Morgunblaðið - 14.03.1997, Side 7

Morgunblaðið - 14.03.1997, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1997 C 7 DAGLEGT LÍF ÁSTA ásamt dansaranum Alfonso og systur hans. UMKRINGD börnum í þorpinu Bell Air. STÚLKURNAR æfa afriska dansa í skóginum. Eftir tólf tíma flug frá Stokk- hólmi var Ásta stödd mitt i frum- skógum svörtustu Afríku. „Allt umhverfi og fólkið var eins og ég hafði tæpast þorað að ímynda mér en sem betur fer hefur vestræn menning enn ekki hafið innreið sína.“ íbúar Gíneu, í Vestur-Afríku eru um 6,5 milljónir, flestir frönsku- mælandi múslimar sem lifa í sár- ustu fátækt. „Þeir eiga varla til hnífs og skeiðar en eru svo lífsglað- ir, hlýlegir og frjálslegir í framkomu að ég, kaldlyndur Norðurlandabú- inn, var hálffeimin til að byrja með. Fólkið þarna kann að gefa af sér og er alltaf viðbúið að rétta hjálpar- hönd. „Þið Vesturlandabúar eruð ríkir í efnahagslegum skilningi en fátækir að öðru leyti,“ sagði það við mig.“ Með í för voru tólf sænskar stúlk- ur sem æfa með Ástu Afríkudansa í Stokkhólmi. Þær héldu til í smá- þorpinu Bell Air þar sem íbúar eiga heimili í strákofum og höfðinginn Jósef ræður ríkjum en hann á þijár árum hefði mig ekki órað fyrir að hlutskipti mitt yrði eins og raunin varð.“ í nokkur ár vann Ásta á hinum ýmsu veitingastöðum Reykjavíkur en langaði alltaf til að vinna innan veggja leikhúss. Fyrir hálfgerða rælni sat hún förðun- arnámskeið í skóla Línu Rutar fyrir nokkrum árum, henni gekk vel og var því hvött til að halda áfram á sömu braut. Þá hóf hún störf hjá Borgarleikhúsinu og Sjónvarpinu sem förðunarmeistari og vann auk þess mikið fyrir kvikmyndafyrir- tækið Kjól og Anderson. Síðan lá leiðin til Stokkhólms. Til vors mun Ásta dvelja á ís- landi en ekki með hendur í skauti því stór verkefni eru framundan. Útskriftarverkefni hennar úr há- skólanum í Stokkhólmi er hönnun gerva í leikrit eftir Árna Ibsen sem ber heitið Að eilífu. Leikritið er jafn- framt útskriftarverkefni fjórða árs nema við Leiklistarskóla íslands. Tökur á kvikmynd Óskars Jónas- sonar, Perlur og Svin, hófust nýlega og þar starfar Ásta sem förðunar- meistari. Einnig er í bígerð kennsla í tísku- og kvikmyndaförðun við Förðunarskóla íslands en með námi í Stokkhólmi hefur Ásta getið sér gott orð sem förðunarmeistari við gerð tískumynda í tímarit, auglýs- ingar og gerð tónlistarmyndbanda. Síðast en ekki síst hefur Ásta í hyggju að setja upp brúðuleikhús fyrir unglinga hér á landi ásamt vinkonu sinni. „Til þess höfum við sótt um styrki, meðal annars til listasjóðs menntamálaráðuneytis. Margir íslendingar halda að brúður og grímur séu bara fyrir börn en því fer fjarri. Okkur langar til að skapa sýninguna upp á eigin spýtur og fara síðan í félagsmiðstöðvamar og virkja unglingana með.“ Ásta telur ólíklegt að hún muni setjast að á íslandi en spákona sagði við móður hennar nýlega að hún muni ekki búa í einu landi heldur mynda loftbrú milli margra og ólíkra landa. „Ég gæti vel hugsað mér að læra meira, jafnvel leggja stund á látbragðsleik til að ná betri tökum á brúðuleik en draumurinn um Afríku blundar enn sterkt í mér.“ ■ Morgunblaðið/Golli ÁSTA Hafþórsdóttir í stofunni heima, klædd heimasaumuðum litríkum fatnaði og skarti að hætti Gíneubúa. Kristín segir lyfið virðast mjög öruggt. „Það hefur engin áhrif á eðlilegan blóðþrýsting og veldur mjög sjaldan ofnæmi. Ekki er vitað hvers vegna lyfið verkar á þennan hátt, en í ljós hefur komið að það hættir að verka þegar með- ferð er hætt. Því þarf að gera ráð fyrir langtíma- meðferð.