Morgunblaðið - 12.04.1997, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1997
ftlorgumtilaiift
■ LAUGARDAGUR 12. APRÍL
BLAÐ
KORFUKNATTLEIKUR
GOLF
Leverkusen
eygir von
BAYER Leverkusen vann
Karlsruhe 3:1 i þýsku deildinni
í knattspyrnu í gærkvöldi og
heldur því enn í vonina um að
verða meistari. Liðið er nú í
öðru sæti deildarinnar, aðeins
tveimur stigum á eftir Bayern
Miinchen, sem leikur við Köln
í dag.
Ulf Kirsten, Hoilendingur-
inn Erik Meijer og Brasilíu-
maðurinn Paulo Sergio gerðu
mörkin fyrir Leverkusen sem
fór upp fyrir Dortmund sem
var í öðru sæti.
Önnur úrslit i þýsku deild-
inni í gærkvöldi voru að Arm-
ina Bielefeld gerði jafntefli,
1:1, á heimavelli við Hamborg.
Tiger Woods tók forystu
Tiger Woods hefur forystu eft-
ir fyrstu tvo keppnisdagana,
36 holur, á bandaríska meistara-
mótinu f golfi sem fram fer á
Augusta National-vellinum í Ge-
orgíu. Hann lék á 66 höggum í
gær og 70 höggum fyrsta daginn
og samtals 136 höggum, sem er
8 höggum undir pari vallarins.
Árangur Woods er athyglisverður
því hann er aðeins 21 árs og er
að taka þátt í mótinu í fyrsta
sinn sem atvinnumaður. Hann
gæti orðið yngsti sigurvegari
mótsins. „Ég var í mög góðu jafn-
vægi í dag. Það gekk sérstaklega
vel á par-5 brautunum,“ sagði
Woods sem er þekktur fyrir að
vera mjög högglangur.
Colin Montgomerie er í öðru
sæti, 139 höggum, eða fimm
undir pari og Costantine Rocca
þriðji á 140 höggum. Meistarinn
frá í fyrra, Nick Faldo frá Bret-
landi, lék á 81 höggi í gær og
er líklega úr leik í keppninni.
TVEIR frábærlr - Greg Nor-
man og Jack Nlcklaus. Nor-
man lék á 74 höggum I gær
en sá „gamli“ á 70 höggum.
Lokahóf KKÍ á Hótel íslandi í gærkvöldi
Guðbjörg og
Hermann best
KR-INGARNIR Guðbjörg Norð-
fjörð og Hermann Hauksson voru
útnefnd bestu leikmenn íslands-
mótsins í körfuknattleik kvenna
og karla í kjöri sem var lýst í
iokahófi Körfuknattleikssam-
bandssins á Hótel Islandi í gær-
kvöldi. Damon Johnson úr Kefla-
ísland
vann
Portúgal
ÍSLENSKA piltalandsliðið
sigraði Portúgal 58:52 á Evr-
ópumótinu f körfuknattleik í
Portúgal í gærkvöldi eftir að
hafa verið tf u stigum undir í
hálfleik 29:39. Sæmundur
Oddsson var stigahæstur f liði
íslands með 14 stig og tók auk
þess nfu fráköst. Onnur úrslit
f gær voru þau að Spánn vann
írland 88:71 og Pólland vann
Svíþjóð 81:78 eftir framlengd-
anleik.
íslendingar leika við Pól-
verja í dag og íra á morgun.
vík var valinn besti erlendi leik-
maðurinn í úrvalsdeildinni. _
Friðrik Stefánsson úr KFÍ á
ísafirði var valinn besti nýliðinn
í úrvalsdeildinni og Þórunn
Bjarnadóttir úr ÍR var kjörin efni-
legust i 1. deild kvenna. Alexand-
er Ermolinskij, ÍA, var útnefndur
þjálfari ársins í úrvalsdeildinni
og Antonio Vallejo, IR, besti þjálf-
ari 1. deildar kvenna. Torfi Magn-
ússon, Val, var kjörinn þjálfari
ársins í 1. deild karla. Besti ieik-
maður 1. deildar karla var valinn
Ragnar Þór Jónsson úr Val. Leif-
ur Garðarsson, Haukum, fékk
sæmdarheitið besti dómari lands-
ins. Efnilegasti körfuboltadómar-
inn er Sigmundur Herbertsson
úrNjarðvík.
í liði ársins, Nike-liði úrvals-
deildarinnar, eru eftirtaldir: Fal-
ur Harðarson og Albert Óskars-
son úr Keflavík, Helgi Jónas
Guðfinnsson, Grindavík, Alexand-
er Ermolinskjj, IA og Hermann
Hauksson, KR.
í liði ársins, Nike-liði 1. deildar
kvenna, eru eftirtaldar: Erla
Reynisdóttir, Birna Valgarðsdóttir
og Anna María Sveinsdóttir, allar
úr Keflavík, Alda Leif Jónsdóttir,
ÍS og Guðbjörg Norðfjörð, KR.
GUÐBJÖRG Norðfjörð, KR, er bestl lelkmaður
1. delldar kvenna.
HERMANN Hauksson, KR, er lelkmaður
árslns f úrvalsdeildlnnl.
FAGNA KA-MENN EÐA FÆR AFTURELDING EITT TÆKIFÆRIENN?/ C4