Morgunblaðið - 08.04.1997, Page 1

Morgunblaðið - 08.04.1997, Page 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 8. apríl 1997 Blað C Minni vanskil HÚSBREFAKERFIÐ hefur ekki sligað heimilin í landinu, segir Grétar J. Guðmundsson í þættin- um Markaðurinn. Vanskil af lán- um Húsnæðisstofnunar hafa far- ið minnkandi, enda þótt íjöldi þeirra, sem eiga í erfiðleikum, sé engu að síður allt of mikill. / 2 ► Stúdenta garður í síðustu viku var tekin fyrsta skóflustungan að nýjum stúd- entagarði, sem rísa á við Suður- götu. í byggingunni verða 76 einstaklingsíbúðir. Henni hefur verið gefið nafnið Skerjagarð- ur, en bygginguna á að taka í notkun haustið 1998. / 30 ► Sumarbú- staðir IARKAÐURINN fyrir sumarliús hefur tekið seinna við sér að þessu sinni en oft áður, sennilega út af kaldri tíð að undanförnu. En framboð á notuðum sumarhús- um er nú töluvert og markað- urinn hagstæður fyrir kaup- endur. Húsin eru að sjálfsögðu mjög mismunandi að gerð og stærð og misjafnt, hvað í þau er bor- ið, enda fer verð þeirra eftir því. Góð og gróin lóð á eftir- sóttum stað skiptir líka máli. í flestum nýjum sumarhúsum eru rafmagn og heitt vatn sjálf- sagðir hlutir. Þegar svo er komið, er hægt að vera í þeim allt árið og varla réttnefni lengur að kalla þau sumarhús. Verð á góðum sumarhúsum er ekki undir 4-5 millj. krónum, en það er til mikið af húsum, sem fullnægja ekki nútímakröfum um að húsin sé heilsárshús og þau eru þar af leiðandi ódýrari. Við greiðslu kaupverðs er engin ákveðin regla til. Stund- um eru þau greidd út í hönd, en algengt að borga vel helming á árinu og afganginn með veð- skuldabréfí til einhvers tíma. Alls konar eignaskipti eru Ifka til og bflar jafnvel teknir upp í kaupverðið. „Ég spái því, að sumarhúsa- markaðurinn í ár verði keim- líkur því, sem var í fyrra,“ seg- ir Magnús Leópoldsson hjá Fasteignamiðstöðinni, en þar eru yfir 80 sumarhús á sölu- skrá. „Það er mikið framboð á notuðum bústöðum og ekki vafamál, að það er hagstæðara að kaupa frekar en að fá lóð og byggja nýtt hús.“ / 18 ► Verð á íbúðarhúsnæði leitar upp á við AÐ undanförnu hefur fasteignaverð leitað upp á við og í febrúar var það 2% hæiTa en í lok síðasta árs. Þó er of snemmt að draga þá ályktun, að fasteignaverð muni hækka að marki á næstunni. Kemur þetta fram í ný- útkomunum Hagvísum, sem gefnir eru út af Þjóðhagsstofnun. Það þarf ekki að koma á óvart, þó að verð á íbúðarhúsnæði fari hækk- andi. Þegar litið er til baka nokkur ár aftur í tímann, sést að á nýjum íbúð- um hefur í raun orðið verðlækkun, þar sem verðhækkun á þeim hefur ekki haldizt í hendur við hækkanir á byggingarvísitölu. Þannig hækkaði byggingarvísitalan um 33% frá því í febrúar 1990 þar til í febrúar 1997, en verð á nýjum íbúðum hækkaði hvergi nærri að sama skapi. Astæðan var m. a. sú, að á samdráttar- árunum jókst samkeppnin milli bygg- ingaraðilanna til muna og þeir lögðu sig sem mest fram við að byggja ódýr- ari íbúðir, án þess að láta það bitna um of á gæðum. Þetta var nauðsynlegt til þess að koma til móts við kröfur mark- aðarins. Framboð á nýju íbúðarhúsnæði var líka mikið miðað við eftirspum og það hafði sín áhrif til lækkunar á verði og þá sérstaklega á verði nýrra íbúða í fjölbýlishúsum, þó að það næði að einhverju leyti líka til sérbýl- is, það er einbýlishúsa, raðhúsa og parhúsa. Það hefur því verið hagkvæmt að kaupa nýtt íbúðarhúsnæði á síðustu árum og verðið hagstætt miðað við kaup á notuðu húsnæði, þar sem verðbilið á milli nýs og notaðs hefur verið minna en oftast áður. Þetta hef- ur að sjálfsögðu haft áhrif til lækkun- ar á eldra húsnæði, ef eitthvað er. Þegar litið er á markaðinn nú, virðist sem meiri jöfnuður hafi náðst milli eftirspurnar og framboðs á flestum stærðum og gerðum íbúðar- húsnæðis. Það má örugglega þakka betra efnahagsástandi og góðum horfum á því sviði. Þetta hefur komið greinilega fram í nýjum hverfum eins og Víkurhverfí í Reykjavík, en þar hefur gengið mjög vel að selja og þá sérstaklega sérbýlið. Þrátt fyrir þetta er óvarlegt að gera ráð fyrir miklum verðhækkun- um á íbúðarhúsnæði á næstunni, en samt líklegt, að verðið leiti eitthvað upp á við. Húsnæðisverð í fjölbýl á höfuðborgarsvæðinu 1994-97 Meðalverð á hvern fermetra, 108 106 iúlí. 104. 102,5 1 996 ’97 Það borgar sig að gera verðsamanburð! Kaupgengi Húsbréfa er mismunandi eftir fjármálastofnunum. Fjárvangur keppist við að bjóða besta kaupgengið og staðgreiðir Húsbréfin samdægurs. Ráðgjafar Fjárvangs veita allar upplýsingar um kaupgengi Húsbréfa. Hærra kaupgengi þýðir hærra verð fyrir Húsbréfin þín. [Ili•’ FJÁRVANGUR LÖGEin VEnOBRtLAFYRIRT/EKI Fjárvangur hf., löggilt verðbréfafyrirtæki, Laugavegi 170, 105 Reykjavík, sími 5 40 50 60, slmbréf 5 40 50 61, www.fjarvangur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.