“ - Nú hefur lyfið bara áhrifá arfgengan skalla, alopecia androgenetica, eins oghann heitir á latínu. Er auðvelt að greina hvers eðlis skalli er? „Augljósasta leiðin til að greina arfgengan skalla er að kanna hárlos í ættinni, en orsak- ir skalla eru margvíslegar, til dæmis skjald- kirtilssjúkdómar eða blóðskortur. Einnig getur hárlos verið tímabundið í kjölfar fæðingar. Húðlæknar geta skorið úr um hvort fólk hefur arfgengan skalla og þar af leiðandi hvort lyfið getur haft áhrif á hárlosið." í sérlyfjaskrá, sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið gefur út, kem- ur fram að lyfið Regaine er selt sem áburður eða hlaup. Þar segir að lyfið örvi hárvöxt á óþekktan hátt og það skilist út í þvagi. Ekki er mælt með lyf- inu fyrir barnshafandi konur, eða konur með börn á bijósti, fólk með hjartaöng, lágan blóðþrýsting, hraðan hjartslátt eða bjúg. Brynja Tomer eiginkonur og fullt af bömum. Sök- um hita inni í þorpinu, sváfu stúlk- urnar undir berum himni á strönd- inni allar nætur. „Mataræði Gíneubúa er öðruvísi en maður á að venjast," segir Ásta. „Á morgnana er vaninn að borða fransbrauð með majónesi en í önnur mál eru snædd hrísgrjón bragðbætt með jarðhnetuolíu og einstaka sinn- um býðst reyktur fiskur. Til að byija með þráðum við vestrænt fæði en að nokkrum tíma liðnum, hætti maturinn að skipta nokkru máli. Þess í stað var orkunni og hugsuninni eytt í annað.“ Um fimm ára skeið hefur Ásta æft Afríkudansa, fyrst í Reykjavík en síðar í Stokkhólmi. „Eins og gefur að skilja er á engan hátt sam- bærilegt að dansa á trégólfi í leik- fimisal við tónlist af segulbandi en við taktfastan trumbuslátt inni á milli tijánna í frumskóginum." Rík og gömul hefð er fyrir dansi, söng og tónlist í Gíneu. Trommu- sláttur er samofinn sögu Afríku og Ásta lærði tiltekna takta sem ein- kenna Gíneubúa. Við varðeldinn á kvöldin var spilað á bassatrommur sem kallast dudumbe en Ásta æfði sig aðallega á djembetrommur. Til kennslunnar voru fengnir þrír atvinnudansarar og fimm trommu- leikarar frá Conakry, höfuðborg Gíneu. „Þeir búa í listamannahverfi borgarinnar og hafa atvinnu af að dansa og spila í brúðkaupum og á ýmsum uppákomum. Það er erfitt lifibrauð og því voru listamennirnir að vonum ánægðir með að hafa fasta vinnu í nokkrar vikur við að kenna okkur.“ Menningaráfall viA heimkomuna Viðbrigðin voru mikil að mati Ástu að koma aftur í litlu íbúðina á 9. hæð í miðborg Stokkhólms og finna einsemdina. „Fjórar milljónir manna búa allt í kringum mig en samt eru tengslin nánast engin. Gagnstætt því sem við var að búast, fékk ég menningaráfall við heimkom- una en ekki þegar ég fór utan. Úti var ég alltaf umkringd fólki, lítil böm sváfu í kjöltu minni, apar voru hlaupandi út um allt og hafið og sjórinn gáfu frá sér vinaleg hljóð. í kuldanum og hversdagsleikanum hverfur sú minning smám saman, landið yfírgefur líkamann, alltaf eilítið meira hvern dag, nánast við hvem hnerra eða hósta hverfur eitt- hvað. En uppi í rúmi á kvöldin, rétt fyrir svefninn ligg ég með lok- uð augun og læt mig dreyma." Enginn veit sína ævina .. . Ásta er mikil ævintýramanneskja en segir líf sitt hafa tekið mjög óvænta stefnu. „Fyrir nokkrum og stjórnandi brúðanna er sjáanlegur á sviðinu. Grímu- gerðarmeistari kenndi mér að búa til grímur úr pappamassa sem er töluverð kúnst en ekki er síður mikilvægt að læra að með- höndla grímurnar og bera virðingu fyrir þeim.“ Lífsglaðir Gíneubúar SHARP XG-37V5E eða af myndbandi SHARP h/nnir enn eina nýjung. Mjög lélfur og með- færilegur skiávarpi með fjarstýringu og innbyggðum ^ hátölurum. Er æilaður ráostefnusölum, stofnunum, fyrirtækjum skólum o.fí. Kynning í verslun okkarog eða með heimsókn til þín. Leitíð upplýsinga. BRÆÐURNIR SHARR.. leiðandi framleiðandi með „LCD"'tækni 'Ljquid Crislal Display

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.