Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL1997 B 9
HANDKNATTLEIKUR
Þorkell um brotið á Daða Hafþórssyni
Afsökun er efst
í mínum huga
Steinþór
Guöbjartsson
skrífar
Þorkell Guðbrandsson, leikmaður
Aftureldingar, braut gróflega
á Framaranum Daða Hafþórssyni
þegar sá síðarnefndi gerði fimmta
mark sitt og jafnaði, 10:10. Daði
kom á fleygiferð hægra megin og
skaut með vinstri; Þorkell sló með
hægri hendi í vinstri arm Daða eft-
ir að skotið reið af og fylgdi síðan
eftir með vinstri hendi í andlit mót-
heijans sem féll við. Daði lék áfram,
gerði eitt mark til viðbótar en var
ekki með eftir hié. Að sögn læknis
IMýráfangi hjá
Aftureldingu
AFTURELDING fylgdi fyrsta deild-
armeistaratitlinum eftir með því _að
tryggja sér sæti i úrslitum um ís-
landsmeistaratitilinn í fyrsta sinn en
tæpt var það. Nýliðar
Fram sýndu ótrúlega
baráttu í að því er
virtist vonlítilli stöðu
í oddaleik liðanna í
undanúrslitum að Varmá á föstudag-
inn ianga, unnu upp fjögurra marka
forystu heimamanna, gerðu þijú síð-
ustu mörkin í venjulegum leiktíma
og náðu að knýja fram framieng-
ingu. En deildarmeistararnir fögn-
uðu sigri, 31:30, eftir að staðan hafði
verið 26:26 eftir 60 mínútur og 13:12
fyrir Aftureldingu í leikhléi.
Jafnræði var með liðunum en
tvisvar urðu kaflaskipti og í bæði
skiptin hafði mikil áhrif að missa
mann útaf í tvær mínútur. Framarar
fengu tækifæri til að jafna, 18:18,
en það tókst ekki. Skömmu siðar
urðu þeir að leika einum færri og á
þeim tíma breyttu heimamenn stöð-
unni í 19:17. Þegar tæplega íjórar
og hálf mínúta voru til leiksloka var
munurinn fjögur mörk, 25:21, en í
stöðunni 26:23 og ein mínúta og 43
sekúndur til leiksloka missti Aftur-
elding mann útaf, Fram nýtti sér það
og jafnaði. í framlengingunni gat
brugðið til beggja vona en mark-
varsla Bergsveins Bergsveinssonar
ijórum mínútum fyrir leikslok vó
þungt þvi í kjölfarið skoraði Gunnar
Andrésson eftir hraðaupphlaup og
staðan 30:28, en það bil náðu Fram-
arar ekki að brúa.
Leikurinn var spennandi,
skemmtilegur og yfirleitt vel leikinn.
Auðvitað gerðu menn mistök en
óstyrkur heimamanna í lok venjulegs
leiktíma kom samt á óvart. Að öðru
leyti stóðu þeir sig vel og sama er
að segja um mótherjana. Þeir urðu
fyrir áfalli þegar Daði Hafþórsson
varð að fara meiddur af velli en sýndu
mikinn styrk. „Taugaspennan bar
menn ofurliði en það er með ólíkindum
að þetta skuli hafa gerst,“ sagði Ein-
ar Þorvarðarson, þjálfari Afturelding-
ar, við Morgunblaðið, aðspurður um
sveifluna í lokin. „Það var erfítt að
koma inn í klefa fyrir framlenginguna
en ég er ánægður með hvemig mínir
menn tóku á málunum."
SOKNARNYTING
Þriðji leikur liðanna í undanúrslita-
keppni karla, leikinn i Mosfellsbæ
föstudaginn 28. mars 1997
vm
Afturelding
Mörk Sóknir %
Fram
Mörk Sóknir %
13 21 59 F.h 12 22 54
13 24 54 S.h 14 24 58
5 7 71 Framl. 4 8 50
31 52 60 Alls 30 54 55
9 Langskot 12
5 Gegnumbrot 6
6 Hraðaupphlaup 4
2 Horn 2
3 Lína 2 ;
6 Víti 4
fékk hann vægan heilahristing. Þor-
kell, sem fékk ekki tiltal hjá dómur-
unum fyrir brotið, sagði að um al-
gjþrt óviljaverk hefði verið að ræða.
