Morgunblaðið - 14.02.1997, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.02.1997, Blaðsíða 3
2 C FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997 C 3 URSLIT Breiðabl. - Keflav.71:111 íþróttahúsið Smárinn i Kópavogi, úrvals- deild fslandsmótsins í körfuknattleik 18. umferð, fimmtudaginn 13. febrúar 1997. Gangur leiksins:4:7, 10:12, 13:22, 16:25, 20:34, 25:37, 29:41, 31:44, 33:50, 38:50 42:53 52:64, 56:79, 59:85, 61:91, 67:95, 68:99, 69:106, 71:111. Stig Breiðabliks: Clifton Bueh, 23, Einar Hannesson 17, Agnar Olsen 12, Erlingur S. Erlingsson 8, Oskar Pétursson 6, Pálmi Sigurgeirsson 5. Fráköst: 14 í vörn - 13 í sókn. Stig Keflavíkur: Falur Harðarson 26, Guð- jón Skúlason 19, Kristján Guðlaugsson 19, Kristinn Friðriksson 12, Damon Johnson 10, Albert Óskarsson 8, Gunnar Einarsson 8, Halldór Karlsson 5, Elentínus Margeirs- son 4, Birgir Örn Birgisson 2. Fráköst: 26 í vörn - 9 í sókn. Dómarar: Kristján Möller og Björgvin Rún- arsson. yillur:Breiðablik 16 - Keflavík 23 Áhorfendur: 30. UMFG - ÍR 90:74 Grindavík: Gangur leiksins: 0:3, 7:3, 9:6, 9:13, 11:18, 19:21, 23:30, 28:32, 36:46, 38:52, 51:53, 58:61, 66:63, 70:69, 76:71, 87:71, 90:74. Stig UMFG: Hermann Myers 33, Marel Guðlaugsson 14, Pétur Guðmundsson 12, Páll Axel Vilbergsson 11, Unndór Sigurðs- son 9, Helgi Guðfinnsson 8, Jón Kr. Gisla- son 3. Fráköst: 21 í vörn - 8 í sókn. Stig ÍR: Eggert Garðarsson 22, Eiríkur Önundarson 22, Tito Baker 13, Atli H. Þorbjörnsson 9, Guðni Einarsson 6, Atli Sigþórsson 2. Fráköst:15 í vörn - 13 í sókn. Dómarar: Leifur Garðarsson og Sigmundur Albertsson komust þokkalega frá erfiðum leik. yillur: UMFG 16 - ÍR 13. Áhorfendur: Um 185. KR-UMFS 78:77 íþróttahúsið á Seltjarnamesi: Gangur leiksins: 2:0, 9:5, 21:9, 31:22, 35:35, 40:37, 42:49, 49:50, 59:64, 67:64, 75:70, 76:74, 78:74, 78:77. Stig: KR: Jónatan Bow 21, Roney Eford 20, Hermann Hauksson 16, Hinrik Gunn- arsson 8, Ingvar Ormarsson 7, Birgir Mika- elsson 6. Fráköst: 25 í vörn - 11 í sókn. Stig UMFS: Bragi Magnússon 21, Joe Rhett 20, Grétar Guðlaugsson 13, Tómas Holton 12, Ari Gunnarsson 5, Þórður Helga- son 4, Gunnar Þorsteinsson 2. Fráköst: 25 í vörn - 10 í sókn. Dómarar: Helgi Bragason og Bergur Stein- grímsson. Villur: KR 16 - UMFS 15. Áhorfendur: 150. Haukar-Þór 89:65 íþróttahúsið við Strandgötu: Gangur leiksins: 6:3, 10:11, 16:16, 16:27, 25:33, 33:35, 36:38, 44:40, 53:42, 63:48, 74:52, 81:59, 89:65. Stig Hauka: Shawn Smith 21, Pétur Ing- varsson 21, ívar Ásgrímsson 10, Jón Arnar Ingvarsson 9, Bergur Eðvarðsson 7, Sigurð- ur Jónsson 6, Þröstur Kristinsson 5, Þór Haraldsson 4, Daníel Ámason 4, Björgvin Jónsson 2. Fráköst: 14 í sókn - 20 í vörn. Stig Þórs: Fred Williams 19, Konráð Ósk- arsson 14, Hafsteinn Lúðvíksson 12, Þórður Steindórsson 6, Björn Sveinsson 4, Böðvar Kristjánsson 4, Högni Friðriksson 4, John Cariglia 2. Fráköst: 11 í sókn - 20 í vöm. Dómarar: Kristinn Albertsson og Antonio Ciullo. Villur: Haukar 15 - Þór 26. Áhorfendur: 80. NBA-deildin Fj. leikja U T Stig Stig KEFLAVÍK 18 15 3 1738: 1479 30 UMFG 18 15 3 1722: 1581 30 HAUKAR 18 12 6 1505: 1433 24 ÍA 17 11 6 1343: 1290 22 KR 18 9 9 1544: 1484 18 UMFN 16 9 7 1352: 1305 18 SKALLAGR. 