Morgunblaðið - 12.04.1997, Blaðsíða 4
HANDKNATTLEIKUR
Verður KA íslandsmeistari í dag eða tryggir Afturelding sérfimmta leik?
KA-menn hafa vind-
inn í seglin, en ...
Morgunbaðið/Kristján Kristjánsson
Að duga eða drepast
PÁLL Þórólfsson, leikmaður Aftureldingar, þungt hugsi fyrir leikinn í KA-heimllinu síðastliðið
miðvikudagskvöld. Páll og félagar hans verða að sigra í dag fyrir norðan til að eiga möguleika
á ísiandsmeistaratitllnum; tapi þeir taka KA-menn á móti Islandsbikarnum síðdegis í dag.
HEFÐ verður brotin í íslenskri
handboltasögu á Akureyri í
dag, sama hvernig fjórða viður-
eign KA og Aftureldingar í úr-
slitum íslandsmótsins í hand-
knattleik fer. KA hefur aldrei
orðið íslandsmeistari, en verð-
ur það með sigri, og Aftureld-
ing hefur aldrei sigrað Akur-
eyrarliðið fyrir norðan. Gerist
það í dag mætast liðin fimmta
sinn í Mosfellsbæ á þriðju-
dagskvöldið. Jóhann Ingi Gunn-
arsson, fyrrverandi landsliðs-
þjálfari, sem skrifað hefur
greinar um handknattleik fyrir
Morgunblaðið í vetur, hallast
heldur að því að KA-menn sigri
í dag þó hann taki skýrt fram
að ekkert sé öruggt og allt
geti enn gerst.
Jóhann Ingi sagði í gær að lengi
framan af vetri hefðu margir,
þar á meðal hann, verið ósáttir við
leik KA-manna, þrátt fyrir að þeir
hefðu allan tímann verið í einu af
þremur efstu sætum deildarinnar
eins og spáð hafði verið. „Liðið var
aldrei verulega sannfærandi en
segja má að Alfreð [Gíslasyni, þjálf-
ara KA] hafi tekist að vera með
liðið „uppi“ á réttum tíma. Hann
virðist reyndar vera farinn að kunna
þá list að láta liðið leika best þegar
mestu máli skiptir, því þetta er
þriðja árið í röð sem KA leikur til
úrslita og ég er á þeirri skoðun að
mörgum finnist að máltækið, Allt
er þá þrennt er, gæti átt við um
Alfreð og félaga,“ sagði Jóhann
Ingi í gær.
„Fyrsta árið sem KA lék til úr-
slita voru lukkudísirnar ekki á bandi
Akureyringanna, þegar Valsmenn
jöfnuðu þegar fjórar sekúndur voru
eftir af venjulegum leiktíma í
fimmta og síðasta leik í Valsheimil-
inu og tryggðu sér svo Islands-
meistaratitilinn í framlengingunni.
Ég er þess vegna á því að mörgum
finnist ekki ósanngjamt að tími sé
kominn til að KA verði íslands-
meistari, og miðað við frammistöðu
leikmanna liðsins í úrslitakeppninni
yrði það ekki ósanngjörn niður-
staða,“ sagði Jóhann Ingi.
„KA-menn hafa vindinn í seglin
og geta tryggt sér titilinn í leiknum
á morgun [í dag]. Margt bendir til
þess að svo fari því heimavöllur
þeirra er gríðarlega sterkur en Al-
freð sagði reyndar eftir þriðja leik-
inn í Mosfellsbæ á fimmtudags-
kvöldið að hann reiknaði með fimm
leikjum, hvort sem um er að ræða
herkænsku hjá foringjanum eða
raunsætt mat á íslenskum íþrótta-
mönnum. Þeir eru nefnilega þannig
að þegar sigurinn virðist blasa við
er oft sem menn gleymi sér eitt
augnablik og það getur reynst dýr-
keypt.
