Morgunblaðið - 21.02.1997, Page 3

Morgunblaðið - 21.02.1997, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 C 3 KORFUKNATTLEIKUR Hremmingar KR halda áfram Morgunblaðið/Kristinn Erfitt að góma knöttinn :vörður ÍR, og Akurnesingurinn Bjarni Magnússon berjast um bolt- ikóla í gærkvöldi. Atli lék vel og gerði 14 stig, Bjarni fékk aftur ð nóti fimmtu villu sína skömmu eftir leikhlé. 3ur ÍR-inga, sem lögðu Skagamenn arfrábær á okkur“ sendingar gestanna, sem ætlaðar voru stóru mönnunum I teignum. Haraldur Leifsson náði þó að skora 20 stig fyrir Akurnesinga, en Ermol- inskij hefur oft skorað meira - gerði tólf stig. Ronald Bayless, sem er mjög góð skytta, fann ekki fjölina sína og skotnýting hans var slæm. Brynjar K. Sigurðsson hitti aftur á móti ágætlega úr þriggja stiga skot- um. Eiríkur Önundarson var besti maður ÍR-inga í leiknum, en sam- heijar hans stóðu sig allir vel. „Þessi leikur var mjög mikilvægur og við urðum að vinna hann. I síðasta leik spiluðum við vel í fyrri hálfleik, en vorum ekki eins góðir í þeim seinni. Núna var markmiðið hjá okkur að leika vel allan leikinn og það tókst. Þetta var frábær sigur hjá okkur,“ sagði Eiríkur, sem var máttarstólpi liðsins í síðari hálfieik ásamt Tito Baker. Skallagrímur lagði Hauka Theodór Þóröarson skrífar Sjálfstraustið var í góðu lagi hjá okkur,“ sagði Tómas Holton þjálfari og leikmaður Skallagríms eftir að lið hans hafði sigrað Hauka örugglega, 86:73, í Borgarnesi í gær- kvöldi. „Við vorum öruggir með okkur allan leikinn og fengum líka mjög góðan og mikil- vægan stuðning frá dyggum áhorf- endum.“ „Þegar menn mæta ekki tilbúnir til leiks gegn jafnsterku liði og Skal- lagrímur er er ekki von á góðu,“ sagði Einar Einarsson, þjálfari Hauka, eftir leikinn. „Við vorum einfaldlega andlausir frá a til ö, all- an leikinn. Sigurviljann vantaði al- gjörlega hjá okkur, ætli hann hafi ekki orðið eftir í skafli í Hvalfirði ég vona bara að við finnum hann á heimleiðinni." Liðsmenn Skalla- gríms höfðu yfirhöndina strax frá upphafi leiksins. Þeir léku mjög góða vörn og léku sóknarleikinn af öryggi og festu. Liðsmenn Hauka voru þó aldrei langt undan i stiga- skorinu og með harðfylgi tókst þeim að komast tveimur stigum yfir rétt fyrir leikhlé en heimamenn höfðu þó síðasta orðið og höfðu þijú stig yfir í leikhléi, 43:40. Liðsmenn Skallagríms tóku síðan leikinn í sínar hendur strax og flautað var til leiks í síðari hálfleik. Þrátt fyrir mikinn bægslagang liðsmanna Hauka, juku heimamenn forskot sitt janft og þétt og komust mest í 18 stiga mun. Með yfirveguðum leik og af öryggi sigruðu heimamenn síðan vonsvikna liðsmenn Hauka, 86:73. HREMMINGAR körfuknattleiks- deildar KR virðast engan enda ætla að taka. Félagið hefur skipt um erlenda leikmenn hvað eftir annað í vetur og þjálfaraskipti urðu á miðju tímabili og nú síð- ast er allt útlit fyrir að tveir leik- menn úr byrjunarliðinu séu hætt- ir. Birgir Mikaelsson er farinn til Spánar þar sem hann ætlar að læra tungumálið áður en hann fer í markaðsnám og varnarjaxl- inn Oskar Kristjánsson hefur fundið fyrir gikt á nýjan leik en hann varð að hætta körfuknatt- leik vegna hennar fyrir nokkrum árum. Oskar verður ekki með KR í kvöld gegn KFÍ en forráða- menn KR vonast til að hann geti fljótlega leikið á ný með félaginu. Njarðvíkingar ■ ■ oruggir i ur- slitakeppnina Lögðu Tindastól á lokakaflanum á Sauðárkróki Björn Björnsson