„Ég talaði við Daða í hálfleik og
bað hann afsökunar og endurtók
afsökunarbeiðnina við hann eftir
leik,“ sagði Þorkell við Morgunblað-
ið. „Þetta var algjörlega óviljandi
og leiðinlegt að svona skyldi fara.
Þeir sem vilja sjá það sjá að þetta
var ekki ásetningur. Ég var ekki
með krepptan hnefa heldur fór lóf-
inn á mér í höfuðið á Daða. Ekkert
lið ákveður að gera svona og enginn
leikmaður gerir þetta viljandi. Ég
er örvhentur og spila venjulega hin-
um megin og er því óvanur þessari
stöðu. Eg fór mjög vitlaust í hann
en ég hef þekkt Daða lengi og mér
kæmi ekki í hug að brjóta svona
viljandi á honum. Mér þykir þetta
mjög leitt vegna Fram og sérstak-
lega vegna Daða sem var yfirburða-
maður í hálfleiknum enda er efst í
mínum huga að koma frekari afsök-
un til hans.“
Svartur blettur
Guðmundur Guðmundsson, þjálf-
ari Fram, sagði að um fólskubrot
hefði verið að ræða og slíkt ætti
aldrei að líðast.
„Ég hef leikið marga leiki og séð
margt en þetta var hrikalegt. Þetta
fólskubrot var svartur blettur á
leiknum og það er óþolandi að leik-
menn komist upp með slíkt án þess
að vera refsað fyrir.“
Slys
Einar Þorvarðarson, þjálfari Aft-
ureldingar, sagði að um óviljaverk
hefði verið að ræða. „Enginn maður
gerir svona að gamni sínu og ég
veit að þetta var ekki ásetningur
heldur óviljaverk. Það er leiðinlegt
fyrir Fram að þetta skyldi gerast
því Daði var að leika mjög sterkan
leik en því miður varð þetta slys.“
Sigurdans Aftureldingar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LEIKMENN Aftureldingar stíga sigurdansinn að leikslokum, f.v., Jón Valdimarsson, Þorkell
Guðbrandsson, Sigurður Sveinsson, Kjartan Björnsson stuðningsmaður, Einar Gunnar Sigurðs-
son, Sigurjón Bjarnason, Ingimundur Helgason, Jón Andri Finnsson, ungur stuðningsmaður,
Alexei Trúfan, Gunnar Andrésson, Lárus Sigvaldason. Fyrir aftan Lárus má greina brosmildan
lækni liðsins, Ingvar Ingvarsson.
GuðmundurGuðmundsson, þjálfari Fram, ánægður með sína menn
Ég er mjög stoltur
Framarar sigruðu í 2. deild í
fyrra og voru hársbreidd frá
því að leika til úrslita um íslands-
meistaratitilinn í ár. „Það er alltaf
sárt að tapa, sérstaklega þegar
komið er þetta langt, en liðið hefur
ekki verið lengi í mótun og á heil-
mikið inni þegar litið er til framtíð-
ar,“ sagði Guðmundur Guðmunds-
son, þjálfari Fram, við Morgun-
blaðið eftir tapið að Varmá í odda-
leik undanúrslitanna.
Ekki er á allra færi að vinna
upp fjögur mörk í oddaleik í úr-
slitakeppni, hvað þá þriggja
marka mun á síðustu tveimur
mínútum venjulegs leiktíma og
knýja þannig fram framlengingu,
en þetta gerðu Framarar.
„Þetta var mjög gott hjá strák-
unum,“ sagði Guðmundur. „Það
hafði mikið að segja að missa
Daða því hann var ógnandi og
lykilmaður í vöm og sókn. Við
þurftum að raða brotunum saman
og útkoman var eins góð og hægt
var að búast við. Hafa ber í huga
að við höfum leikið 10 leiki á 26
dögum og leikmennirnir hafa ekki
rnikla reynslu. Eins er breiddin
ekki eins mikil hjá okkur og Aftur-
eldingu og því mæddi mikið á ein-
staka mönnum en ég er stoltur
af frammistöðunni.“
Guðmundur, sem þjálfaði lið
Aftureldingar áður en hann tók
við stjóminni hjá Fram, sagði að
þrátt fyrir tapið gætu Framarar
borið höfuðið hátt. „Liðið hefur
vaxið með hveijum leik og
ánægjulegt hefur verið að sjá og
finna fyrir stuðningi Framara sem
hefur aukist með hveijum leik.