18 8 10 1458: 1519 16 ÍR 18 8 10 1526: 1508 16 UMFT 17 7 10 1394: 1411 14 KFi 17 6 11 1377: 1432 12 ÞÓR 17 5 12 1349: 1501 10 BREIÐABL. 18 O 18 1270: 1635 0 Atlanta - Toronto 106: Charlotte - New Jersey 113: 75: 96: 84: San Antonio - Vancouver 101: Phoenix - Boston 131: Evrópukeppnin E-RIÐILL Aþena: Olympiakos - Stefanelfltal.)..87:84 David Rivers 25, Dragan Tarlac 23 - Gregor Fucka 20, Warren Kidd 15. Berlín: Alba Berlín - CSKA Moskva.....78:76 Wendell Alexis 23, Sasa Obradovic 17 - Valery Dayneko 25, Marcus Webb 16. Split, Króatíu: Split - Efes Pilsen (Tyrkl.)...78:56 Josip Vrankovic 28, Damir Tvrdic 18, Ni- kola Prkacin 13 - Ufuk Sarica 11, Vasily Karasev 10, Tamer Oyguc 9. F-RIÐILL Istanbul: Ulker Spor - Estudiantes Madrid.78:74 Orhun Ene 16, Haran Erdenay 18 - Chadl- er Thompson 18, Harper Williams 17. Aþena: Panionios - Cibona Zagreb.....84:76 Fanis Christodoulou 27, George Karakoutis 24 - Zdravko Radoulovic 31, Slaven Rimac 19. Limoges: Limoges -Teamsystem Bologna....81:70 Trevor Ruffin 20, Hugues Occansey 20 - Carlton Myers 15, Conrad McRae 15. G-RIÐILL: Moskva: Dynamo Moskva - Villerubanne....86:90 Oleg Meleshchenko 30 - Delani Radd 29 Íshokkí NHL-deildin Hartford - New Jersey............2:3 Buffalo - Montreal...............2:2 ■ Eftir framlengingu Detroit - San Jose..............7:1 Florida - Tampa Bay..............5:2 Pittsburgh - NY Islanders........1:5 Dallas - Phoenix.................0:5 Edmonton - Boston................4:3 Anaheim - Toronto................5:2 Knattspyrna Undankeppni HM, S-Ameríka Paraguay - Perú.................2:1 Catalino Rivarola (12.), Aristides Rojas (40.) - Jose Pereda (33.). Staðan: Kolombía., Paraeuav o 8 Argentína 8 Ekvador 8 Uruguay 8 Bolivía 8 Chile 8 Perú 8 Venesúela 8 1 14: 6 17 1 10: 4 17 1 11: 7 13 4 12: 9 12 4 6:10 10 2 12: 8 10 3 3 11:12 9 3 3 9:11 9 1 7 5:23 1 ......1:0 1 0 4:0 10 0 1 9:1 6 EM U-21 Bristol, Englandi: England - Italía............ Darren Eadie (51.). 13.850. Staðan England..................4 3 Ítalía...................3 2 Moldavía.................3 1 0 2 3:6 3 Pólland..................2 0 1 1 1:3 1 Georgía..................2 0 0 2 0:7 0 Skíði HM í Sestriere Tvfkeppni kvenna, svig: (Fyrri hlutinn i tvíkeppninni, svigið, fór fram í gær. Fresta varð bruninu vegna veðurs og verður það í dag). 1. Morena Gallizio (Italíu)......1.25,92 (44,13/41,79) 2. Marlies Oester (Sviss)........1.26,89 (44.47/42.42) 3. Hilde Gerg (Þýskal.).........1.28,22 (45,31/42,91) 4. Katja Seizinger (Þýskai.)....1.28,27 (45,86/42,41) 5. Catherine Borghi (Sviss).....1.28,28 (54,87/42,41) 6. Sibylle Brauner (Þýskal.)....1.28,55 (45,73/42,82) 7. Renate Goetschl (Austurr.)...1.28,75 (46,21/42,54) 8. Anita Wachter (Austurr.)......1.29,64 (46,63/43,01) 9. Miriam Vogt (Þýskal.)........1.29,72 (46,68/43,04) 10. Florence Masnada (Frakkl.)