Morgunblaðið - 04.03.1997, Page 8
KNATTSPYRNA
Manchester United með góða forystu en Roy Evans heldur í vonina
Moguleiki þar sa
H IAN Taylor, mlðvallarlelk-
mm h| maður Aston Vllla, or hér
I ■ ■ ■ komlnn framhjá Stlg Inge
EBÍaa — ■ gmi wm Æ&l ■ ^feH ■ >g§H& H H ■ ■ ■■
iii ijðiciio lenur “Tr
MANCHESTER United er með
fjögurra stiga forystu í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu
eftir öruggan sigur á Coventry
en Liverpool og Newcastle
máttu sætta sig við að tapa
um helgina. „United er að
stinga af en möguleiki er fyrir
hendi þartil tjaldið fellur,"
sagði Roy Evans, knatt-
spyrnustjóri Liverpool.
leistarar Manchester United
voru 2:0 yfír eftir fímm
mínútur og eftirleikurinn var auð-
veldur en lokatölur urðu 3:1. Co-
ventiy byijaði á því að gera sjálfs-
mark en Andy Cole bætti öðru
marki við og Karel Poborsky skor-
aði í seinni hálfleik áður en Darren
Huckerby minnkaði muninn. Un-
ited hefur nú leikið 16 leiki í röð
í deildinni án taps.
Ian Taylor skoraði fyrir Aston
Villa á móti Liverpool þegar sjö
mínútur voru til leiksloka og þar
við sat. „Við eigum eftir að taka
á móti United og sjáum hvemig
það fer,“ sagði Evans um baráttu
efstu liðanna. Villa Park var eins
og svað, „eins og 200 fílar hefðu
verið á vellinum," eins og Dean
Saunders, fyrrum miðheiji liðanna,
orðaði það, og gerði ástand vallar-
ins leikmönnum erfítt fyrir.
Dennis Bergkamp og Ian Wright
tryggðu Arsenal 2:0 sigur á Ever-
ton og er Lundúnaliðið í þriðja sæti.
Newcastle tapar sjaldan heima
og Southampton er ekki þekkt fyr-
ir sigra á útivelli en sennilega gerði
Matt Le Tissier titilvonir heima-
manna að engu þegar hann skor-
aði snemma í seinni hálfleik en það
var eina mark leiksins. „Segja má
að við söknum Alans Shearers en
alla vantar þegar uppskeran er tap
á heimavelli," sagði Kenny Dalgl-
ish, stjóri Newcastle. Southampton
er áfram í næstneðsta sæti en stutt
er í næstu lið. „Ég vona að þetta
hafí verið vendipunkturinn hjá
okkur,“ sagði Graeme Souness,
Paul Ince tek-
ur af skarið
PAUL lnce sagði um helgina
að hann ætlaði að ákveða
innan tveggja vikna með
hvaða liði hann spiiaði i ná-
inni framtíð. Samningur hans
við Inter rennur út 1998 en
enski miðjumaðurinn hefur
verið orðaður við nokkur
ensk lið að undanförnu. „All-
ir segja að ég sé á leiðinni
til Arsenal, Chelsea og Black-
burn,“ sagði Ince.
stjóri liðsins. „Við höfum leikið vel
á tímabilinu en höfum haldið okkur
við botninn vegna slaks varnar-
leiks. 12 leikir eru eftir og ég held
að liðið sé nógu gott til að halda
sér uppi.“
Wimbledon og Chelsea töpuðu
dýrmætum stigum í toppbarátt-
unni; Chelsea tapaði 3:2 í Derby
og Wimbledon lá 3:1 heima fyrir
Leicester.
Ekkert gengur hjá Tottenham
sem hefur aðeins fagnað einum
sigri frá jólum, fengið á sig 21
mark í níu leikjum og tapað sjö
þeirra, nú 1:0 á heimavelli fyrir
Nottingham Forest. „Staðan segir
sína sögu hvort sem okkur líkar
Reuter
betur eða verr,“ sagði Gerry Franc-
is, knattspyrnustjóri Spurs. „Þetta
hefur ekki verið okkar tímabil."
