Morgunblaðið - 18.02.1997, Page 1
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þörf á
rannsóknum
ÞAÐ verður engin framþróun í
lagnamálum, ef við lokum land-
inu fyrir nýjungum, segir Sig-
urður Grétar Guðmundsson í
þættinum Lagnafréttir. En það
er jafn skaðlegt að taka öllum
nýjum lagnaefnum og tækninýj-
ungum gagnrýnilaust. / 18 ►
Ú T T E K T
Gott verð
á nýjum
íbúðum
AÐ hefur orðið verð-
lækkun á nýjum fbuð-
um, þar sem verðhækk-
un á þeim hefur ekki haldizt í
hendur við hækkanir á bygg-
ingarvísitölu. Kemur þejtta
fram í viðtalsgrein við Ólaf B.
Blöndal, sölustjóra hjá fast-
eignasölunni Gimli, hér í blað-
inu í dag, þar sem fjallað er
um nýbyggingamarkaðinn.
- Frá því í febrúar 1990 þar
til í febrúar 1997 hefur bygg-
ingarvísitalan hækkað um
33%, en verð á nýjum íbúðum
hefur ekki hækkað að sama
skapi, segir Ólafur.- Framboð
á nýju íbúðarhúsnæði hefur
aukizt mikið og það hefur haft
sín áhrif til lækkunar á verði
og þá sérstaklega á verði
nýrra íbúða í fjölbýlishúsum.
Byggingaraðilarnir bjóða
líka upp á rýmri greiðslulqör
en áður. Við íbúðarkapp eru
oft greiddar aðeins 300.000-
500.000 kr. við samning og
jafn mikið við afhendingu.
Húsbréfalánin eru síðan tekin
út á eignirnar, strax og þær
eru fokheldar.
Afgangurinn af kaupverð-
inu er síðan greiddur vaxta-
laust á 30 mánuðum eftir af-
hendingu en greiðslurnar vísi-
tölubundnar eftir fyrsta árið
frá afhendingu.
- Það munar um þetta, enda
hafa margir nýtt sér það, seg-
ir Ólafur. - Með þessu móti
þurfa byggingaraðilarnir síð-
ur að taka eignir upp í kaup-
verðið. Það er því ekki mikið
um eignaskipti á nýbygginga-
markaðnum nú. / 16 ►
Þriðjudagur 18. febrúar 1996
Blað C
Rakavarn-
arefni
VEÐUR eru gjarnan válynd á
þessum árstíma hér á landi og
það geta skipzt á asahláka og
frost. Þá skiptir máli, hvernig
húsin eru varin fyrir vatni. í
dag fjallar Bjarni Ólafsson um
rakavarnarefni og vatnsfælur í
þættinum Smiðjan. / 24 ►
Meðalverðið hæst
í 110 til 149 fer-
metra sérbýli
TÖLUVERÐ hreyfing var á sér-
býliseignum á síðasta ári, það er ein-
býlishúsun, parhúsum og raðhús-
um. Astæðan er ekki hvað sízt sú, að
nú er hægt að fá langtímalán hjá
lánastofnunum og verðbréfafyrir-
tækjum til slíkra kaupa auk venju-
legra húsbréfalána.
Teikningin hér til hliðar sýnir
meðal fermetraverð í þeim húseign-
um í Reykjavík, sem skiptu um eig-
endur á síðasta ári. Tölurnar miðast
við staðgreiðsluverð og til grund-
vallar þeim liggja útreikningar
Fasteignamats ríksins, sem byggja
á völdu úrtaki úr þeim kaupsamn-
ingum, sem bárust Fasteignamat-
inu. Til samanburðar er meðalverð á
fermetra í fjölbýli.
Fermetrastærðir eru séreignar-
fermetrar og því eru sameignarfer-
metrar ekki taldir með í fjölbýli.
Þegar komið er yfir 100 ferm., fer
fermetraverðið lækkandi eftir þvi
sem húsin eru stærri.
Þannig er meðalverð á fermetra
16.469 kr. hærra í húsum af stærð-
inni 110-149 ferm. en í húsum af
stærðinni 270 ferm. og þar yfir. Fyr-
ir þessu liggja ýmsar ástæður.
Vissirdýrir þættir eru sameiginlegir
í öllum íbúðarhúsum, eins og eldhús
og bað og margs konar búnaður.
Sum hverfi eru eftirsóttari en
önnur og það hefur einnig áhrif á
verðið. Þá eru hús einnig misjöfn að
allri gerð og mismikið í þau borið.
Aldur og viðhald skipta líka máli, en
oft er mikill munur á, hve vel húsum
er haldið við. Gott viðhald tryggir
betur gott endursöluverð en nokkuð
annað. Frávik frá meðalverði geta
því verið mikil.
Fasteignamat ríkisins hefur nú
haslað sér völl á alnetinu (Internet-
inu). Þar má fmna margvíslegt efni,
sem varða fasteignir. Þannig eru all-
ar töflur settar inn á netið um leið og
þær eru fullunnar og þar má því
ávallt finna nýjustu upplýsingar.
Slóðin er http://www.fmr.is/marka
ds/markadsfr.htm
Húsnæðisverð í sérbýli og
fjölbýli i Reykjavík 1996
Moftalx/orAfá h\/orn formotra
Meðalverðíá hvern fermetra
I SERBYL1
70-109 ferm.
110-149 ferm.
150-209 ferm.
210-269 ferm.
270-369 ferm.
SERBYLÍ ALLS
I FJÖLBÝLI (af sambærilegri
83-124 ferm. (4 herbergi)
101-155 ferm. (5 herbergi)
FJOLBYLI ALLS
63.618 kr.-
65.172^-
______62.708
=___-54.223 \
48.703 J
I _—1 r
___| 68.480 kr.J
63.857--------
71.666
fll^
FJÁRVANGUR
IÖ66III VERDBRtFAFYRIRTÆKi
Laugavegi 170,105 Reykjavík, sími 540 50 60, símbréf 540 50 61, www.fjarvangur.is
Kynntu þér kosti
Fasteignalána
Fjárvangs hjá
ráðgjöfum Fjárvangs
í síma 5 40 50 60
Dæmi um mánaðarlegar afborganir af
1.000.000 kr. Fasteignaláni Fjárvangs*
10 ár 15 ár 25 ár
7,0 11.610 8.990 7.070
7,5 11.900 9.270 7.500
8,0 12.100 9.560 7.700
Miðað er við jafngrciðslulán.
*Auk vcrðbóta