Morgunblaðið - 14.03.1997, Side 6
6 C FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
+
Með augum landans
Til Samara
2
Maria Elínborg Ingvadóttir gegn-
ir starfí viðskiptafulltrúa Útflutn-
ingsráðs íslands í Moskvu.
UM 1.000 km aust-
suðaustur frá Moskvu,
I J þar sem áin Volga lið-
ast meðfram skógi
i \ i vöxnum Zhiguli hæð-
RBV unum, er borgin Sam-
ara, í samnefndu hér-
f fl aði' árinu 1935
II 1 var Samara nefnd
A Kubyshef, en endur-
Oheimti nafn sitt í byij-
un árs 1991. Borgin
hefur á sér vinalegan
smábæjarsvip, þar býr
um ein og hálf milljón
manna, eða um helm-
ingur íbúa héraðsins.
Við aðalgötu bæjarins
standa enn gömul
timburhús, leifar þess
byggingarstíls, sem
áður setti svip sinn á
bæinn, þessi hús á að varðveita,
sum verða gerð upp, önnur verða
reist í sama stíl. Bærinn státar
af fallegum, svipmiklum bygg-
ingum og kirkjum frá byijun ald-
arinnar, hér eiga aðrir trúflokkar
en ortódistar einnig sín guðshús,
mótmælendur þar á meðal. Um
tíma bjuggu Tolstoy og Gorky í
Samara og er eitt
aðalleikhús
bæjarins nefnt
eftir Gorky og
hér er bókasafn
með nafni Tolsto-
ys-
Frá um miðja
síðustu öld, hefur
Samara verið
mikill iðnað-
arbær, hér voru
afkastamiklar
vamartækja-
verksmiðjur, enn
em framleiddar
flugvélar, jafnvel
geimför og Lada-
bílar, t.d. Lada
Samara.
í seinni heimsstyijöldinni var
Samara, eða Kubyshef, önnur
höfuðborg, eða vara höfuðborg
Sovétríkjanna, ef svo skyldi
fara, að æðsta stjórn ríkisins
þyrfti að yfirgefa Moskvu. Sam-
ara var vandlega búin undir
þetta hlutverk, eins og aðrar
varaskeifur í leikhúsum þjóð-
anna. Meðal þess var neðanjarð-
arbyrgi, eða bunker, sem Stalin
lét reisa á árinu 1942 inni í
miðri borg. Á fyrstu hæð í einni
af opinberum byggingum bæjar-
ins eru hliðardyr sem geyma
þetta stóra leyndarmál Stalins,
sem ekki var gert kunnugt fyrr
en á árinu 1990. Til þess tíma
vissu fáir af byrginu, þessu ör-
ugga skjóli, þaðan sem hann
ætlaði að stjórna veraldarvefn-
um, nú hefur þetta byrgi að-
dráttarafl fyrir vísindamenn og
ferðafólk, sem kemur víða að.
Vinalegur húsvörður byrgisins
sagði mig vera fyrsta íslending-
inn sem kæmi í heimsókn og þar
með væri ísland 46. landið sem
átt hafi fulltrúa sinn á þessum
stað. Það var vissulega undarleg
tilfinning að ganga í gegnum
þykkar stáldyr, sem voru sér-
staklega styrktar og niður stál-
stiga, einn af öðrum, en byrgið
er 37 metrar niður, álíka og 12
hæða hús. Húsvörðurinn var
hreykinn af þessum stað, sagði
að byrgi Hitlers hefði bara verið
16 metrar niður, þetta væri einn-
ig helmingi dýpra en byrgi
Bandaríkjaforseta, Bretadrottn-
ingar og fleiri þjóðhöfðingja,
hann þóttist vita nákvæmlega
hversu djúpt hvert byrgi væri.
Hann nefndi ekki Saddam Hus-
sein og ég kunni ekki við að
spyija, en mér var hugsað til
kjallarans undir lögreglustöðinni
við Hverfísgötu, mér fannst betra
að segja ekkert frá því byrgi.
