda
0:0 jafntefli í viðureign við Skota í undan-
keppni HM en leikurinn fór fram í Món-
akó í gærkvöldi. Skotarnir sóttu nær lát-
laust allan leikinn út í gegn en gekk erfið-
lega að finna leið framhjá Mart Poom
markverði Eistlendinga sem átti hreinan
KORFUBOLTI
stjörnuleik og varði nær allt sem að
markinu kom. í eina skiptið í leiknum
sem honum tókst ekki að hafa hendur á
markskotum Skota kom önnur mark-
stöngin honum og löndum hans til bjarg-
ar. Það var er Tom Boyd fékk dauðafæri
í fyrri hálfleik. Sem kunnugt er var þessi
leikur háður í stað fyrirhugaðrar viður-
eignar landanna í Eistlandi á haust-
mánuðum. Sá leikur var flautaður af
eftir að heimamenn mættu ekki til leiks
til að mótmæla tímasetningu leiksins.
Þá var Skotum dæmdur 3:0 sigur en
Eistlendingar áfrýjuðu dóminum og.var
það tekið til greina, leikurinn settur á
dagskrá á ný á hlutlausum velli.
Björn
Björcsson
skrifar frá
Sauöárkróki
Meistaramir í
kröppum dansi
Islandsmeistararnir úr Grindavík lentu^ í
kröppum dansi er þeir mættu Tindastóli
í úrvalsdeildinni á Sauðárkróki í gærkvöldi
og þurftu að hafa mikið fyrir
sigrinum, 98:89. Staðan í hálf-
leik var 49:45 fyrir heima-
menn.
Grindvíkingar byrjuðu með
því að Marel Guðlaugsson setti niður tvö
þriggja stiga skot og staðan því orðin 6:0.
Gestirnir léku á als oddi og virtust ætla að
valta yfir heimamenn. En sterk vörn Tinda-
stólsmanna og vel útfærðar sóknir gerðu það
að verkum að þeir náðu að minnka muninn
niður í eitt stig. Þannig hélst leikurinn í jafn-
vægi þar til 6 mínútur voru eftir af hálfleikn-
um. Þá var dæmd ásetningsvilla á Helga
Jónas og í kjölfarið tæknivíti á þjálfara Grind-
víkinga, Friðrik Rúnarsson, sem mótmælti
dómnum. Þetta nýtti Tindastóll sér og á
skammri stundu náði það 15 stiga forystu
og breytti stöðunni úr 29:29 í 49:29. Grindvík-
ingar sýndu þá hvers vegna þeir eru meistar-
ar og með góðum leik þar sem Mayers var
atkvæðamikill gerðu þeir tólf stig án þess
að heimamenn næðu að svara. Þegar tvaar
mínútur voru til hálfleiks var staðan 44:41.
Þá komust heimamenn aftur í gang og héldu
fjögurra stiga forskoti í hálfleik.
Síðari hálfleikur hófst eins og sá fyrri með
miklum látum og Grindvíkingar náðu að
jafna. Tindastólsmenn höfðu þó frumkvæðið
þar til níu mínútur voru eftir að Suðurnesja-
menn sigldu framúr og sem fyrr voru það
Mayers og Marel sem fóru fýrir sínum mönn-
um. Jón Kr. Gíslason og Pétur Guðmundsson
áttu einnig ágætan leik.
Tindastólsmenn börðust af miklu harðfylgi
og héldu spennunni í leiknum þar til á síð-
ustu mínútu. í liði þeirra var hinn Bandaríkja-
maðurinn Winston Peterson mjög góður.
Hann sýndi frábæra takta, skoraði 39 stig
og tók 14 fráköst og munar um minna. Einn-
ig áttu Arnar Kárason og Piccini og Omar
ágæta kafla. Hins vegar fann Lárus Dagur
ekki fjölina sína þrátt fyrir góða spretti.
ÍR-stúlkur í 13. sæti
K VENNASVEIT ÍK hafnaði í
13. sæti í Evrópukeppni félags-
liða í víðavangshlaupi sem fram
fór í Newport í Wales á síðasta
sunnudag, en alls lauk 21 sveit
keppni. Þetta er besti árangur
ÍR-sveitarinnar í keppninni
fram til þessa. Reyndar hefur
hún áður hafnað í sama sæti
en þá hlupu færri sveitir.