....1.29,79 (46,99/42,80) IÞROTTIR IÞROTTÍR KNATTSPYRNA KORFUKNATTLEIKUR Newcastle vill vita verðið á Bjama „NEWCASTLE hefur haft samband við ÍA og beðið þá formlega að Ieggja fram verð fyrir mig. Þá er beðið eftir tilboði frá Liver- pool,“ sagði Bjarni Guðjónsson knatt- spyrnumaður af Akranesi í samtali við Morgunblaðið. Hann er nýlega kominn heim að lokinni viku- dvöl hjá Newcastle en þar áður var hann hjá Liverpool. „Eg vonast til þess að hlutirnir skýrist fyrir lok næstu viku, en ég kunni vel við mig á báð- um stöðum," sagði Bjarni og vildi ekkert segja hvort liðið væri ofar á óskalistanum. Bjarni segist hafa leikið einn leik með unglingaliði New- castle gegn Darling- ton og gert í þeim leik eitt mark í 3:0 sigur- leik. „Mér gekk vel utan þess að ég meiddist á vinstri ökkla undir lok fyrri hálfleiks. Eigi að síð- ur var ég látinn leika þar til 15 mínútur voru eftir. Meiðslin eru hins vegar ekki stórvægileg og setja ekki strik í reikninginn." Þrátt fyrir áhuga Newcastle og Liverpool segir Bjarni að Rangers og Grashoppers séu enn inni í myndinni og hann vilji ekki gefa neitt frá sér strax. „Þau lið eru enn inni í myndinni en ég vil bara að hin mál ensku liðanna skýrist áður en lengra verður haldið.“ Línuvörð- ur rotaður PSG vann Lens 2:1 í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi og var þetta fyrsti sigur liðsins i næstum þrjá mánuði. Það bar til tíðinda í leiknum að annar línuvörður- inn rotaðist á 67. mínútu eftir að aðskotahlut var kastað I höfuð hans úr áhorfendastæð- unum. Hann var borinn af velli og leikurinn stöðvaður, en hann rankaði við sér aftur eftir tíu minútur og tók þá stöðu sína aftur á línunni og leikurinn kláraður. Atvikið gæti haft þær afleiðingar í f ör með sér að Lens fengi ekki að leika næstu leiki sina á heimavelli sínum. Það var Brasilímaðurinn Rai sem gerði sigurmarkið með skalla á 65. mínútu. Cam- ara kom Lens yfir á 23. mín- útu en Patriee Loko jafnaði skömmu síðar. PSG er nú fjór- um stigum á eftir Mónakó sem er efst í deildinni. Dráttur í Frakk- landi og á Spáni BÚIÐ er að draga um hvaða lið mætast í undanúrslitum í frönsku deildarbikar- keppninni í knattspyrnu. Strasbourg - Mónakó, Bordeaux - Montpellier. Þá er búið að draga í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar á Spáni, þar sem leikið verður heima og heiman, 26. febrúar og 12. mars. Liðin-sem mætast eru Atietico Madrid - Bareelona, Real Betis - Rayo Vallec- ano Racing Santander - Celta Vigo og Las Palmas - Espanyol. BLAK Þróttur mætir Þrótti ÞRÓTTUR úr Reykjavík fær Þrótt frá Neskaupstað í heimsókn í undanúrslitum bikarkeppninnar í blaki karla. 1 hinum leik undanúrslitanna mætast Stjarnan og KA. Báðir leikirnir eiga að fara fram 19. febrúar í Hagaskóla og Ásgarði. Hjá konunum verður aðeins einn leikur í undanúrslitum er B-lið KA og Þróttur frá Neskaupstað mætast í KA-heimilinu 22. febrúar. Sigurvegarinn mætir IS í úrslitaleik. Morgunblaðið/Kristinn BERGUR Eðvarðsson og Fred Williams berjast hér um frákastið í viður- eign Hauka og Þórs í Hafnarfírði í gærkvöldi, en Pétur Ingvarsson fylg- ist grannt með gangi mála. Haukar léku mun betur en gestirnir í síð- ari hálfleik og