Aðalskrokkur byrgisins er eins
og stálgeymir, samansettur úr
samanboltuðum stálplötum,
helmingi þykkri en nauðsynlegt
var talið. Sitt hvoru megin við
hringstigann eru herbergi, sneið-
ar af sívalningnum. Þar eru
geymdar ýmsar heimildir í máli
og myndum frá seinni heims-
styijöldinni, einnig frá ýmsum
stórslysum, eins og Tsjemobil,
en nú er hér unnið að því að finna
leiðir til að bregðast við hamför-
um náttúru og mannlegra mis-
taka. Gert var ráð fyrir að nokk-
ur hundruð manns gætu beðið
af sér voðatíma á þessum stað.
Út frá neðstu tveimur hæðunum
eru byggðar álmur, frá neðstu
hæðinni átti að stjóma daglegum
þörfum og eftirliti manna og
búnaðar byrgisins, en á þeirri
næstneðstu em
skrifstofur Stal-
ins og hans að-
stoðarmanns,
ásamt fundarsal
fyrir æðstaráðið.
Skrifstofa Stalins
er nákvæm eftir-
líking af skrif-
stofu hans í
Kreml, fábrotin
og laus við allt
pijál. Á lítt þægi-
legum sófa, átti
hann að hvílast
og endurnýja
kraftana, á skrif-
borðinu er aðeins
einn simi sem er
harla óvenjulegt
hér um slóðir. Á þessu herbergi
eru sex dyr, femar þeirra eru
bara til að sýnast, tvennar em
útgönguleiðir. Hann vildi hafa
vaðið fýrir neðan sig, fannst ör-
uggara að fólk sem beið hans,
vissi ekki inn um hvaða dyr hann
mundi vinda sér og út um hveij-
ar þeirra hann mundi hverfa.
Fundarsalurinn er einnig byggð-
ur eins og fundarsalurinn í
Kreml, nema að loftið er eins og
í neðanjarðarlestarstöð, fábrot-
inn salur, kort af Sovétríkjunum
á endaveggnum, til hliðar borð
skrifaranna. Þeir sném baki í
fundarmenn og þeim var strang-
lega bannað að líta þá augum.
Hér er rafmagn og ekki verra
loft en víða í stómm skrifstofu-
byggingum.
Ekki er vitað hvort Stalin kom
í þetta byrgi, engar heimildir,
engin gögn eru til þar um, en
af öryggisástæðum var ekki allt-
af getið um fundarstaði foringj-
ans. Hvort sem Stalin var hér
eða ekki, var það undarleg til-
finning að ganga um þessar vist-
arvemr, setjast við skrifborðið,
sitja í sæti foringjans við enda
fundarborðsins. Það er erfitt að
bera virðingu fyrir stórvirki sem
þessu, miklu frekar vekur það
upp ótta og ugg gangvart því
ógnarvaldi, sem húsbóndi á slík-
um stað gæti haft í sínum hönd-
um.
Vonandi verður þetta alltaf
safn.
María EUnborg Ingvadóttir.
DAGLEGT LÍF
VINKONUR Ástu selja upp grímur sem hún hannaði.
Draumurinn
að ferðast um Afríku
með brúðuleikhús í farangrinum
Þar sem höfðinginn Jósef ræður ríkjum í
litlu þorpi við hafíð í landinu Gíneu, æfði
Asta Hafþórsdóttir Afríkudansa og lærði að
beija trumbur að hætti innfæddra. Hrönn
Marinósdóttir spjallaði við hana um ævin-
týraferðina miklu, grímugerð, brúðuleikhús,
listina að farða og margt fleira.
„MIKILVÆGT
er fyrir mig að
launa Afríkubú-
um á einhvern
hátt, þar sem ég
hef lært svo ótal
margt af þeim.