Mér sýnist að nokkrir leikmanna
KA séu að beijast fyrir tilveru sinni
hjá félaginu; séu að beijast fýrir
nýjum samningi. Þá á ég við Duran-
ona, Ziza og Guðmund markvörð
því allt annað er að sjá til þeirra í
úrslitakeppninni en fyrr í vetur. Það
hjálpar liðinu mikið og ekki má
gleyma að varnarleikur KA-manna
hefur verið öflugur og þeir hafa
unnið síðustu leiki á því. Flöt vörn
þeirra kostar mun minni kraft en
t.d. vörn Aftureldingar. Mosfelling-
ar hafa leikið vörn sína mjög fram-
arlega, þetta er skemmtileg vörn
og hún hefur gengið vel hjá þeim
í úrslitakeppninni, en er nú farin
að taka sinn toll, sem er reyndar
mjög eðlilegt. Hjá Aftureldingu
snýst málið um það nú hvemig
mótlætisþolið er hjá leikmönnum
liðsins; hvort þeir trúi því innst inni
að þeir geti sigrað á Akureyri sem
þeim hefur aldrei tekist. Það er
mjög mikilvægt hugarfarslegt
spursmál hvernig þeim tekst upp.
Auðvitað hefur lið Aftureldingar
alla burði til að vinna fyrir norðan,
það var mjög skammt frá því I fyrri
leiknum þar - leikurinn var lengi
í járnum og sigurinn hefði getað
lent hvorum megin sem var. Liðið
hefur staðið sig vel, er deildarmeist-
ari og í úrslitum en það er vitað
mál að í úrslitunum má ekki mis-
stíga sig og það gerðu leikmenn
Aftureldingar á fimmtudagskvöld-
ið. Sú staðreynd skiptir líka miklu
máli að nokkrir leikmenn liðsins eru
meiddir, Sigurður Sveinsson, Bjarki
Sigurðsson og Einar Gunnar Sig-
urðsson, jafnvel Gunnar Andrésson,
og _það háir liðinu.
Eg trúi ekki öðru en leikmenn
KA ætli sér að kveðja Alfreð á eftir-
minnilegan hátt og tel að flestir,
nema harðir stuðningsmenn Aftur-
eldingar, geti unað honum þess að
verða meistari, meðal annars fyrir
þann mikla viljastyrk sem hann
hefur sýnt að leika á öðrum fæti
og með annarri hendi (!) - það
kæmi hreinlega ekki á óvart þó
hann yrði með lepp fyrir öðru aug-
anu í næsta leik! Og þrátt fyrir það
myndi hann örugglega spila.“
Jóhann Ingi telur leikinn fyrir
norðan í dag verða mjög jafnan og
spennandi. „Allt getur enn gerst
enda hefur úrslitakeppnin boðið upp
á óvænta hluti og mikla spennu.
Hvað KA-menn snertir verður
frammistaðan í leiknum spurning
um það hvort þeir haldi hátíð um
helgina eða sitji heima og glápi á
sjónvarpið á laugardagskvöldið. Og
Afturelding ætlar sér að sjálfsögðu
að fá fimmta leik á sínum heima-
velli og tryggja sér íslandsmeistara-
titilinn þar, fyrir framan sína áhorf-
endur. En hvað sem þessum vanga-
veltum líður er ljóst að handknatt-
leiksunnendur geta hlakkað til.
Leikurinn á Akureyri ætti að geta
orðið frábær skemmtun."
Mm
FOLK
■ LEIKIRNIR í undanúrslitum
ensku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu fara fram á morgun.
Wimbledon og Chelsea eigast við
á Highbury og Middlesbrough og
Chesterfield á Old Trafford.
Knattspyrnustjórar liðanna eru frá
fjórum þjóðlöndum. Robson (Midd-
lesbrough) er Englendingur, Dunc-
an (Chesterfield) er íri, Kinnear
(Wimbledon) er Skoti og Gullit
(Chelsea) er Hollendingur.
■ CHELSEA hefur eytt 19,2 millj-
ónum punda til kaupa á ieikmönnum
meðan mótheijarnir í Wimbledon
hafa eytt aðeins 5,3 milljónum
punda. Wimbledon hefur aðeins
unnið einn leik af síðustu tíu og
Chelesea hefur tapað síðustu þrem-
ur leikjum sínum.
