Morgunblaðið - 22.03.1997, Side 4
SKIÐI
Sterkasta mót sem haldið hefur verið hér á landi verður um páskana
Island á kort bestu
skíðamanna Evrópu
Nú er ljóst að um tuttugu erlend-
ir keppendur koma til landsins
til að taka þátt í alþjóðlegu mótaröð-
inni í alpagreinum sem fram fara
samhliða Skíðamóti íslands á Dalvík
og Ólafsfirði um páskana og síðan á
Akureyri og Dalvík eftir páska. Þessi
mót verða sterkari en nokkru sinni
fyrr. Kristinn Svanbergsson, fram-
kvæmdastjóri Skíðasambandsins,
sagðist mjög ánægður með hve
margir sterkir keppendur hefðu
skráð sig.
Sá skíðamaður sem hefur bestu
punktastöðuna samkvæmt nýjasta
styrkleikalista alþjóða skíðasam-
bandsins (FIS) er Marco Buechel frá
Lichtenstein sem er með 10,00 stig
og númer 31 á heimslistanum í stórs-
vigi. Hann keppti í heimsbikarnum
í vetur og stóð sig vel og varð m.a.
í 16. sæti á HM í Sestriere. Þess
má geta að Alberto Tomba er númer
26 á listanum í stórsviginu með 9,61
stig. Auk þess hafa tveir sterkir Aust-
urríkismenn boðað komu sína, Kilian
Albrecht og Hermann Schiestl, sem
hafa 12 punkta í stórsvigi og eru
númer 37 og 39 á heimslistanum.
Til samanburðar má geta þess að
okkar besti skíðamaður, Kristinn
Bjömsson, er með 31 punkt í stórs-
vigi og er númer 335 á heimslistanum.
Finninn Mioka Marila mætir til
leiks en hann er mjög góður svigmað-
ur. Hann er í 34. sæti á heimslistan-
um með 11,22 punkta. Austurríkis-
mennimir Albrecht og Schiestl eru
með 13,44 og 15,59 punkta í svigi.
Kristinn er með 16,35 punkta og er
númer 71 á heimslistanum. Hann fær
því verðuga keppni á mótunum
nyrðra.
Tvær finnskar konur hafa skráð
sig, Petra Olamo og Katja Jantun-
en, en þær eru númer 77 og 91 á
heimslistanum í svigi með 21 punkt
og 23 punkta. Besta skíðakona ís-
lands samkvæmt heimslistanum er
Theódóra Mathiesen, sem er með
43 punkta og er í 309. sæti listans.
Auk ofangreindu keppa hér tveir
Svíar, tveir Norðmenn, fjórir Hol-
lendingar og einn Slóvaki og Pól-
veiji. „Þetta verða sterkustu stiga-
mót sem hér hafa verið haldin. Is-
land er greinilega komið á landa-
kortið á meðal bestu skíðamanna í
Evrópu," sagði Kristinn, fram-
kvæmdastjóri SKÍ.
Fiorentina
dróst gegn
Barceíona
Inter- Mónakó í
UEFA-keppninni
BARCELONA frá Spáni mætir
Fiorentina í undanúrslitum Evrópu-
keppni bikarhafa í knattspymu og
París Saint Germain frá Frakklandi
dróst gegn Liverpool.
Barcelona hefur þrisvar sigrað í
keppninni, 1979, 1982 og 1989 og
Fiorentina hampaði bikamum þegar
fyrst var keppt um hann, 1961. PSG
er núverandi handhafi þessa Evrópu-
bikars en hann er sá eini þeirra
þriggja, sem keppt er um, sem enska
félagið hefur aldrei unnið til. Fjögur
félög hafa sigrað á öllum mótunum
þremur, Evrópukeppni meistaraliða,
keppni bikarhafa og UEFA-keppn-
inni - Ajax, Barcelona, Bayem
Miinchen og Juventus, og leikmenn
Liverpool stefna nú að því að kom-
ast í þennan úrvalsflokk.
