Morgunblaðið - 04.04.1997, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 04.04.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997 B 5 DAGLEGT LÍF i menntunarþrá? Cr sagnfræðin að breytast? *Hafa roru betri bændur á móti mennt- •æðslumálum? • Hvað upplýsa ar? • Hvað er einsaga? Dauðinn HUGUM að því hvernig Halldór leit dauðann eins og það kemur fyrir sjónir í dagbókunum. I yfir- liti hans yfir árið 1909 kemur með- al annars eftirfarandi fram: Heilsufar fólks hjer hefur ekki verið rjett gott. Kíghósti gekk hjer í börnum og barnaveiki stakk sjer niður, dó þó ekkert úr því. Kvef- samt hefur líka verið með meira móti. Bijálsemi á fólki var líka óvenju mikil (Finnbogi í Arnkötlud- al varð svo um tíma að slá varð utanum hann. Ragnheiður, vinnu- kona á Hrófá varð brjáluð um tíma uppúr barnaveiki Guðrún kona í Heiðarbæ sömul. eptir barnsburð. Jónína á Hvalsá). Fullorðnir sem dóu hjer í hreppi voru: Elín Jóns- dóttir unglingsstúlka á Heydalsá dó úr tæring 18. febr. Ingibjörg Markúsdóttir miðaldra kvenmað- ur, hafði verið brjáluð yfir 20 ár, sveitarómagi með 200 kr. meðlagi, hún dó 3 maí. — Jónína G. Jónsdótt- ir vinnukona um 25 ára á Hvalsá dó 31. maí, lá lengi. Þórður Jónsson unglingsmaður á Heydalsá, hafði lengi verið veikur, af magnleysi. Fjekk krampa, dó 26. des. Helga Jónsdóttir, sem lengi var í Gests- staðaseli, nú á Kirkjubóli orðin gömul og farlama aumingi dó á gamlársdag. Grímur Jónsson á Heydalsá, barn á 8 ári mesti aum- ingi alla stund; og flogaveikur, dó 30. des. Börn hafa dáið 2 og 3 í hreppnum þ.á. önnur, kornung. Síðasta setningin vekur sérstaka athygli, það er hvernig hann flokk- ar ungabörn. í huga Halldórs er engu líkara en að þau hafi ekki talist fullgildir einstaklingar fyrr en þau hafa sannað og sýnt að þau næðu að þrauka þorrann og góuna. Dauðinn krafðist þess að einstakl- ingar gerðu tilraun til að vernda sig fyrir öllum þeim áföllum sem helltust yfir þá og þar var sannar- lega langlíklegast að slík áf öll hentu þau yngstu. Halldór telur því þennan hóp varla með þegar hann gefur yfirlit yfir þá sem féllu frá á árinu. * Astin NIELS skildi að efnahagsleg gæði væru undirstaða hagsældar. Fá- tæktin blasti við honum í hverju fótmáli og það sem merkilegt verð- ur að teljast, er að hann skuli hafa séð í hendi sér að hagnýt menntun gæti snúið hamingjuhjólinu á rétta braut. Smíðanám var lausnin. Hann er ekki að skafa utan af hlutunum þegar hann lítur til fram- tíðarinnar og heldur þrumandi ræð- ur yfir konuefninu. í þessum ræð- um, sem hann skeytir á milli fagurg- alans, eggjar hann Guðrúnu lög- eggjan og setur stöðu þeirra í sam- hengi tíma og rúms. í bréfi frá þessu sama tímabili kemur til dæm- is eftirfarandi fram: [... ] þetta er mín daglega vinna, og ekki annað, jeg hef aldrei átt aðra eins frítíma og vildi jeg feginn geta notað þá sem bezt, því tíminn er dírmætur, sje honum vel varið, og guð gleðji þig og stirkji í þínu fyrir træki, því nú vinnum við bæði það sama, að auðga sálina, og það er það dírmætasta, og yndælasta, því svo er lífinu varið, að maður má minnstan tímann brúka til slíks, nema við og við, og þá nýtur maður ávaxtanna af yðni sinni og (velbrúk- un) tímans, með gleði yfir því að hafa brúkað hann vel, og varið hon- um betur en þessi, eða þessi, sem hægt er að sjá til saman burðar eptir ástæðum, því margir gá ekki að því að tíminn flýgur eins og ör, og ætla sjer einlægt að gjöra mikið þá og þá, en sú stund kemur aldr- ei, þeir eru svo vanir við að tíminn Hði