Morgunblaðið - 21.03.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 21.03.1997, Qupperneq 6
6 B FÖSTUDAGUR 21. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ H DAGLEGT LIF með hröðum en tregafullum takti JJJ PÁLL Óskar Hjálmtýsson brá sér í hlutverk sagnaskálds við iSS smíði lagsins, Minn hinsti J2 dans, sem er framlag Íslands til Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, t sem haldin verður í Dyflinni jlSft á írlandi 3. maí nk. „Ég stíg g minn hinsta dans og kveð mitt líf með glans, en iðrast aldrei neins, iðrast aldrei," syngur poppstjaman seiðandi röddu en Daglegt líf náði tali af henni er stund gafst milli stríða við mynd- bandsupptökur á sönglaginu sem frumsýnt verður í Dagsljósi í kvöld. Með íburðarmikla hringi á hverj- um fingri, klæddur plastbuxum og ríkmannlegum jakka með semalíu- steinum lýsir Páll Óskar hugar- smíð sinni. „Háfleygar hugmyndir liggja að baki laginu sem segir sögu forríkrar og gerspilltrar manneskju sem komin er á grafar- bakkann. Hún er að flytja sinn svanasöng því stjarna hennar er fallin. Þá lítur hún yfir farinn veg og syngur um demantana, kampa- vínið, öll partíin og falska fólkið sem hún hefur umgengist en ákveður að lokum að iðrast einsk- is, svipað og Edith Piaf í laginu „Je ne regrette rien“ (Ég sé ekki eftjr neinu). í laginu takast á miklar and- stæður, annars vegar gamla „euro- bítið“ sem er sífellt að slá þig í framan og hins vegar falleg meló- día sem er flutt af miklum trega og minnir því hálfpartinn á kirkju- tónlist.“ Á sviðinu með Páli Óskari í Dyflinni verða fjórar dansmeyjar sem hann kýs að kalla fylgjumar sínar. „Þær eru ekki af þessum heimi heldur af öðru tilverustigi en ég hef lesið dulrænar frásagnir fólks sem lýsir hvernig framliðnir vitja þeirra þegar dauðinn nálgast. í þessu tilfelli eru þær fulltrúar samvisku og siðblindu gömlu stjömunnar.“ Ánægður hver sem úrslltin verða Páll Óskar segist sífellt vera að færast í aukana í listsköpun sinni. Helst þarf hann að vera með fing- urna í öllum þáttum „poppstjörnu- bransans", allt frá lagasmíðum í til þess að kaupa rétta tvinnann í búningana. Hann ákvað að keppa fyrir íslands hönd með þeim skil- yrðum að hann fengi að hafa gg,- tögl og hagldir hvað varðar allar hliðar verksins. Ásamt Trausta Haralds- ■ syni frá Akureyri samdi ^ hann lag og texta en auk fcjæ þess hannaði hann bún- ingana og samdi dansana ásamt Helenu Jónsdóttur. „Til aðstoðar kallaði ég til fólk sem ég treysti 100% til að vinna eftir mínu höfði. Hópurinn er nú orðinn svo fullkominn að við köllum okk- ur Mission impossible eða Sér- sveitina. Þess vegna er ég áhyggjulaus um hvernig fer þama úti í Dyflinni. Ég verð ánægður, hver sem úrslitin verða.“ Fylgjurnar eru líka partíljón Páll Óskar átti ekki í vandræð- um með að teikna búningana á sig og dansmeyjarnar, þar byggði hann á gamalli reynslu en sex ára að aldri hannaði hann fatnað á RANNSÓKNIN gaf vísbend- ingu um að mikil neysla á ávaxtasafa gæti haft áhrif á vaxtarlag barna. Ávaxtasafí ekki góður nema í hófi BÖRN sem drekka mikinn ávaxtasafa hafa ríkari tilhneig- ingu en önnur til að fitna. Þetta kom í jjós í rannsókn sem nýlega var gerð við Bassett-stofnunina í New York. Mataræði barna á leikskóla- aldri var kannað í rannsókninni og alls tóku rúmlega 200 börn þátt í henni. Flest drukku rúm- lega 150 ml af ávaxtasafa á dag, en um 10% drukku talsvert meira, yfír 350 ml á dag og var um helmingur þeirra ýmist lægri eða þyngri en önnur börn. Mjólkurneysla barnanna var mismikill og virtist ekki hafa áhrif á vaxtarlag. Barbara Dennison, sem vann að rannsókn- inni, skrifaði um niðurstöður hennar í The Journal Pediatrics og í grein hennar kemur m.a. fram að bæði foreldrar og börn teldu ávaxtasafa góðan kost, þótt ólíkar ástæður lægu að baki. „Börn vijja safann því hann er sætur og bragðgóður en foreldr- ar tengja hann við hollustu." Samtök bandarískra barna- lækna hafa í kjölfar þessarar rannsóknar mælt gegn þvi að foreldrar gefí börnum sínum reglulega ávaxtasafa í pela. Hafa samtökin einnig bent á að sumar gerðir sykurs, sem einkum eru í eplum og perum, geti valdið nið- urgangi og kviðverkjum þjá börnum. Morgunblaðið/Ásdls PÁLL Óskar hannaði sjálfur búningana á sig og dansmeyjarnar fyrir Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. DANSMEYJARNAR klæðast þröngum plastgöllum eins og tíðkast í stórborgum Evrópu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.