skrífar frá Sauöárkróki Þetta var spennandi og skemmti- legur leikur, eins og allir leik- ir hér. Það var mikill þrýstingur á okkur. Við urðum að ná í stigin til að tryggja okkur sæti í úrslitakeppninni," sagði Jóhannes Kristbjörnsson, leikmaður Njarð- víkinga, eftir 86:82 sigur á Tinda- stóli í gær. „Þeir fengu óskabyijun en við hins vegar afleita, en náðum okkur síðan á strik og sigurinn var sætur,“ sagði Jóhannes. Heimamenn byijuðu mjög vel og náðu góðri forystu enda misfórust fimm fyrstu sóknir gestanna. Tindastóll lék mjög sterka vörn sem getirnir komust ekki í gegnum og þegar átta mínútur voru til hálfleiks var staðan 30:10 og allt virtist á góðri leið hjá heimamönnum. Þá sneru Njarðvíkingar við blaðinu, léku mjög stífa pressuvöm sem setti heimamenn úr jafnvægi og smátt og smátt minnkaði munurinn og staðan var 39:32 í leikhléi. Gestimir gerðu fyrstu sex stigin í síðari hálfleik. Eftir það var jafn- ræði en heimamenn þó lengstum með fmmkvæðið en á lokamínútinni tókst gestunum að gera fjögur stig í röð og tryggja sér sigur. Mjög skrautleg dómgæsla Krist- ins og Rögnvalds setti mark sitt á þennan leik. Njarðvíkingar misstu Rúnar útaf með fimm villur er 7 mínútur voru eftir og Páll og Torey John fóra sömu leið undir lokin og þá vora þrír aðrir leikmenn gestanna með 4 villur. Hjá Tindastóli fóra Ómar og Peterson útaf á síðustu mínútunum með fímm villur og vegna dómgæslunnar var síðari hálf- leikur hrein leikleysa lángtímum saman. Peterson, Arnar og Pieini voru bestir heimamanna og Ómar og Láras léku einnig mjög vel. Hjá Njarðvík vora Sverrir og Páll mjög góðir og þegar á reyndi komu „gömlu“ refírnir Friðrik og Jóhann- es sprækir og gerðu það sem þurfti. Torrey átti góða spretti en hefur oft leikið betur. Sigur á elleftu stundu í Aþenu Evrópumeisturum Panathinai- kos tókst að knýja fram sigur á franska félaginu Pau Orthez á síðustu 30 sekúndum viðureignar liðanna í Aþenu í fyrrakvöld, loka- tölur 75:71. Mikið var um meiðsli í franska liðinu en það lét það ekki á sig fá lengi vel og hélt gríska liðinu í heljargreipum. I hálfleik var forysta þess tíu stig, 41:31, en á lokamínútunni linaðist takið og Grikk- irnir hrósuðu happi. Bandaríski leikmaðurinn Byron Dinkins skoraði þriggja stiga körfu fyrir Panathinaikos þegar hálf mín- úta var eftir og kom liðinu yfir, 73:71. í kjölfarið brást leikmönn- um Pau Orthez bogalistin í hrað- aupphlaupi og Grikkirnir fengu knöttinn. Það var síðan Julius Nu- osou sem innsigl- aði sigurinn með tveimur stigum Þau mætast í gærkvöldi skýrðist endan- lega hvaða lið leika saman i 16-liða úrslitum Meistara- deildar Evrópu í körfuknatt- leik en á þvi stigi þarf annað liðið að sigra í tveimur leikj- um og verða báðir, eða allir, leikirnir leiknir á tímabilinu 6. til 13. mars. Eftirtalin lið leika saman: Stefanel - Kinder Bologna, Alba Berlin - Barcelona, Par- tizan Belgrad - Olympiakos, Efes Pilsen - Maccabi, Team- system Bologna - Sevilla, Ci- bona - Ljubljana, Villeur- banne - Estudantes Madrid og Panathinaikos - Limoges. úr vítum áður en yfir lauk. Villeurbanne vann nauman sig- ur á Sevilla, 83:81, og á því heima- leikjarétt í úrslitakeppni Evrópu- mótsins eins og Panathinaikos. Villeurbanne getur þakkað banda- ríska leikmanninum Delaney Rudd sigurinn að þessu sinni. Hann gerði 18 stig í leiknum og skoraði mikilvægar körfur á lokakaflanum er liðinu tókst að komast fram