Middlesbrough tapaði 3:1 fyrir
Sheffíeld Wednesday og er komið
með annan fótinn niður í 1. deild.
„Þetta tap setur okkur sannarlega
í vandræði," sagði Bryan Robson,
stjóri liðsins.
Bæjarar
fóru á
kostum
gegn
Duisburg
BAYERN Miinchen fór á kostum
þegar liðið vann Duisburg 5:2 í
þýsku deildinni. Jíirgen Klins-
mann, sem var kjörinn besti leik-
maður félagsins í febrúar -
fyrsta sinn sem hann er útnefnd-
ur á tímabilinu - og Mario Basl-
er skoruðu í fyrri hálfleik en
Christian Ziege bætti tveimur
mörkum við eftir hlé og mót-
heij
en varnarmaðurinn Alfred Ny-
huis minnkaði muninn með
tveimur mörkum. Sigurinn hefði
getað orðið mun stærri miðað
við marktækifærin en ma. fór
vítaspyrna í súginn. Miðjumenn-
irnir Thomas Strunz og Mehmet
Scholl léku ekki með Bayern
vegna meiðsla og markvörður-
inn Oliver Kahn var veikur. Oli-
ver Kreuzer mætti í hálfleik
eftir að hafa orðið pabbi
skömmu áður og átti sök á báð-
um mörkum Duisburg. „Ég var
ekki með hugann við leikinn,"
sagði hann en Giovanni Trapat-
toni þjálfari var ánægður.
„Þetta var frábær frammistaða.
Basler, Klinsmann og Ziege
voru ótrúlega góðir.“
Dortmund
í erfiðleikum
Meistarar Borussia Dortmund
áttu ekki í erfiðleikum með 1860
MUnchen og unnu 4:1 en Le-
verkusen missti af baráttunni
um efsta sætið um sinn með því
að gera markalaust jafntefli við
Dortmund. Leverkusen er fimm
stigum á eftir Bayern og tekur
á móti efsta liðinu um helgina.
Karlheinz Riedle gerði fyrsta
mark Dortmund en síðan skor-
uðu Paulo Sousa, Stephane
Chapuisat og Jurgen Kohler.
Dagur Rússanna á Ítalíu
FORYSTA Juventus jókst um helgina þar sem Sampdoria tapaði
á heimavelli fyrir Bologna. Inter og Parma nýttu tækifærið og
skutust í annað sætið. Rússneskir leikmenn settu svip sinn á
leiki umferðarinnar, Simutenkov hjá Reggiana gerði 4 mörk í
sigri á Verona, igor Kolyvanov tvö fyrir Bologna gegn Samp og
„sonur Rússlands", Pietro Vierchowod, sem verður 38 ára f
næsta mánuði, gerði mark Milan í jafntef lisleik gegn Roma.