Stuðningsmennimir hafa staðið
þétt við bakið á okkur en leik-
mennirnir hafa líka staðið sig eins
og hetjur í vetur og einkum og
sér í lagi í úrslitakeppninni."
Þjálfarar úrslitaliða Aftureldingar og KA varkárir fyrir lokarimmuna
Nýr íslandsmeistarí
verður krýndur
Fyrsti leikur Aftureldingar og
KA í rimmunni um Islands-
meistaratitilinn verður að Varmá
sunnudaginn 6. apríl. Liðin mætast
síðan á Akureyri þriðjudaginn 8.
apríl og þriðji leikurinn verður að
Varmá tveimur dögum síðar. Komi
til fjórða leiks verður hann á Akur-
eyri laugardaginn 12. apríl og verði
enn jafnt verður hreinn úrslitaleikur
að Varmá þriðjudaginn 15. apríl.
Hvorugt liðið hefur orðið íslands-
meistari en KA leikur til úrslita
þriðja árið í röð og þetta verður
frumraun Aftureldingar á þessu
sviði.
SOKNARNYTING
Annar leikur liðanna í undanúrslita-
keppni karla, leikinn á Akureyri
fimmtudaginn 27. mars 1997
KA
Mörk Sóknir %
Haukar
Mörk Sóknir %
9 25 36 F.h 10 26 38
14 21 67 S.h 13 21 62
7 7 100 Framl. 4 6 67
30 53 57 Alls 27 53 51
10 Langskot 13
5 Gegnumbrot 2
3 Hraðaupphlaup 2
4 Horn 2
4 Lína 5 :
4 Víti 3
SOKNARNYTING
Þriðji leikur liðanna í undanúrslita-
keppni karla, leikinn í Hafnarfirði
laugardaginn 29. mars 1997.
Haukar
Mörk Sóknir %
KA
Mörk Sóknir %
11 26 42 F.h 15 25 60
15 30 50 S.h 12 30 40
26 56 46 Alls 27 55 49
6 Langskot 8
4 Gegnumbrot 5
6 Hraðaupphlaup 4
6 Horn 4
1 Lína 1 1
3 Víti 5
Heimavöllurinn mikilvægur
„Þetta verður mjög erfitt,“ sagði
Einar Þorvarðarson, þjálfari Aftur-
eldingar, aðspurður um komandi
átök. „KA-menn hafa meiri reynslu
en við á þessu sviði, eru með góðan
heimavöll og mjög gott lið. Allir
leikirnir í undanúrslitum voru geysi-
lega spennandi og ég held að spenn-
an eigi enn eftir að magnast. Ég
hlakka til þessara viðureigna og
vona að þær verði handboltanum
til framdráttar. Ekkert má út af
bregða en heimavöllurinn getur
skipt miklu máli.“
Alfreð Gíslason, þjálfari og leik-
maður KA, tók í sama streng.
„Heimavöllurinn getur skipt sköp-
um og þar sem Afturelding á heima-
leikjaréttinn getur þetta orðið mjög
erfitt fyrir okkur. Liðið er frábært
og verðskuldaði að verða deildar-
meistari en við getum ekki annað
gert en einbeitt okkur að einum
leik í einu.“
Enginn saddur
Afturelding varð deildarmeistari
í fyrsta sinn og leikur í fyrsta sinn
til úrslita um íslandsmeistaratitil-
inn. Margir sættu sig við minna í
einum bita en Einar sagði að
draumur allra væri að leika til úr-
slita og sigra og næsta skref væri
að einbeita sér að því.
„Ég hef enga trú á því að menn
séu saddir en ef svo er er það mitt
hlutverk að koma þeirri hugsun í
burtu. Menn hafa lagt mikið á sig,
unnið fyrir því að komast í úrsiit
og illa er farið með tækifærið ef
menn kasta því frá sér loks þegar
það gefst.“
Draumur Alfreös
Þegar Alfreð tók við stjórninni
hjá KA fyrir tæplega sex árum
sagði hann að draumurinn væri að
gera KA að íslandsmeistara. Liðið
var í öðru sæti undanfarin tvö ár
og það er nú eða aldrei fyrir leik-
manninn og þjálfarann sem tekur
við stjórninni hjá Hameln í Þýska-
landi í sumar.
„Ekkert annað en sigur kemur
til greina hjá okkur. Ánægjulegast
væri að sjá drauminn rætast á
Akureyri en ég þægi líka meistara-
titilinn á útivelli."