Martha Ernstsdóttir náði 12.
besta árangri einstaklinga á
22,12 mínútum og varð m.a. á
undan Cörlu Sacramento frá
Portúgal, en sigurvegari varð
einn besti 5 og 10 km hlaupari
heims í kvennaflokki, Julia
Vaquero frá Spáni, tími hennar
var 21,34 mín. Alls lauk 101
einstaklingur keppni. Af
árangri annarra hlaupara ÍR
er það að segja að Bryndís
Ernstsdóttir hafnaði í 59. sæti
á 24,26 mín, Anna Jeeves varð
í 60. sæti á 24,31 mín, Hulda
Pálsdóttir kom 82. í mark á
26,04 mín. og Gerður Pálsdóttir
varð i 87. sæti á 26,33 mín.
Yfirlýsing frá Júlíusi Hafstein
Öll gögn eru hjá
Ólympíunefnd
Morgunblaðinu barst í gær
eftirfarandi yfirlýsing frá Júlíusi
Hafstein, fráfarandi formanni
Ólympíunefndar íslands:
„í leiðara íþróttasíðu Morgun-
blaðsins þriðjudaginn 11. febrúar
er fjallað um brotthvarf mitt úr
Ólympíunefnd íslands. Af því til-
efni vil ég taka fram að öll gögn
sem ég hafði undir höndum og
tengdust undirbúningi smáþjóða-
leikanna_ eru til staðar á skrif-
stofu Óí, þ.e. afrit af bréfum,
drög að samningum við fyrirtæki
og stofnanir og svo framvegis.
Jafnframt hef ég skrifað bréf til
Ólympíunefndarinnar þar sem ég
lista upp öll þau fyrirtæki og
stofnanir svo og nöfn einstakl-
inga í viðkomandi fyrirtækjum
og stofnunum sem ég hef verið
í viðræðum við um stuðning og
samstarf vegna smáþjóðaleik-
anna. Slíkur listi á að geta kom-
ið viðtakandi forustumönnum vel
ef rétt er á haldið. Persónuleg
sambönd, óskilgreindar hug-
myndir og tveggja manna samtöl
um þessi mál get ég ekki fjallað
um, eins og Mbl. staðfestir í
umræddum leiðara, „að það sé
ósköp eðlilegt mál að ég geri
ekki.“ Þeir sem taka við verða
að axla þá ábyrgð að afla þess
fjár sem á vantar, þeir gátu ekki
reiknað með því að ég héldi áfram
að starfa að þessum málum, eins
og leiðarahöfundur Mbl. tekur
undir. Meirihlutinn ræður og ég
óska honum velfarnaðar."
Gianfranco Zola um landsleik ftala og Englendinga
Verðum að sljóma
eftir okkar höfði
Leikurinn gegn Englendingum
verður fyrsti alvöru próf-
steinninn á getu landsliðs ítala und-
ir stjórn Cesare Maldinis sem tók
við af Arrigo Sacchi í haust. Liðið
lék á dögunum æfingaleik gegn
Norður-írum, sigraði örugglega en
knattspyman sem liðið spilaði var
svosum ekkert sérstök. ítalir telja
sig betri en Englendinga en bera
jafnframt mikla virðingu fyrir þeim.
En hver verður breytingin á liðinu
og hveijar eru væntingar Itala fyr-
ir leikinn?
„Pabbi“ tekur vlö af herstjóra
Meginmunurinn á þjálfurunum
Maldini og Sacchi er skaphöfn
þeirra. Maldini er rólegur náungi
sem náð hefur frábærum. árangri
með landslið leikmanna yngri en
21 árs (sem fagnaði þremur Evr-
ópumeistaratitlum undir hans
stjórn) og ævinlega náð að mynda
góða, vinalega fjölskyldustemmn-
ingu meðal leikmanna sem hafa
sumir sagt að hann hafi verið eins
og pabbi þeirra.
Sacchi er járnkarl sem umgengst
leikmenn á faglegum grunni, hefur
alltaf talið heildarleikskipulag mik-
ilvægara en einstaka leikmenn og
iðulega lent upp á kant við stór-
stjörnur.