uppskáru því sigur, 89:65. HANDKNATTLEIKUR FH-stúlkur hleyptu i í 1. deild kvenna FH-stúlkur hleyptu lífi í 1. deild kvenna í fyrrakvöld þegar þær gerðu sér lítið fyrir og unnu ná- granna sína, Hauka, sem tróna í í tilefni 50 ára afmælis KSÍ í ár kemur út bók um sögu knattspyrnunnar á íslandi eftir Sigurð Friðþjófsson og Víði Sigurðsson. Þeir, sem vilja styðja útgáfu bókarinnar með |dví að kaupa hana í forsölu og skrá nafn sitt á heillaóskalista bókarinnar, geta haft samband við KSI, s. 581 4444, á sunnudag kl. 16-20, mánudag kl. 18-21 eða þriðjudag kl. 18-21. Knattspyrnusamband íslands. efsta sætinu, 24:22 en það skilaði stúlkunum frá Kaplakrika um leið þriðja sæti deildarinnar. „Það var kominn tími til að vinna Haukastelpumar sem hafa unnið alla leiki við okkur undanfarin tvö ár,“ sagði Hildur Pálsdóttir, fyrirliði FH í samtali við Morgunblaðið. „Við ættum að vera enn ofar, höfum unnið bæði Hauka og Stjörnuna en tapað fyrir minni spámönnum. Við erum 'með mjög ungt lið sem á eftir að springa út eftir nokkur ár - kannski fyrr.“ Meðalaldur FH-liðsins er ekki hár, rúm 18 ár. Elsti leikmaðurinn er 22ja ára en flestallar eru stúlk- umar 16 ára. En hveiju þakkar Hildur fyrirliði velgengni liðsins? „Við æfum mjög mikið, næstum á hveijum degi og fáum frí einn dag um helgar - ég held að ég hafi aldrei æft svona mikið. Að auki eru ungu stelpurnar að spila í öðrum og þriðja flokki og mikið af helgar- mótum hjá þeim. Þessar stelpur eru góðar með boltann eftir góða þjálf- un í yngri flokkunum. Til dæmis komu fjórar til okkar frá ÍR en þær hafa ekki tekið sér frí í tvö ár, ekki einu sinni sumarfrí og um verslunarmannahelgar hafa þær farið í æfingabúðir." Hildur sagði einnig að Viðar Sím- onarson, þjálfari þeirra, ætti mikinn hlut í velgengninni. „Það er mikill agi hjá honum, hann tekur sinn hlut alvarlega og mikinn þátt í leiknum. Það hefur einnig skapað hugarfarsbreytingu hjá liðinu og við trúum nú að við getum.“ Stefnan var fyrst sett á að komast í úrslitakeppnina. „En eftir að okkur var spáð fyrir mótið þriðja sætinu og eftir ágætt gengi okkar á Opna Reykjavíkurmótinu þar sem við sáum hvað býr i' liðinu, var stefnunni breytt og hún er nú að halda þriðja sætinu. Það er raunhæft og allt fyrir ofan það er bónus,“ bætti Hildur við. íffémR FOLK ■ ÓLAFUR Sigurjónsson, leikmaður ÍR, var á fundi aganefndar HSÍ síðasta þriðjudag úrskurð- aður í eins leiks bann fyrir óprúðmannlega fram- komu við dómara að loknum leik IR og Stjörn- unnar í l. deild á dögunum. Bannið tók gildi á hádegi í gær, fimmtudag, og tekur Ólafur út refsingu sína er ÍR sækja Eyjamenn heim nk. laugardag. ■ RONNIE McCann sem er fæddur í Suður- Afríku en keppir fyrir Bandaríkin, lék á 65 höggum eða sjö höggum undir pari á fyrsta degi á opnn móti í golfi í Sun City í Bandaríkjunuin í gær. Seve Ballesteros er einnig á meðal kepp- enda, en lék mjög illa og kom inn á 10 höggum yfm pari, eða á 82 höggum. ■ PERNILLA Wiberg frá Svíþjóð nær ekki að vetja heimsmeistaratitilinn í alpatvíkeppni því hún keyrði út úr í fyrri umferð í svigi