Morgunblaðið - 08.04.1997, Page 2

Morgunblaðið - 08.04.1997, Page 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ Fasteigna- sölur í blaðinu í dag Borgir bls. 3 Skeifan bls. 4 Agnar Gústafsson bls. 5 Óðal bls. 5 Fasteignamarkaðurinn bls. 6 Berg bls. 7 Fjárfesting bls. 7 Fasts. Rvíkur og Huginn bls. 8 Borgareign bls. 8 Kjörbýli bls. 9 Hátún bls. 9 Hóll Hafnarfirði bls. 10 Húsakaup bls. 11 Gimli bls. 12 Húsvangur bls. 13 Fold bis. 14-15 Frón bls. 15 Ásbyrgi bls. 16 Eignamiðlunin bis. 16-17 Stakfell bls. 19 Vagn Jónsson bls. 19 H-Gæði bls. 20 íbúð bls. 20 Hraunhamar bls. 21 Fasteignamiðlunin bls. 22 Lyngvík bls. 22 Garður bls. 22 Valhöll bls. 23 Bifröst bls. 24 Hóll bis. 25-26 Laufás bls. 26 Miðborg bls. 27 Valhús bls. 28 Ás bls. 29 Framtíðin bls. 31 Eignasalan bls. 31 Almenna fasteignasalan bls. 31 Kjöreign bls. 32 VELJIÐ FASTEIGN rf= Félag Fasteignasala Betri staða en haldið var Markaðurinn Húsbréfakerfíð hefur staðið undir væntingum, segir Grétar J. Guðmundsson, rekstrarstjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins. Það hefur aukið öryggi í húsnæðismálum. EINS og við var að búast hafa fasteignaviðskipti verið með minna móti að undanfömu. Þetta er eðli- legt og í fullu samræmi við þá óvissu sem verið hefur á vinnu- markaði. Sú óvissa hefur að sjálf- sögðu áhrif á möguleika fólks til íbúðarkaupa. Hins vegar má gera ráð fyrir að fasteignaviðskipti aukist þegar um hægist aftur og kjarasamningar verða afstaðnir. Líklegt er að við- skiptin verði þá jafnvel töluvert meiri en við eðlilegar kringumstæð- ur. Það er eðli þessa markaðar að bregðast við ytri aðstæðum. Ovissa dregur úr fasteignavið- skiptum en þau eru lífleg þegar vel árar. Þá hefur það sýnt sig að viðskiptin safnast upp ef dregur úr þeim um ákveðinn tíma. Fast- eignamarkaðurinn er jú eitt gleggsta dæmið um hvernig fram- boð og eftirspurn ræður för í við- skiptum. Húsbréfakerfið bregst við ytri aðstæðum á samsvarandi hátt. Það dregst saman og þenst út í samræmi við aðstæður á vinnumarkaði og í samræmi við skuldastöðu heimilanna og greiðslugetu þeirra. Þannig var í upphafi gert ráð fyrir að húsbréfa- kerfið virkaði og fullyrða má að það hafi gengið eftir. Skuldastaða heimilanna Nýlega voru birtar niðurstöður í úttekt sem Seðlabankinn gerði á skuldastöðu heimilanna. Margt at- hyglisvert kemur þar fram eins og við er að búast. Sérstök ástæða er þó til að benda á, að niðurstöðurn- ar miðast við skuldastöðu heimil- anna eins og hún var í árslok 1994. Þetta eru því rúmlega tveggja ára gamlar upplýsingar. Þrátt fyrir það eru þær að ýmsu leyti merkilegar. Haft hefur verið eftir mönnum, að niðurstöðurnar komi nokkuð á óvart fyrir þær sakir, að staða HÚSNÆÐIÐ er 68 ferm. og er I Listhúsinu í Laugardal. Það er til sölu hjá Fróni og ásett verð er 8,5 millj. kr. Atvinnuhúsnæði í Laugardal HJÁ fasteignasölunni Fróni er til sölu 68 ferm. atvinnuhúsnæði í List- húsinu að Engjateig 17 í Laugar- dal. Húsnæðið er á 1. hæð hússins og í enda þess. „Þessu húsnæði fylgir að auki 22 ferm. aðstaða í kjallara, sem tengist húsnæðinu á fyrstu hæðinni með hringstiga," sagði Viðar Örn Hauks- son hjá Fróni. „Á hæðinni er gegn- heilt parket á gólfum, hátt til lofts og gluggar stórir og birta því góð. Húsnæðið hefur verið notað undir framköllunarfyrirtæki. Útgengt er úr því á tvo vegu, annars vegar út á góða verönd og hins vegar á aðal- útgangi. I þessu húsi eru mörg fyrirtæki og við það er skemmtilegt hringtorg og faliegt umhverfí. Staðsetningin er mjög góð og aðkoman þægiieg. Húsnæðið gæti hentað vel sem skrifstofa, tannlæknastofa, teikni- stofa, verslun eða íbúð með vinnu- aðstöðu. Ásett verð er 8,5 millj. kr., en áhvílandi er langtímalán að upphæð 4,8 millj. kr. 