Morgunblaðið - 14.03.1997, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997 C 3
DAGLEGT LÍF
SAMFÉLAGIÐ sníður
flestum mönnum stakk - þetta er hans,
Morgunblaðið/Emilía
NÝIR stólar sem minna þó á Iiðna tíð.
Morgunblaðið/Ásdis
SIGRÍÐUR Heimisdóttir iðnhönnuður og Asa Richardsdóttir leikhússtjóri
Kaffileikhússins. „Skemmtileg samvinna," segja báðar.
tíð og hægt verði að fá þá
með ýmsum áklæðum. „Þeir
verða einnig gerðir án áklæð-
is og getur fólk þá valið við
sem það vill láta spónleggja
stóla sína með, til dæmis
beyki, mahoní eða annað.“
Hún segist mikið hafa velt
fyrir sér ýmsum smáatriðum við hönnun
hins nafnlausa stóls, þótt meginlínur
hafi frá upphafi verið skýrar.
„Við vildum hafa hann fínlegan, nán-
ast kvenlegan, enda minnir lögun hans
að sumu leyti á kvenlíkama. Hann átti
líka að vera fallegur og stílhreinn, auk
þess að vera þægilegur, bæði
við borð og sem leikhússtóll.
Síðast en ekki síst átti hann
að minna á gamla eldhússtólinn
sem við fundum uppi á háalofti
og flestir kannast við úr eldhús-
um fyrri ára eða mötuneytum.“
Hún kveðst ánægð með útkom-
una, konurnar í Kaffileikhúsinu einnig,
svo gamli eldhússtóllinn sem varð
kveikjan að hinum nýja virðist hafa
fengið uppreisn æru eftir að hafa þótt
hallærislegur í allmörg ár. g
Biyiya Tomer
Hann minnir
að sumu
leyti á kven-
líkama.
. .. -
HANN brýst undan áhrif-
um meðalmennskunnar og
gerir það sem hann vill.
HÚN hallast hvorki að
hefðbundnu né óhefð-
bundnu sniði, kýs
hvort tveggja.
m ví*K
himna liggi yfir andlitinu
og er þessu náð fram með
svokölluðu glansandi púðri
og spilar gamla góða vasel-
ínið einnig stóran þátt í að
skapa þetta útlit. Konur
þurfa ekki lengur að hafa
áhyggjur af glansandi nef-
broddi, því útlitið er orðið
„inn“: ,-,Brot af púðuraugn-
skugga blandað með vaselíni
og smurt á augnlokin dregur
fram dreymandi, næstum
dulúðugt augnaráð. Sakleysis-
legt yfirbragð skín í gegn, við
viljum beisla æskuljómann þar
sem húðin geislaði af heilbrigði
og áhyggjuleysið skein úr augun-
um - vera ung að eilífu.“ Með
rósrauðum kinnalitum getum má
hinsvegar draga fram hraustlegar
eplakinar á augabragði. Hver hef-
ur tíma til að fara út að leika sér
í marga klukkutíma eftir að hann
er orðinn fullorðinn?
Enn rétt eins og stefnurnar í fata-
tísku eru margar og ólíkar á það
einnig við um förðun. Annað yfir-
bragð förðunar sem er vinsælt þessa
dagana er sjúskað, vatnskennt útlit
og enn og aftur er glansförðunin not-
uð en nú í öðrum tilgangi. Reynt er
að ná fram óreiðulegu yfirbragði.
Augun eru mikið máluð og brotist er
frá hinni hefðbundnu möttu og sett-
legu förðun sem hefur verið rikjandi
síðustu ár. ■