tvíkeppn- innar í Sestriere í gær og er úr leik. Húr. vinn- ur því ekki til verðlauna á þessu heimsmeistara- móti, en það hefur hún gert á öllum heimsmeist- aramótum sem hún hefur áður tekið þátt í. ■ WlBERG sagði að heppnin hafi ekki verið með sér á þessu heimsmeistaramóti. „Ég get nú einbeitt mér að heimsbikarkeppninni," sagði sænska stúlkan sem hefur afgerandi forystu í stigakeppni heimsbikarsins. Hún sagði að markmiðið hjá sér nú væri að vinna heimsbikar- inn og fara á Ólympíuleikana í Nagano á næsta ári sem heimsbikarhafi. HaukarvöHuðu yfir Þórsara HAUKAR voru ekki sannfær- andi í upphafi leiks gegn Þórs- urum í Hafnarfirði í gærkvöldi, en þeim tókst engu að síður nokkuð auðveldlega að knýja fram sigur. Þeir léku mun betur í síðari hálfleik en í þeim fyrri, en leikur gestanna versnaði er á leið og lauk leiknum með stórsigri Hauka - 89:65. Haukar fóru sér mjög hægt í byijun og var mál manna að góður leikur þeirra gegn Keflavík á dögunum sæti Edwin ' ennÞá f Þeim- -Það Rögnvaldsson er oft erfitt að fá skrifar góða stemmningu í hópinn eftir slíka leiki. Það var lesið vel yfir okkur í leikhléi og við lékum allir vel í síð- ari hálfleik," sagði Pétur Ingvars- son, sem var sterkur í síðari hálf- leik og skoraði þá 15 stig. Haukar reyndu að koma gestun- um í opna skjöldu snemma leiks með því að leika pressuvörn. Þá höfðu þeir þriggja stiga forystu, en Þórsarar leystu gestaþrautina með stakri prýði og tóku forystu sem þeir létu ekki af hendi fyrr en á fyrstu mínútum síðari hálfleiks. Mest varð forysta gestanna um miðbik fyrri hálfieiks, en þá voru þeir átta stigum yfir. Konráð Ósk- arsson átti þá góðan leikkafla og var maðurinn á bak við þessa rispu Akureyringanna. Ekki leið á löngu þar til leikurinn snerist upp í algera hringavitleysu og leikmenn misstu boltann marg- sinnis. Þeir reyndu sífellt að gera hið ómögulega, en það er ekki hægt. Fred Williams átti í töluverð- um erfiðleikum með Shawn Smith í vörninni og fékk sína þriðju villu þegar fyrri hálfleikur var rétt hálfn- aður. Hann gat því lítið beitt sér í vörninni eftir það. í leikhléi höfðu gestirnir tveggja stiga forystu, 38:36. Allt annað var að sjá til Haukanna í síðari hálfleikn- um heldur en í þeim fyrri og völtuðu þeir hreinlega yfir Þórsara. Pétur Ingvarsson var í fararbroddi og kom heimamönnum yfír skömmu eftir hlé. Gunnar Sverrisson, þjálfari Þórs, stóð við hliðarlínuna og reyndi að stappa stálinu í sína menn, en allt kom fyrir ekki. Þórsarar vissu ekki sitt íjúkandi ráð og hentu bolt- anum bara eitthvað út í loftið. Ekki batnaði leikur liðsins þegar Williams fékk sína fímmtu villu og varð að hætta leik, en þá voru heimamenn 20 stigum yfír og úrslitin ráðin. KR á tæpasta vaði KR-ingar kræktu í tvö mikilvæg stig er þeir tóku á móti Skalla- grími á Seltjarnarnesi í gærkvöldi, en fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum í úrvalsdeildinni. Sigur Vesturbæinga var naumur því að- eins eitt stig skildi liðin að er upp var staðið, 78:77, og gat ekki tæp- ari verið. Bragi Magnússon minnk- aði muninn með þriggja stiga