Þar sem landsliðið hefur aðeins
leikið einn leik undir stjórn Maldin-
is er erfitt að bera val hans og stjórn
á liðinu saman við aðferðir Sacchis.
Þó virðist sem hann ætli að gefa
leiknum leikmönnum, „fantasista",
á borð við Alessandro Del Piero og
Gianfranco Zola meira frelsi og
hann hefur gefið út yfirlýsingu um
að hann muni ekki vera með mikið
hringl á liðinu, reyna að skapa liðs-
anda.
„Það eru einfaldlega ekki 100
leikmenn í landsliðsklassa á Ítalíu
og knattspyrna er ekki það flókinn
leikur að það þurfi einhverja sér-
hæfða leikmenn í hvern leik þótt
leikið sé á móti mismunandi lið-
um,“ sagði Maldini og sendi þar
með Sacchi pillu fyrir að nota ævin-
týralegan földa leikmanna. Maldini
lét landslið 21 árs og yngri ævin-
lega leika með fríheija (,,libero“)
sem aftasta varnarmann, fjóra
varnarmenn fyrir framan hann, þrjá
tengiliði og tvo framheija (eða einn
framheija og einn leikmann sem
fékk að leika fijálst). Hann á þó
erfitt með að yfirfæra þetta leik-
skipulag á landsliðið þar sem fæst
lið í dag leika með fríheija heldur
leika þau flest fjögurra manna
svæðisvöm að hætti - já - Arrigo
Sacchis!
Pabbi kennir mér
Cesare Maldini lýsti því yfir þeg-
ar hann tók við landsliðinu að hann
vildi að Paolo sonur hans og vinstri
bakvörður hjá AC Milan tæki við
stöðu fríheija en syninum er illa
við þá stöðu og telur sig að auki
ekki alltof góðan í henni, að minnsta
kosti betri á kantinum. „Ef pabbi
útskýrir fyrir mér hvernig á að leika
þessa stöðu, þá er þetta ekki vanda-
mál en ég er hræddur um að það
séu nokkrir hlutir sem hann verður
að kenna mér,“ segir Paolo Maldini
en Cesare Maldini lék um árabil sem
fríheiji AC Milan, var m.a. fyrirliði
liðsins er það varð Evrópumeistari
1963 og lék 14 landsleiki. Faðirinn
hefur tekið þetta gott og gilt og
reyndi á móti Norður-írum Ciro
Ferrara sem aftasta mann og verð-
ur að teljast líklegt að svo verði
England mætir Ítalíu í undanriðli heims-
meistaramótsins á Wembley í kvöld. Einar
Logi Vignisson á Ítalíu veltir fyrir sér
muninum á liði ítala undir stjórn „pabbans“
Cesare Maldinis, sem er nýtekinn við, og
forverans, „herstjórans“ Arrigo Sacchis.
einnig gegn Englendingum, en
Christian Panúcci hefur reyndar
einnig verið nefndur í þá stöðu.
Fyrirliðinn Paolo Maldini leikur síð-
an sem miðvörður fyrir framan
ásamt Alessandro Costacurta sem
heldur sæti sínu vegna mikillar
reynslu þrátt fyrir að hafa átt mis-
jafna leiki í vetur. Fyrir aftan þessa
kappa stendur svo Angelo Peruzzi,
markvörður Juventus.
„Parmamódelið 5-3-2“
Engin tilviljun er að ítalir léku
æfmgaleik gegn Norður-írum fyrir
skemmstu, þeir vildu spreyta sig
gegn bresku liði. Því er ekki að
vænta mikilla breytinga fyrir leik-
inn gegn Englendingum, Maldini
er með áætlunina nokkuð klára.
Gegn írum notaði hann leikkerfi
sem kennt er við Parma undir stjórn
Nevio Scala, 5-3-2 sem gæti nú
allt eins heitið 3-5-2. Englendingar
kalla sitt kerfi 3-5-2 og leika senni-
lega með bakverðina Gary Neville
og Graeme Le Soux á köntunum
(sem ,,wing-backs“) en ítalir kalla
sitt 5-3-2 og leika með kanttengilið-
ina Di Livio og Carboni í stöðum
sem afar erfitt er að sjá að séu
neitt öðruvísi.