'Fasteignalán Landsbréfa til allt að 25 ára Vextir af lánunum eru á bilinu 6,75 til 8,25%. Lánin henta t.d. þeim sem vilja skuldbreyta eldri lánum, kaupa stærri eignir eða vilja taka lán til framkvæmda. g Ráðgjafar Landsbréfa hf. veita allar frekari upplýsingar LANPSBREF HF. SUÐURLANDSBRAUT 2 4, 1 0 8 REYKJAVIK. SIMI 5 3 5 2 0 0 0, BREFASIMI 5 3 5 2 0 0 1 heimilanna sé jafnvel betri en menn áttu von á. Þær þurfa þó ekki að koma svo ýkja mikið á óvart. Um er að ræða meðaltöl sem ná jafnt til hinna verst settu í þjóðfélaginu sem og hinna sem hafa það betra, reyndar með margvíslegum sund- urliðunum. Það villir mönnum nefnilega stundum sýn, þegar verið er að fjalla um þessi mál, ef horft er á afmarkaða þætti þeirra. Vissulega tekst langstærstum hluta fjöl- skyldna að standa í skilum með afborganir af lánum sínum án þess að lenda í erfiðleikum. Það er ekk- ert nýtt. Þannig hefur það alltaf verið. Það breytir því þó ekki að fjöldi þeirra sem voru í erfiðleikum á áramótum 1994/1995 var tölu- verður, eða um 15 þúsund fjöl- skyldur samkvæmt úttekt Seðla- bankans. Húsnæðismál Frá sjónarhóli húsnæðismála er það kannski athyglisverðast við niðurstöðurnar í skýrslu Seðla- bankans, að áhyggjur sem menn höfðu fyrir einu eða tveimur árum af því, að húsbréfakerfið væri að sliga heimilin í landinu, voru óþarf- ar. Skýrslan staðfestir þess í stað, að húsbréfakerfið hefur fullkom- lega staðið undir þeim væntingum sem til þess voru gerðar. Það hefur aukið öryggi í húsnæðismálum og það hefur orðið til að auðvelda íbúð- arkaup á hinum almenna markaði svo að um munar. Skil af lánum Húsnæðisstofnun- ar hafa farið batnandi. Þau voru lægst einmitt á þeim tíma sem skýrsla Seðlabankans nær til, þ.e. í árslok 1994, en þá voru um 87% af skuldurum við sjóði stofnunar- innar í skilum. Á síðustu áramótum voru hins vegar um 90% skuldara í skilum. Auðvitað er það rétt, að staðan í skuldamálum heimilanna er ekki eins slæm og stundum mætti halda af umræðum að dæma. Fjöldi þeirra sem eru í erfiðleikum er engu að síður allt of mikill. Mikil- vægt er að þeir sem væntanlega fara út á fasteignamarkaðinn á næstunni, þegar kjarasamningum verður lokið, fari að öllu með gát, notfæri sér þá þjónustu sem boðið er upp í í bankakerfinu þar sem greiðslumatið er, og fylgist vel með þróun á verðbréfamarkaði. Hætt er við að ávöxtunarkrafa húsbréfa fari hækkandi ef út- streymið verður óeðlilega mikið í kjölfar mjög líflegra fasteignavið- skipta, sem gera má ráð fyrir. Rétt viðbrögð markaðarins þá verða að hægja á. FJÖLBÝLISHÚSIÐ stendur við Fífulind 1-3 í Kópavogi. íbúðirnar eru ýmist 3ja eða 4ra herbergja og allar með sér inngangi. Af- hending íbúðanna fer fram í júlí nk., en þær eru til sölu hjá Fasteignamiðlun Sverris Kristjánssonar. i \ IMýjar íbúðir á góðu verði HJÁ Fasteignamiðlun Sverris Krist- jánssonar eru til sölu íbúðir í nýju fjölbýlishúsi að Fífulind 1-3 í Kópa- vogi. Þær eru þriggja og fjögurra herbergja og allar með sér inn- gangi. Afhending íbúðanna fer fram í júlí nk. Byggingaraðili er Mótel ehf., en húsið er hannað á teiknistofu Leifs Sveinssonar. „Þetta er vandað og vel byggt hús og í því eru góðar íbúðir á góðu verði,“ sagði Þór Þorgeirsson sölumaður, en húsinu verður skilað fullmáluðu að utan með fullfrá- genginni lóð og bílastæðum. Ollum íbúðunum í húsunum fylgir fullbúin sameign og baðherbergi fullfrá- gengin. Stórar suðursvalir eru á öllum íbúðunum. „Þarna eru fjórar 3ja herbergja íbúðir til sölu,“ sagði Þór ennfrem- ur. „Þær eru tæpir 86 ferm. að stærð og eru afhentar fullbúnar án gólfefna og kosta þá 7,7 millj. kr. I húsinu eru ennfremur til sölu sex 4ra herbergja íbúðir, en þær eru 104 ferm. að stærð og eiga að kosta 8,5 millj. kr. og verða afhentar í sama ásigkomulagi og hinar fyrr- nefndu. Einnig eru til sölu í þessu húsi tvær 3ja herbergja íbúðir ásamt L risi og eru þær 141 ferm. að stærð • og er verð þeirra 9 millj. kr., en þær seljast einnig fullfrágengnar án gólfefna en risið er afhent til- búið til innréttinga. Sama máli gegnir um tvær 4ra herbergja íbúð- ir með risi, en þær eru 153 ferm. og kosta 9,5 millj. kr. Skammt frá húsi þessu verður ,, verslunarkjarni og verið er að byggja leikskóla, sem tekur til starfa í haust, en barnaskólinn í i hverfinu á að taka til starfa haust- * ið 1998.“ J

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.