körfu um það bil sem flautað var til leiks- loka. Leikmenn KR byijuðu leikinn af miklum myndarskap og virtust hafa töglin og hagldirnar. Vörn þeirra var sterk og Hinrik Gunnarsson hafði góðar gætur á Joe Rhett, sterkum leikmanni Skallagríms, en í upphafi miðaði leikur gestanna mjög að því að leita hann uppi. Aðrir leikmenn voru nokkuð staðir í sóknarleik sínum. Tómas Holton og lærisveinar sáu að við svo búið Ivar Benediktsson skrifar mætti ekki standa og tókst með seiglu og vilja að komast inn í leik- inn, jafna leikinn um leið og þeir þéttu vörn sína og tókst þar með að slá verulega á sóknargleði KR- inga. í hálfleik voru KR-ingar þrem- ur stigum yfír, 40:37. Síðari hálfleikur var ekki vel leik- inn, en baráttan var sett á oddinn hjá báðum liðum. Má heita að jafnt hafi verið á flestum tölum lengst af. Borgnesingum tókst að ná ör- litlu frumkvæði um miðjan hálfleik- inn er þeir gerðu fjórar þriggja stiga körfur og eina tveggja stiga í röð á sama tíma og heimamenn svörðu að bragði með tveggja stiga körf- um. Þannig náðu gestirnir fimm stiga forystu sem var það mesta sem þeir náðu. Þeir hugðust fylgja þessum kafla eftir með sama hætti en voru afar óheppnir með skottil- raunir sínar þar sem knötturinn dansaði oftar en ekki á körfu- hringnum og vildi ekki rétta leið. KR-ingar sigu fram úr og tókst að kreista fram sigur og heiðarlegar tilraunir Borgnesinga dugðu ekki lengra en raun ber vitni. Jónatan Bow var sterkur hjá KR-ingum bæði í vörn og sókn, Hermann var öflugur í fyrri hálfleik en lét minna fyrir sér fara er á leið. Roney Eford var daufur framan af en lék mikilvægt hlutverk á lo- kakaflanum. Þá var Hinrik sterkur í vörninni og hélt Rhett niðri. Bragi Magnússon lék vel hjá Borgnesingum en var afar óheppinn með skot. Þá var Grétar Guðlaugs- son einnig sterkur og Tómas var traustur. Vöm Grindavíkur kæfði ÍR Með elju, dugnaði og frábærum síðari hálfleik tókst Grind- víkingum að bijóta á bak mót- spyrnu ÍR-inga er liðin mættust í Grindavík í gær- kvöldi. „Við lékum vel í tuttugu mínút- ur en töpuðum áttum er við komum til síðari hálfleiks. Gerðum mörg klaufaleg mistök og hleyptum þeim inní leikinn. Vörn þeirra var þá líka frábær og kæfði okkur svo að við náðum okkur ekki á strik á ný,“ sagði Antonyo Vallejo þjálfari ÍR eftir leikinn, sem Grindavík vann 90:74. Liðin skiptust á um forystu til að byija með og Breiðhyltingar héldu íslandsmeisturunum frá Grindavík í skeíjum með skynsam- legum leik. Þó náðu heimamenn stundum að komast upp á tærnar með góðum sprettum en alltaf náðu gestirnir að koma þeim á hælana á ný og höfðu ágæta forystu í leik- hléi, 38:52. Grindvíkingar stilltu greinilega strengi sína í leikhléinu því þeir mættu ákaflega einbeittir til síðari hálfleiks og leyfðu gestunum varla að komast að eftir það. Frábær vörn braut ekki bara niður sóknar- leik ÍR-inga, heldur skilaði þeim sjálfum traustum sóknarleik þar sem þeir léku við hvern sinn fingur á meðan Breiðhyltingar reyndu að ná áttum. Reyndar náðu IR-ingar áttum í nokkrar mínútur um miðjan leik en það stóð stutt og