Á miðjunni verða líklega þeir
Dino Baggio, Demetrio Albertini
og Roberto Di Matteo, allt duglegir
leikmenn en kannski ekki sérstak-
lega leiknir eða skapandi. ítalir
hafa nokkrar áhyggjur af því hve
góðum miðjumönnum hefur fækkað
og telja ástæðuna ekki síst að hjá
stóru liðunum, Inter, Juve og Milan,
eru bara tveir af tólf byijunarmönn-
um á miðjunni ítalir, þeir Albertini
og Di Livio. Alessandro Del Piero
hefur stundum leikið á miðjunni,
Sacchi notaði hann oft á kantinum,
en Maldini segist líta á Del Piero
sem framheija og ólíklegt er að
hann leggi í Englendinga með þijá
menn frammi.
Fremsti maður verður örugglega
Pierluigi Casiraghi, leikmaður sem
var helsta tákn þess í hugum ítala
hve Sacchi væri klikkaður; að nota
Casiraghi en ekki Vialli, Signori eða
Baggio þótti glæpsamlegt. En Cas-
iraghi hefur verið seigur, skorað
11 mörk í 37 landsleikjum og ævin-
lega unnið mikið af skallaeinvígjum
sem og öðrum návígjum. Hann
verður einn mikilvægasti hlekkur-
inn á Wembley. Fyrir aftan hann
er líklegast að snillingurinn Gian-
franco Zola hefji leikinn. Hann
þekkir Englendinga og hefur verið
í góðu formi undanfarið. Ravanelli
og Del Piero verða síðan til taks
og gætu þess vegna komið snemma
inná, allt eftir því hvernig leikurinn
þróast.
Virðing fyrir Englendingum
Englendingar hafa ekki riðið feit-
um hesti frá viðureignum við ítali
síðustu 30 árin og einungis sigrað
tvisvar í tólf viðureignum, síðast
1977. Sagan dugir þó ítölum
skammt þegar á hólminn verður
komið og þeir eru hóflega bjartsýn-
ir á gengi sinna manna, bera mikla
virðingu fyrir Englendingum eftir
góða frammistöðu þeirra í Evrópu-
keppninni síðastliðið sumar. „Eng-
lendingar verða örugglega mjög
erfiðir heim að sækja, þeir eiga frá-
bæra áhorfendur og sterka, hættu-
lega leikmenn eins og Alan Shearer
og hinn unga David Beekham. Það
versta sem við getum gert er að
leggjast í vörn og ætla að reyna
að ná jafntefli, við verðum að setja
allt á fullt og ná að stjórna leiknum
eftir okkar höfði," segir Gianfranco
Zola leikmaður Chelsea.
Cesare Maldini segist ætla að
láta liðið leika sóknarknattspymu
og hefur ítrekað að hann sé ekki
að stilla upp liði til að bregðast
neitt sérstaklega við leikskipulagi
Englendinga þótt margir telji að
hann muni setja Paolo Maldini eða
Costacurta sérstaklega til höfuðs
Alan Shearer. Maldini yngri hefur
sagt að hann muni sennilega þurfa
að fórna sóknarfrelsi sínu vegna
Shearers en Maldini eidri er sparari
á yfirlýsingar: „Varnarmenn mínir
eru það reyndir og hreyfanlegir að
þess gerist vart þörf að setja sér-
stakan mann á Shearer, þótt vissu-
lega sé hann frábær leikmaður,"
svarar hann slíkum bollaleggingum.
Stórlið" til
Sunderlands
„VIÐ ætlum okkur að fá eitt
af frægari félögum heims að
taka þátt í vígsiuieik á nýja
vellinum okkar,“ segir John
Frickling hjá Sunderland,
sem tekur nýjan völl i notkun
í sumar. Félagið hefur sett sig
í samband við Juventus, Barc-
elona og Ajax.
Nýtt nafn á
Aztec-völlinn
MEXÍKANAR hafa ákveðið
að breyta nafni Aztec-leik-
vallarins í Mexíkóborg, þar
sem úrslitaleikur HM í knatt-
spymu fór fram 1970 og 1986.
Völlurinn heitir hér eftir
Estadio Guillermo Canedo tíl
minningar um fyrrum for-
mann knattspyrnusambands
Mexíkó, sem var einnig vara-
formaður alþjóða knatt-
spyrnusambandsins, FIFA.