Mílanó mætir Mónakó
Einnig var dregið í UEFA-keppn-
inni. Þar mætast annars vegar Int-
emazionale frá Mílanó og Mónakó,
sem nú er efst í frönsku deildinni
og sló Newcastle út á mjög sannfær-
andi hátt í síðustu umferð og hins
vegar Tenerife frá Spáni og Schalke
frá Þýskalandi. Inter og Tenerife
spila fyrst á heimavelli.
Meistaradeildin
Það skýrðist á miðvikudagskvöld
hveijir mætast í undanúrslitum
meistaradeildarinnar. Dortmund frá
Þýskalandi mætir ensku meisturun-
um Manchester United og núverandi
meistarar, Juventus frá Italíu, mæta
Ajax frá Hollandi, meisturunum frá
1995. í gær var hins vegar dregið
um hveijir fá heimaleikina fyrst og
það verða Dortmund og Ajax, mið-
vikudaginn 9. apríl en síðari leikimir
verða 23. apríl.
Morgunblaðið/Golli
LINDA Stefánsdóttlr úr KR er leikreynd og mlklð mun mæða á hennl f úrslltaleikjunum vlð
Grindvíkinga. Hún er hár með knöttlnn í elnum undanúrslltalelkjanna vlð ÍS á dögunum.
FYRSTI úrslitaleikurinn um ís-
landsmeistaratitilinn í körfuknatt-
leik kvenna verður í dag þegar KR,
sem varð í 2. sæti í deildinni, tekur
á móti Grindavík, sem varð í því
fjórða, í Hagaskólanum. Grindavík-
urstúlkur komu mjög á óvart með
því að sigra íslandsmeistara Kefla-
víkur í undanúrslitum og virðast
vera með öflugt lið á hárréttum
tíma. Sé miðað við úrslit leikja KR
og Grindavíkur í deildinni á KR að
hafa betur en liðið hafði betur í
öllum þremur leikjunum. Hafa ber
þó í huga að Keflavíkurstúlkur rót-
burstuðu Grindavík í leikjum þeirra
í deildinni þannig að allt getur gerst
í úrslitunum.
Penny Peppas hefur leikið vel í
liði Grindavíkur í vetur og Anna
Dís Sveinbjömsdóttir einnig, en
þessar tvær eru langstigahæstar
og líklega verða KR-ingar að hafa
góðar gætur á þeim. „Ég vona bara
að KR haldi að það sé nægilegt að
Koma
Grindvík-
ingar enn
á óvart?
gæta þeirra,“ sagði Ellert Magnús-
son þjálfari UMFG. „Ég er með
ungar stelpur sem hafa getu til að
sigra og verða íslandsmeistarar, en
þegar komið er í svona mikilvæga
leiki hefur sjálfstraustið mikið að
segja og vonandi verður það líka í
lagi hjá okkur," sagði Ellert og lof-
aði mikilli baráttu og skemmtileg-
um leikjum.
KR er með betra lið sé litið á
tölulegar upplýsingar og á að sigra,
en það er ekki alltaf nóg að eiga
að sigra, það þarf líka að gera það.
Linda Stefánsdóttir og Guðbjörg
Norðíjörð hafa verið lengi í eldlín-
unni og ekki má gleyma Helgu Þor-
valdsdóttur og Maríu Guðmunds-
dóttur auk nokkurra ungra stúlkna.
Anna María Sveinsdóttir, fyrirliði
Keflvíkinga, vonast eftir skemmti-
legum leikjum, en telur að KR eigi
að sigra. „Þetta gætu orðið
skemmtilegir og jafnir leikir. KR er
með betra lið og ég held að stelpum-
ar láti titilinn sér ekki úr greipum
ganga þegar þær eru svona nærri
honum og eru ekki að leika við okk-
ur,“ sagði Anna María í samtali við
Morgunblaðið. „Þó svo að KR hafi
unnið Grindavík í öllum leikjunum í
deildinni verða KR-stelpur þó að
passa sig á einu; þær mega ekki
vanmeta Grindvíkinga," sagði Anna
María.