Einar Logi
Vignisson
skrifar
frá Italíu
Juventus, Inter og Fiorentina léku
leiki sína á laugardaginn þar
sem liðin taka þátt í Evrópukeppn-
inni í vikunni. Leik-
menn Juve voru afar
öruggir gegn Vic-
enza og sigruðu,
2:0, með mörkum
frá Padovano úr vítaspyrnu og
glæsilegu marki Del Livio sem átti
frábæran leik. Juve leikur gegn
Rosenborg á miðvikudaginn í Nor-
egi og Marcello Lippi þjálfari varaði
við of mikilli bjartsýni. „í kuldanum
norðurfrá getur okkur reynst erfítt
að leika okkar venjulega bolta auk
þess sem Rosenborg er með marga
líkamlega sterka leikmenn sem geta
bitið hraustlega frá sér.“
Paul Ince átti sinn besta leik í
vetur fyrir Inter gegn Piacenza og
gerði tvö mörk í 3:0 sigri en fékk
að sjálfsögðu gult spjald og sér fram
á enn eitt leikbannið. Bruno Ganz
gerði þriðja mark Inter sem náði
sér vel á strik eftir að hafa verið
slegið út í undanúrsiitum bikar-
keppninnar á dögunum. Hitt liðið
sem var slegið út, Bologna, fagnaði
einnig sigri, 2:1, á Sampdoria með
tveimur mörkum frá Kolyvanov,
sigurmarkið kom er venjulegum
leiktíma var iokið. Montella náði
forystunni fyrir leikmenn Samp sem
voru skelfílega daprir. „Við náum
okkur upp úr þessari smálægð, en
mikið vorum við hræðilega slappir
í dag,“ sagði Sven Göran Eriksson,
þjálfari Samp. Renzo Uliveri, þjálf-
ari Bologna, þakkaði fyrir stigin
þrjú: „Þeir voru ekki sjálfum sér
líkir, takturinn var ekki í lagi og
við nýttum okkur það til fullnustu.“
Óheppnin eltir Fiorentina sem
fékk á sig mark á síðustu mínút-
unni gegn Lazio. Negro skoraði
eftir að fyrirgjöf frá Signori hafði
tekið heppilega stefnu af Andrei
Kanchelskis sem var dapur í leikn-
um rétt eins og fyrirliðinn Batistuta
sem lét skapsmuni sína bitna á
auglýsingaskiltum eftir leikinn.
Parma er á hörkusiglingu og hafði
betur gegn Cagliari á heimavelli,
3:2. Argentínumaðurinn Heman
Crespo er allur að koma tíl, gerði
tvö falleg mörk, hið síðara með listi-
legri bakfallsspymu. Varnarmaður-
inn franski Lilliam Thuram gerði
þriðja markið. Mazzone, þjálfari
Cagliari, var heimspekilegur í leiks-
lok. „Við emm fátækir en andinn
er hreinn og við njótum þess að
spila gegn góðum liðurn." Þetta
kallar maður að sætta sig dægilega
við að verma eitt af botnsætunum.
Igor Simutenkov, hinn rússneski
tengiliður botnliðsins Reggiana,
hefur verið mistækur í vetur en
gerði fjögur falleg mörk í 4:2 sigri
á Verona. Pietro Vierchowod á rúss-
neskan föður og hefur viðumefnið
„II Tsar“. Hann lætur aldurinn ekki
tmfla sig og átti nokkra góða skalla
að marki Roma, þar af fór einn
bolti í markið. Daniel Fonseca, sem
kom inn á sem varamaður, jafnaði
með skalla fyrir Roma. „Við verðum
að reyna að vemda heiður okkar
og standa uppréttir eins og menn,
en til metorða kemst þetta lið ekki,“
sagði Arrigo Sacchi, þjálfari Milan.
Eigandinn Berlusconi segir mikilla
breytinga að vænta hjá Milan en
vill ekki gefa upp hvers konar.
Aðspurður hvort Capello myndi
taka við liðinu á ný svaraði hann:
„Ekkert er útilokað nema það að
hann kemur ekki til með að taka
við Inter!“
Fyrmm leikmaður Milan, Gianlu-
igi Lentini, átti fínar rispur upp
kantinn gegn Pemgia, sendi bolt-
ann hámákvæmt á Sgro’ og gerði
sjálfur síðara mark Atalanta sem
mátti sætta sig við 2:2 jafntefli.
Giunti og Negri gerðu mörk Pemg-
ia og Nevio Scala, þjálfari Pemgia,
taldi úrslitin afar sanngjörn. „Hing-
að til Bergamo sækja ekki mörg lið
stig og ég get ekki verið annað en
afar sáttur." í kvöldleiknum gerðu
Napoli og Udinese jafntefli í hörðum
slag, 2:2.
ENGLAND: 122 121 121 X222
ITALIA: X 2 X 1X2 XXX 2X21