heima- menn, studdir dyggum áhorfendum, áttu ekki í vandræðum með að gera út um leikinn. „Eg er mjög ánægður með síðari hálfleikinn en við vorum á hælunum í þeim fyrri og gerðum ekki það sem við ætluðum okkur, sem aftur kom niður á sóknarieik okkar,“ sagði Friðrik Rúnarsson þjálfari Grinda- Stefán Stefánsson skrifar víkur eftir leikinn. „Við ræddum málin í leikhléi og gerðum okkur grein fyrir því að það þarf ekki að vinna leik upp á nokkrum mínútum - slíkt getur kostað bakslag og hleypt andstæðingunum inn í leik- inn. Þess vegna tókum við okkur allar tuttugu mínúturnar eftir hlé til að gera út um leikinn.“ Grindvíkingar voru lengi af stað en er þeir komust loks á skrið, var nánast ógerningur að stöðva þá og liðið sýndi hvers það er megnugt. Reyndar gekk allt upp, flest skot rötuðu í körfuna og fráköstin í þeirra hendur. Pressuvörnin gekk líka vel og dró vígtennurnar úr ÍR-ingum. Hermann Myers tók 13 fráköst og gerði góða hluti eins og Pétur Guðmundsson og Helgi Guð- fínnsson. Liðið átti þijátíu stoðsend- ingar og af þeim átti Jón Kr. Gísla- son ellefu. ÍR-ingar náðu ekki að halda hraðanum niðri allan leikinn og supu seyðið af því. Fyrri hálfleikur var þó góður hjá þeim en pressa mótheija þeirra eftir hlé var þeim um megn. Eggert Garðarsson, Ei- ríkur Önundarson og Tito Baker voru þeirra bestu menn. Létt æfing hjá Keflavík Það var ekki rishár körfubolta- leikur sem fram fór í Smáran- um í gærkvöld þegar Keflavík rúll- aði upp Breiðabliki 111:71. Framan af fyrri hálfleik virtust Blikar ætla að hanga í gestunum en brátt dró í sundur og um miðjan fyrri hálfleik voru Keflvíkingar komnir með þægilegt 14 stiga for- skot. Þá skiptu þeir mönnum inná af bekknum og það sem eftir lifði fyrri hálfleiks náðu Blikar að draga á. Staðan í hálfleik var 42:53 sem sagði þó ekki alla söguna um yfir- burði Keflvíkinga. Síðari hálfleikur var algjör ein- stefna þar sem Keflvíkingar skor- uðu og skoruðu á meðan Breiðablik mjatlaði einu og einu skoti ofan í körfuna. Það fór þó ekki að draga verulega sundur með liðunum fyrr en byijunarlið Keflavíkur var nær allt komið útaf en fram að því virt- ust leikmenn vera að keppa í skot- keppni sin á milli í stað þess að spila saman sem lið. Með varamönn- unum fór liðið að spila betur saman sem skilaði sér brátt í 26 stiga for- skoti, 59:85, sem þeir juku jafnt og þétt uns það munaði 40 stigum í leikslok, 71:111. í liði Keflavíkur voru Falur Harð- arson, Guðjón Skúlason og Kristján Guðlaugsson bestir. Kristján skor- aði 15 af 19 stigum sínum úr þriggja stiga skotum. I liði Breiðabliks voru Clifton Buch og Einar Hannesson líflegast- ir en Agnar Olsen átti einnig góða spretti. Halldór Bachmann skrifar Ikvöld Körfuknattleikur: Úrvalsdeildin: Akranes: ÍA - Tindastóll.......20 Njarðvík: UMFN-KFÍ.............20 1. deild karla: Sandgerði: Reynir - StaflUungur ...20 Handknattleikur 2. deild karla: Strandgata: ÍH - KR...........20 Akureyri: Þór - Ármann.........20 Keflavík: Keflavík - Hörður.20.30 Blak 1. deild karla: Nesk.staður: Þróttur Stjarnan.20 1. deild kvenna: Nesk.staður: Þróttur - Víkingur ..21.30 ÍÞfémR FOLK ■ MARIA Mutola hiaupakona frá Mosambik gerði tilraun til að bæta besta tímann frá upphafi í 800 m hlaupi kvenna á fijálsíþrótamóti í Ghent í fyrrakvöld. Besti tími sem náðst hefur er 1.56,40 mín. en þann tíma á þýska stúlkan Christ- ine Wachtel. ■ ÞETTA tókst Mutolu ekki því hún kom í mark á 1.58,40 mín. og er helst um að kenna hvað hlaupið var hægt fyrstu 200 metrana og að loknum 400 m metrum var hún 1,7 sekúndum á eftir tímanum sem náðist er þýska stúlkan hljóp á tím- anum góða. ■ MUTOLA sem keppir næst á móti Stokkhólmi sagðist telja sig í stakk búna til að bæta heimsins besta tíma og myndi láta laga standa fljótlega en vildi ekk segja hvort það yrði í Stokkhólmi eða síðar. ■ COLIN Jackson, sem á besta tíma heims í 60 m grindahlaupi, kom fyrstur í mark í greininni á áðumefndu móti. Tími hans var 7,54 sekúndur en Jackson á best 7,30 sekúndur. ■ JAMIE Baulch frá Bretlandi kom á óvart er hann sigraði í 400 m hlaupi í Chent á 45,45 sekúnd- um. Meðal þeirra sem á eftir honum komu var Darnell Hall frá Banda- ríkjunum. Hall hefur m.a. unnið sér það til frægðar að vera í sigur- sveit þjóðar sinnar í 4x400 m boð- hlaupi á síðustu Ólympíuleikum. Hall var rúmri sekúndu á eftir Baulch í mark. ■ IRENA Privalova frá Rúss- landi sýndi í Chent að hún er ekki dauð úr öllum æðum. Hún sigraði í 60 m hlaupi á besta tíma ársins, 7,02 sekúndum, og var sjónarmun á undan nígerísku stúlkunni Christy Opara. ■ IVAN Pedroso langstökkvari er greinilega að jafna sig eftir erf- ið meiðsli á síðasta ári. Kúbumað- urinn stökk lengst allra, 8,40 metra, en það er annar besti árang- ur ársins í greininni. ■ ERIC Wymeersch, Evrópu- meistari í 200 m hlaupi, sigraði örugglega á heimavelli í sinni sér- grein. Hann kom í mark á 20,66 sekúndum en aðeins einn hlaupari hefur farið vegalengdina á betri tíma á þessum vetri. ■ PAOLO Dal Soglio, kúluvarp- ari frá Ítalíu, vargaði 21,03 metra í landskeppni ítala, Frakka, Rússa, Spánverja og Norðmanna í Genúa á Ítalíu á þriðjudaginn. Þessi árangur Soglio fleytir hon- um í efsta sæti heimslistans eins og mál standa í dag. ■ OLGA Yegorova, hlaupadís sem ættuð er frá Rússlandi, náði besta tíma ársins í 3.000 m hlaupi kvenna í sömu landskeppni er hún kom í mark á 8.53,85 mínútum. ■ ÞESS má einnig geta að í sömu landskeppninni sigraði rússneska stúlkan Svetlana Abramova í stangarstökki er hún fór yfir 4 metra. Sömu hæð stökk Amandine Homi frá Frakkiandi en þriðja varð Maria Carla Bresciani frá Ítalíu, fór yfir 3,90 m og setti landsmet. Gamla metið átti hún sjálf - 3,65 m. ■ SPÆNSKA stúlkan, Dana Cervants stökk 3,70 m og norska fljóðið Ana Castineira sveiflaði sér yfir 3,60 m. Allar þessar stúlkur eru líklegar til að mæta Völu Flosadóttur, ÍR, á heimsmeistara- mótinu í París í næsta mánuði, en sem kunnugt er á Vala best, 4,20 m. ■ FIONA May, langstökkvari frá Ítalíu, setti landsmet í landskeppn- inni, stökk 6,84 m og bætti sitt eigið met um 3 sentímetra, en það met var aðeins 4 daga gamalt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.