úr því spænska. Það verður spennandi að fylgjast með leikjum ítölsku liðanna, Stefanel Milan og Kinder Bologna en ekki var búist við því fyrir leikina í gærkvöldi að þau lentu saman. Stefanel, sem hafði tryggt sér áframhaldandi keppni, tapaði mjg óvænt fyrir Alba Berlin á sama tíma og Kinder vann Split þannig að ítölsku liðin mætast. ■ THEÓDÓRA Matthiesen, skíðakona úr KR, keppti nýlega í þremur alþjóðlegum stórsvigsmót- um í Colorado í Bandaríkjunum. Fyrst lenti hún í 6. sæti og fékk 33,06 fis stig, sem er besti árangur hennar til þessa. Næst varð hún í 5. sæti og hlaut 33,66 stig. Hún keppti aftur í síðustu viku og náði þá sjötta sæti og hlaut 33,16 stig. ■ BRYNJA Þorsteinsson frá Akureyri, sem er við nám í Nor- egi, hefur einnig bætt árangur sinn verulega. Hún varð sjöunda í stór- svigi á móti í Gesunda í Svíþjóð nýlega og fékk fyrir það 37,92 stig. ■ HAILE Gebreselassie hinn fótfrái langhlaupari frá Eþíópíu setti í gær heimset í 5.000 metra hlaupi innanhúss. Hann hljóp vega- lengdina á 12 mínútum 59,04 sek- úndum á móti í Svíþjóð og bætti eigið met, 13.10,98, frá því í janúar í fyrra. ■ JACQUES Villeneuve frá Kanada setti nýtt brautarmet á æfingu á kappakstursbrautinni í Estoril í Portúgal í vikunni. Vil- leneuve, sem er talinn líklegur til afreka í Formula 1 kappakstrinum, ók hringinn á Williams bíl sínum á 1.18,36 mín og bætti mettíma Gerhards Bergers um 0,30 sek- úndur. ■ WANG Junxia ólympíumeistari í 5.000 m hlaupi kvenna er tilneydd til að leggja keppnisskóna á hilluna vegna krankleika sem heijar á taugakerfi hennar. Junxia skaut upp á stjörnuhimininn árið 1993 er hún bætti öll heimsmet kvenna á vegalengdunum frá þremur til og með tíu km. ■ HERYANTO Arbi heimsmeist- ari frá Indónesíu sigraði í einliða- leik karla á opna indverska meist- aramótinu í badminton sem fram fór um sl. helgi. Hann vann Pull- ela Gopichand 15-4 og 15-7 í úrslitum eftir að hafa unnið danska Ólympíumeistarann Poul Erik Hoyer-Larsen í undanúrslitum. Cindana Hartono, Indónesíu, sigraði Lee Soon-deuk frá Suður- Kóreu í úrslitum í einliðaleik kvenna, 11-6 og 11-7. ■ GERRY Francis, knattspyrnu- stjóri Tottenham, hefur áhuga á að kaupa miðvallarspilarann Marco Piovanelli frá Lazio á tvær millj. punda. ■ JIMMY Rimmer, fyrrum mark- vörður Aston Villa, Man. Utd. og Arsenal, er fyrsti þjálfarinn frá Bretlandseyjum til að starfa í Kína. Hann aðstoðaði við undirbún- ing kínverska landsliðsins, sem lagði Bandaríkjamenn 2:1 oggerði jafntefli við þá á dögunum, 1:1. ■ BRYAN Robson stjóri hjá Middlesbrough ætlar að reyna að fá Mario Zagalo, brasilíska landsl- iðsþjálfarann, til að gefa Juninho frí frá æfingaleik Brasilíu og Pól- lands. Leikurinn er sama dag og Boro mætir Manchester United og vill Robson eðlilega hafa Juninho með í þeim leik. ■ ■ ZAGALO hefur kallað á Romario á ný í landsliðshópinn. Hann hefur ekki leikið með lands- liði Brasilíu í meira en tvö ár. ■ LEEDS og Everton eru tilbúin að kaupa miðvallarspilarann Sean Curtis frá Aston Villa á íjórar millj. punda. ■ CURTIS, sem kom til Aston Villa frá Bolton sl. sumar, er 24 ára landsliðsmaður frá Júgóslavíu. Hann hefur fengið fá tækifæri með Villa. ■ FRAKKINN Phillipe Troussi- er, fyrrum landsliðsþjálfari Fíla- beinsstrandarinnar, var í gær ráð- inn landsliðsþjálfari Nígeríu. Laun hans verða 710 þús. ísl. kr. á mán- uði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.