KORFUKNATTLEIKUR
KNATTSPYRNA
Tvíburam-
ir hjá Ajax
til 2004
TVÍBURARNIR Ronald og Frank
de Boer verða í herbúðum hol-
lenska stórliðsins Ajax til ársins
2004, að sögn holiensku frétta-
stofunnar ANP í gæær.
Miðvallarleikmaðurinn Ronald
og Frank, sem er vamarmaður,
eru 26 ára. Þeir framlengdu
samninga sína við félagið á
fímmtudag, degi eftir að Ajax
komst í undanúrslit Evrópukeppni
meistaraliða með því að leggja
Atletico Madrid að velli á Spáni.
Bræðumir hafa verið orðaðir
við mörg erlend félög síðustu
misseri, m.a. sterklega við Arsen-
al í London, en nú er (jóst að
þeir ætla sér að vera „heima“ þar
til þeir verða 33 ára.
■ FORRÁÐAMENN enska úrvals-
deildarliðsins Nottingham Forest
vilja fá ítalska miðvallarleikmanninn
Nicola Berti, sem er 29 ára. Samn-
ingur hans við Inter Milan rennur
út í vor.
■ EVERTON hefur mikinn áhuga
á að kaupa ítalska landsliðsmanninn
Angelo Di Livio frá Evrópumeistur-
um Juventus eftir að keppnistímabil-
inu lýkur.
■ BORUSSIA Dortmund tilkynnti
í gær að samningur vamarmannsins
sterka, Jiirgens Kohlers, hefði verið
framlengdur um eitt ár og hann yrði
því hjá félaginu félaginu til vors 1999.
■ DAVID Ginola hefur farið fram
á að verða seldur frá Newcastle
United og ólíklegt er talið annað að
Kenny Dalglish, knattspymustjóri
enska liðsins, verði við þeirri bón
Frakkans.
■ ANNA María Sveinsdóttir
körfuknattleikskona í Keflavík hef-
ur ekki ákveðið endanlega hverot
hún hætti að leika með liðinu eða
ekki. I blaðinu á þriðjudaginn kom
fram að hún væri hætt, en Anna
María segist ætla að hugsa málið í
sumar fyrst liðið náði ekki í úrslitin.
■ ANNA María stefnir að því að
vera með á Smáþjóðaleikunum.
„Ef okkur tekst að sigra þar þá hef
ég unnið allt sem hægt er að vinna
hér í kvennakörfunni," sagði Anna
María.
■ GINOLA er þrítugur og hefur lít-
ið fengið að spreyta sig síðan Dalgl-
ish tók við af Kevin Keegan í vet-
ur. Mestar líkur eru nú taldar á að
hann fari til Olympique Marseille
í heimalandinu.
■ TVEIR leikmanna Liverpool
léku í stuttermabolum sem á stóð
Styðjum 500 hafnarverkamennina
sem voru reknir í leiknum gegn
Brann í Evrópukeppninni í fyrra-
kvöld. Þetta voru Steve McMana-
man og Robbie Fowler, og Iyfti
Fowler einmitt keppnistreyju sinni
til að sýna áhorfendum bolinn, eftir
að hann hafði skorað síðara mark
sitt.
■ BANNAÐ er skv. reglum UEFA,
Knattspyrnusambands Evrópu, að
viðra stjórnmálaskoðanir tengslum
við leiki og sagði talsmaður UEFA
í gær að mál Liverpool mannanna
yrði kannað.
■ FOWLER og McManaman eru
báðir innfæddir Liverpoolbúar. Sá
síðarnefndi sagðist hafa keypt bolina
og gefið Fowler annan. Umræddum
hafnarverkamönnum var sagt upp
störfum fyrir tveimur árum í borg-
inni.