■ ALBERTO Tomba, skíðakappi
frá Ítalíu, lýsti því yfir í gær að
hann ætlaði sér að keppa á Olymp-
íuleikunum í Nagano í Japan á
næsta ári. Tomba, sem er þrítugur,
hafði í hyggju leggja skíðin á hilluna
eftir nýlokið keppnistímabil sem var
honum ekki gæfuríkt. Hann átti í
þrálátum meiðslum og veiktist loks-
ins þegar hann var að ná sér að
meiðslunum.
■ MATTHIAS Sammer, þýski
landsliðsmaðurinn snjalli í knatt-
spyrnu, var í banni í vikunni þegar
Dortmund mætti Manchester Un-
ited í Evrópukeppninni í vikunni, en
verður væntanlega með í seinni
leiknum. Hann skoraði á móti Rúss-
landi og Króatíu á Old Trafford
(heimaveli United) á Evrópumóti
landsliða í sumar og Andy Möller
gerði slíkt hið sama á móti Tékk-
landi. Hins vegar meiddist Jiirgen
Kohler í síðast nefnda leiknum og
lék ekki meira í EM.
■ ROY Keane leikur ekki með
United í seinni leiknum vegna leik-
banns og var Alex Ferguson, stjórí
liðsins, allt annað en ánægður með
ákvörðun dómarans, sem bókaði fr-
ann í Dortmund.
■ FERGUSON sagði að heppnin
hefði fylgt Dortmund og ef til vill
yrði heppnin með United annan
miðvikudag en víst væri að andrúms-
loftið á Old Trafford kæmi til með
að hjálpa heimamönnum sem spiluðu
örugglega betur en á miðvikudaginn.
„Við eigum enn góða möguleika á
að komast í úrslit. Við vitum að
Peter Schmeichel verður með í síð-
ari leiknum og eins David May,“
sagði Ferguson.
■ ÍTALSKIR karlmenn eru þekktir
fyrir að vera nánir mæðrum sínum
og Maurizio Ganz, miðhetji Inter,
sem gerði tvö mörk í 3:1 sigri á
Mónakó í Evrópukeppni félagsliða
í vikubyijun, er engin undantekning.
■ GANZ tileinkaði móður sinni
mörkin í viðtali við ítalska sjónvarps-
stöð en mamman sá ekki leikinn.
Miðheijanum var sagt að viðtalið
yrði sýnt eftir miðnætti og sætti
hann sig ekki við það vegna þess
að þá væri móðirin farin að sofa.
Hann bað því um að viðtalið yrði
sýnt fyrr svo helsti áhangandinn
gæti séð það og varð sjónvarpsstöð-
in við óskinni.
■ LOU Macari, knattspyrnustjóri
Stoke, hefur verið ákærður af enska
knattspyrnusambandinu fyrir að
ganga inn á völlinn og mótmæla við
dómarann Graham Frankland þeg-
ar Lárus Orri Sigurðsson var rek-
inn út af í leik Stoke og Bradford
annan dag páska. Chris Kamara,
stjóri Bradford, og aðstoðarmaður
hans Paul Jewell fengu svipaða
ákæru fyrir mótmæli eftir leik liðsins
á móti Portsmouth tveimur dögum
áður.
■ MARK Hughes, framheiji
Chelsea, hefur verið meiddur og
ekki víst að hann geti leikið með liði
sínu á móti Wimbledon í undan-
úrslitum ensku bikarkeppninnar á
morgun.
Morgunblaðið/Golli
RÓBERT Julian Duranona og Guðmundur Arnar Jónsson eru
í lykllhlutverkum í liði KA. Þeir hafa lelkið mun betur í úrslita-
keppninni en fyrr í vetur, að mati Jóhanns Inga Gunnarsson-
ar, og hann segir það skipta miklu máli fyrir Akureyrarliðið.