Morgunblaðið - 04.04.1997, Síða 7

Morgunblaðið - 04.04.1997, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997 B 7 DAGLEGT LÍF Sviðsett mynd/Ásdís NÆR einum af hverjum þremur er hótað ofbeldi. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að þeir sem beita ofbeldi eigi frekar í vandræðum á öðrum sviðum. „Það getur til dæmis átt við afbrot og vímuefnaneyslu. Því oftar sem unglingar hafa brotist inn til að stela, því líklegri eru þeir til að hafa beitt ofbeldi." Þórólfur og Jón Gunnar segja að vinahópur hafi greinileg áhrif og unglingar séu líklegri til að beita ofbeldi eftir því sem fleiri vinir neyta áfengis eða annarra vímuefna. Enn- fremur að líklegra sé að unglingar beiti ofbeldi eftir því sem vinir þeirra verða oftar fómarlömb ofbeldis. Þeir segja að niðurstöður þeirra styðji fyrri rannsóknir. „Stuðningur foreldra skiptir unglinga vemlegu máli og beita þeir síður ofbeldi sem eiga auðvelt með að fá hlýju og umhyggju hjá foreldrum sínum. Hinum ofbeldishneigðu gengur að öllu jöfnu verr í skóla en hinum og sömuleiðis skrópa þeir frekar. Rannsókn okkar gefur margar vísbendingar um umfang og eðli ofbeldis meðal íslenskra unglinga og vekur jafnframt upp margar spurningar. Hægt er að nýta niður- stöðurnar í rannsóknum á ofbeldi í framtíðinni og til dæmis væri æski- legt að vita meira um alvarleika, svo sem áverka og vanlíðan, af völdum ofbeldis. Einnig væri fróð- legt að kanna betur tengsl gerenda og þolenda. Erlendar rannsóknir hafa sýnt að margir þeirra unglinga sem beita ofbeldi hafa sætt mis- notkun í æsku og þvi er brýnt að kanna hversu algeng slík misnotkun er hér á landi og hvort reynsla af henni tengist ofbeldishegðun síðar á lífsleiðinni. Niðurstöður okkar og niðurstöður erlendra rannsókna benda til þess að ofbeldi meðal unglinga sé ekki einangrað fyrir- bæri, heldur eigi það sér flóknar rætur sem teygja anga sína í sjálf- sprottna menningu, lífstíl unga fólksins og hefðbundnar stofnanir samfélagsins." ■ Brynja Tomer I EF MAÐUR snýr að brekkunni þarf þunginn að hvíla á tánum. RÚNAR segir mikilvægt að festa bindingarnar vel svo þær veiti góðan stuðning. Morgunblaðið/Halldór AÐALHEIÐUR í miðri beygju. Erfiðast er að ná valdi á því að beygja. MEÐ AUGUM LANDANS Rafmagnið og myrkrið W Arna Garðarsdóttir og eiginmaður hennar Jónas Tryggvason búa ásamt dóttur sinni Jóhönnu Rakel við nám og störf í Seattle. GLöGGT er gests aug- að var einhverntíma sagt. Það eru orð að ^ sönnu, a.m.k fyrsta Ý mánuðinn sem maður L . J dvelur í nýju landi. Síðan hættir manni til L að verða alveg sam- <dauna unhverfinu og hætta að taka eftir því sem truflaði í upphafi. Það eru sérstaklega þrír hlutir sem strax Mvöktu athygli mína hér í Seattle. I fyrsta lagi voru það allar raf- magnslínurnar, í öðru Y lag'i myrkrið og í þriðja | fg ) lagi vatnsbólin. Einhvernveginn átti ég von á að það væri búið að grafa rafmagns- og síma- línur niður hér í landi allsnægt- anna meira en gert hefur verið. Að hveiju húsi liggja minnst þrjár línur ef ekki fleiri og í hvern staur eru tengd fjögur hús þann- ig að víra flækjan er töluverð og sjónmengunin alveg hræðileg. Þegar spurt er hvers vegna í ósköpunum línurnar séu ekki hafðar neðanjarðar er svarið „Það kostar svo mikið að grafa þetta allt niður.“ En í hvert skipti sem vindur fer yfir 5 vindstig eða snjór fellur eina nótt þá hafa einhver af þessum himinháu tijám fallið og síma- eða raf- magnslínur og sjónvarpslínur slitnað. Það hefur gerst a.m.k fjórum eða fimm sinnum á þess- um vetri að borgarhlutar hafa verið síma- og rafmagnslausir svo ekki sé minnst á sjónvarps- leysið þegar kapalkerfið verður fyrir áfalli af örlitlum vindi eða smá-logndrífu eins og þeirri sem setti hér allt á annan endann yfir síðustu jól og áramót. Það er líka annað skondið við síma- og rafmagnslinurnar: í bestu eða réttara sagt dýrustu hverfunum er búið að grafa þær allar niður. Engin sjónmengun þar enda borgar fólk afskaplega hátt verð fyrir húsnæðið og hugs- anlega er þetta eitt af því sem er innifalið í verðinu - engar rafmagnslínur takk. Myrkrið er svo sérkapítuli. Aldrei hefur íslendingurinn fund- ið fyrir jafnmiklu skammdegi og við að flytja burt frá íslandi. Hér í Seattle er mikill sígrænn tijá- gróður (enda er fylkið kallað „The Evergreen State“) og rign- ing er fullalgeng yfir vetrarmán- uðina. Hvort tveggja hjálpar til við að gera myrkrið enn svart- ara. En það sem skiptir hér mestu er að götulýsingin er svo miklu minni en maður á að venj- ast frá Islandi. Það liggur mal- bikaður göngu- og hjólastígur gegnum hálfa borgina og yfír í næstu byggðarlög. Stigurinn sem kallast „The Burke Gilman Trail“ er geysilega mikið notaður af hjólreiðafólki jafnt sem gang- andi og hlaupandi fólki, enda bæði friðsæll og fagur. Við stíg- inn er þó ekki einn einasti ljósa- staur og myrkrið svo svart að vegfarendur sjá ekki handa sinna skil. Svo furðar fólk sig á því að glæpir séu tíðir í Bandaríkjun- um. Það hjálpar ekki að hafa algengar samgönguleiðir óupp- lýstar. Eins og allir Íslendingar vita er besta vatn í veröldinni á ís- landi. Hér er hægt að kaupa gott vatn úti í búð, en úr krönum rennur klórblandað vatn sem er eiginlega ódrekkandi. Það má í besta falli bursta tennurnar úr þvi og jafnvel laga sér te. Það má svo sem öllu venjast og heimamönnum þykir ekki til- tökumál að drekka vatnið beint úr krananum. í Seattle eru nokkur opin vatnsból þar sem yfirborðsvatni er safnað saman. Þar er vatnið hreinsað og síðan sent út í vatn- skerfi borgarinnar. Miðað við þessar einföldu aðferðir er vatnið hér ótrúlega dýrt. Hvert heimili borgar fjórum sinnum fyrir hvert gallon af vatni sem kemur úr krana eða klósettkassa. Fyrst er greitt einfalt verð fyrir vatnið sem kemur inn í húsið og síðan þrefalt verð fyrir frárennslið sem er áætlað sama magn og kemur inn. Enda kemur verðlagið greinilega í ljós á sumrin þegar þurrkur er mikill. Þá skrælnar grasið í görðum því margir hafa hreinlega ekki efni á því að vökva flötinn. Svona geta einföldustu hlutir komið á óvart í landinu þar sem allt er til alls. ■ HÚSBÁTAR við Lake Union í Seattle.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.