án þess að birja á því að þeir geta ekki annað enn dregið það, en ekki fleikt frá sjer þessu móki, þessu bölfaða ætlunar móki! og deyja svo þýðingarlausir limir á þjóðlíkamanum eða þjóðar heild- inni. Æ guð styrki okkur í fyrirtækj- um okkar, og þá von hef jeg að við eigum gleðilega framtíð fyrir hönd- um elskulega hjartans unnusta! jeg vann glaður fyrir mig og lifi í þeirri von að þú einnig getir verið glöð, og notið þín og tímans þessa góðu stund. SKÁPUR sem Níels smíðaði og Halldór samdi ljóð um. Hann er geymdur á Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði. MIÐDALSGRÖF sem Halidór Jónsson byggði í Kirkjubólshreppi. Mig langcði til að læra þegar jeg var á æskuárunum en þótti leiðin erfið, eða hjelt hún mundi verða það, f átæktar vegna, sá líka eptir að fara f rá f öður mínum og bræðrum meðan þess var kostur. Svo þegar jeg komst í sjálfsmennskuna, þóttist jeg ofgamall til þess að byrja nám, og ekki heldur nógu stefnufastur. Varð svo ekki neitt úr neinu. Halldór Jónsson PERSÓNULEGAR heimildir. Handrit Halldórs og Níelsar; dagbækur, bréf, ljóðauppskriftir og samtíningsbækur. voru þeirra grunnskóli og jafnvel ástin var skilyrt af menntuninni, því í bréfum Níelsar til Guðrúnar ástmeyjar sinnar kemur ljóslega fram að samband þeirra standi og falli eftir því hvort þráin til mennta lifí með þeim báðum eða ekki. En hvað hélt menntunaráhuga þeirra bræðra lifandi þegar árin liðu? Menntun von sorgarinnar Sigurður Gylfi leitar fanga í rannsóknum sínum á dauðanum. „Börn sem ólust upp á nítjándu öld þurftu mörg hver að horfa á eftir foreldrum sínum eða systkinum yfir móðuna miklu auk þess sem þeim var haldið stíft að vinnu,“ segir hann. „Ótímabær dauðsföll, til dæmis af völdum sjúkdóma og slysa, voru nánast árviss viðburður sem hver maður upplifði á nítjándu öldinni og fram á þá tuttugustu.“ Halldór og Níels upplifðu djúpa sorg við fráfall ættingja, en þeir hömdu hana eins og kostur var af illri nauðsyn. „Sorgina varð að hemja með góðu eða illu, að öðrum kosti var hætta á að fólk missti algjörlega tökin á lífi sínu.“ Sigurður telur að vonin til að sigra dauðann með því að bæta ástandið hafí falist í að sækjast eftir menntun til að bæta hag sjálfs sín og þjóðfélagsins í heild. Bjartari framtíð í augum Halldórs og Níelsar fólst í menntun. „Menntun var því nokkurs konar lykill að möguleikum þeirra bræðra og vonum í sorg og gleði.“ Menntun var hins vegar stórmál sem krafðist sterkrar efna- hagslegrar stöðu eða bakhjarls sem fæstir meðalbændur höfðu. „Halldór og Níels áttu því litla sem enga möguleika á að afla sér formlegrar menntunar," segir Sigurður Gylfí „en þrátt fyrir það héldu bræðurnir áfram að láta sig dreyma." Markmið bræðranna náðust ekki, þeir höfðu svarað kalli tímans en stjórnvöld brugðust. Menntunaráhuginn logaði meðal Strandamanna og löngunin eftir framsæknum verkefnum var sterk en hið opinbera svaraði ekki ákallinu. Dagbækur alþýðu og sannleikurlnn Kenningar Sigurðar Gylfa Magnússonar snerta grundvöll íslenskrar alþýðumenningar og kalla á áframhaldandi einsögurannsóknir, bæði til að veita skýrari innsýn í íslenska sveitasamfélagið og til að rekja ýmsar ranghugmyndir sem núna lifa með þjóðinni. Lög, opinber umræða og dagbækur alþýðunnar sýna hver sína hlið á sögu fræðslunnar á íslandi og heildarmyndin fæst ekki að mati Sigurðar nema með því að rannsaka bæði smáar og stórar einingar. Það er niðurstaðan. ■ Bjarnar- fjörbur Drangsnes ur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.