Draumurinn er
því að ferðast
um lönd Afríku
með brúðuleikhús í farteskinu og
leika fýrir bæði börn og fullorðna,“
sagði Ásta Hafþórsdóttir í samtali
við blaðamann einn hrollkaldan vetr-
ardag á íslandi fyrir skömmu. Ásta
er nýkomin frá Gíneu, einu fátæk-
asta landi Afríku þar sem hún dvaldi
í fjórar vikur og lærði ýmislegt nyt-
samlegt um mannleg samskipti auk
þess sem hún sótti námskeið í af-
rískum dönsum og lærði að slá takt-
inn með djembetrommum.
Athafnakonunni Ástu er margt
til lista lagt. Hún er 29 ára að aldri
og mun í vor ljúka þriggja ára námi
í gervahönnun (maskör) frá Drama-
tiske Institutet í Stokkhólmi. Hún
er fyrsti Islendingurinn sem útskrif-
ast úr þessari deild háskólans en
námið byggist á því að móta útlit
leikarans; andlit og höfuð, en einnig
lærir hún m.a. leikhúsfræði og vinn-
ur náið með nemendum annarra
deilda við að setja upp leiksýningar.
Aukreitis hefur Ásta lært grímu-
gerð og í fyrra setti hún ásamt
bekkjarsystur sinni upp brúðuleik-
hús í skólanum. Á kvikmyndahátíð
Stokkhólmsborgar sl. haust unnu
nemendur skólans til fyrstu verð-
launa fyrir myndina Neyðarútgang-
ur en Ásta hannaði grímur og gervi
leikaranna. „Það er eitthvað stór-
kostlegt við grímur. Listformið hef-
ur verið við lýði frá árinu 400 fyrir
Krist en grískir leikarar töluðu þá
um að skilja sálina eftir þegar grí-
man er sett upp og sýningin var
að hefjast. í Svíþjóð er gömul hefð
fyrir brúðum og grímum í leikhúsi
og listin hefur haldið áfram að þró-
ast. Oft er sýningin sambland af
ýmsum formum en fram koma
grímuklæddir leikarar og dansarar
Skallalyf sem
TELLY Savalas
með frægasta skalla
í heimi.
uppgötvaðist fyrir tilviljun
LYF gegn arfgengum skalla var
uppgötvað fyrir tilviljun fyrir nær
20 árum, þegar hár fór að vaxa á
mörgum sköllóttum sjúklingum
sem tóku lyf við of háum blóð-
þrýstingi. Þegar aukaverkanir
þessar komu í ljós sáu vísindamenn
sér leik á borði og hófu rannsókn-
ir á þessu sviði. I ljós kom að hið
virka efnasamband í blóðþrýst-
ingslyfinu, sem örvaði hárvöxt og
hægði á myndun skalla, var
mlnoxidíl. í kjölfarið hófst fram-
leiðsla á skallalyfi, sem heitir
Regaine og er nú selt í lausasölu
á íslandi.
Þetta sama lyf hefur verið á
markaði í Bandaríkjunum um
nokkurt skeið undir heitinu Rogaine.
Kristín Þórisdóttir húðlæknir var í
framhaldsnámi á Cleveland-sjúkrastofn-
uninni í Bandaríkjunum 1988-1992, en
þar voru rannsóknir gerðar á virkni
lyfsins áður en það var sett á markað.
„Sýnt hefur verið fram á að með notk-
un lyfsins er hægt að draga verulega
úr hárlosi, auk þess að auka hárvöxt
í sumum tilvikum. Best hefur reynst
að hefja notkun lyfsins þegar hár byij-
ar að þynnast, áður en eiginlegur skalli
myndast. Árangur er einstaklingsbund-
inn og lyfið verkar því ekki jafn vel á
alla. Þeir sem hafa byrjunareinkenni
arfgengs skalla og vilja vita hvort lyfið
hefur áhrif ættu að prófa að nota það í
6-12 mánuði.“